Alþýðublaðið - 23.01.1976, Blaðsíða 16
SÚtgcfandi: Alþýðuflokkurinn
'Rckstur: Reykjaprent h.f
Tæknil. frkvstj: Ingólfur Stcins
son. Itit6tjóri: Sighvatur Björg
vinsson Ritstjórnarfulltrúi
Bjarni Sigtryggsson Aðsetur rit
stjórnar Siðumúla 11, simi 8-18-66
Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift
arverð: Kr.: 800 á mán. Lausa
söluverð: Kr.: 40.-
Flokksstarfið
Nýlega hefur verið
dregið i happdrætti
Alþýðuflokksfélagsins
á Akureyri.
1. verðlaun ferð til Noregs
kom á miða númer 568.
2. verðlaun ferð til Færeyja
kom á miða númer 767.
3. verðlaún ferð frá Akureyri
til RVK. og til baka kom á
miða nr. 210.
4. verðlaun ferð frá Akureyri
til RVK og til baka kom á miða
nr. 182.
Eftirfarandi númer hlutu
5.000 kr. verðlaun: 130, 299,
416, 613, 846, 963, 1378, 1455,
1632 Og 1998.
Alþýðuflokksfélögin i
Hafnarfirði
halda fund um bæjarmál mið-
vikudaginn 28. janúar, kl.
20.30 í Alþýðuhúsinu.
Umræðuefni: Fjárhagsáætlun
Hafnarfjarðarbæjar. Frum-
mælendur verða bæjarfulltrú-
ar Alþýðuflokksins, Kjartan
Jóhannsson og Haukur Helga-
son. Kaffiveitingar.
Kvenfélag Alþýðuflokksins,
Félag ungra jafnaðarmanna,
Alþýðuflokksfélag Hafnar-
fjarðar.
Ráðstefna um
MEGUM
VIÐ KYNNA
Magnús Þ. Torfason,
forseti hæstaréttar
er fæddur á Hallormsstöðum i
Laxárdal, Suður-Þingeyjarsýslu,
5. mai 1922. Foreldrar hans voru
Torfi Hjálmarsson og Kolfinna
Magnúsdóttir. Kona Magnúsar er
Sigriður Þórðardóttir og eiga þau
sjö börn. Það elzta er 26 ára en
það yngsta 10 ára. Þórður er
viðskiptafræðingur og hefur ný-
lokið framhaldsnámi i Bandarikj-
unum. Torfi stundar nám i
læknisfræði og Asgeir i lögfræði
við Háskóla Islands. Þá eiga þau
hjónin dóttur i menntaskóla og
þrjú yngri börn i grunnskóla.
Magnús lauk stúdentsprófi frá
MA og fór þaðan i lagadeild H1 og
lauk lögfræðiprófi 1949. Þá var
hann um skeið fulltrúi i viðskipta-
ráðuneytinu en 1951 gerðist hann
fulltrúi i Borgardómi Reykja-
vikur. Á árunum 1954—55 var
Magnús við framhaldsnám i
Kaupmannahöfn og var þá skip-
aður prófessor við lagadeild
Háskóla tslands. Þvi starfi
gegndi hann þar til hann var skip-
aður hæstaréttardómari árið
1950.
Magnús Torfason hefur mörg
áhugamál og tómstundastörf svo
sem sund og badminton. Hann
hefur gaman af tónlist og les mik-
ið. Þá mun sumarbústaðurinn og
allt sem honum fylgir, gefa ærin
viðfangsefni og jafnframt góða
tilbreytingu frá hinum ábyrgðar-
miklu og vandasömu störfum
hæstaréttardómarans.
KÓPAVQGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
laugardaga til kl. 12
. S6NDIBIL ASTÖOIN Hf
HEYRT, SÉÐ
LESIÐ: 1 blaðinu SKUTLI á
Isafirði að haft sé eftir flokks-
bræðrum Matthiasar Bjarnason-
ar, sjávarútvegsráðherra, i
Reykjavik, að ráðherrann sé ný-
búinn að festa kaup á stórhýsi á
Arnarnesi i næsta nágrenni við
annan Vestfjarðaþingmann —
Steingrim Hermannsson.
