Alþýðublaðið - 29.07.1976, Síða 10

Alþýðublaðið - 29.07.1976, Síða 10
10 SJÚNARMIÐ Fimmtudagur 29. júlí 1976. OLYMPIULEIKAR Það var árið 1896, sem fyrstu Ólympiu- leikarnir voru haldnir i núverandi mynd sinni. Siðan þá hafa leikarnir farið reglulega fram á fjögurra ára fresti, að undanskildum heims- styrjaldaárunum. 1 mannkynssögubók- unum er sagt frá þess- um leikum til forna. Eldinum sem logaði og þvi að leikunum fengu aðeins karlmenn að- gang. Forn-Grikkir töldu að kvenfólkið gæti haft letjandi áhrif á keppendurnar! En af hinum fomu ólympiu- leikum er sennilega engin sögn jafn fræg og sögnin um að meðan ólympiuleikarnir stæðu fyrir skyldi rikja friður i Grikk- landi. Strið og Ólympiuleikar fóru ekki saman. Það var i þann tima. Nú er tutttuasta öldin og þá gilda önnur lögmál. Fyrst skal berja á nágrannanum og siðan sjá til hvort einhver veröur eftir til að keppa i iþróttum. Þeim brygði sjálfsagt i brún, köppunum frá Guilaldaröma hinna fornu Ólympiuleika, ef þeir fengju augum litið leikana nú og þann pólitiska forieik'sém þeim fylgir. Fyrst stjórnmálin siðan iþróttirnar. Nú er svo komið að ógern- ingur hefur reynzt að hefja keppni á Ólympiuleikunum fyrr en stjórnmálamennirnir hafa haft með sér keppni. Sjálfsagt þurfa þeir að keppa eins og aðrir, en leikvangur iþróttanna er ekki rétti vettvangurinn fyrir slika keppni. Það var fyrst fyrir fjórum árum, i Munchen að stjórn- málamennirnir börðu upp á hjá Ólympiuleikunum. Áður en leik- arnir hófust settu Afrikuþjóð- irnar Alþjóðaólympiune&idinni kosti: Lið Ródesiu og Suður-Afriku yrði sent heim að öðrum kosti myndu flestar þjóðir þriðja heimsins pakka saman föggum sinum og fara frá Munchen. Og nefndin lét undan, séð að snöktum vær betra að missa tvær heldur en jafnvel á þriðja tug eins og siðar átti eftir að gerast. En þar með var brautin rudd. Ekki svo að skilja að mér finnist ekki rétt að útiloka þessi riki, Ródesiu og Suður-Afriku frá 01. vegna kynþáttastefnu rikisstjórna þessara rikja. Málið er bara það að þarna hafði skapast fordæmi.Fordæmi sem kom svo á daginn að Afrikuþjóðirnar ætluðust tii að farið yrði eftir. Á þriðja tug i stað einnar. Rétt fyrir setningardag XXI. Olympiuleikanna i Montreal hófust hatrammar deilur um hvort Nýsjálendingar ættu að fá að taka þátt i leikunum. Sökin var sú að þeir höfðu átt iþróttasamskipti við Suður-Afriku. í þetta skipti stöð Alþjóðaólympíunefndin fast á sinu — Nýja-Sjáland skyldi fá að keppa á leikunum. En afleiðing- arnar létu ekki á sér standa. Á endanum höfðu farið heim á þriðja tug landsliða þjóða þriðja heimsins. Stundum læðist sá grunur að manni að stjórnmálamennirnir séu smátt og smátt að grafa Ólympiuleikunum gröf. Það er nefnilega svo i okkar litla heimi að þrætumál þjóða eru fleiri en tölu erá komandií Qjótu bragði. Og sennilega finnst þeim þjóðum sem I deilum standa sinn málsstaður góður og mikið réttlætismál. Tökum sem dæmi „Þorska- striðið”. Ef okkur hefði tekizt að fá öll Norðurlöndin til að neita þátttöku á 01. nema Bretum yrði visað frá. Eða ef Bretar og öll samveldislöndin hefðu neitað að keppa nema íslandi yrði visað frá keppni. En það sem mérhefur fundizt einna eftirtektarverðast I sam- bandi við þessar stjórnmálalegu deilur er afstaða iþróttamann- ana sjálfra. 