Helgarpósturinn - 23.04.1997, Page 15

Helgarpósturinn - 23.04.1997, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1997 15 fhí. Kormákur Bragason skrifar Fiðlarinn á þakinu í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 18. apríl Höfundan J. Stein, J. Bock og S. Hamick. Þýðing: Þórarinn Hjartarson. Leikstjóri: Kol- brún Halldórsdóttir. Hljóðstjóm: Sveinn Kjartansson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Dans- höfundur: Auður Bjamadóttir. Leikmynd og búningan Sigurjón Jóhannsson. Útsetning tónlistar og hljómsveitarstjóm: Jóhann G. Jó- hannsson. Leikarar: Jóhann Sigurðarson, Edda Heiðrún Backman, Sigrún Edda Bjöms- dóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Álfrún Helga Ömólfsdóttir, Aníta Bríem, Bergur Þór Ingólfsson, Valur Freyr Einarsson, Jóhann G. Jóhannsson, Am- ar Jónsson, Magnús Ragnarsson, Sigurður Sigurjónsson, Stefán Jónsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Sveinn Þór Geirsson, Hany Ha- daya, Margrét Guðmundsdóttir, Anna Krístín Amgrímsdóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir, Ólaf- ía Hrönn Jónsdóttir, Ragnheiður Steindórs- dóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Öm Ámason, Hjálmar Sverrisson og Gylfi Þ. Gíslason Söngleikir virðast ganga vel í landsmenn, enda hefur hver söngleikurinn — hvert kassastykkið — rekið annan undanfarin ár fyrir fullu húsi. Nú er uppselt á „Fiðlarann“ langt fram í tímann og verður vafalaust út leikárið. Þjóðleik- húsið þarf tæplega að óttast „flopp“-stimpilinn á þessa sýn- ingu. Hún er bæði heilsteypt, litrík og skemmtileg auk þess að vera afar vel mönnuð önd- vegis söngvurum og hljóðfæra- ieikurum. í uppfærslu Kol- brúnar Halldórsdóttur eru léttleikinn og Iífsgleðin í fyrir- rúmi og skuggar hörmulegra örlaga þúsunda gyðinga fá aldrei að teygja sig of langt inn á sviðið. Hjúskaparmál Tevje- dætra eru okkur og Tevje sjálf- um alltént meira áhyggjuefni en lítt ógnvekjandi rússneskir valdníðingar í lögreglubúning- um. Engu að síður eru það um- brotatímar í rússnesku þjóðfé- lagi og gyðingaofsóknir sem eru undiraldan í verkinu og birtist ekki síst í því hvernig viðteknar siðvenjur og hefðir verða stöðugt að víkja í áður- nefndum hjúskaparmálum. Þar hefur ástin ávallt sigur að hætti Ameríkumanna, enda er söngleikurinn skrifaður með ameríska áhorfendur í huga. Sá svarti húmor sem gjarnan þróast meðal undirokaðra þjóðfélagshópa og einkennir þær jiddísku bókmenntir sem söngleikurinn byggist á er þó til staðar og ofinn í textann, en beinist þó fremur að gyðingun- um sjálfum en valdhöfunum þó svo að keisarinn fái nokkrar léttar glósur. Kolbrún hefur, í samvinnu við Siguijón Jóhannsson leik- mynda- og búningahönnuð, valið að ganga í smiðju meist- ara Chagalls hvað varðar ytri umgerð sýningarinnar og er það vel við hæfi. Chagall teikn- aði sjálfur búninga fyrir leik- verk Sholems Aleichem, þess er skrifaði sögurnar um mjólk- urpóstinn Tevje. En þótt leik- myndin sé bæði falleg og litrík er hún kannski veikasti hlekk- ur sýningarinnar. Bæði er hún fremur þröng og flöt og virkaði heftandi á hreyfanleika leikar- anna (þeir voru allt of oft upp- teknir við flutning á leikmun- um), samtímis sem hún var óvirk í sýningunni. Betur tekst til með lýsingu Páls Ragnars- sonar, sem er afar vel unnin, og búningar Sigurjóns eru skemmtilegir og gefa ieikurun- um ýmsa tjáningarmöguleika samtímis sem þeir undirstrika vel einkenni hverrar persónu fyrir sig. Per- sónurnar eru hins veg- ar flestar frá hendi höf- undar dregnar léttum strikum. Allar eru skýrt tengdar atvinnu sinni og fremur fulltrú- ar atvinnu- eða iðn- greina en sjálfra sín. Tevje sjálfur er þó teiknaður með breið- ari penna og fjölbreyti- legri, enda burðarás sýningarinnar ásamt konu sinni Goldu. Þau eru afbragðsvel leikin og enn betur sungin af Jóhanni Sigurðarsyni og Eddu Heiðrúnu Backman. Leikarahóp- urinn í heild á heiður skilinn fyrir hvort tveggja leik og söng og danshöfundurinn Auð- ur Bjamadóttir hefur skilað góðu verki. Hljómsveitin, undir stjórn Jóhanns G. Jó- hannssonar, leikur óaðfinnanlega og hefði að ósekju mátt verða virkari hluti af þorps- búum. Hver tilgangur- inn er með því að birta hana að tjaldabaki eins og álfa í álfasteini er mér hulið, en það truflar þó ekki sýning- una á neinn hátt. Hljóðið var þar að auki virkilega vel blandað og auðsjáanlegir hljóð- nemarnir trufluðu aug- að ekki svo nokkru næmi. Stóru hópatrið- in eru besti hluti sýn- ingarinnar og „draumasenan“ og brúðkaupið sitja eftir á nethimnunni þegar frá líður. Þessi atriði minna um margt á sjónarspil Kusturicas úr kvikmyndinni „Und- erground", sem sýnd var í Háskólabíói fyrir skömmu, og falla vel að hinni „chagallísku“ umgerð. Verkið sjálft á sér tæplega nokkurt upp- haf eða endi og vísar í sjálfu sér bæði til fyrri tíma og framtíðar í sögu gyðinga. Það sem umfram allt annað ein- kennir verkið er hið óbilandi æðruleysi þeirra, von og trú, á hverju sem bjátar og við erum skilin eftir með þá tilfinningu að þrátt fyrir allt sé til- gangur hjá guði með öllu saman þó svo að Tevje finnist nóg um þær skráveifur sem hann upphugsar hon- um til handa. Það var augljóst á föstudaginn að áhorf- endur skemmtu sér af- bragðsvel og var leik- urunum og aðstand- endum sýningarinnar fagnað innilega að leikslokum. w • • I FYRSTA SKIPTI I SOGUNNI: PMrl/Adt/RJNN v&ZX/l&S'* Ufctur leifeur Lottó er einfaldur leikur sem allir geta spilað. Þú ferð bara á næsta sölustað og kaupir lottómiða. Þar færðu líka allar nánari upplýsingar um leikinn. Hægt er að kaupa miða með mörgum röðum og velja sjálf(ur) 5 töluríbverri röð með þvíað merkja þær inn á seðilinn með lóðréttum strikum en einnig er bægt að láta tölvuna velja tölur fyrir sig. Það nefnist sjálfval og befur oft gefið góða raun. Röðin kostar 50 krónur. ATH. Til að forðast biðraðir ó sölustöðum er fólki ráðlagt að tryggja sér miða sem fyrst. Sölu lýkur kl. 20.20 á laugardaginn.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.