Alþýðublaðið - 11.05.1976, Qupperneq 14
14 FRA MORGNI...
Þriðjudagur 11. maí 1976 hla^Sð*
Útvarp
Þriðjudagur
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Morgun-
leikfimikl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dag-
bl.) 9.00 og 10.00 Morgunbænkl.
7.55. Morgunstund barnannakl.
8.45: Guðrún Birna Hannes-
dóttir les framhald sögunnar af
„Stóru gæsinni og litlu hvitu
öndinni” eftirMeindert DeJong
(8). Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli at-
riða. Fiskispjall kl. 10.05: As-
geir Jakobsson flytur.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Gestur i
blindgötu” eftir Jane Black-
more Valdis Halldórsdóttir les
þýðingu sina (2).
15.00 Miðdegistónleikar Adolf
Scherbaum og Barokkhljóm-
sveitin I Hamborg leika
Trompetkonsert nr. 2 i D-dúr
eftir Giuseppe Torelli: Scher-
baum stjórnar Amsterdam
kvartettinn leikur Kvartett nr.
1 i D-dúr fyrir flautu, fiölu og
sembal eftir Georg Philipp
Telemann. Jörg Demus leikur
á pianó Partitu nr. 1 i B-dúr eft-
ir Johann Sebastian Bach. Hu-
bert Schoonbroodt, Pierrick
Houdy, Robert Gendre og
kammersveit leika Konsertsin-
fóniu fyrir sembal, pianó, fiðlu
og kammersveit op. 9 eftir Jean
Francois Tapray: Gérard
Cartigny stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir). Tónleikar.
17.30 Sagan af Serjoza” eftir Veru
Panovu Geir Kristjánsson les
þýðingu sina (6).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.00 Nokkur orð frá NairobiSéra
Bernharður Guömundsson flyt-
ur erindi
20.00 Lög unga fólksins Sverrir
Sverrisson kynnir.
21.00 Að tafli Ingvar Asmundsson
flytur skákþátt.
21.30 Elly Ameling syngur lög eft-
ir Hugo Wolf Irwing Gage leik-
ur á pianó (Hljóðritun frá
belgiska útvarpinu).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöldsagan:
,,Sá svarti senuþjófur”, ævi-
saga Haralds Björnssonar.
Höfundurinn, Njörður P.
Njarövik, les (19).
22.40 Harmonikulög Adriano
leikur.
23.00 A hljóðbergi „Tal som
regn”. Karen Blixen ræðir um
sjálfa sig sem söguþul og segir
frá Barrabasi og vini Heródes-
ar konungs.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok
Sjónvarp
Þriðjudagur
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þjóðarskútan Þáttur um
störf alþingis Umsjónarmenn
Björn Teitsson og Björn Þor-
steinsson. Stjórn upptöku
Sigurður Sverrir Pálsson.
21.20 MóCloudBandarískur saka-
málamyndaflokkur. Riddaralið
stórborgarinar Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
22.50 Hver á að metta mannkyn-
ið? 1 þessari bandarísku
fræðslumynd er lýst eðli og
ástæðum matarskortsins i
heiminum og bent á hugsanleg
ráðtil úrbóta. Einnig eru borin
saman lifskjör manna I hinum
ýmsu heimshlutum. Þýöandi
og þulur Ellert Sigurbjörnsson.
23.35 Dagskrárlok
Líkt og kaka án lyftidufts:
llla farið með gott hráefni
Austurbæjarbió
sýnir þessa dagana
bandariska mynd,
sem tekin er á
Englandi, Italiu og
Sviþjóð — þar sem
fjallað er , eða öllu
heldur gerð tilraun til
að fjalla um efni, sem
harla litlar heimildir
eru til um og kvik-
myndahandritið
nánast skáldsagna-
ritun.
Reyndar er islenzka nafn
myndarinnar „Drottning i
útlegð” afskaplega viilandi
þýðing á ,,The Abdiction” —
þvi að eftir túlkun handrits-
höfunda afsalaði Kristln Svía-
drottning sér völdum af fúsum
og frjálsum vilja, þar eð hún
gat ekki hugsaö sér að ganga
að eiga mann af stjórnmála-
ástæðum einum saman, án
tillits til þess hvort hún elskaði
hann og virti.