LESIÐ: 1 DAGBLAÐINU i gær,
að Jón Sólnes neitar harðlega að
blaðið hafi rétt eftir honum þessi
ummæli: ,,Við kröflum okkur ein-
hvern veginn fram úr þessu”,
sem höfð voru sem fyrirsögn á
viðtali við Jón um málefni Kröflu
frá deginum áður.
FRÉTT: Að fiskifræðingar séu
orðnir mjög gramir i garö rikis-
stjórnarinnar og yfirmanna
sjávarútvegsmála vegna þess, að
engin viðbrögð hafa frá þeim
komið við viðvörunum fiski-
fræðinga i „Svörtu skýrslunni”
önnur en þau, að fyrirskipa þeim
að umreikna sömu hlutina upp
aftur og aftur.
SÉÐ: 1 „NÝJUM ÞJÖÐMAL-
UM” — vikublaði Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna — að
búið er að fjölga i ritnefnd blaðs-
ins og eiga nú sæti i henni fulltrú-
ar úr hinum ýmsu kjördæmum
utan Reykjavikur. Ritnefndina
skipa: Andrés Kristjánsson i
Kópavogi, Kristján Bersi Ólafs-
son i Hafnarfirði, Guðmundur W.
Stefánsson I Hveragerði, Ástráð-
ur Magnússon á Egilsstöðum,
Heiðrún Steingrimsdóttir á Akur-
eyri, Magnús Gislason á Frosta-
stöðum, Ingólfur Björnsson,
kennari á Núpi, Herdis ólafs-
dóttir á Akranesi, Ármann Ægir
Magnússon i Reykjavik, Einar
Hannesson i Reykjavik og Vé-
steinn Ólason I Reykjavik. Rit-
stjóri blaðsins er Elias Snæland
Jónsson.
0G HLERAÐ
LESIÐ: 1 nýútkomnu „Timariti
Verkfræðingafélags íslands”, að
á aðra jarðhitaráðstefnu S.Þ.,
sem haldin var i San Francisco
20.-29. mai 1975 hafi verið send 17
erindi frá tslandi. Þar af voru 11
erindi munnlega flutt á ráðstefn-
unni og af þessum 11 voru 8 frá
Orkustofnun.
Hlutur Islendinga i þessari ráð-
stefnu var þvi mjög stór. U.þ.b. 2
af hverjum 3 erindum, sem frá
Islandi bárust, voru valin til
munnlegs flutnings — eða um 65%
erinda — en meðaltalið fyrir önn-
ur lönd var 36%. Næstum 10.
hvert erindi, sem flutt var á
ráðstefnunni, var þvi frá Islandi.
HEYRT: Að Geir Hallgrimsson
vilji ljúka heimsókn sinni til
London áður en Alþingi kemur
saman að loknu jólaleyfi, en það
verður n.k. þriðjudag.
ER ÞAÐ SATT, að Albert Guð-
mundsson sé að heykjast á þvi að
taka þátt i nýrri flokksstofnun þar
sem hann sé oröinn sannfærður
um, að áhrif hans séu meiri með
þvi að vera óánægður i Sjáif-
stæðisflokknum en ánægður utan
hans?
0RVAR HEFUR
0RÐIÐ M
stefnuskrána
verður haldin á Hótel Loft-
leiðum, sunnudaginn 25.
janúar og hefst kl. 10 árdegis.
Nánari upplýsingar verða
veittar á skrifstofunni,
Hverfisgötu 6—8, simi 1-50-20.
Alþýðuflokksfélag Reykja-
vikur Kvenfélag Alþýðu-
flokksins, Rvk, Félag ungra
jafnaöarmanna, Rvk.
Fræðslunámskeið
Alþýðuflokksins
Næstu fræðslunámskeið verða
haldin i Félagsheimili prent-
ara, Hverfisgötu 21, dagana
26., 28, og 29. janúarog2„ 4. og
5 febrúar.
Fræðs lunefndin.
