Alþýðublaðið - 23.01.1976, Side 9
Björgvin Hólm, kerfisfræðingur:
(SLAND A SINN
EIGIN PÝRAMÍDA
Pýramidar hafa leikið stórt
hlutverk i mannkynssögunni.
Þeir finnast út um allar jarðir.
Þeir finnast i Kina, þeir finnast i
Ameriku, og þeir finnast i Af-
riku. Frægastur allra pýramida
er hinn svokallaði Keopspýra-
midi, sem stendur ásamt nokkr-
um öðrum pýramidum á svæði
þvi, sem nefnist Giza i Egypta-
landi. Inni ihonum eru áletranir
i helgirúnum, sem segja, að
byggingarmeistarinn hafi heiti
KHÚFU. Um þennan pýramida
stendur töluverður styr meðal
áhugamanna á fornum fræðum.
Sumir segja, að hann hafi að-
eins verið byggður til þess að
þjóna sem grafhýsi fyrir ein-
hvern Faraó Egypta, en aðrir
halda þvi fram, að hann hafi
verið byggður samkvæmt
ákveðnu KERFI.sem sé i sam-
ræmi við spádóma Bibliunnar.
Keopspýramidinn er enn i dag
langmesta mannvirki, sem
mannkynið hefur nokkurn tima
tekið sér fyrir hendur. Að efnis-
magni er hann mörgum tugum
sinnum meiri, heldur en viða-
mestu nútimabyggingarnar, og
hann er ávallt nefndur íyrst,
þegar talað er um hin sjö undur
veraldar.
Það var á mælingum i Keops-
pýramidanum, sem Adam
Rutherford og félagar hans
ásamt Jónasi Guðmundssyni,
byggðu visindi sin og spádóma.
t honum fundu þeir mörg
merkilegustu ártölin i mann-
kynssögunni eins og til dæmis
krossfestingu Krists, árið 33. En
Pýramidinn sjálfur er álitinn
vera byggður i kring um árið
2623 fyrir Krists burð. Ég mun
fjalla nánar um Keopspýramid-
an i seinni grein. þvi hér ætia ég
að kynna litinn pýramida, sem
ég hef fundið með rannsóknum
minum hérna uppi á tsiandi.
Við rannsóknir minar á Land-
námu og Flókasteini. sem er
gamall rúnasteinn, staðsettur á
Hvaleyrinni við Hafnarfjörð,
beindist athygli min að Naut-
hólsvikinni á mótum Skerja-
fjarðar og Fossvogs. Ég fór og
rannsakaði svæðið, og þá fann
2. GREIN
Pýramidarnir í Giza í
Egyptalandi.
Litli pýramidinn viö
Nauthólinn myndaður úr
þrem sjónarhornum.
ég hluti, sem gerðu mig stein-
hissa. Þar eru tilhöggin björg á
svo merkilegan hátt, að það er
hreinasta furða, að sérhver ts-
lendingur skuli ekki vita af þvi.
Og inni i miðri jötunsteina-
þyrpingunni blasti við mér
merkilegasta trúartákn mann-
kynsins: sjálfur pýramidinn.
Hann er ekki stór — aðeins 4
fet á hverja hlið — en þetta er
pýramidi, um það er engum
bíööum að fletta, settur þarna af
sömu mönnum, sem rituðu
Landnámu og hjuggu út Flóka-
stein. Nafnið Ari, sem meðal
annarra atriða tengir forn-
menningu tslendinga við
Egypta, hefur i Nauthólsvikinni
skilið eftir spor i steinum, þvi
samkvæmt leiðbeiningum i
Landnámu fann ég þá.
Hvemig ég las þessar leið-
beiningar, verð ég að útskýra
seinna, þegar ég hefi kynnt svo-
litið betur hugmyndir minar i
sambandi viðeðli goðatrúarinn-
ar, en það mun ég gera i seinni
greinum.
