Alþýðublaðið - 29.07.1976, Blaðsíða 6
Sósíalistar taka við stjórn-
artaumunum i Portusal
Portúgalir hafa búiö viö fasistiska einræöisstjórn í
40 ár. Þeir eiga sér þvi engar þingræðislegar heföir.
Stjórnarskráin sem samþykkt var á stjórnarskrár-
þinginu gefur þvi vart meir en grófa mynd af því
hvernig stjórn landsins veröur i raun háttað. Þingiö/
forsetinn og rikisstjórnin verða að feta sig áfram með
það fyrir augum aö gefa stjórnarskránni það innihald
og gildi sem nauðsynlegt er til þess að þingræðinu
verði búin öruggur framtíðarsess.
Erfiðleikar
Ymsir erfiöleikar blasa við
Portúgölum þegar i upphafi.
Ekki er pólitiskur grundvöllur
fyrir myndun samsteypustjórn-
ar meö þingmeirihluta aö baki
sér, og þvi veröa fyrstu skref
Portúgals á vegi lýöræöisins
undir leiösögn minnihluta-
stjórnar. Eeynsla annarra
þjóöa af minnihlutastjórnum er
misjöfn, og oftar en-ékki hefir
lukka þeirra reynzt völt. Það er
þvi ekki alveg aö ástæöuiausu
að forsætisráöherrann Mario
Soares, formaður sósialista-
flokksins hefir kynnt sér norsk
stjórnmál, þvi i Noregi hafa
minnihlutastjórnir setið við
góðan oröstý.
Vandamálin mörg og stór
Vandamál þau sem stjórnin
fær viö að glima eru bæöi mörg
og stór i sniður, og vafalaust
myndi auðveldara aö leysa úr
þeim ef að baki stjórnarinnar
stæði einhuga þjóð.
Efnahagslifið er mjög veikt
og mega landsmenn búast við
að þurfa aö herða mittisólina
verulega. Þvi væri þeim heilla-
vænlegast að leggja flokkspóli-
tiskar deilur á hilluna, — fyrst
um sinn.
Leitað eftir stuðningi
Áður en tilkynnt var endan-
lega um val ráðherra i nýju
stjórnina haföi Soares setiö á
löngum fundum með leiðtogum
allra þeirra flokka sem eiga
fulltrúa á þinginu, með verka-
lýðsleiðtogum, meö fulltúum
iðnrekenda og fleirum, og
freistað aö afla stjórninni alls
mögulegs stuðnings.
Hann hefir fengið loforð um
vinnufrið handa stjórninni úr
ýmsum áttum, en óvist er
hversu sterklega hann getur
reitt sig á þau verkalýðsfélög
sem stjórnaö er af kommúnist-
um.
Auðvitað vona sósialistar hið
bezta, en ef tekið er tillit til
þeirra- róttæku aðgerða sem
nauðsynlegar eru til þess aö
koma efnahagslifi landsins á
r'Htan kjöl má örugglega eiga
von á einhverjum óróa.
Sósíalistar og óháðir
Ef augum er rennt yfir ráö-
herralistann kemur i ljós að
ráðherrarnir eru flestir sósial-
istar, en einnig nokkrir óháðir.
Það kemur fáum á óvart að
varnarmálaráðherrann er mað-
ur úr hernum, Spirmino Miguel.
Hann var náinn samstarfsmað-
ur Antonio Spinola fyrrverandi
forseta.
Varaforsætisráðherrarnir eru
tveir. Þeir eru Jorge Campions
fyrrverandi ráðherra utanrlkis-
verzlunar, ungur og metnaöar-
gjarn sósialisti, og Henriquo de
Barros, fyrrum forseti stjórnar-
skrárþingsins.
Hinn nýji utanrikisráðherra
er Jose Medeiros Ferreira.
Hann er 34 ára gamall og var
áður deildarstjóri i sama ráðu-
neyti. Melo Artunas, sem var
forveri Ferreira i starfi, er nú
settur forseti þeirrar nefndar
sem á að fylgjast með þvi að
ákvæðum stjórnarskrárinnar
verði framfylgt. Likast til getur
sú nefnd haft nokkuð að segja i
portúgölsku stjórnmálalifi i
framtiðinni, en heldur hefur An-
tunes þótt setja ofan við þessi
hlutverkaskipti.
Lopes Cardosso verður áfram
landbúnaðr- og sjávarútvegs-
málaráðherra.
Marcelo Curlo, sem áður var
ráðuneytisstjóri i Atvinnumála-
ráöuneytinu verður nú ráðherra
sama ráðuneytis. Curto er lög-
fræðingur að mennt og hefir
mikið starfað innan sósialista-
flokksins.
t Efnahagsmálaráöuneytinu
situr við völd Souz Comes
(óháður) hann tekur við af
Fransisco Salgado Zenha, sem
verður nú leiðtogi sósialista i
þinginu. Comes var náinn sam-
starfsmaður Zenha og hlaut em-
bættið vegna óvejulegra hæfi-
leika og dugnaðar.
Fjármálaráðherra nýju
stjórnarinnar er Medina Carr-
eira.
Ráðherra utanrikisverzlunar
verður Barreto. Enginn nýr
upplýsingamálaráðherra hefir
verið útnefndur, en Manúel
Alegre verður deildarstjóri þess
ráðuneytis.
Dómsmálaráðherrann nýi er
Almeid Santos, hann er óháður.
Rikisstjórnin mun leggja
stefnuskrá sina fyrir þingið hið
fyrsta, og ekki er gert ráð fyrir
aðhún mæri mikilli mótspyrnu.
— ES
6 ÚTLÖND
Fimmtudagur 29. júlí 1976.
i
Nokkrum sekúndum eftir áreksturinn. Vegfarandi heldur aftur bilhuröinni svo
ræninginn kemst ekki út
FRJÁLS í EINA
KLUKKUSTUND
Og hér leiðir lögregian ógæfumanninn út úr bílnun
Fyrir skömmu var framið bankarán i
Málmey i Sviþjóð. Þjófurinn komst undan
með 10.000 sænskar króna. En lögregla
þeirra Svia er snör i snúningum og klukku-
tima siöar sat hann bak við lás og slá.
Þegar þjófurinn kom út úr bankanum tók
hann leigubil og fór á bilasölu þar sem hann
keypti notaöann bil fyrir helminginn af
ránsfénu.
Stuttu siöar ók hann á ljósastaur á
„Stóratorgi”. Vegfarandi sem átti leið
X framhjá sá að ekki var allt með felldu, hélt
aftur bilhurðinni svo að ræninginn komst
ekki út. En þá þegar var lögreglan komin á
sporið og birtist nokkrum minútum seinna
og hirti kauða.
Auglýsið
i
Alþýðu-
blaðinu