1 þau fáu skipti sem i þeim hefúr heyrzt, hafa þeir óskað eftir að fá að keppa á leik- unum. En þeirra er ekki völin, kerfiskarlarnir og stjórnmála- mennirnir hafa tekið sinar ákvarðanir og þeim verður iþróttafólkið að hlýða. Einhver gárunginn sagöi að, það að Afrikuþjóðirnar skyldu fara heim hefði komið sér illa fyrir tslendinga. Nú yrðu þeir siðastir. Hvað sem má um það segja þá hafa islenzku keppend- urnir orðið aftarlega i flestum, þeim greinum semþeir hafa keppt i. Staðið sig vel. Sá tslendingur sem lengst hefur náð á þessum Olympiu- ieikum er lyftingamaðurinn Guðmundur Sigurðsson sem náði niunda sæti i sinum þyngdarflokki. Sundfólkið okkarhefur keppt i niu greinum og sett sjö tslands- met. Verður þaðaðteljast mjög góður árangur á okkar mæli- kvarða. 1 fr jálsiþróttunum hefur okkur ekki gengið eins vel og vonast var til. Að visu hefur Lilja Guðmundsdóttir sett met i 800 m hlaupi og Ágúst Asgeirsson einnig i 3000 m hindrunarhlaupi. En öörum hefur ekki gengið eins vel. Þegarþessar linur eru ritaðar hefur annar tslenzku júdó- mannanna keppt. Hans viður- eign stóð i rétt rúmlega 20 sek. Þrátt fyrir það að tslandsmet hafi verið sett urðu islenzku keppnedurnir meðþeim siöustu. Auðvitað hefur þetta fólk gert sitt bezta og ég held að engum detti i hug að fara fram á aö það gerði betur. Allir þeir þrettán sem þátt taka i leikunum fyrir tslands hönd hafa fórnað sinum fritúna og peningum til þess að geta orðið landi sinu til sóma. Spurn- ingin er bara sú hvort þessu fólki hafi verið sköpuð sú að- staða sem þvi að réttu lagi beri. Blakið og sundið. Annan júlibirtistá iþróttasiðu þessa blaðs grein sem nefndist, „Þátttaka okkar i Montreal”. I nenni er fjallað m.a. um þátt- töku blaklandsliðsins i undan- keppni Olympiuleikanna. Keppni þessi fór fram á ítaliu fyrr á þessu ari. Komið hefur fram að for- maður islenzku Ól-nefnd- arinnar taldi það algjöra fásinnu að þessi för yrði farin. En nefndin hafði engin völd til að gripa þar inn i. Formaðurinn sagði að ,,það hefði verið út i hött að senda lið i keppninna”. Þrátt fyrir þessi ummæli tók nefndin þá ákvörðun um að styrkja þessa för til ftaliu. Þetta heföi svo sem verið sök sér er iþróttahreyfingin vissi ekki aura sinna tal. En hingað til hefur iþróttahreyfingin yfir öðru kvartað en of miklum pen- ingum. Það kom lika fram stuttu siðar að peningarnir voru heldur af skornum skammti hjá nefndinni. I viðtala sem Alþ.bl. átti við sundkappann góðkunna, Guðmund Gislason kom fram að: „Sundsambandið fékk sinn styrk frá Ol-nefiidinni einum degi áður en keppendurnir fóru á leikanna”. Það var siðan sundfólkið sem stóð sig einna bezt á leikunum Siðar hef ég heyrt að nefiidin hafi aðeins greitt um 1/3 af þvi sem ætlað var til Sundsam- bandsins. 1 áður nefiidu viðtali við Guð- mund gagnrýndi hann undir- búning fyrir leikanna. Sagði að ekki væri hugsað nóg fram i timann. Bara að vera með eða reyna að gera betur. Þá eru við komið að spurn- igunni, hvort við eigum bara að vera með eða reyna að etja kappi við þá sem eru beztir. Það þarf vart að taka það fram að til að svo megi verða þarf að gjör- breyta allri aðstöðu hér á landi. Nefna má að flestir þeirra sem keppa nú fyrir ísland i Montreal hafa undirbúið sig er- lendis. 