Fræðimenn nútimans þekkja
nú orðið nokkuð vel það fyrir-
bæri, sem nefnt hefur verið:
..jötunsteinamenningin”, og er
safn af tilhöggnum björgum —
sannkölluðum Grettistökum —
sem finnast eftir allri strand-
lengju Evrópu, allt frá botni
Miðjarðarhafsins til Bretlands,
en aldrei hefur hún verið orðuð
við tsland. En þarna er hún. t
Nauthólsvikinni. Inni á sjálfu
Revkiavikursvæðinu.
Ög upp að litla pýramidanum
á tslandi liggur hinn frægi bogi,
sem sögur segja, að einu sinni
hafi tilheyrt Keopspýramidan-
um i Giza. Þetta er steinn, sem
hallastupp að litla pýramidan-
um, og hliðin sem snýr að Pýra-
midanum, er eins og bogi i lag-
inu, eða eins og táknið dje: D.
Gegnt litla pýramidanum er
stór tilhöggvinn steinn, ca 7 tonn
að þyngd, sem reistur er upp á
rönd, og hann er tilhöggvinn i
fallegan sexhyrning, eins og
meðfylgjandi myndir sýna.
Það eru fleiri steinar i NAUT-
HÖLNUM, er valdir hafa verið
eftir lögun sinni eða tilhöggnir,
og þeim er raðað niður eftir
ákveðnu kerfi, sem ég hef glimt
við. Þarna ersteinn, sem er eins
og hús i lögun, og þarna er
steinn, sem á að tákna brynju.
Þvf miður hef ég ekki haft tima
til þess að vinna rækilega úr þvi,
en það er svo sannarlega verð-
ugt verkefni fyrir hvaða íslend-
ing sem er, og örugglega miklu
árangursrikara, heldur en að
grafa einhvers staðar niður i
jörðina að leita að fornminjum.
Þarna eru fornminjar uppi á yf-
irborðinu, sem enginn hefur
hingað til gefið gaum að.
Er eitthvað sérstakt við litinn
pýramida, sem hefur 4 fet að
grunnlinu? Flatarmál grunn-
flatarins er þá 16 fet, og mæling-
ar minar á litla pýramidanum
sýna að lengd hornalinanna frá
toppi pýramidans út i hornin sé
3 og 1/2 fet. Þegar hæð pýra-
midans er reiknuð út sam-
kvæmt þessum tölum kemur út
talan 2,86, sem strax minnir á
hina svokölluðu skekkjutölu,
sem spilar stórt hlutverk i bygg-
ingarkerfi Keopspýramidans,
en eitt af þvi merkilegasta, sem
komið hefur i ljós i sambandi
við hann, er það, að hann er
byggður samkvæmt þekkingu á
nútima Pi-inu, sem er 3,14159.
Lengi notuðu menn hlutfallið
22/7 i útreikningum sinum með
pi-inu. en það gefur töluna
3.14286 þar sem talan 286 er frá-
vikið og skekkjan miðað við töl-
una 3,14159.
Það þarf ekki mikið hug-
myndaflug til þess að tengja
pýramidana við hugtakið pi,
sérstaklega fyrir Islendinga,
þvi sjálft orðið pýramid eða
pýramið gefur tilefni til þess.
Eftir islenzkum málfræðiregl-
um má skipta þvi i samsett orð:
Pýra-mið, þar sem fyrra orðið
er stofninn pi ásamt islenzku
endingunni RA, en siðara orðið
stofninn Mið-ja. Og svo sannar-
lega leikur pý-ið miðjuhlutverk-
ið i visindum nútimans.
Með þvi að beina athygli
manna að litla pýramidanum og
öðrum steinum i Nauthólsvik-
inni, hljóta að skapast ný sjón-
armið um uppruna Islendinga.
Sérstaklega vegna þess, að jöt-
unsteinamenningin hefur hing-
að til ekki verið orðuð við land-
ið. Islenzkir þjóðfræðingar
verða að gera sér þetta ljóst
sem allra fyrst. Það geta legið
fiskarundirsteini annars staðar
en i Grindavik. Ef til vill eru
stærstu fiskarnir i Nauthólnum.
