Alþýðublaðið - 16.07.1974, Qupperneq 16
alþýðu
II ™
Bókhaldsadstoó mcó tékka- KOPAVOGS APÓTEK
færslum Opið öll kvöld til kl. 7
(Æ\ BÚNAÐAR- Laugardaga til kl. 2
|\/y BANKINN Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SENDIBIL ASTOÐIN Hf
Minkagreni í húsagaröi á Húsavík:
Drap mink með skóflu og fór
strax til að rukka sýslumann
Síðla dags i gær kom maður nokkur inn á lög-
reglustöðina á Húsavik og vildi fá greiðslu fyrir
minkaskott. í poka var hann með dauðan mink,
sem var illa saxaður, og sagðist maðurinn hafa
drepið kvikindið með skóflu heima við húslóðina
sina. Lögreglan visaði honum á bæjar-
skrifstofurnar.
bar með voru unnir 3 af þeim
5minkum,sem Húsvikingar sáu
spóka sig i glaðasólskini og
logni á stiflubrú yfir Búðará,
sem rennur i gegnum plássið.
Var það á milli kl. 10 og 11 i gær-
morgun. Skömmu siðar fannst
greni i garöi hússins númer 10
við Asgarðsveg (Framnes)
og hafði þá þar verið heil fjöl-
skylda, læða með fjóra hvolpa
sina. Ingimundur Jónsson, sem
fæddur er I húsinu, vann þar i
morgun á læðunni og sagði
fréttamanni blaðsins i gær, að
hann teldi sig og hafa sært einn
hvolpanna. Er það þriðja dýrið,
sem unnið hefur verið.
begar komst mikill hugur i
Húsvikinga og sagöi Björn Hall-
dórsson, yfirlögregluþjónn á
Húsavikaðþar væri „allt komiö
á annan endann” og ekki talað
um annað i plássinu. Lögreglan
á staðnum hefur aðeins yfir
skammhleypum að ráða og þvi
var fenginn maður — Ingimund-
ur Jónsson — með haglabyssu.
Lyktaöi aðför hans að minkun-
um sem áður segir. .
Ingimundur sagöist hafa grun
um að grenið væri mjög nýlegt,
þvi endur væru á ánni og hefðu
þar enginn sjáanleg afföll oröið.
bá væri og hænsnabú i nágrenn-
inu og þar heföi heldur einskis
orðið vart. Aftur á móti er tölu-
vert um silungstitti I Búðará og
taldi Ingimundur öruggt, að
minkamamma og ungar hennar
hefðu fyrst og fremst lifað á
fiskmeti.
Björn Halldórsson sagðist
einnig hafa fengiö fréttir um, að
upp við Botnsvatn, sem er all
langt frá bænum og Búðará
kemur úr, heföi sést minkar og
sagðist hann halda að þar við
stifluna væri greni.
Hafi minkarnir komið úr þvi
greni, eins og Björn sagðist
halda, þá tókst kaupstaðarferð
þeirra ekki betur en svo, að
mennirnir tóku þeim illa, skutu
einn eða tvo i sundur með hagla-
byssu, hjuggu annan i tætlur
með spaða og elta þá f jölsk'yldu-
meölimi, sem eftir lifa, um
hálfa sýsluna.
— Minkabaninn hér um slóðir,
sagði Ingimundur Jónsson að
lokum, — kemur hér I bæinn I
kvöld (gærkvöldi) og klárar
þetta liklega.
Við þetta hús á Húsavfk fannst minkagrenið f gærmorgun. Grenið er f bakkanum, þar sem girðingin
gengur niður i Búðará og i þessu húsi er fæddur og uppaiinn Ingimundur Jónsson, sem skaut læðuna og
særði einn ungann.
fimm á förnum vegi
Saknar þú sjónvarpsins?
N
Rúnar Björnsson, skrifstofu-
maður: Ekki get ég sagt það,
enda horfi ég fremur litið á sjón-
varp, þótt ég eigi það, og ég tel
mig siður en svo háðan þvi.
Jennf Lind Aradóttir, húsmóðir:
Já, ég sakna þess mikið, enda
horfi ég mikiö á það og hlakka til
þegar það byrjar aftur. Annars
hef ég horft mikiö á ameriska
sjónvarpið nú I friinu hjá þvi Is-
lenska.
Hilmar Heiðdal, bflstjóri:Nei alls
ekki, enda horfi ég ekki mikið á
það. bað koma kaflar, sem
maður horfir mikið, og svo kafl-
ar, sem maður horfir þess minna.
Dóra S. Jónsdóttir, húsmóðir: Ég
sakna þess alls ekki og horfi litið
á það þegar þaö er I gangi, og ég
hlakka hreint ekki til þess þegar
það byrjar aftur.
borgeir Guðmundsson, verk-
fræöingur: Nei, ég sakna þess
ekki, enda er ég svo litiö heima á
kvöldin, þar sem ég er oftast að
vinna þá, að ég hef ekki tækifæri
til að horfa á það og sakna þess
þvi ekki. baö er kannske annaö
mál með frúna.
/