Alþýðublaðið - 29.07.1976, Síða 16

Alþýðublaðið - 29.07.1976, Síða 16
„Varnar- máladeild heldur fram hel- berum þvættingi” Karl Steinar Guðnason Eins og lesendur blaðsins muna var nokkur ólga i Verka- lýðsfélagi Suðurnesja fyrir rúmum mánuði vegna þess að hermenn á Keflavikurflugvelli ganga nú i æ fleiri störf sem íslendingar hafa til þessa annazt. Málið gekk það langt að for- maður verkalýðs- félagsins gekk á fund Einars Ágústssonar utanrikisráðherra til þess að ræða stöðuna. í viðtali við Alþýðu- blaðið lét ráðherrann svo ummælt að þessar fullyrðingar við for- manns verkalýðsfélags ins og trúnaðar- manna yrðu þegar kannaðar af Varnar- máladeild og ef þær hefðu við rök að styðj- ast væri hér gengið i berhögg við þá stefnu Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur: HERMÖNNUM í AL- MENNUM STÖRFUM FJÖLGAR STÖÐUGT - þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða sem lýst hefði verið yfir á grundvelli sam- komulags rikisstjórna íslands og Bandarikj- anna sem gert var árið 1974. Páll Asgeir Tryggvason for- maöur Varnarmálanefndar og deildar Varnarmáladeildar utanrikisrtðuneytisins sagði um þetta leyti að þessu væri á þveröfugan veg farið við það, sem Suðurnes jam ennirnir segðu. Næsta skref var það að utan- rikisráðherra fól Varnarmála- deild að kanna hvort þessar full- yrðingar ættu við rök að styðj- ast. Siðan þetta var fyrirskipað hefur heldur verið hljótt um málið og engin yfirlýsing verið gefin út af hálfu ráðuneytisins eða deildar þess sem fer með varnarmál. Blaðið hafði þvi samband við Karl Steinar Guðnason, for- mann Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavikur og innti hann eftir gangi málsins. Hann sagði: — Ég ásamt nokkrum trúnaðarmönnum á Keflavikur- flugvelli áttum eins og fram hefur komið fund með utan- rikisráðherra þar sem þessi mál voru rædd. Þar var ákveðið að málið yrði kannað. 1 ljós hefur komið að fullyrð- ingar okkar eiga fyllilega við rök að styðjast enda staðfesti könnunin það sem við höfðum áður sagt. Okkur var lofað greinargerð um máliðfrá Varnarmáladeild, en sú greinargerð hefur enn ekki borizt þrátt fyrir að könnuninni er lokið fyrir nokkru. 1 íyrrakvöld var haldinn fundur með trúnaðarmönnum á Keflavikurflugvelli og sögðu þeir að enn væri ekkert lát á þeirri þróun sem kvartað hefði veriðyfir við utanrikisráðherra. Fjöldi hermanna á ýmsum viðgerðarverkstæðum og i störfum sem verið hefðu i höndum Islendinga einna hingað til færi sifellt vaxandi. Ég vil láta þess getið að þær fullyrðingar sem Páll Ásgeir Tryggvason deildarstjóri Varnarmáladeilda um að her- mönnum i störfum almenns eðlis fækkaði stöðugt, eru helber þvættingur. Nú ermálumþannig komiðað við höfum ákveðið að verði málaleitunum okkar ekki sinnt og gerðum samningum fram- fylgt þá munum við gripa til annarra aðgerða til lausnar málinu en viðræðna, enda þótt við teljum að sú leið sé öllum fyrir beztu. Blaðið reyndi að ná tali af Páli Ásgeiri Tryggvasyni i gærdag en hann var staddureiihvers- staðar úti á landi. EB RÍKISVALDIÐ HEFUR SKORAÐ LÖGREGLUMENN A HÓLM - með úrskurði kjaranefndar Kjör lögreglumanna eru slæm núna, eins og ef til vill allra annarra, sagði Jónas Jónasson varðstjóri i samtali við Alþýðu- blaðið. En það, sem við erum óánægðastir með núna, er úr- skurður kjaranefndar. Það má segja að hann hafi komið eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þá sagði Jónas að þegar lög- reglumenn bættust i hóp opin- berra starfsmanna, þá hefðu þeir orðið að gera sérsamning á undan öllum öðrum aðildarfélögum