Stjórnarandstöðu-
Móri
x
1 dagblaðinu Visi er
teiknimyndafigúra, sem
kölluð er Móri. Hún er nú
komin i harða stjórnar-
andstöðu. Persónurnar i
sögunni eru kóngur og
þegnar hans og skiptast
þeir á um andstöðuna. 1
fyrradag kom kóngsi
fram i gervi Geirs
Hallgrimssonarog kvaðst
lita herskipainnrás Breta
alvarlegum augum og
ásiglinguna á Þór mjög
alvarlegum augum og þá
spurðu þegnarnir, hvort
kóngsi (Geir) væri ekki
óröinn þreyttur i augun-
um! 1 myndasögunni i
gær var kóngsa boðið
súpuglundur sem nefndist
fjármálasúpa og kóngsi
gekk frá óétinni, en bað
um, að láta sig vita, þeg-
ar Matti Matt væri hætt-
ur!
Fyrir nokkru voru
fimm persónur, með
skúrkafés, kynntar
kóngsa sem Kröflunefnd
og svaraði hann þvi þá til,
að svo hlyti að vera, enda
fjölskyldusvipur með
skúrkafésunum öllum!
íhalds-Mórar.
Það var hér i eina tið,
að bæði Þjóðviljinn og Ai-
þýðublaðið nefndu
ákveðnar persónur Sjálf-
stæðisflokksins ýmist
afturhaldsuppvakninga
eða ihaldsmóra. Ef
marka má Visi, eru Mór-
ar þessir nú komnir i and-
stöðu við ihaldið og eru
það tiðindi. Er það ekki
verri nafngift hjá blaðinu,
en hver önnur að kalla
stjórnarandstöðuna hjá
ihaldinu Móra. t stil við
þjóðlega hefð verða þá til
Ármannsfells-Mórar (Al-
bert, Sveinn og Jónas),
Surtar-Móri (Pétur
Guðjónsson), Þurftar-
Móri (Gvendur Garðars-
son, Blönduóss-Mórar
(þarfnast ekki
skýringar), Réttsælis-
Mórar (Ellert Schram,
Pálmi Jónsson og litla-
ihaldið), Rangsælis-
Mórar (Gunnar
Thoroddsen og Þorvaldur
Garðar) og svo má lengi
telja. Eitthvað mun svo
örugglega finnast af
Sjálfstæðis-Skottum ef
vel er leitað.
Geir Hallgrimsson þarf
þvi ekki að óttast, að ekki
riki lif og fjör á ihalds-
heimilinu. Fer ástandið
þar senn hvað liður að
minna á lýsingar Einars
skálds Benediktssonar á
mannlifinu á Fróðá, þar
sem öfugt var riðinn hver
raftur, uppvakningar
glenntu sig i sérhverri
gátt og fólkið var étið á
fæti.
Sigriður Þorvaldsdóttir leikari:
„Já, ég hef það nú. Ég les um
pólitik I blöðum og hlusta á þess
háttar umræður i öðrum fjöl-
miðlum. Ég mynda mér sjálf-
stæða skoðun á hverju dægur-
máli (þótt ég sé kona). Er hlið-
holl vissri stjórnmálastefnu, en
ekki einstökum stjórnmála-
flokki þótt svo ég noti atkvæði
mitt við kostningar.”
Kjartan Friðriksson
benztnafgreiðslumaður:
„Frekar er nú áhuginn litill
eins og stjórnmálum er háttað i
dag. Ég fylgist þó náið með
framgangi i landhelgismálinu
og frammistöðu stjórnmála-
manna okkar þar. Ég styð ekki
einn flokk öðrum fremur.”
Hallfriður Bjarnadóttir, ncmi:
„Nei, það geri ég ekki, þótt ég
hafi hins vegar áhuga á almenn-
um þjóðmálum. Mér finnst
stjórnmálin hér á landi of
flokksbundin. Það ætti að sam-
eina það bezta úr öllum stjórn-
málaflokkunum i einn og láta af
þessum blinda flokksátrúnaði.”
Hefur þú áhuga á stjórnmálum?
Heimir Guðmundsson, nemi i
húsasmiði:
„Hef ég? Nei, ég hef ekkert
vit á sliku og hef ekki ætlað mér
að öðlast vit á þvi sviði. Ég
fylgist þó náið með gangi
þjóðmála.
Sigurður Jónsson, kokkur:
„Ég? Nei, ég hef engan áhuga
á pólitik og spekúlera. litið i
gangi almennra þjóðmála. Ef
ég staðset mig einhversstaðar i
pólitik, þá yrði það hugsa ég
frekar til hægri en vinstri.