1 viðtali sem Jón Asgeirsson átti við Svein Björnsson aðal- fararstjóra Ol-liösins og vará- forseta ÍSÍ i fyrrakvöld kom fram að fyrir næstu leika yrðij islenzku iþróttafólki gert kleift að æfa hér heima. Það væri óskandi að þessi orð verði ekki eftir i Montreal. Þá væri stórsnjallt að taka fjármálahliðina til endurskoð- unar. Þetta iþróttahreyfingar- innar. Fyrir hverja Ol-leika hefur verið talað um það hvort ekki væri rétt að Nefndinni aö reyna fjáröflunarleiðir milli leikanna en ekki aðeins rétt fyrir þá. En strax og leikunum er lokið gleymist þetta og er geymt þar til kemur að næstu leikum. Og vonandi er peningum islenzku ólympiunefndarmnar og iþróttahreyfingarinnar verði betur varið en i gjörsamlega til- gangslausar ferðir eins og för blaklandsiiðsins eða fari „nuddarans ’72” og „blaða- mannsins ’76”. Jón Einar Guðjónsson J Ekki gengur það snurðulaust Ingibjörg skrifar: ,,Hún amma min það sagði mér”. Oft er ég búin að hugsa um að skrifa nokkrar linur á blað, þegar mér hefur of- boðið málfarið i þessu, sem nú er kallað fjöl- miðlar. Ég veit ekki hvort á að dæma eins hart ykkur þessa blaðamenn, eins og til að mynda útvarpið,sem rikið rekur og á auðvit- að að vanda málfærið i. En ég var nú að hlusta á fréttir um dag- inn. Þær voru þarna að vestan, sem íslending- arnir fóru, til þess að iðka iþróttir og komast þar aftur úr öllum, eins og skáldið sagði forð- um. Satt að segja hrökk ég við, þegar ég heyrði þulinn segja i útvarp- inu, að eitthvað heföi gengið ,, snuðrulaust’ ’! Þetta er nú svona með vesældarlegri rassbögum, sem ég hefi nýlega heyrt, og eru þó margar slæmar, sem menn bera sér i munn. Bráðum eru liðin 56 ár, að amma min fór að æfa mig við rokkinn. Hún trúði mér nú ekki til þess, blessunin, að handleika hann við spuna. En hún sagði eitthvað á þá leið, að ég ætti aö æfa mig á þvi að tvinna band fyrst. Seinna, þegar ég væri bú- in, að læra að fara með rokkinn, gætum við talað um það, sem vandasamara væri. Og hún var mikil tókona, kunni að breyta ull I fat. Þegar við vorum nú setztar við rokkinn, og námskeiðið átti að hefjast, var það fýrsta sem hún sagði: „Nú verður þú að vanda þig, lambið mitt, að láta þræðina renna alveg jafnt inn á snælduna. Þú mátt hvorki gálmtvinna, að ég tali nú ekki um að láta koma snurður! Og hún lét ekki þar við sitja, en skýrði fyrir mér þessi tvö orð, sem voru mér alveg ný. „Það er kallaö að gálmtvinna, þegar þræðirnir teygjast ekki jafnt”, sagði amma, „en annar liggur eins og utan um hinn. Snurða er aftur á móti, þegar annar þráðurinn leggst I lykkju og snýr upp á sig um leið.” Já.ekkier nú furða,þó ákomi snurða (þaðheitir vist „snuðra” hjá þessum spekingum, sem eru að láta ljós sitt skina i útvarpinu og viöar!) Mér hefur stundum dottið i hug, hvort þetta sé ekki alveg táknrænt fyrir fólk, sem er að „snuðra” i einhverjum þekk- ingarmolum og nennir ekki að leggja á sig nema það, sem minnst er hægt að komast af með, og minna en það. Svo ber það sérdelluna i munn og er vist bara hróðugt á svipinn! Amma min hafði miklar mæt- ur á þvi ágæta kvæði Kambans, Spunakonunni og raulaði oft fyrir munni sér erindið: „Snúrurnar hrökkva og snældan er full.” Það var lika snurðulaust allt, sem hún spann. Við þökkum bréfið, Ingibjörg. Sendu okkur linu aftur áður en langt um liður, ef þér dettur eitthvað sviplikt i hug.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.