Alþýðublaðið - 23.01.1976, Síða 6
Margar konur eiga í stríði við húð og
erfiðleikum. í þessari grein eru
1. Liflaust hár
Nú er háriö á mér oröið þurrt
oglíflaust. Þaðer raunar ekkert
skritiö, þvi ég hef lýst það i
mörg ár. Hvað get ég gert til að
það verði aftur heilbrigt og
glansandi? Ég hef skolleitt hát
frá náttúrunnar hendi.
Svar:
Eyðilagt hár getur aldrei orð-
ið heilbrigt og glansandi aftur.
Þú verður að sýna þolinmæði
þar til nýtt hár er vaxið, nema
þú viljir stytta þér leið og klippa
hárið mjög stutt. Þá verður þú
að láta hárið vaxa svolitið efst
og klippa afganginn af. Ef þú
hefur andlit sem hæfir mjög
stuttu hári, er liklega engin á-
stæða til að hika!
Annars geturðu lika látið lita
eyðilagða hárið á hárgreiðslu-
stofu i hinum eðlilega háralit
þinum (ekki nýja hárið), og sið-
an klippt það smám saman eftir
þvi, sem hárið vex.
Þriðja lausnin er að fá ljósar
rendur i nývaxna hárið þannig
að litaskiptin séu ekki eins áber-
andi. Og þannig er hægt að
halda áfram með rendurnar,
þangað til þér finnst hárið vera
orðið nógu sitt til að eyðilagða
hárið megi fara.
Allt þurrt hár — lika þitt hár
— á að þvo úr oliusjampói og
skola með volgu vatni, sem
gjarna má bæta út i einum
pilsner. Reyndu lika að nudda
olivuoliu i hárið áður en þú
þværð það og sittu svo i hálítima
með plasthettu og prjónahúfu
yfir höfðinu, svo hitinn verði
nægilegur. Ef maður hefur
þurrt hár, borgar sig lika að
forðast permanent, sem þurrk-
ar hárið enn meira.
Creme Rinse er mjög gott fyr-
ir þurrt hár. Makaðu þvi um
allt hárið eftir að þú hefur skol-
að það með volga vatninu og
skolið lauslega einu sinni enn.
Hárið verður mýkra og með-
færilegra.
2. Feit húð og hár.
Ég hef mjög feita húð og jafn
feitt hár. Þessvegna virðist ég
alltaf. vera subbuleg og ósnyrt,
en það kæri ég mig auðvitað
ekki um. Hvað á ég að gera?
Svar:
Feit húð og hár stafar af of-
framleiðslu fitukirtlanna, en þvi
valda hormónar, sem verða
m.a. til i nýrnahettunum.
Streita geturlika valdið þvi, þvi
streita eykur starfsemi fitu-
kirtlanna. Með öðrum orðum
sagt: feit húð og hár er mjög al-
geng hjá önnum köfnum og
taugaveikluðum manneskjum.
Reyndu að þvo andlitið með
soðnu vatni og þurri sápu (t.d.
Clerasil eða Rexona) og notaðu
aðeins krem og snyrtivörur,
sem eru sérstaklega gerðar fyr-
ir feita húð.
Hárið geturðu þvegið eins oft
og þér sýnist. Það er alveg ó-
hætt, og sú staðreynd að manni
liður betur ef hárið er hreint og
vel hirt, er góð lækning i sjálfu
sér. Aðsjálfsögðu áttu aðeins að
nota sjampó fyrir feitt hár, t.d.
frá Elida eða Innoxa. Þú getur
lika reynt fljótandi sápu, sem
fæsti apótekum og er mikið not-
uð á sjúkrahúsum. Notaðu létt-
ar hreyfingar þegar þú þværð
þér um hárið. Það er engin á-
stæða til að nudda og núa af öll-
um kröftum, þvi það ertir kirtl-
ana enn meir. Það er lika óþarft
að þvo hárið tvisvar, ef það er
þvegið oft. Reyndu lika að skola
hárið úr volgu vatni sem ediki
hefur verið bætt út i. Gott og
gamalt húsráð við feitu hári er
að nudda sitrónusafa inn i hárið
og iáta hann sitja i þvi i 5-10
minútur áður en hárið er þveg-
ið.
