Helgarpósturinn - 23.04.1997, Síða 12
12
MtÐVlKUDAGUR 23. APRÍL1997
V
Ný fyrirtækj amenrang
person
Ef nefna ætti eina útgáfu þar
sem rjómann af amerískri
intelligensíu er að finna þá
væri það New York Book
Review. Greinarnar í blaðinu,
sem kemur út á þriggja vikna
fresti, eru einatt afburðavel
skrifaðar og höfundum gefið
rúmt dálkapláss til að fjalla um
viðfangsefni sín.
í tölublaðinu frá 10. apríl
skrifar Roger E. Alcaly um
þróun í atvinnulífi í Bandaríkj-
unum, sem fáir gefa gaum. Sið-
asta áratuginn eða svo hafa
orðið breytingar í samspili eig-
enda, stjórnenda og starfs-
manna fyrirtækja og gefa þær
hugboð um það hvert efna-
hagslífið stefnir. Enn sem kom-
ið er segir fátt af þessu ferli í
fréttum fjölmiðla. Þar hefur
meira borið á harkalegum að-
gerðum stórfyrirtækja til að
skera niður kostnað með
fjöldauppsögnum og þeim
skuggalegu aflefðingum að
Páll Vilhjálmsson
kaup forstjóranna hækkar gíf-
urlega með því að kaup þeirra
er tengt hlutabréfagengi fyrir-
tækjanna.
AÍcaly rekur dæmi um árang-
ursrík fyrirtæki að stórum
hluta í eigu starfsmanna. Flug-
félagið United Airlines var
komið í rekstrarvandræði árið
1994 þegar starfsmenn sam-
þykktu að kaupa meirihluta í
Íélaginu. Flugvirkjar, flugmenn
og annað starfsfólk, fyrir utan
flugfreyjur sem vildu ekki eiga
aðild að kaupunum, samþykkti
15 prósenta kjaraskerðingu
gegn 55 prósenta hlutafjár-
eign. Starfsmenn tilnefndu
stjórnendur og innleiddir voru
nýir stjórnunarhættir, sem
fólu m.a. í sér dreifingu
ábyrgðar og áherslu á endur-
menntun. Afkoma United er
betri á síðustu þremur árum
en annarra flugfélaga og vitnar
Alcaly í viðskiptarit eins og
Business Week, sem segir sam-
vinnu
starfsfólks og yfirmanna Unit-
ed hafa verið óhugsandi fyrir
nokkrum árum. Nefnd eru
dæmi um hagræðingu, t.a.m.
er rafmagn núna notað í stað
þotueldsneytis þegar flugvél-
arnar eru í lausagangi við
brottfararhlið, sem er afleiðing
af nánari samstarfi starfsstétt-
anna innan fyrirtækisins.
Starfsfólk United eignaðist
meirihluta hlutafjár sam-
kvæmt lagaramma Employee
Stock Ownership Plan (ESOP)
er gerir starfsmönnum kleift
að kaupa hluti í fyrirtæki með
veði í lífeyrissparnaði. ESOP-
lagaheimildin hefur verið í
smíðum í þrjátíu ár og smátt
og smátt tekið á sig núverandi
mynd. Hún nýtur stuðnings
þingmanna er telja hana jafna
tekjudreifingu og draga úr
stéttskiptingu.
Alcaly segir það eitt og sér
ekki nóg að starfsmenn eigi
hlut í fyrirtæki. Starfsþjálfun,
samskipti við yfirmenn og at-
Flea úr Red Hot Chili Peppers hefur komið
fram í nærri tuttugu kvikmyndum, sú nýjasta
þeirra er mynd Coen- bræðra „The big Le-
browski“, kvikmynduð fyrir skemmstu í LA.
Bassistinn birtist þar í hlutverki þýsks niður-
rifsseggs. Annars staðar eru Axl Rose og Slash
saman í „Underground“- grínmynd. Á meðan er
gamli tölvupopparinn Gary Numan að leika
dópsala sem er fyrrv. „víkingasveitarmaður“.