(Næsta grein: Pýramidarnir
og táknið A).
Velheppnuð ráðstefna um sjávarútvegsmál
VID ERUM KOMNIR
MEÐ OF STÖRAN
FISKISKIPAFLOTA
Ráðstefna sú, sem haldin var á
miðvikudaginn og fjallaði um
þróun sjávarútvegs, virðist hafa
tekist með afbrigðum vel. Að
loknum ræðum framsögumanna
var ráðstefnunni skipt upp i
starfshópa, sem unnu fram eftir
degi. Ráðstefnunni lauk siðan
með skýrslum starfshópanna og
frjálsum umræðum.
Ekki voru gerðar neinar
samþykktir eða ályktanir, enda
ekki til þess ætlast. Tilgangur
ráðstefnunnar var aftur á móti
sá, að kynna ýmsar nýjar hug-
myndir i málefnum sjávarút-
vegsins og gefa ýmsum þeim, er
um þessi mál fjalla, tækifæri til
að ræða og hugleiða eitt og annað,
er þeim lá á hjarta.
Alþýðublaðið hafði samband
við nokkra af ráðstefnugestum og
var augljóst að þeir voru yfirleitt
mjög ánægðir með allan undir-
búning og skipulag ráðstefnunn-
ar. Er enginn vafi á þvi, að marg-
ar þær hugmyndir sem þarna
komu fram, eiga eftir að gefa
mönnum dágott umhugsunarefni
næstu vikur og mánuði.
A ráðstefnunni kom fram sú
skoðun að við Islendingar værum
með of stóran fiskiskipaflota og
væri þvi nauðsynlegt að koma i
veg fyrir að hann stækkaði meira
en orðið væri. Ýmsar hugmyndir
voru settar fram, varðandi fækk-
un skipa og þar á meðal að aðeins
helmingur fiskiskipanna yrði við
veiðar samtimis. Bent var á að
breytingar á styrkjakerfinu gætu
orðið til þess að auðvelda eðlilega
fækkun fiskiskipa, sem mundi
verða til þess að afli einstakra
skipa yrði meiri og afkoma sjó-
manna og útgerðarinnar eftir þvi.
Lögð var mikil áherzla á hvers-
konar fiskveiðirannsóknir, bæði
varðandi þá fiskstofna sem nú
væru nýttir og einnig aðrar fisk-
tegundir, sem litt eða ekkert væru
veiddar hér við land. Þá var mik-
ið fjallað um könnun fiskimiða og
hægræðingu við sókn á hin ýmsu
mið, bæði að þvi er varðaði veiði-
magn, fjölda og stærð skipa,
tegundir veiðarfæra og veiðitima.
Þá var einnig mikið rætt um
nýtingu aflans og skipulag
veiðanna frá hagræðissjónarmiði
og bent á að ekki væru allar
(veiði-) ferðir til fjár. Þetta mætti
bæta með auknum rannsóknum
og fjárveitingum til rannsóknar-
starfa.
fréttir.....fréftir.....fréttir.....fréttir......fréttir.....fréttir....
EINMUNAGÓÐ FÆRÐ
Á VEGUM í S-ÞING.
Færð á vegum i S-Þingeyjar- góð i vetur, að sögn fréttaritara aka yfir Vaðlaheiði á Venjulegum
sýslu hefur verið með eindæmum okkar þar. i fyrra var hægt að fólksbilum fram undir jól, en
___________ áðrið 1974 varð heiðin ófær strax i
Æ
UMHVERFISRANNSOKNIR
ÁPOLLINUM VIÐ AKUREYRI
Nú fer fram rannsókn á meng-
un i Pollinum við Akureyri, og er
innan skamms að vænta niður-
stöðu gagnasöfnunar, um þau efni
sem berast i' Pollinn, frá fyrir-
tækjum og verksmiðjum.
Sigurður V. Hallsson, efnaverk-
fræðingur, hefur annazt gagna-
söfnunina fyrir hönd Náttúru-
gripasafnsins á Akureyri og er
hún hluti af viðamikilli rannsókn
á lifriki Pollsins og umhverfis
hans.
