Alþýðublaðið - 29.07.1976, Síða 5

Alþýðublaðið - 29.07.1976, Síða 5
biajfð Fimmtudagur 29. júlí 1976. OTLðND 5 Um regntimann (læöir vatn yfir allar götur i fá- tækrahverfunum. Vatnið rennur inn i hreysin. Börn- in ösla sárfætt i vatns- fiaumnum þar sem dauðar rottur fljóta á yfirborðinu. Aðgerðir stjórnarinnar í Saigon leysa vanda 1,5 milljóna manna í Fátækrahverfinu biður þcssa litla hnokka ekkert annað en hungur, sjúkdóm- ar og félagslegir erfiðleik- ar. En fjölskylda hans mun brátt yfirgefa kofa sinn, þar sem þau hafa hýrzt átta talsins i 13 fermetra húsnæði. Nú hafa þau feng- ið samastað i nýlendunum i Song-Be. Þau flytja úr fátækrahverfunum til betra lífs í sveitinni „Rifum fátækra- hverfi stórborganna, flytjum út á lands- byggðina”. Þetta er meginstefna i róttæk- um aðgerðum rikis- stjórnarinnar i Suð- ur-Vietnam. 1 1/2 milljón manna eiga að yfirgefa Saigon, og fólksflutningarnir Ut á landsbyggðina eru þeg- ar hafnir. Allar breytingar á lifnaðar- háttum ibúa fátækrahverfanna hljóta að vera til hins betra, svo slæmt er ástandið þar. í Saigon má helzt likja þessum hverfum við daunillt viti, þar sem allt morar i sóttkveikjum og alls kyns óþrifnaði. tbúarnir eru þegar byrjaðir að rifa fúna og sundurryðgaða kofaræflana, þvi einhvern næstu daga koma vörubifreiðárnar sem eiga að flytja fólkið til gróðursælla svæða I sveitunum. Margir bændur Margirþeirra sem eiga heima ifátækrahverfunum eru bændur sem flúðu heimabyggð sina af hræðslu við sprengingar. Þarna fannst þeim þeir vera öruggari. Aðrir hafa búið i hverfunum i 20-30 ár og lifað á þvi að selja alls konar skran sem þeir hafa komizt yfir með ýmsu móti. Sorphaugamir i gömlu Saigon hafa verið „gullnámur” þessa fólks. t Saigon eru mörg börn, en þrátt fyrir það hungur og neyð sem þau verða að þola, heyrast þau aldrei gráta eða kvarta, heldur ráfa þau um göturnar, stefnulaust. Loftið er mettað og kyrrt. Moldin i kofagólfunum er illa þefjandi og rök. Fólkið sefur á bastmottum sem breiddar eru á gólfin. Uppþembd rottuhræ fljóta i rigningarpollunum fyrir utan kofana þar sem börnin eru að leik. Þetta er dæmigerð lýsing á fátækrahverfi i Saigon. Erfið vinna Fyrir ibúa fátækrahverfanna eru flutningarnir tækifæri til að öðlastnýtt og betra lif. En þess biður einnig mikil og erfið vinna að minnsta kosti til að byrja með. tbúarnir á svæði sem kallað er6:e iSaigoneiga að flytjast til Mörg vandamál Flutningur fólks út i sveitir landsins leýsir tvö stór vanda- mál. í fyrsta lagi hverfa fá- tækrahverfin. I öðru lagi verða miiljónir manna bjargálna, auk þess sem vonazt er til að innan fárra ára verði hægt að flytja mjöl og hrisgrjón til borganna. Matvælaástandið i sameinuðu Vietnam er svo alvarlegt, eink- um i miðhluta landsins, að fólk leitar til borganna til að verða Það er mikið af börnum i nýju þorpunum. Þar fær fjölskyldan eigið húsnæði, sem er tilbúið þegar hún flytur inn. Þar eru litir garðari kringum húsin, þar sem rækta má ávextí og grænmeti^ og á daginn vinna allir á sameiginleg- um hrisgrjón aökrum, sem koma til með að tryggja fjárhagslega afkomu ibú- anna. nýlendu sem nefiid er Song-Be og er hún i 70 km fjarlægð frá borginni. Þarna er óræktað land, sem varð fyrir barðinu á sprengjuglöðum Amerikönum. En eftir að striðinu lauk, hafa 400 manns látið lifið þar vegna þess að virkar sprengjur leynd- ust i sundurtættum jarðvegin- um. Meðan styrjöldin stóð yfir, ruddu Amerlkanar 100 metra breytt belti báðum megin veg- arins, til að koma i veg fyrir ó- væntar árásir úr frumskógin- um. Þarna er nú að risa upp byggð. Litil bambushús meö stráþaki auk frjósamrar garð- holu, þar sem rækta má græn- meti, ávexti o.fl. 5000 á hvert svæði. Hvertnýtt þorp telur 1000 hús, sem þessi, og er gert ráð fyrir að þangað flytjist 5000 manns. Húsin eru byggð i sjálfboða- vinnu, og er það fólk úr fátækra- hverfunum sem hefur sé um þá hlið málsins. Þangað hefur þyrpst stór hluti atvinnulausra unglinga sem fá að launum föt, hrfegrjdnaskammt og mánað- arlaun að upphæð 32 dong. Húsin eru fullgerð og garð- arnir plægðir, þegar fólkið flyt- ur i þorpin. Þeir sem hafa áður unnið að bústörfum, rétta hin- um hjálparhönd, sem óvanir eru. Margir „nýlendubúa eru t.d. Thieu-hermenn eða fólk sem til þessa hefur einkum dregið fram lifið á alls konar braski með gamla muni. Erfiðleikar i nábýli Nú fær fólkið ókeypis hús- næði, fæði og verkfæri til að byrja með, hjá rikinu. En það hefur skapast viss spenna milli nýlendubúa og þeirra bænda sem fyrir voru. „Við höfum stutt byitinguna með öllum hugsanlegum ráð- um, segja þeir. Hvers vegna hleypur rfkið ekki undir bagga með okkur þegar við þurfum á þvi að halda? En það eru ekki eingöngu fólk úr fátækrahverfúnum, sem riki þarf að rétta hjálparhönd eftir hörmungar styrjaldarinnar) 20.000 vietnömskum flótta- mönnum frá Kambodiu hefúr verið komið fyrir út I sveitum landsins. Og það er mikið og erfitt verk- efni að byggja land upp eftir styrjöld sem þessa og taka auk þess á móti fjölda flóttafólks, sem gera þarf kleift að lifa mannsæmandi lifi. sér úti um mat. Allir ibúar Saigonhafa fengið skipun um að tilkynna eigur sin- ar innan viku frá 20. júli. Þeir sem ekki verða við þeim tilmæl- um hljóta stranga refsingu, til- kynnti útvarp þjóðfrelsishreyf- ingarinnar að sögn fréttastof- unnar AP: Ekki var getið um ástæðuna fyrir þessari skipun, en þegar landið var sameinað fyrir skömmu, lögðu leiðtogar þess á- herzlu á að hraða þyrfti þróun sósialisma i Suður-Vietnam. Allar einkaeignir, svo sem hlutabréf, gull, gjaldeyrir og skartgripir.sem eru i eigu Viet- nama erlendis eða eru i umsjá útlendinga verður einnig að til- kynna. Siðustu daga Thieu-rikis- stjórnarinnar, sem studd var af Amerikönum, yfirgáfu margir auðugir Vietnamar landið I flýti og skildu eignir sinar eftir I um- sjá ættingja eða vina. —JSS

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.