Alþýðublaðið - 29.07.1976, Page 2

Alþýðublaðið - 29.07.1976, Page 2
FRÉTTIR 2 STJORNMAL tJtgefandi: Alþýðuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnars- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Útbr.stj.: Kristján Einarsson, simi 14900. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsinga- deiid, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar - simi 14900. Prentun: Blaðaprenti h.f. Askriftarverð: 1000 krónur á mánuði og 50 krónur i lausasölu. Herinn og miliilandaflugið Þess hefur oft veriö getið í Alþýðublaðinu hversu hvimleitt það er fyrir (slendinga og útlendinga að hef ja og Ijúka ferð til útlanda á Kef lavíkurf lugvelli. Það er ekki aðeins ömurlegt, heldur einnig lítillækk- andi fyrir f rjálsa þjóð að þurfa að hafa miðstöð milli- landaflugs í miðri herstöð. Þá er fyrsta landsýn út- lendinga herflugvélar, herbílar, hermenn og hvers- konar skilti og athafnir, sem fylgja her. I Tímanum í gær er viðtal við Heimi Hannesson, formann Ferðamálaráðs, þar sem hann segir, að Ferðamálaráð hafi í hyggju að gera róttækar breyt- ingar á umhverfi f lugstöðvarinnar í Keflavík. Hann segir: „ Ég er þeirrar skoðunar, að á meðan ekki hef ur tekizt að koma í f ramkvæmd þeirri yf irlýstu stef nu að aðskilja farþegaflug og hernaðar- og eftirlitsflug, þá verði að grípa til töluvert róttækra aðgerða innan Kef lavíkursvæðisins — bæði frá sjónarmiði fegrunar, umhverfisverndar og þjóðlegra sjónarmiða". Síðan segir formaður Ferðamálaráðs: „Til dæmis er ég eindregið þeirrar skoðunar, að ýmiskonar skilti og merkingar á erlendu máli varðandi varnarliðið og aðrir fánar en íslenzkir eigi ekki heima við aðalflug- stöð fslendinga". Alþýðublaðið tekur eindregið undir þessi orð Heimis Hannessonar. Það er hins vegar annað mál hvernig staðið hefur verið að undirbúningi að smíði nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Mál þetta komst á dagskrá fyrir mörgum árum og erlendir sérfræðingar voru fengnir til að gera umferðarspá og uppdrætti aðnýrri flug- stöð. Síðan var f lugstöðinni ákveðinn staður, en bygg- ingaframkvæmdir hafa dregizt úr hömlu. Hér verður að gera bragarbót og aðskilja á borði, en ekki aðeins í orði, starfsemi varnarliðsins og millilandaflugið. Það er ekki sæmandi fullvalda þjóðaðreka jafnmikilvæga starfsemi og millilandaflugið er inni í miðri herstöð. Skortur á skilningi I umræðum og skrifum manna er Ijóst, að mjög skortir á skilning íbúa í fjölbýli á hag, afkomu og starfi bændastéttarinnar og öfugt. Ættartengsl fjöl- býlisbúa við sveitirnar eru smátt og smátt að rof na og kynslóðirnar verða æ f leiri, sem fæðzt haf a í borg eða bæ og alizt þar upp. Enn fara þó borgarbörn í sveit og kynnast lífi og starfi bændaf jölskyldna, en það eitt nægir ekki. — Á móti kemur tal og skrif manna, sem telja bændur blóðsugur á þjóðfélaginu, óalandi og ó- ferjandi og ætla það helzt til ráða að ieggja bænda- stéttina niður og kaupa allar landbúnaðaraf urðir er- lendis frá. Hagur bænda hef ur löngum verið í réttu hlutfalli við þjóðarafkomu og getur þessvegna verið mælistika á þjóðarhag. A síðasta ári áttu bændur við mikla ó- þurrka aðstríða, nema þá helzt á Norðurlandi. Margir urðu uppiskroppa með hey áður en hægt var að sleppa búpeningi úr húsi og gffurlegar f járhæðir fóru til fóð- urkaupa. Þá eru margir bændur skuldum vafnir eftir áburðarkaup í vor, en verð á áburði hækkaði mjög. Nú hafa verið óþurrkar í langan tíma og horfir til vandræða ef ekki rætist úr fljótlega. Búmannsraunir eru margvíslegar. Alþýðublaðið hefur nú þá tillögu fram að færa, að þegar langþráður þurrkur kemur, leggi íbúar borgar og bæja land undir fót, heimsæki bændur og hjálpi til við heyskapinn. A þessu vinnst margt, holl og góð hreyfing, aukinn skilningur og