Alþýðublaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 4
4 IÞRÖTTIR
Fimmtudagur 29.
júlí 1976. bÍaSið'
Bill Shankley
Þjóðsagnapersóna í
heimi knattspyrnunnar
Velunnari iþrótta-
siðunnar og mikill
áhugamaður um enska
\ knattspymu sendi okkur
þessa grein og kunnum
við honum beztu þakkir
fyrir.
Fyrrum fram-
kvæmdastjóri Liverpool
knattspyrnufélagsins,
Bill Shankly, er orðinn
einskonar þjóðsagnar-
persóna i heimi knatt-
spyrnunnar.
Ýmiss hnyttin tilsvör
hans eru orðin fræg og
oft i þau vitnað.
1. Eitt sinn kom maður til
Shanklys með ungan pilt, og bað
um að hann yrði reyndur með
Liverpool-liðinu.
Shankly fannst geta piltsins
ekki nógu mikil og að prófuninni
lokinni sagði hann manninum
þetta álit sitt.
„Þetta eru mikil mistök hjá
þér”, sagði maðurinn, ,,þvi
pilturinn hefur knattspyrnuna i
blóðinu”.
„Getur verið ,” svaraði
Shankly, „en þá hefur hann
áreiðanlega æðastiflur i fótun-
um”.
2. Þegar Ron Yeats var ráðinn
miðvörður hjá Liverpool, kom
blaðamaður til Shanklys, og
spurði hvort Yeates værieins stór
og mikill og af væri látið. „Hann
er risi”, sagði Shankly, „farðu
bara níður i búningsherbergi og
gakktu i kringum hann, segðu
mér svo hvað þér finnst, þegar þú
ert búinn að hvila þig”.
Shankly sagði alltaf að mesti
knattspyrnumaður, sem hann
hefði séð væri Tom Finney.
Blaðamaður nokkur maldaði i
móinn og sagði að Tony Gurrie
væri eins góður.
„Rétt”, sagði Shankly, „þeir
eru það i dag, enda Finney
fimmtiu og tveggja”.
4. Framkvæmdastjóri hins
fræga hollenska knattspyrnufé-
lags, Ajax, Van Prag að nafni hélt
veizlu til heiðurs Shankly, og
færði honum að gjöf dýrmætt,
handunnið matarstell úr hinu
fræga bláa og hvita „Delft”
postulini. Shankly horfði á stellið
lengi og sagði svo: „Þið gætuð
vist ekki haft það i Liver-
pool-litunum, rautt og hvitt?”
5. Það var orðið allmikið um
það, að. hinsta ósk aðdáenda
Liverpool væri, að ösku þeirra
væri dreift á Liverpool-leik-
vanginn. Að lokum sá Shankly sig
tilneyddan til að hafna þessum
beiðnum. Eitt sinn, þegar hann
var beðinn um skýringuá þessari
synjun, svaraði hann: „Keegan
erstórkostlegurá grasi, en i ökla-
djúpri ösku getur henn ekkert.”
6. Shankly hafði ekki mikið álit
á hinum umdeilda framkvæmda-
stjöra Brian Clough. Clough var
þekktur fyrir stóryrði sin, um
stjórnir og leikmenn annarra
knattspyrnufélaga, og fyrir að
tala mikið, hátt og lengi.
„Málæðið i Clough er verri en
rigningin i Manchester”, sagði
Shankly, „þvi þar styttir þó
stundum upp”.
7. Shankly var eitt sinn spurður
hvort hann i raun og veru héldi,
að knattspyrnu bæri að taka jafn
alvarlega og lff og dauða. „Vit-
leysa, svaraði Shankly, „hún er
miklu meira virði”.
ENSKA KNATT-
SPYRNULIÐIÐ
SOUTHAMTON
I HEIMSÓKN
Dýrlingarnir (The
Saints), eins og þeir eru
kallaðir, unnu það sér til
frægðar á siðasta
keppnistimabili að sigra
Manchester United i Ur-
slitaleik um bikar-
meistaratitilinn enska á
Wembley.
Þei r féllu fyrir tveimur árum
niður i aðra deild, eftir að hafa
verið i fyrstu deild frá keppnis-
timabilinu 1965-66.
Southampton er eitt af eldri
knattspyrnufélögum Englands,
stofnað 1885. Félagið komst fyrst
á blað 1899-1900var þá i úrslitum
FA-bikarins og aftur 1901-02.
Keppnistimabilið 1921-22 unnu
þeir sig Upp i aðra deild. Sout-
hampton-liðið lék siðan nokkur ár
i annarri deild en féll svo aftur
niður i þriðjudeildina.
Keppnistimabilið 1959-60 unnu
þeir aftur þriöju deildina og kom-
ust siðan upp i fyrstu deildina
1965-66, þar sem þeir léku i niu ár.
Heimavöllur Shouthampton,
„The Dell”, er við Milton Road i
Southampton og tekur völlurinn
milli 30 og 35 þúsund áhorfendur.
Fyrr á árum léku margir þekktir
kappar með Dýrlingunum t.d.
Ron Davies, Terry Paine og Alf
Ramsey, fyrrum landsliðsein-
valdur Breta, lék með' þeim um
tima.