Róttækt ráð við feitu hári er
að fá ljósar rákir i það, eða láta
setja i sig permanent, þvi hvort
tveggja þurrkar hárið.
Margar konur hafa lika losn-
að við feitt hár og feita húð með
öðrum ráðum. Þærhafa farið að
nota Pilluna eða orðið ófriskar.
Þá er það kvenhormóninn
östrogen, sem hefur áhrif á húð
og hár.
3. Sólskin — hrukkur
Er það rétt, að sólskin og
reykingar auki hrukkur? Og
hvers vegna verður maður
hrukkóttur?
Svar.
Það er rétt, að sólskin hefur á-
hrif á hrukkumyndun húðarinn-
ar. Greinileg sönnun um það, er
fólk, sem vinnur i sveit og er úti
frá morgni til kvölds. Einnig
hefur þvi verið haldið fram að
reykingar auki hrukkur. og i
Kaliforniu var gerð rannsókn,
sem virðist sanhna þá staðhæf-
ingu. Hérá landi hefur málið þó
ekki verið kannað.
Alla vega fáum við hrukkur,
og getum ekkert gert til að
koma i veg fyrir það, og ekkert
til að losna við þær, þegar þær
eru komnar. Sumir telja þó, að
andlitsnudd geti hjálpað
Hrukkur koma i ljós, þegar húð-
in hefur misstteygjanleika sinn,
og vatnsinnihald hennar minnk-
ar eftir þvi sem aldurinn færist
yfir mann. Þá verður húðin
slappari, og fellingar (þ.e.a.s
hrukkur) hljóta að myndast.
Hrukkur fær maður lika eftir
strangan megrunarkúr, þegar
húðin er ekki lengur eins teygð
og áður. Og svo eru það að sjálf-
sögðu þessar venjulegu vana-
hrukkur, sem við fáum ef við
hrukkum ennið, brosum eða
þess háttar.
4. Þurr húð.
Húð min er svo þurr, að hún
flagnar bæði á enni og kinnum.
Þegar ég er búin að þvo mér á
morgnana, er húðin svo strekkt,
að ég get varla brosað. Hvað get
ég gert við þessu?
Svar:
Húðin verður þurrari með
aldrinum, þar sem vatnsinni-
hald hennar minnkar. Húð þín
þarfnast einfaldlega raka, og
þess vegna skaltu bera mikið
rakakrem á hana kvölds og
morgna, og gjarna einu sinni
aukalega um daginn. t apótek-
inu fæst ágætis rakakrem, sem
heitir Carbamid og er frá
Cosmea, og auk þess er til gott
krem sem heitir Calmuril og er
frá Farmaccia lyfjaverksmiðj-
unni.
Allir snyrtivörufrámleiðend-
ur framleiða lika rakakrem! Þú
áttekki að þerra vatnið alveg af
likama eða andliti með hand-
klæðinu, þegar þú þværð þér,
heldur láta það þorna inn i húð-
iná.
5. Hárlos
Ég er með mikið hárlos og
hárið dettur af mér i stórum
flygsum. Ég er vitanlega gráti
næst. Hvað á ég að gera?
Svar:
Þú átt fyrst og fremst að fara
til læknis, helzt sérfræðings til
að ganga úr skugga um, hvort
hér er um alvarlegan sjúkdóm
að ræða eða eitthvað meinlaust,
sem getur valdið sliku hárlosi.
Hárlos getur nefnilega orsak-
ast af ótrúlega mörgu s.s.
flensu, lungnabólgu, sýílis,
skemmdum tönnum, streitu,
sorg eða áhyggjum. Hárlos get-
ur einnig orðið mikið eftir
barnsburð.