ánægjan af því að geta veitt aðstoð. —ÁG— Fimmtudagur 29. júlí 1976. ssssr íbúðir Framkvæmdanefndar: LANGMEST ÁSÓKN í LITLAR ÍBÚÐIR — Þetta er lang- stærsta úthlutun sem fram hefur farið hjá okkur. Samtals var um að ræða 308 ibúðir en umsækjendur voru 1.020 og verða send út bréf til umsækjenda um mánaðamótin, sagði Eyjólfur K. Sigurjónsson stjórnar- formaður Fram- kvæmdanefndar verkamannabústaða i samtali við blaðið. Þessar ibúðir eru við Selja- hverfi og er umsóknir voru kannaðar kom I ljós að sóknin i ibúðirnar var i öfugu hlutfalli við áætlun Framkvæmdanefnd- ar hvað viðkom ibúðastærðum. Mestur var áhuginn fyrir litlu ibúðunum og sóttu 157 um 32 eins herbergis ibúðir og 270 sóttu um jafnmargar 2 her- bergja ibúðir. Hins vegar voru 106 4 herbergja Ibúðir á boð- stólnum og voru umsækjendur aðeins 254. Þetta varð til þess að nú hefur nefndin látið breyta teikningum að ibúðum I 2. áfanga sem byrj- að verður á i haust. t honum verða 258 ibúðir og er ákveðið að 3herbergja ibúðir verði 108 og 2 herbergja 72. Einnig verða 18 eins herbergis og siðan 60 ibúðir I raðhúsum, en hinar eru i blökkum. Er gert ráð fyrir að þessar ibúðir verði tilbúnar um mitt ár 1978, en á næsta ári verður lokið við framkvæmdir I Seljahverfi þar sem Ibúðunum 308 var úthlutað. —SG m Kartöfluakrar eru sviðnir eftir fádæma þurrka r Tr5íiH>r ' Gífurlegar verðhækk- anir á kartöflum í Evrópu í haust Vegna fádæma þurrka i Evrópu nú i sumar er búizt við upp- skerubresti á kartöfl- um og gifurlegri verð- hækkun i kjölfarið. Ýmsar þjóðir eru þeg- ar farnar að gera ráð- stafanir til að flytja inn kartöflur og freista þess að ná hagstæðari samningum en unnt verður i haust. Af þessu tilefni hafði Alþýðu- blaðið samband við Jóhann Jónasson for- stjóra Grænmetis- verzlunar landbúnað- arins og spurðist fyrir um hvernig uppskeru- horfur væru hérlendis og hvernig við værum staddir með kaup á kartöflum erlendis frá. Skemmst frá að segja tók for- stjórinn þessum spurningum afar illa. Kvaðst hann ekki hafa neina hugmynd um uppskeru- horfur hérlendis og taldi af og frá að nokkur maður gæti spáð um það. ,,En þið vitið það kannski þarna á Alþýðublaðinu. Þið virðist vera svo vel að ykkur i kartöflumálum”, sagði for- stjórinn. Engar upplýsingar fengust um hvort Grænmetisverzlunin værifarinað kanna kaup á kart- öflum fyrir veturinn.Hins vegar upplýstistað sennilega yrði ein- hver verðhækkun á þessari vöru á næstunni. Italskar kartöflur sem nú eru fluttar inn kosta i heildsölu hér kr. 86,40h vert kiló. Fyrirs jáanlegt er að fluttar verða inn kartöflur að venju næsta vetur, en hvaðan þær koma eða hvort farið er að leita eftir samningum um kaup er ógerlegt að segja til um. Að mati forstjóra Grænmetisverzl- unar er það einkamál þessa rikisfyrirtækis sem kemur les- endum Alþýðublaösins ekki við.Greinilega er það ekki vel séð, að blaðið skuli hafa vogað sér að gagnrýna innflutningum á skemmdum kartöflum i vor. Danir áhyggjufuilir Það liggur ljóstfyrir að Danir þurfa að flytja inn kartöflur á komandi vetri vegna þurrkanna þar I landi. Hafa þeir áhyggjur af fyrirsjáanlegum verðhækk- unum og eru nú að ráðgera samninga við aðrar þjóðir um kartöflukaup. Verð á kartöflum fimmfaldaðist þar i vetur sem leið, en þá mátti segja að kart- öflustrfð geysaði viða i Evrópu. Óttast Danir að verðið verði orðið himinhátt I haust og vilja þviekkibiða meðsamninga öllu lengur. Þá má geta þess, að Ungverj- ar eru þegar farnir á stúfana og ætla að tryggja sér kaup á mikl- um magni af kartöflum fyrir veturinn. Lita stjórnvöld þar i landi ástandið mjög alvarlegum augum og hefur Alþýðublaðið sannfrétt að dagblöð þar i landi hafi fengið greinargóðar upp- lýsingar um málið. —SG

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.