1 dag ber hæst nöfn leikmanna
eins og Channon, sem verið hefur
fastur leikmaður I enska lands-
liðinu að undanförnu, og Osgood,
sem einnig lék nokkra landsleiki
fyrir England og er álitinn einn
leiknasti framherji Englands, og
McCalling, skozkur landsliðs-
maður, áður leikmaður með
Manchester United.
Dýrlingarnir eru þekktir fyrir
sinn skemmtUega sóknarleik og
sitt hraða samspil. Enkum hefur
varnarmönnum gengið iUa að
stöðva Cannon.
Það er alltaf fengur i þvi að fá
þekkt erlend lið i heimsókn, bæði
fyrir áhorfendur og ekki siður
fyrir islenzka knattspyrnumenn.
Islenzka landsliðið ætti að geta
fengið góða og gagnlega æfingu
og þjálfun, ef það verður látiö
leika við gestina.
Sprettharðasti maður heims:
Ég get einnig unnið
Steve Williams
Hasely Crawford frá Trinidad
er heldur betur ánægðuryfir sigri !
sinum i Montreal. En Banda-
rikjamenn eru ekki eins ánægð-
ir eftir 100 metra hlaupið. Og
það er engin furða. Það eru 48 ár
siðan það hefur gerzt á Ólym-
piuleikum að Bandarikjamaður
hefur ekki hlotið verðlaun i
þessari grein.
Það var Trinidadbúinn
Hasely Crawford sem hreppti
gullið i 100 m hlaupinu. Hann
hljóp á 10,06. Annar var Jama-
icabúinn Donald Quarre og
þriðji varð sigurvegarinn frá
Munchenarleikunum hinn
sovézki Borzov.
1 Munchen hljóp Borzov á
10,14 sek og það gérði hann einn-
ig i Montreaæ,, en nú færði sá
timi honum aðeins brons verð-
laun.
Mistókst
í Munchen
Crawford keppti I Munchen
’72 en hann meiddist og komst
ekki i úrslitariðilinn.
— Eg ætlaði mér að vinna i
Munchen enmajðsli komu I veg
fyrir að ég gæti hlaupið. Fyrir
þessa leika hef ég undirbúið mig
vel.
Og ég er stoltur og glaður yfir
að mér tókst það sem ég ætlaöi
mér, sagði Crawford eftir sigur-
hlaupið i Montreal.
Eftir þrjátiu metra hafði
hlauparinn i röndóttu sokkunum
tekið forystuna. Quarrie fylgdi
honum eftir en Borzov hafði
ekki möguleika.
Bandariskur blaðamaður
spurði Crawford eftirfarandi
spurningar:
— Heldur þú að þér tækist að
vinna Steve Wiliiams, sem er
sprettharðasti Bandarikjamað-
urinn, sem meiddist fyrir 01?
Blaðamaðurinn varð að endur-
taka spurninguna áöur en
Crawford svaraöi.
— Mig langar mikið til að
keppa við Steve Williams á
hlaupabrautinni. Og ég veit fyr-
ir vist hvor okkar mun sigra I
þeirri viðureign. Ég!
Crawford hafði gert sér vonir
um að sigra einnig i 200 m
hlaupinu en enn einu sinni voru
það meiðslin sem settu strik
ireikninginn.
Hann gat ekki keppt og
Quarrie sigraði.
jeg
Meö upprétta hendi kemur Hasely Crawford i markiö sem
sigurvegari, en Rússinn Valery Borsov (númer 887) náöi ein-
ungis i bronsiö.
✓
„Eg hleyp fyrir Jesúm"
Madelene Jack-
son-Manning sem
sigraði i 800 m i Mexico
’68 og varð önnur á
sömu vegalengd i
Munchen ’72, verður
meðal þátttakenda i
Montreal. Madelene,
sem er 28 ára hafði lagt
hlaupaskóna á hilluna,
en byrjaði að keppa
aftur og hefur nú góða
möguleika á þvi að
sigra i 800 m.
Jesús beindi henni á
hlaupabrautina.
Hún var hætt allri keppni, en
eigi alls fyrir löngu fékk trúar-
leg sannfæring hennar hana til
að byrja aftur.
„Eg hleyp fyrir Jesús, sjálf
skipti ég óverulegu máli”, segir
hún og sýnir hlaupaskyrtu sina,
en á henni stendur skýrum stöf-
um: Hleyp fyrir Jesúm.
„Jesús hefur beint mér inn á
hlaupabrautina aftur. Hans
vegna .hleyp ég og hans vegna
mun ég sigra”.
Madelene er frá Cleveland, en
þar starfar hún nú við að að-
stoða fátæk börn og alkóhólista,
sem búa i fátækrahverfunum.
Hún sér einnig um son sinn,
John, sem hún átti með Iþrótta-
stjörnunni John Jackson. Fyrir
utan allt annað, er hún ágætis
söngkona og nýlega kom út
plata með henni, sem ne&iist:
„Running for Jesus”.
Með guðs hjálp set
ég heimsmet.
Madelene Jackson-Manning
Madelene Jackson-Manning.
kom keppinautum sinum á úr-
tökumótinu fyrir Ólympiu-
leikana á óvart. Rétt áður en
ræsimerkið var gefið, safnaði
hún þeim öllum saman, og bað
hljóða bæn. Heimsmetið i 800 m
er 1:56 en bezti timi Madelene
er 1:59,8.
„Með guðs hjálp hleyp ég á
1:55 og gæti vel hlaupið á 1:52”,
segir þessi ameriska stúlka. —
ATA