Um er að ræða fjögurra milljóna punda breska
kvikmynd, „The Kinsman", sem frumsýnd verð-
ur á næsta ári.
Kukl hét hljómsveit sem fæddist í útvarps-
þættinum Áföngum í Ríkisútvarpinu stuttu
fyrir tilkomu Rásar2. Þetta var nokkrum miss-
erum eftir Rokk íReykjavík. „Súperhljómsveit"
varð til, samkrull úr böndum sem blómstrað
höfðu á þessu tímabili íslenskrar tónlistarsögu;
Þeysurum, Tappa tíkarrassi og Purrki pillnikk.
Sugarcubes (Sykurmolar) tóku svo við af Kukl-
inu eftir lífdaga þess og í framhaldi af því vel-
gengni Bjarkar sem einherja. Tvær breiðskífur
Kuklsins, „The Eye“ og „Holidays in Europe“,
eru nú fáanlegar á geislaplötum. Crass Records
gefa gripina út.
Daft Punk verða á Glastonbury-, Phoenix- og
„T in the park“-tónlistarhátíðunum. Fyrstu
tónleikar Frakkanna verða annars á Tribal Gat-
hering 24. maí. Önnur smáskífan af „Homew-
ork“, frumburðarplötunni, er singullinn „Aro-
und the world“ sem kom út 14.
apríl. B-hliðin geymir remix af
laginu frá öðru frönsku bandi,
Motorbass, og endurhljóð-
blöndun „Teachers" sem er
sömuleiðis á „Homework“.
Mark Lanegan, söngvari
Screaming Trees, var hand-
tekinn af San Francisco-lögregl-
unni snemma morguns 27. mars
sl. Sást til hans afhenda Robert
Miles (ekkert tengdur „Dream-
house“-stjörnunni) 20$ seðil og
fá í staðinn litla glæra plastdós.
Tvíeykið var handtekið og pakk-
inn gerður upptækur ásamt
sprautu og glærri glerpípu sem
Miles hafði í fórum sínum.
Söngvarinn var látinn laus síðar
þennan sama dag, í tíma til að
syngja á tónleikum í borginni,
þeim síðustu í tíu daga túr Scre-
aming Trees um vesturfylki
Bandaríkjanna. Réttað var í mál-
inu 2. apríl en fallið frá
ákæru sökum þess að ekkert ólöglegt
fannst í hylkinu. Útgáfa Trjánna, Epic,
vill ekki tjá sig um atvikið. Upptökur á
eftirfara „Dust“ eru að hefjast. Trymbill-
inn, Barett Martin, er annars upptekinn
af „risabandinu" Tuatara með þeim Pet-
er Buck, gítarleikara úr REM, og Mike
McCready, gítarista Pearl Jam. Sú
hljómsveit er í startholunum með
sinn fyrsta Ameríkutúr.
Placebo náðu fjórða sæti breska
smáskífulistans með „Nancy
boy“. Var sveitin því í „Top of
the pops“ með listamönn-
um eins og Gabrielle og
Depeche Mode. Brian
Molko fannst út í hött
að lag þeirra færi á
topp 5. Það væri
gróft, klúrt og ætti
alls ekki að vera
svona vinsælt. Hér
heima á Fróni fór lag-
ið nýtt 122. sæti list-
ans. Á eftir fremur hversdagslegu rokkári sem
bauð upp á Oasis, Bijálaða götupredikara og
Kula Shaker kemur fram á sjónarsviðið þessi
Molko. Hún er ýmist nefnd í karl- eða kvenkyni,
reykir gras og hefur játað að hafa sprautað sig
með krakkkókaíni. Hún fæddist í Belgíu árið
1975, bjó í Líbanon,
Líberíu og Lúxemborg.