Að sögn Sigurðar, hefur Akur-
eyringum tekist að vernda
náttúruna samfara þvi að stór-
felld uppbygging iðnaðar hefur
átt sér stað. Vissulega þurfa
óæskileg efni að fara frá fyrir-
tækjum, en kanna þarf hver þau
eru og i hvaða magni þau berast i
Pollinn, til þess að hægt sé að
draga úr magni þeirra efna, sem
hættulegusteru. Aðsögn Sigurðar
hefur hann ekki fundið neinn
sérstakan sökudólg.
óktóber.
Þegar heiðin er ófær verður að
fara leiðina um Dalsmynni, og
inn Svalbarðsströndina til Akur-
eyrar. A þessari leið er mikil
snjóflóðahætta og er þess
skemmst að minnast, að um það
leyti sem snjóflóðin féllu i Nes-
kaupstað, á Siglufirði og víðar, þá
féll snjóflóð á veginn um I)als-
mynni. Snjóflóðið, sem var um
þriggja km langt, lokaði
veginum i þrjár vikur.
Að sögn fréttaritarans, fer nú
að styttast i að Þorrablót veröi
haidin og færist nú óðum hugur I
menn þar eystra.
Sögulegur
samningur
Beðið
svara í
samninga-
málum
„Segja má, að úr samninga-
málum sé mest litið að frétta”,
sagði Ólafur Hannibalsson, skrif-
stofustjóri A.S.Í. i samtali við
blaðið. „Sáttafundur, sem nú skal
halda með hinni nýskipuðu sátta-
nefnd, verður trúlega fyrst og
fremst til þess, að setja nefndar-
menn inn i málin. Bæði A.S.í. og
vinnuveitendur biða nú eðlilega
eftir undirtektum rikisstjórnar-
innar undir tillögurnar, sem
henni voru sendar. Margar þeirra
eru þess eðlis, að til þess að þær
nái fram að ganga, þarf laga- eða
reglugerðarbreytingar. Um þann
þátt eru báðir aðilar yfirleitt
sammála. Ennþá er ekki að fullu
reynt, hvort fleira getur orðið
sameiginlegt i niðurstöðum um
leiðir. Vel mætti svo fara. En það
er alger forsenda, að svör berist
um málaleitanirnar, af hendi
stjórnvalda, til þess að
samningamálin fari að ganga eða
reka, eða taki þá aðra stefnu, ef
svörin verða neikvæð.”
Næsta sögulegur samningur
var undirritaður i S-Þingeyjar-
sýslu þann 10. þessa mánaðar.
Þessi samningur tekur fullt tillit
til starfsreynslu húsmóður, og er
starfsreynsla hennar metin jöfn
að áraf jölda og hún hefur varið til
húsmóðurstarfa. Ekki er undir-
rituðum kunnugt að nokkur annar
kjarasamningur sem felur þessa
réttarbót i sér hafi verið gerður
fyrr hér á landi né i öðrum nær-
liggjandi löndum.
Þessi samningur er málalok
verkfalls þess i mötuneytum
skóla i Suður-Þingeyjarsýslu,
sem getið var um i blaðinu á sin-
um tima, en það hófst frá og með
5. jan sl.
Sveitarstjórnir þær, sem hlut
áttu að máli annars vegar og
Verkalýðsfélag Húsavikur fyrir
hönd starfsfólks mötuneytanna
hins vegar undirrituðu þennan
sögulega samning.
Þau atriði, sem mestu máli
skipta, fyrir utan ofannefnt, og
samningurinn kveður á um eru
þessi: Greitt verður fullt vaktaá-
lag fyrir vinnu, sem fellur utan
venjulegs vinnutima, en slikt var
ekki gert fyrr. Starfsreynslu sem
við launaútreikning telst vera eitt
ár, öðlast starfsfólkið á 8 til 9
mánuðum, háð hve skóli er starf-
ræktur lengi á hverjum stað ár
hvert. Áður var starfsreynsla að
engu höfð og byrjandi hafði sömu
laun og þeir sem höfðu unniö
þessistörf árum saman. Orlof er
verðtryggt þannig, að það greið-
ist samkvæmt gildandi kaupi sið-
asta mánuðinn fyrir þann tima,
að það er greitt út.
