Alþýðublaðið - 23.01.1976, Blaðsíða 2
SKEMMTANIR — SKEMMTANÍR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur meö sjáifsafgrei&slu opin alla
daga. •
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL BORG
viö Austurvöll. Resturation, bar og dans i Gyllta
salnum.
Simi 11440.
HÓTEL SAGA
Grilliö opiö alla daga. Mimisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miðvikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opiö á hverju kvöldi. Simi 23333.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
P Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis við Endurhæfinga-
deild, Grensásdeild Borgarspitalans er
laus til umsóknar.
Laun skv. kjarasamningi Læknafélags
Reykjavikur við Reykjavikurborg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám
og fyrri störf skulu sendar yfirlækni deild-
arinnar, Grensásvegi 62, fyrir 15. febrúar
n.k.
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn.
Reykjavik, 20. janúar 1976.
Stjórn sjúkrastofnana Reykjavikur-
borgar.
Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis heila- og tauga-
skurðlækna á Skurðlækningadeild Borg-
arspitalans er laus til umsóknar. Laun
samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
Reykjavikur við Reykjavikurborg.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám
og fyrri störf skulu sendar yfirlækni deild-
arinnar fyrir 15. febrúar n.k. Frekari upp-
lýsingar veitir yfirlæknirinn.
Reykjavik, 20. janúar 1976.
Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborg-
ar.
t
Þökkum innilega samúö viö fráfall og jaröarför móöur
okkar, tengdamóöur,
Jóhönnu Magnúsdóttur,
Núpum, Ölfusi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
alþýðu
nrwiTm
••
R0DD
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
Hvað ætlar Geir að gera?
Á fundi rikisstjórnar Islands, sem
haldinn var á hádegi i gær, var sam-
þykkt að taka boði brezku rikis-
stjórnarinnar um, að Geir Hall-
grimsson fari til fundar við hana i
London. Ekkert hefur verið látið
uppi um hvaða vegarnesti Geir
Hallgrimsson mun fara með þegar
hann heldur utan. Islenzka þjóðin
hefur ekki hugmynd um, hver er til-
gangurinn með utanferð Geirs Hall-
grimssonar. Af fyrri reynslu af sliku
ferðalagi óttast menn þó, að tilgang-
urinn sé sá að gera samninga við
Breta, sem heimili þeim veiðar á Is-
landsmiðum. Hins vegar veit eng-
inn, hvað rikisstjórn Islands hyggst
fyrir i þeim málum — hvort hún hafi
samþykkt að gera Bretum eitthvert
tilboð og ef svo er, þá hvað. Menn
eru þvi talsvert uggandi um
Lundúnaferð Geirs Hallgrimssonar
þvi tregða rikisstjórnarinnar til
þess annað hvort að játa þvi eða
neita, að tilgangur fararinnar sé sá
að semja bendir til þess, að annað
hvort sé rikisstjórnin ekki búin að
gera upp hug sinn til málsins — sem
er i hæsta máta varhugavert — eða
,þá að hún vill ekkert láta fréttast af
ráðagerðum sinum fyrr en allt er
orðið klappað og klárt — sem er enn
varhugaverðara fyrir málstað ís-
lands i landhelgismálinu.
SjáKsagt af okkur að ræða málin
Eins og komið hefur fram i frétt-
um leitaði rikisstjórnin álits utan-
rikismálanefndar Alþingis og land-
helgisnefndar um, hvort taka ætti
tilboði brezku stjórnarinnar um við-
ræður, áður en rikisstjórnin tók end-
anlega ákvörðun i málinu. Fulltrúar
allra flokka i þessum tveimur
nefndum að fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins undanteknum voru
sammála um, að Islendingar ættu
ekki að hafna boðinu.
Benedikt Gröndal, formaður Al-
þýðuflokksins, sat þennan fund og
gerir grein fyrir afstöðu Alþýðu-
flokksins i viðtali við Alþýðublaðið i
dag. Þar minnir Benedikt Gröndal
m.a. á, að Alþýðuflokkurinn hafi
tekið afstöðu á móti landhelgis-
samningunum við Vestur-Þjóðverja
á grundvelli þeirra upplýsinga, sem
fyrir lágu um ástand fiskistofna við
landið.