BSRB. Grundvöllur þeirra samn- inga að hálfu rikisins, hefði verið að halda öllu sem lengst niðri og heföu samningarnir verið eftir þvi. Rammasamningur BSRB heföi verið gerður i marz ogeins og lög gerðu ráð fyrir bæru aðildar- félögin siðan fram sérkröfur sinar og gerðu sérsamninga þar sem inn væri tekin röðun i launa- flokka o.fl. En af þvi að lögreglumenn voru langt á undan hinum aðildar- félögunum með sérsamningana, heföu þeir i raun og veru samið i allt ööru þjóðfélagi, vegna þeirr- ar launahækkunar sem varð i febrúar með Alþýðusambands- samnin^unum. Sú launasveifla sem orðiö hefði i landinu þá, hefði komið öllum aðildarfélögunum til góða, nema félagi lög- reglumanna. Samkvæmt lögum og venjum um samningsreglur opinberra starfsmanna ætti að endurskoða kaupsamninga þegar breytingar yrðu á launum, en sú endur- skoðun heföi aldrei farið fram á samingum lögreglumanna, og engin leiðrétting fengizt. Þá sagði Jónas að rikið heföi viðurkennt þann órétt, sem lög- reglumenn hefðu verið beittir, en ekki fengizt til að leiðrétta hann þar sem hætta væri á aö önnur félög kæmu á eftir. En með úrskurði kjaranefridar hefði útkoman orðið sú að lög- reglumenn hefðu komið út með versta úrskurðinn, þegar á heildina væri litið. Sagði Jónas að til dæmis væri ekki gert ráð fyrir neinum launa- hækkunum hjá nýliðahópnum og öðrum þeim lögreglumönnum sem væru i 3. launaþrepi. Þetta atriði teldu þeir þyngra á vogar- skálunum en þær hækkanir sem fengizt hefðu. „Svona aðgerðir hljóta alltaf að herða menn i baráttunni og það má segja að rikisvaldið hafi hálft I hvoru skorað lögreglumenn á hólm núna með þessum kjara- nefndarúrskurði.’i” sagði Jónas að lokum. —JSS FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1976 alþýðu blaðíö HEYRT, SÉÐ OG HLERAÐ Séð: 33. þing Alþýðu- sambands Islands hefst 29. nóv. nk. og mun það standa til 3. des. Þetta þing verður eitt um- fangsmesta þing um málefni launþega sem haldið hefur verið hér á landi og verður unnið frá kl. 9 á morgnana til kl. 18 á kvöldin. Hér er á ferðinni vinnudagur i lengra lagi enda eru dagskrárliðir alls 22. o Lesið i Félagstiðindum SFR að verið er að leita upplýsinga um tildrög að stofnun félagsins og einnig vitneskju sem einhverjir kunna að búa yfir um starfsemi félagsins, Hér er á ferð- inni þarft og virðingar- vert verkefni sem Al- þýðublaðið óskar að vel takist. o Lesið i sama blaði: i grein eftir Björn Arnórsson hagfræðing: Það má þannig með sanni segja að siðustu samningar séu verð- bólgusamningar- ekki af þvi að þeir séu of háir — langt i frá —heldur af þvi að þeir fela i sér heimild um að velta ALLRI launahækkuninni út i verðlagið, án þess að launafólk fái nokkrar bætur. Full visitöluupp- bót, sem reiknuð væri mánaðarlega, væri hinsvegar, fremur en hitt, að pressa á rikis- valdið að leita að áhrifameiri leiðum til að hemja verðbólgu- skriðuna. o Hlerað: Flestir muna eftir Moggafréttunum um dularfullar og fjandsamlegar ferðir Rússa með SVR fyrir rúmu ári. Þjóðviljinn fann þá skýringu að verið væri að safna skiptimiðum fyrir inn- rásarlið Rússa þegar það kæmi úr kafbátun- um, sem legðu upp að Granda, þannig að þeir gætu i skyndingu náð borginni á sitt vald. Nú hafa hersinnar fundið óbrigðult ráð við þessu. I ráði er að fjarlægja skiltin sem visa veginn til herstöðvarinnar á Keflavikurflugvelli og villa þannig um fyrir innrásarliðinu. Blaðið hefur hlerað að nú sé unnið að þvi i herbúðum andstæðingsins að finna krók á móti þessu geysi- snjalla herbragði.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.