Þrettán ára var hún
s*end í amerískan einka-
skóla. Þar hitti hún
hinn helming Placebo,
Stefan Olsdal, sem var
í körfuboltaliði skólans
og átti fullt af Depeche
Mode-plötum. Fyrir
tveimur árum hittust
þau aftur og fóru að
vinna saman að tónlist,
kölluðu sig í byrjun
Ashtray Heart í höfuð-
ið á lagi Captain Beef-
heart. Gengu síðan til
samninga við Hut Rec-
ords og gáfu út frum-
burðinn „Placebo" í
júní sl. Þriðji meðlimur-
inn, Steve Hewitt,
bættist við fyrir
skömmu. Hann hefur
starfað með Boo Rad-
vinnuöryggi eru ekki síður
mikilvæg atriði.
Bílaframleiðandinn General
Motors (GM) reyndi í sam-
starfi við Toyota að hrinda í
framkvæmd nýrri fyrirtækja-
menningu í verksmiðju sinni í
Fremont í Kaliforníu. Verk-
smiðjan hafði verið ein sú
versta í GM-samsteypunni
m.t.t. framleiðni og afkasta (20
prósent veikindaforföll). Henni
var lokað 1982 en tveimur ár-
um síðar opnuð á ný undir öðr-
um formerkjum. Starfsmenn
voru ráðnir í samvinnu við
verkalýðsfélagið sem jafnframt
fékk umsagnarrétt um fjárfest-
ingar verksmiðjunnar og
launaflokkar urðu tveir í stað
fimmtíu. Loforð voru gefin um
að ef draga þyrfti úr fram-
leiðslukostnaði vrðu laun yfir-
manna lækkuð abur en gripið
yrði til uppsagna.
Verksmiðjan í Fremont er
orðin einn af ásunum í GM-
samsteypunni með hærri fram-
leiðni og jákvæðari starfsanda
en almennt þekkist.
Þrátt fyrir góðan árang-
ur er töluverð and-
staða gegn eign-
arhaldi starfs-
manna á fyrir-
tækjum og
kemur hún
ekki síst frá for-
stjóraveldinu,
sem telur sér
ógnað. Alcaly
telur að ríkis- '/1
valdið verði að
beita áhrifum
sínum til að
þróunin haldi
áfram, enda í
húfi almanna-
hagsmunir.
Veruleikann
skynjum við að
stórum hlufa
með því að
hlusta á sögur.
Maður getur öðl-
ast skilning á af-
N
leys, Breed, Sharkboy og K-
Klass. Molko sprautar sig ekki
lengur, er ekki heimsk og veit
fullvel hvernig stíf neysla
getur farið með hljómsveit-
ir. Það gleður hana að fá
aðdáendabréf á borð við:
„Þegar ég hlusta á plöt-
una ykkar, þá minnkar
löngun mín til að fremja
sjálfsmorð..."
Rick Witter,
sc
söngvari Shed
Seven, stormaði af
m sviði á tónleik-
um í Glasgow
l.apríleftir
að hafa ein-
K ungis sung-
K ið jjrjú lög.
■ Í Ástæðan
■ f var
M I skyndileg-
■ 1 ur radd-
missir.
Þeir félagarnir voru þarna sem forrétttur fyrir
Beautiful South. 14. apríl kom út „Stuffed",
myndband í fullri lengd sem inniheldur ýmsar
svipmyndir af bandinu, bæði baksviðs og á tón-
leikum. Raddleysi Witters varð sem betur fer
ekki langvinnt, bandið hitar upp fyrir Aero-
smith í Newcastle 8. maí, Manchester 10., Birm-
ingham 31., Glasgow 2. júní og á Wembley-leik-
vanginum í London 4.
Cherys Matthews, söngkona hljómsveitarinn-
ar Catatonia, hefur tilkynnt að næsta smá-
skífa verði „Mulder and Scully“. Titillinn sé ein-
ungis til bráðabrigða, lagið sé héldur ekki beint
um höfuðpersónur „X-files“ eða Ráðgátna.