— Þessi meginafstaða okkar
varðandi samninga við aðrar þjóðir
hefur ekkert breytzt, segir Benedikt
Gröndal i viðtali við Alþýðublaðið.
Eins og Benedikt Gröndal bendir
á i þessu viðtali hefur sú hins vegar
ávallt verið afstaða Alþýðuflokks-
ins, að íslendingar eigi að ræða
landhelgismálið við allar þær þjóð-
ir, semþess óska. Sérhvert tækifæri
eigi að nota til þess að koma rök-
semdum okkar og staðföstum ásetn-
ingi á framfæri hvort heldur við
þjóðir, sem vilja styðja okkur eða
þjóðir, sem eru okkur andstæðar.
Ekkert slikt tækifæri má láta ónotað
og ef við eigum að vinna áróðurs-
striðið þá megum við ekki fá and-
stæðingum okkar þaú vopn i hend-
urnar að þeir geti sagt, að Islend-
ingar hafi hafnað boði um að ræðast
við.
Bretar hafa nú dregið herskip sin
út úr islenzkri fiskveiðilögsögu og
beðið forsætisráðh. íslands um að
koma til viðræðna við þá i London.
Báðar þessar ákvarðanir hafa vakið
alheimsathygli. Ef við neituðum nú
beiðni Breta um að tala við þá gæti
það spillt áliti okkar erlendis og við
höfum siður en svo ástæðu til þess
að fá Bretum slikt áróðursvopn i
hendur. Einmitt þess vegna telur
Alþýðuflokkurinn rétt, að við tökum
boði Breta um viðræður, en leggur
áherzlu á, eins og Benedikt Gröndal
tók fram á fundinum með fulltrúum
rikisstjórnarinnar, að þær viðræður
eiga af okkar hálfu eingöngu að vera
könnunarviðræður — þ.e.a.s. að
skiptast á upplýsingum við Breta,
itreka við þá röksemdir okkar og
staðfestu i málinu og reyna að hlera,
hvort þeir hafi eitthvað nýtt til mál-
anna að leggja. Á grundvelli þeirrar
niðurstöðu eigum við svo að taka
ákvarðanir um framhald málsins,
en það gefur að sjálfsögðu auga leið,
að þær röksemdir, sem færðar voru
gegn samningunum við Vestur-
Þjóðverja i haust, eru enn i fullu
gildi. Á þetta leggur Alþýðublaðið
áherzlu jafnframt þvi sem það er
þeirrar skoðunar, að það sé óhyggi-
legt fyrir okkur að neita beiðnum
annarra þjóða um viðræður um
landhelgismálið.
Haf narf jörður —olíustyrkur
Greiösla oliustyrks fyrir timabiliö sept.—nóv. ’75 fer fram á bæjarskrifstofunum,
Strandgötu 6. Styrkurinn greiöist þeim framteljendum til skatts, sem búiö hafa viö olfu-
upphitun ofangreint timabil.
Styrkur þessi greiöist ekki til þeirra sem áttu þess kost aö tengja fbúöir sinar viö hita-
veitu fyrir lok núvembermánaöar 1975, sbr. 2. gr. 1. nr. 6/1975.
Framvísa þarf persónuskilrikjum til aö fá styrkinn greiddan.
Greiöslum veröur hagaö þannig:
Til framteljenda hverra nafn byrjar á:
A—F mánudaginn 26. janúar kl. 10—12 og 13—16.
G—J þriöjudaginn 27. janúar kl. 10—12 og 13—16.
K—R. miövikudaginn 28. janúar kl. 10—12 og 13—16.
S—ö fimmtudaginn 29. janúar kl. 10—12 og 13—16.
Bæjarritarinn i Hafnarfirði.
^ Alþýðublaðið
Föstudagur 23. janúar 1976.