Laun starfsfólksins verða hér
eftir sem hér segir: Á fyrsta
starfsári greiðast 53.718 krónur i
föst laun, en eftir eitt ár eða
meira greiðast 56.509 kr. i föst
laun á mánuði.
Þetta eru að visu engin banka-
stjóralaun, að mati fólks þar
eystra, en þetta er mikil breyting,
þviað til þess tima að samningur-
inn var gerður, var ekki um neinn
kjarasamning þessa starfshóps
að ræða.
Gengið frá fyrirframsölu á
Verksmiöjan þarf að borga 166
þúsund á dag fyrir rafmagnið!
frystri loðnu
Sjávarafurðadeild Sambands
islenskra samvinnufélaga hefur
gengið frá fyrirframsölu á allri
toðnu, sem unnt verður að frysta i
Sambandsfrystihúsunum á þeirri
vertið, sem nú fer i hönd. Er
áætlað, að magnið geti orðið
a.m.k. 2000 tonn, en kaupendur
hafa skuldbundið sig til þess að
taka við hverju þvi viðbótar-
magni, sem framleitt kann að
verða.
Kaupandi er japanska fyrir-
tækið Mitsui & Co. Ltd. og voru
samningar undirritaðir i Tokyo
16. janúar s.l. Fyrir hönd
Sambandsins önnuðust
samningsgerðina þeir Sigurður
Markússon, framkvæmdastjóri
Sjávarafurðadeildar, ög Árni
Benediktsson, framkvæmdastjóri
Kirkjusands h.f.
Samið var nú um nokkru hærra
verð en það sem gilti á vertið
1975. Þá fengust og fram nokkrar
breytingar á gæðakröfum og
vörulýsingu, sem ætla má að leitt
geti til aukinnar framleiðslu. Svo
sem kunnugt er var mjög litið
fryst af loðnu fyrir Japans-
markað á vertið 1975 og var
ástæðan m.a. þær ströngu gæða-
kröfur, sem kaupendur þá gerðu,
t.d. að þvi er varðar stærð loðn-
unnar og leyfilegt átumagn.
Eins og kunnugt er seldum við
Islendingar mjög litið magn af
loðnu til Japans á siðasta ári m.a.
vegna þess að framleiðsla ársins
1974 reyndist ekki uppfylla þær
gæðakröfur sem kaupandinn setti
fyrir samningum, og talið er að
ekki verði birgðir af islenzkri
loðnu uppseldar fyrr en fyrsta
loðnan sem fryst verður á þessari
vertið er komin á markað þar
eystra.
Það skal tekið fram að ekki er
veriðaðgefa i skyn að Sambandið
sé svartasti sauðurinn i þ^ssu
efni.
Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni hf.í Reykja-
vík er gert að borga hvorki
meira né minna en 166 þús-
und krónur á dag i afl-og
orkugjald til Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Það
var unnið í 2 verksmiðjum
fyrirtækisins í 42 daga á
siðasta ári og fyrir raf-
magnsnotkun verksmiðj-
anna árið 1975 var krafist
7—8 milljón króna í raf-
magnsgjöld.
Þessar upplýsingar fékk Al-
þýðublaðið frá Jónasi Jónssyni
framkvæmdastjóra Sildar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar. Hann
sagði ennfremur: Okkur finnst
þetta ofboðsleg fjárhæð og fórum
þess vegna fram á eftirgjöf,
þannig að gjaldið yrði sann
gjarnt, en ekki eins óstjórnlega
hátt og reikningurinn frá Raf-
magnsveitunni fyrir ársraf-
magnsnotkun okkar fyrir árið
1975.”