Eftir ákafa leit finnur
Kristin (Liv Ullman) fyrst
þann mann, sem hún fellir
hugi til, þegar Azzolini
kardináli (Peter Finch) einn
af frambjóðendum til páfa-
kjörs, fær það verkefni að
meta hvort hvarf fyrrverandi
drottningarinnar til kaþólskr-
ar trúar muni henta kirkjunni
I áróðursskyni.
Azzolini felur þessa athugun
undir þvi yfirskyni, aðhann sé
að fuÚvissa sig um einlægni
drottningar, en i rauninni er
hann að tefja timann, þvi að
páfi liggur fyrir dauðanum og
verkefni það, sem honum var
faliö, gæti orðið honum lyfti-
stöng I væntanlegu páfakjöri
— ef hann er fær um að velja
réttu augnablikin og um það
að sjá viö bellibrögðum
mótframbjóðenda sinna.
Ætlun Ruth Wolf handrits-
höfundar og Anthony Harvey
leikstjóra hefur eflaust verið
sú aö sviðsetja i þessari valda-
baráttu sérstæða og óvenju-
lega ástarsögu, og reyndar
hafa þeir komist talsvert
áleiðis f þeim ásetningi sinum.
En stundum er það ekki nema
herslumuninn, sem vantar til
að mynd nái i gegn og hrifi
áhorfandann, þótt mikið sé
reynt, og þá er þaö oft vegna
þess að eitthvað er til sparað,
eða einhverju ofaukið.
Þannig er það um þessa
mynd. Hún lofar góðu — en
hinn þungi tónn hennar verður
of þungur i ekki lengri mynd
en þetta — og sifelld mynda-
taka um gler, sem smurt er
feiti verður þreytandi til
lengdar. Það vantar inn I
milli. Það vantar hina léttu,
frjálsu og óhindruðu mynd-
frásögn, sem hvilir áhorfand-
ann og undirbýr hann undir
þungar samræður og hugleið-
ingar.
Þess vegna verður myndin
likust köku, sem gleymst
hefur að setja i lyftiduft. Er
bragðgóð að visu, en óneitan-
lega illa farið með gott hrá-
efni.
— BS
frAbærlega
CARACAS
Fréttir haf a nú borizt
til Þjóðleikhússins frá
Alþjóðaleiklistarhátið-
inni i Caracas i Vene-
zuela, þar sem leik-
flokkur frá Þjóðleik-
húsinu sýndi leikritið
INÚK 8 sinnum. Á
hátiðinni komu fram 30
leikhópar frá 20
löndum, flestir frá
Suður-Ameriku en
einnig hópar frá
Þýzkalandi, Dan-
mörku, Sviþjóð, Spáni,
Frakklandi, Júgó-
slaviu, Póllandi, ftaliu
og Portúgal, auk is-
lenzka hópsins.
Undirtektir áhorfenda á
sýningum INÚK hafa verið
frábærar, leikhúsin troöfull á
öllum sýningunum og þurftu
margir frá að hverfa.
Ahorfendur risu úr sætum I lok
sýninganna og bravóhróp dundu
á leikurunum. Dagblöð i' Cara-
cas hafa kallaö sýninguna bezta
verkið á hátiðinni og eigi þaö
eftir að marka spor i leikhúsi
álfunnar. Sjónvarpið i Caracas
gerði sérstaka upptöku á öllu
verkinu, sem sýnd verður i
menningarþætti þess.
Nokkur barnaleikrit hafa
veriö sýnd á hátlðinni i
tengslum við bamaleikhúsþing,
sem haldið er á staðnum. Var
ein sýning á 1N(JK sérstaklega
ætluð börnum og var það eina
INUKUM
TEKIÐ í
verkið á hátiðinni sem sýnt var
fyrir alla aldursflokka.
Forstöðumenn leiklistar-
hátiðar i Sao Paulo, sem sáu
ÍNÚK I Caracas, hafa lagt hart
aðhópnum að koma til Brasilíu
og hefur ferðaáætluninni verið
breytt þannig, að flokkurinn
geti þegið það boð og dvalizt
vikutima i Brasiliu. Frá Cara-
cas átti að halda 7. mai til
Columbiu og Brasiliu, en siðan
til Panama, Costa Rica og
Guatemala. Hópurinn er
væntanlegur heim 25. mal.
I
t
K0STAB0Ð
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7420U — 74201
y
Dunn
Síðumúla 23
/ími 64900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gðmul húsgögn