Alþýðublaðið - 29.07.1976, Side 3
SlaSd* Fimmtudagur 29. júlí 1976.
SJÓNVARP HEFST AÐ
NÝJU A SUNNUDAG
Nú er sumarleyfi sjón-
varpsins senn að Ijúka og
hefjast útsendingar þess
að nýju sunnudaginn 1.
ágúst.
Að sögn Björns Baldurs-
sonar, dagskrárritara
sjónvarps, verður sjón-
varpsdagskráin eftir
sumarfrí með svipuðu
sniði og var fyrr í sumar.
Engar sérstakar breyt-
ingareru væntanlegar fyrr
en vetrardagskrá hefst,
um og eftir 1. október.
OL og listahátíð
Án efa hafa fjölmargir Islend-
ingar beðið óþreyjufullir eftir að
sjá myndir frá Ólympiuleikunum
i Montreal. Sá draumur rætist
strax kl. 16 á sunnudag, en þá
mun Bjarni Felixson sýna og
kynna myndir þaðan. Svipmyndir
frá ólympiuleikunum verða siðan
á dagskrá sjónvarps næstu tvær
vikurnar.
Sjónvarpið lét taka upp heil-
mikið af efni á listahátið og fá
sjónvarpsunnendur forsmekkinn
af þvi næstkomandi mánudags-
kvóld. Þá birtist hinn bráðsnjalli,
franski látbragðsleikari Yves
Lebreton á skerminum.
Þrír nýir
myndaflokkar
Þrir nýir myndaflokkar hefja
göngu sina fyrstu vikuna i ágúst.
Sagan af Hróa hetti er nýr,
brezkur myndaflokkur um ævin-
túri útlagans Hróa hattar. Fyrsti
þáttur verður sýndur á sunnudag
kl. 18.10.
Miðvikudaginn 4. ágúst gefst
mönnum kostur á að sjá upphafið
að tveim nýjum framhalds-
myndaflokkum. Sá fyrri kallast
Pappirstungl- (Paper Moon).
Þetta er bandariskur mynda-
flokkur i 13 þáttum, byggður á
sögu eftir Joe David Brown.
Margir muna eflaust eftir kvik-
mynd með sama nafni, þar sem
Adda og Mósi, aðalsöguhetjurnar i hinum nýja myndaflokki sjón-
varpsins „Paper Moon”. Fyrsti þátturinn verður á miðvikudaginn
4. ágúst og ber nafnið „önnur verðlaun”.
Ryan O’Neil og Tatum dóttir hans
fóru með aðalhlutverkin. Efnið i
myndaflokkum þessum er það
sama og i biómyndinni, en leikar-
arnir ekki þeir sömu.
Siðari þátturinn heitirHættuleg
vitneskja (Dangerous Know-
ledge). Er það nýr brezkur
njósnamyndaflokkur i 6 þáttum.
1. þátturinn fjallar um Kirby
nokkurn, fyrrverandi foringja i
leyniþjónustu hersins, sem er á
ferðalagi i Frakklandi þegar
spennandi atburðir taka að
gerast.
Þeir McCloud og Columbo fara
þó ekki frá okkur þó nýr maður
komi i spilið, og halda þeir áfram
að leysá flóknar sakamálagátur á
þriðjudögum.
1 sjónvarpsdagskrá fyrstu vik-
unnar I ágúst kennir margra
grasa, margt fróðlegt og
skemmtilegt er á boðstólum, en
þessi upptalning verður látin
nægja. Frá og með sunnudeg-
inum bætir sjónvarpið okkur það
upp,að tekið er að skyggja og
kvöldin eru ekki lengur ljós og
löng. AV
Sendiherra Tanzaníu á
íslandi
Nýskipaður sendiherra Tanza-
niu, John Edward Fumbwe
Mhina, afhenti i fyrradag for-
seta islands trúnaðarbréf sitt að
viðstöddum utanrikisráðherra,
Einari Ágústsyni. Siðdegis þáði
sendiherrann boð forsetahjón-
anna að Bessastöðum, ásamt
nokkrum fleiri gestum. Sendi-
herrann hefur aðsetur i Stokk-
hólmi. — Myndin er tekin að
Bessastöðum.
Fordæma fáranleg vinnubrögð
kjaranefndar
Félagsfundur i
Stéttarfélagi islenskra
félagsráðgjafa 27.07. sl.
ályktar eftirfarandi
vegna úrskurðar kjara-
nefndar um kjör rikis-
starfsmanna:
„Félagið fordæmir harðlega
fáránleg og öldungis óviðunandi
vinnubrögð kjaranefndar og lýsir
megnri óánægju yfir þvi að
féjagsráðgjafar hafa i engu
fengið kröfum sinum framgengt.
Það vekur furðu okkar, að félags-
ráðgjafar fengu ekki launaflokks-
hækkun eins og allar aðrar
heilbrigðisstéttir innan SFR.