Við spurðum Jónas hvað lægi til
grundvallar þessu háa gjaldi,
sem af þeim væri krafist. Svaraði
Jónas þvi til, að taxtar Raf-
magnsveitunnar væru miðaðir
við toppgjald. Vélar Sildar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar væru
mjög orkufrekar þegar i gangi
væru, og mælirinn sem mæli kiló-
wöttin sýndi þá mikið álag. Siðan
miðaði Rafmagnsveitan orku- og
aflgjald sitt við mesta álag og
reiknaði siðan toppnotkun út allt
árið, en ekki aðeins dagana sem
vélarnar gengju. Annars væru
þessir taxtar allflóknir en sizt af
öllu sanngjarnir.
Að lokum sagði Jónas Jónsson:
„Við fórum fram á eftirgjöf af
hluta gjaldsins. Fengum við
þverneitun við þeirri málaleitan
af yfirvöldum. Munum við þvi
þurfa að greiða uppsett gjald 7—8
milljónir fyrir 42 daga, sem gerir
166 þúsund fyrir hvern einstakan
dag. Slik gjaldskrá sem þessi
hlýtur að vera meingölluð.”
íprcttir
16 valdir á NM pilta
Norðurlandamót pilta, 19 ára og yngri, verður
haldið á tslandi helgina 2.—4. april n.k. Þetta mun
vera i annað skiptiö sem slíkt mót er haldið her á
landi. Að sögn landsliðsþjálfarans Viðars Simonar-
sonar er undirbúningur fyrir nokkru hafinn. Valdir
hafa verið 16 leikmenn, sem æfa af kappi. Þessir
leikmenn eru: Markverðir: Kristján Sigmundsson
Þrótti, ólafur Guðjónsson FH og Egill Sigurðsson
Val. Aðrir leikmenn eru: Pétur Ingólfsson Ármanni
Jón Viðar Sigurðsson Ármanni, Friðrik Jóhannsson
Ármanni, Jón Árni Rúnarsson Fram, Gústaf
Björnsson Fram, Jón Hauksson Haukum, Andrés
Kristjánsson FH, Kristinn Ingason KR, Bjarni
Guðmundsson Val, Óskar Hallgrimsson Val,
Halldór Atlason Þrótti, Róbert Agnarsson Viking,
og Sigurður Sigurðsson Viking.
Fyrirhugað var að þetta lið ásamt landsliði undir
23 ára, færi i keppnisferðalag til Færeyja i lok
janúar. Af henni varð þó ekki, þar eð ekki þótti
skynsamlegt að raska leikjum Islandsmótsinsi
Ekki stendur þó til að hætta við þessa ferð, heldur
aðeins fresta, þangað til að tslandsmótinú er lokið.
Að sögn Viðars bjóst hann þvi við, að ferð þessi yrði
farin um miðjan marzmánuð, eða fljótlega eftir að
islenzka landsliðið kæmi heim úr keppnisferðalagi
sinu frá Luxemburg og Júgóslaviu.
„Ef að við álitum landsliðið 23 ára og yngri nógu
gott, býst ég við að það verði talið sem a-landsleikur
þegar þeir leika við færeyska landsliðið” sagði
Viðar að lokum.
Skák Friðriks í bið
Skák Friðriks Ólafssonar og Hollendingsins
Böhm i 6. umferð skákmótsins i Wijk an See i
Hollandi fór i bið. Böhm þessi er eflaust mörgum
islenskum skákiðkendum kunnur þvi hann
dvaldist á landinu á meðan heimsmeistaraein-
vigið i skák milli Fischer og Spassky stóð yfir, og
gerði þá mikið af þvi, að tefla upp á peninga við
hina og þessa menn. Hann bauð oftsinnis skák-
mönnum sér lakari að hafa 5 min.til umhugs-
unar meðan hann sjálfur notaði aðeins 1 min.
Var hann oft mjög snjall við að hala inn vinning
og peninga þótt timamismunur væri mikill.
Hann er liklega skólaður i einu af „skák-
kaffihúsum” Amsterdamborgar.