Fjölmargir, sem þjást af hár-
losi, álita, að um sjúkdóm sé að
ræða, en oft kemur i ljós, að það
er mjög eðlilegt. Hárið lifir ekki
nema i takmarkaðan tima og
dettur svo úr, og venjulega veit-
ir enginn þvi eftirtekt, þar sem
alltaf vex hár til viðbótar. Samt
getur það komið fyrir að mörg
hár losni i einu, og þá litur málið
illa út, þó það skipti raunar litlu
máli.
6. Hennalitun
Það er sagt, að hennalitur sé
hollur fyrir hárið. Er það rétt?
Svar:
Henna er örvandi fyrir hárið,
en tæplega hollt. Um henna er
nefnilega það sama að segja og
aðra hárliti, að liturinn virðist
mynda himnu utan um hvert
hár, svo það virðist þykkara en
það er i raun og veru. Einnig
verður hárið gjarnan mýkra og
meira glansandi.
7. Eyðileggja
rafmagnsrúllur hárið?
Ég hef lengi notað rafmagns-
rúllur og finnst hárið verða lif-
lausara eftir þvi, sem ég nota
þær lengur. Valda rúllurnar
sliti?
Svar:
Ef rafmagnsrúllur eru notað-
ar daglega i mörg ár slitnar
hárið óumflýjanlega. Sérstak-
lega hættir siðu hári til að verða
stökktog klofna. Þvi valda e.t.v.
hinir löngu pinnar, sem eiga að
halda rúllunum. Rafmagnsrúll-
ur eru stórsnjallar ef mikið ligg-
ur við, en vart jafn-góðar til
langvarandi notkunar. Þó bætir
úr skák að væta enda hársins
með hárlagningarvökva og
setja pappirsþurrku um hverja
rúllu. Þá er hárið öruggara.
Ef þú hefur efni á þvi, skaltu
kaupa þér hárblásara (eða setja
hann efst á óskalistann). Hár-
blásarinn er til i mörgum útgáf-
um, og það besta sem hægt er að
fá til hársnyrtingar. Hárið slitn-
ar ekki og verður gljáandi og
fallegt, það lifir og hreyfist! /
Holl ráð fyrir þær, sem nota
blásara:
Hafið hringbursta og nokkrar
spennur við hendina. Næliðýtra
hárið allt upp á höfuðið og
burstið það neðra með burstan-
um og blásið, þar til það er
þurrt. Leysið hárið siðan niður
og þurrkið það smám saman
með blásaranum, yzta hárið
siðast.
8. Hárlitun.
Skaðar það hárið að lita það?
Svar:
Þegar um litun og permanent
eraðræða,erekkibeinthægt að
segja, að það sé skaðlegt fyrir
hárið. Hins vegar er það ekki
gott heldur. Hvort tveggja
„rænir” þetta hárið, en nú á
dögum er svo margt fáanlegt
sem byggir hárið upp aftur.
Hægt er að fá sérstök hármeðöl
fyrirhár, sem beðiðhefur skaða
við litanir, lýsingar eða perma-
nent. Ef maður hefur mjög viö-
kvæma húð geta bæði litanir og
permanent haft slæm áhrif á
húðina, og þvi ætti maður að
forðast hvort tveggja.
Ef maður hefur kosið annan
lit en þann, sem maður er fædd-
ur með, þarf reyndar ekki að
lita allt hárið i hvert skipti sem
farið er á hárgreiðslustofu. Það
er nægilegt að lita aðeins hárið
niðri við hársvörðinn, og lita
hinn hluta hársins aðeins með
„froðuskolun”. Þannig er litur-
inn aðeins lifgðaður upp, og
þetta fer ekki eins illa með hárið
og raunveruleg litun.
JV Alþýðublaðið
Föstudagur 23. janúar 1976.