Orskurður kjaranefndar i heild'
itrekar litilsvirðingu rikisvalds--
ins i garð launþega. Augljóst er
að þessi launaflokkshækkun, sem
úrskurðurinn felur i sér vegur
engan veginn upp á móti verð-
hækkunum undanfarið, og er þvi I
raun réttri um kjaraskerðingu að
ræða.
Svo er að sjá, sem kjaranefnd
hafi enn ekki lokið öllum störfum
þar eð hún hefur ekki enn raðað
öllum starfsheitum i launaflokka
ogskorum við á nefndina að ljúka
vinnu sinni nú þegar.
Við fordæmum þessi vinnu-
brögð enn harðar með hliðsjón af
fyrri samskiptum stéttarfélags-
ins við fjármálaráðuneytið i
ólokinni deilu um greiðslutaxta
vegna lausavinnu félagsráðgjafa
hjá rikinu. Fjármálaráðuneytið
hefur ekki, þrátt fyrir itrekanir
sinnt tilboði félagsins um frekari
viðræður um það mál.
Hin stórkostlega skerðing á
lifskjörum almennings undanfar-
ið og úrskurður kjaranefndar nú,
hlýtur að knýja launþegasam-
tökin til að taka sér þann rétt sem
enn er ekki f þeirra höndum og
skorar þvi félagið á opinbera
starfsmenn að grípa til verkfalls-
aðgerða nú þegar.”
FBÉTTIB 3
Saia sumarbústaða:
Aldrei eins dræm
og í sumar
Samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk hjá fast-
eignasölum hefur sala sumarbústaða verið heldur
dræm það sem af er sumri.
Þorsteinn Steingrfmsson hjá Fasteignaþjónustunni
sagði í samtali við blaðið að aldrei hefðu selzt færri
sumarbústaðir en í sumar. Þeir væru settir á söluskrá
en enginn vildi kaupa.
Sagðist Þorsteinn telja þetta
merki um að farið væri að
harðna i ári hjá fólki. Sumar-
bústaðurinn væri það fyrsta
sem selt væri þegar kreppti að,
og virtist fólk setja það mjög
fyrir sig hvað verðiö á þeim
væri hátt.
Við Þingvallavatn kosta
sumarbústaðirnir ailt upp i 6
milljónir, en i Meðalfellslandi er
hægt að fá bústað fyrir 2-300.000.
Við Elliðavatn er verð bústað-
anna 2-3 milljónir. Sagði Þor-
steinn að verðið færi mjög eftir
þvi hvort veiði fylgdi landinu og
eins hvort þar finndist skógur.
En einkum væri þó mikil
áherzla lögð á að drykkjarvatn
fengist við bústaðina, en þeir
væru mun verðminni ef svo væri
ekki.
Hjá Fasteignasölunni höfðu
menn sömu söguna að segja.
Nóg framboð er af sumar-
bústöðum, en litil sem engin
eftirspurn. Virtist fólk setja
fyrir sig hversu hátt verðið á
þeim væri.
Sumarbústaðalönd
Sama máli gegnir um suma-
bústaðarlöndin, þau koma i
talsverðum mæli inn á sölu-
skrár hjá fasteignasölunum, og
fólk spyrst mikið fyrir um verð
og annað, en kaupir litið.
Fasteignasalan veitti okkur
þær upplýsingar að meðalverð
hektara væri um ein milljón, en
færi eftir þvi hvar landið væri.
Til dæmis kostaði hektarinn i
Grimsnesi allt upp i 1,3 millj. og
við Apavatn væri verðið 1.2
millj. —-JSS
„SPILAÐI 0G S0NG”
Framundan er mesta ferðamannahelgi ársins, verzlunarmanna-
helgin. Leggja þá allir, sem vettlingi geta vaidið, leiö slna upp i
sveit. En hvort sem það verður friðsælt rjóður I lækjarhvammi eða
einhver hinna fjölsóttari staða s.s. Húsafelisskógur, Vaglaskógur,
Hallormsstaðaskógur, Galtarlækjarskógur, Þórsmörk, tJlfljótsvatn
eða Þjóðhátið I Eyjum, sem fyrir valinu verður, Má búast við að
heyra angurbliða gitarhljóma eða jafnvei harmonikuspil þegar
rökkrið slgur á og húmið fyilir dal og tjald. Tii heiðurs þessum list-
hneigðu iöndum vorum birtum við meðfylgjandi mynd, sem reynd-
ar var tekin I margumræddri ferð Alþýðuflokksfélaganna I Reykja-
vlk og Reykjaneskjördæmi til Vestmannaeyja fyrir skömmu. Von-
um við að allir komi hressir og kátir úr útiiegunni eftir mikið spil og
söng, þótt þeim takist kannski ekki alveg eins vel upp og iistakonun-
um I Eyjum.