Friðrik Ólafsson hefur hlotið 2 og 1/2 vinning
út úr 5 skákum, en Böhm aðeins 1 vinning út úr
sama skákfjölda.
Helgi Olafsson efstur
á Skákþingi Rvíkur
Skákþing Reykjavikur hið 47. i röðinni stendur nú
yfir i félagsheimili Taflfélags Reykjavikur að
Grensásvegi 44-46. Að þessu sinni er hinum rúmlega
70 keppendum i meistaraflokki skipt niður i 6 riðla,
og er farið eftir skákstigum þeirra þegar raðað er i
riðlana, þannig að 12 stigaefstu fara i A. riðil, þeir
næstu i B. riðil og svo koll af kolli. Flestir beztu
skákmenn landsins taka þátt i mótinu og er þvi mik-
ið fyigzt með þvi mcðal skákáhugamanna og ann-
arra.
1 A. riðli er töfluröð skákmanna þessi: 1. Björn
Þorsteinsson 2. ðlargeir Pétursson 3. Ómar Jóns-
son, 4. Gylfi Magnússon 5. Bragi Halldórsson 6.
Jónas P. Erlingsson 7. Helgi Ólafsson 8. Asgeir
Asbjörnsson 9. Sævar Bjarnason 10. Magnús
Sólmundarson 11. Kristján Guðmundsson 12.
Guðmundur Ágústsson.
Fimm umferðum er þegar lokið og hefur skák-
meistari Norðurlanda (i unglingaflokki) Helgi
Ólafsson tekið forystuna með 4 og 1/2 vinning. Helgi
er ört vaxandi skákmaður og lætur nú skammt
stórra högga á inilli. Ekki er svo langt siðan hann
sigraði i Haustmóti T.R. og hinn góði árangur hans i
Evrópumeistaramóti unglinga i Grönningen i Hol-
landi hefur ekki farið framhjá mörgum. Hann hefur
teflt ágætlega en ekki er laust viö að hann hafi verið
örlitið heppinn i skákum sinum viö Jónas P.
Erlingsson i 1. umferð og Sævar Bjarnason i 4.
umferð. Næstur á eftir Helga er hinn ötuli skák-
maður Björn Þorsteinsson með 3 og 1/2 vinning.
Margeir Pétursson, Magnús Sólmundarson og
Ómar Jónsson kom næstir með 3 vinninga liver.
Margeir hefur þó aðeins teflt 4 skákir og Ómar á
jafnteflisicga biðskák við Guðmund Agústsson.
Sævar Bjarnason, Jónas P. Eriingsson og Bragi
Halldórsson hafa 2 vinninga, en Bragi hefur aðeins
teflt 4 skákir. Asgeir Asbjörnsson og Kristján
Guömundsson hafa báðir 1 og 1/2 vinning og
biðskák. Gylfi Magnússon 1 og Guðmundur Ágústs-
son engan vinning en 2 biðskákir.
1 B. riðli cr Hilmar Karlsson efstur með 4 vinn-
inga af 5 skákum.
PlilSllMt llf
PLASTPQKAVERKSMIOJA
Sfmar 82439 -82455
VBtnagöffeum 6
Box 4064 - R«ykjevfk
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjarðar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
bausl plá&s
Hér er lausf auglýsingapláss.
Hafiö samband viö auglýs-
ingadeild blaösins, Hverfis-
gótu 10 — simi 14906.
Teppahreinsun
Ilrpinsum gólfteppi og húsgögn i
hcimahúsum og fj rirtakjurn.
Éruin meö nýjar vélar. Góð þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
m ájnB&Sæ Innrettingar mmtmP húsbyggingar
BREIÐÁS Vesturgötu 3 simi 25144 I
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 74200 — 74201
(f Kasettuiönaöur og áspilun, \\ [ fyrir útgeíendur hl|ómsveitir. II kóra og fl. Leitiö ti'boöa. l \ \\ Mifa-tónbönd Akureyri JJ \\Pósth. 631. Slmi (96)22136 DÚflA Síðumúla 23 /ími 84900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322