Alþýðublaðið - 23.01.1976, Síða 4
TRESMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Munið hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurð-
um og gluggum.
*
Ekki er ráð nema i
tíma sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Verzlanir og iðnaðarmenn, sem ekki
hafa framvisað reikningum á rikis-
spitalana vegna viðskipta á árinu
1975, eru hér með áminntir um að
gera það sem fyrst, eða ekki seinna
en 31. janúar n.k.
Reykjavik, 22. janúar 1976.
SKRIFSTOFA
RIKISSPÍTALANN A
EIRÍKSGÖTU 5, SlM111765
RitstjórnAlþýðublaðsiriserí j
Síðumúla 11 - Sími 81866 í
Alþýðublaðið
FUNDUR JAFNAÐAR-
MANNALEIÐTOGANNA FÓR
FRAM í RÓ OG KYRRÐ
Þrir jafnaðarmannaleiðtogar koma til fundarins. Fremst Mitter-
and, formaður franska jafnaðarmannaflokksins, og Anker
Jörgensen, formaður danska jafnaðarmannaflokksins. Fyrir aft-
an þá Mario Soares, formaður portúgalska jafnaðarmannaflokks-
ins og Einar Hovgard Christiansen, framkvæmdastjóri danska
jafnaðarmannaflokksins, sem sá um allan undirbúning ráðstefn-
unnar.
Andófsmaður fór ráðstefnuvillt
Um það bil 70 fulltrú-
ar og 500-600 aðrir —
starfsmenn, öryggis-
verðir og blaðamenn —
voru á ráðstefnu
jafnaðarmannaleið-
toga frá 18 Evrópu-
löndum, sem haldin
var um s.l. helgi i
Helsingör i Danmörku,
en Gylfi Þ. Gislason sat
fundinn fyrir Alþýðu-
flokkinn, eins og fram
hefur komið i fréttum.
Það var forsætisráð-
herra Dana, Anker
Jörgensen, sem bauð
til fundarins og skrif-
stofa danska jafnaðar-
mannaflokksins undir
forystu framkvæmda-
stjórans, Hovgard
Christiansen, sem sá
um allan undirbúning.
Ráöstefnan fór mjög vel fram
og ekkert óvænt gerðist. Óttast
var, að tilraun kynni að vera
gerð af einhverjum öfgahópum,
til þess að reyna að ráða þátt-
takendur af dögum, en engin
slik tilraun var gerð, enda mjög
strangar öryggisráðstafanir
gerðar. Aðeins einn óvæntur at-
burður varð. Maður einn, sem
talaði sænsku, ruddist inn i ráð-
stefnusalinn siðdegis á mánu-
dag og hrópaði:
— bið morðingjar. Þið gerið
ekkert til þess að reyna að
stöðva eiturlyfjasölu i Evrópu.
Maðurinn vissi ekki inn á
hvaða ráðstefnu honum hafði
tekizt að lauma sér. t viðtölum
við öryggisverði og biaðamenn
á eftir sagðist hann hafa haldið,
að þetta væri ráðstefna um að-
gerðir til þess að stemma stigu
við sölu eiturlyfja i Evrópu og
var undrunin uppmáluð, þegar
honum var tjáð, að þarna hefðu
leiðtogar jafnaðarmannaflokka
18 Evrópulanda verið að funda.
Föstudagur 23. janúar 1976.