Cherys segist vera aðdáandi einstakra þátta;
sumir séu góðir en aðrir bara rusl. Singullinn
kemur út hjá Blanco y negro 12. maí, nokkrum
dögum eftir að bandið lýkur tíu tónleika ferða-
lagi um staði eins og Hull, Liverpool, New-
castle, Cardiff, Portsmouth, og Norwich frá 13.
apríl-24. apríl. í fórum sínum eiga þau mörg ný
og óútgefin lög sem þau vilja prufukeyra fyrir
áheyrendur. Catatonia er annars nýkomin úr
vel heppnaðri Ameríkuferð. Þetta var fyrsti túr-
inn þangað, borgirnar New York, Texas og LA
voru heimsóttar.
Arnold er eitt af nýjustu nöfnunum sem gert
hafa samning við Creation Records. Fyrstd
afurð þessa Lundúnabands verður mini-albúm-
ið „The Barn Tapes" 5. maí. Því er lýst sem átta
söngvum fullum af sársauka, lísreynslu, ást og
missi! Það verður bæði fáanlegt á geisla og vín-
il. Upptökur á plötu í fullri lengd hófust nýlega
og dagsetningar fyrir fyrstu tónleikaferð á
landsvísu verða opinberaðar í nálægri framtíð.
Foo Fighters hafa fundið nýjan trommara í
stað Williams Goldsmith sem hætti snögg-
lega fyrr á árinu. Taylor Hawkins heitir maður-
inn og þreytir frumraun sína í Cambridge 19.
maí, Wolverhampton 20., Nottingham 21., Le-
eds 22., Glasgow 24., Manchester 25., Sout-
hampton 26. og í London 28. + 29. maí. Nýja
breiðskífan kemur út hjá Capitol 12. maí, „The
color & the shape“.
Gus Gus voru „Pick of the week“ í Melody Ma-
ker 12. apríl undir fyrirsögnini „íspoppið".
New Musical Express gefur albúminu „Polydi-
stortion“ einkunnina 8 og mánaðartímaritin Q
og Select gefa því fjóra af fimm mögulegum
punktum. Breiðskífan inniheldur báðar undan-
farandi smáskífur Gus Gus, „Believe" og „Poly-
esterday“.
Kenickie er stúlknahljómsveit og frumburð-
urinn, „At the Club“, kemur út hjá EMIdisc
5. maí. Síðasta mánudag, 21. apríl, kom út sin-
gullinn „Nightlife“. Lauren Laveme úr bandinu
segir lagið undir sterkum áhrifum frá Brian
Connolly (Sweet). Það varð til sama dag og Bri-
an yfirgaf þessa jarðvist. Önnur lög plötunnar
eru t.d.; „In your car“, „Spies“, „Brother John“,
„Millionzive Sweeper“, „Robert song“, „Punka“,
„Come out Z nite“ og „Acetone". Kenickie verða
á tónleikum til að fylgja eftir útgáfu debútsins; í
Birmingham 9. maí, Leeds 10., Oxford 15., Wol-
verhampton 21. og Manchester 22. Síðan á Es-
sential-tónlistarhátíðinni í Brighton 25. maí
Skunk Anansie eru að líta í kringum sig með
útgáfusamninga. Þau hafa verið hjá One little
Indian og reyndar framlengt samning sinn þar
tímabundið. Gríðarlegar vinsældir albúmsins
„Stoosh" um víða veröld eru orsökin fyrir þess-
um þreifingum. Bossinn hjá OLI, Derek Birkett,
segir sérhvert útgáfufyrirtæki í heiminum vera
á höttunum eftir Skunk Anansie. Mjög líklegt sé
að sveitin verði á meðal aðalnafnanna í tónlist-
arheiminum næstu tíu árin. Derek vill helst af
öllu starfa áfram með bandinu og ætlar að gera
sitt til að reyna að yfirbjóða þá sem falast eftir
þeim. Hvað sem annars verður þá verða a.m.k.
þrjár útgáfur hjá One little Indian á þessu ári
með Skunk Anansie, t.d. kemur út fimmti sing-
ullinn af „Stoosh". Verið er að skoða útgáfu á