Alþýðublaðið - 20.08.1976, Side 10

Alþýðublaðið - 20.08.1976, Side 10
Landsleikur í knattspyrnu Island gegn Luxemburg á Laugardalsleikvanginum á morgun, laugardaginn 21. ágúst kl. 15.00 Forsala aðgöngumiða verður við Útvegsbankann, Austurstræti Komið og hvetjið íslenzka landsliðið Knattspyrnusamband íslands Verð: Stúka: kr. 1.000.- Stæði: kr. 600.- Börn: kr. 200,- Norræna menningarmála- skrifstofan í Kaupmannahöfn Norræna menningarmálaskrifstofan f Kaupmannahöfn (Sekretaritatet for nordisk kulturelt samarbejde) er skrifstofa Ráöherranefndar Norðurlanda, þar sem fjallah er um samstarf á sviði vlsinda, fræðslumála, lista og annarra menningarmála á grundvelli norræna menningarsáttmálans. 1 skrifstofunni eru lausar til um- sóknar 2 stöður •deildarstjóra, önnur I fræðslumáladeiid en hin i þeirri deild er Ijallar um samstarf á sviði vlsinda. Stöðurnar eru veittar til 2-4 ára. Launagreiðslur miöast viðlaun skrifstofustjóra (kontorschef) I dönsku ráðuneyti. Þau iaun eru nú d.kr. 189.028.— á ári auk einhverra við- bótargreiðslna. Stöðurnar eru auglýstarlausar með fyrirvara um hugsan- legar breytingar á skipulagi Menningarmálaskrifstofunn- ar. Veitingarvaldshafi er ekki bundinn af þeim umsóknum sem berast. Staða deildarstjóra I fræðslumáladeild veröur veitt á næstunni. Staða deildarstjóra I þeirri deild er fjallar um samstarf á sviði vfsinda verður veitt frá 1. jiilf 1977. Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til 1. september 1976. Umsóknir skuiu stflaöar tíi NORDISK MINISTERRAD og sendar tfl SEKRETARIATET FOR NORDISK KULTUR- ELT SAMARBEJDE, Snaregade 10, 1205 Köbenhavn K. Nánari upplýsingar veitir Klas Olofsson framkvæmda- stjóri Sekretariatetfor nordisk kulturelt samarbejde, sfmi 01-114711, Kaupmannahöfn. Menntamálaráðuneytið, 18. ágfist 1976. Norræni menningarsjóðurinn Verkefni Norræna menningarsjóðsins er að stuðla að samvinnu Noröurlandanna á sviði menningarmála. t þessum tilgangi veitir sjóöurinn styrki tU norrænna sam- starfsverkefha á sviði menningarmála. Aárinu 1977 mun sjóðurinn ráða yfir 6,5 milljónum d.kr. Af þessu fé er hægt að sækja um styrki til norrænna sam- starfsverkefna sem unnin eru I eitt skipti fyrir öll. Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem taka lengri tima.t sllkum tilvikum er um styrki að ræða fyrir ákveöið reynslutlmabil. Umsóknir ber að rita á umsóknareyöublöð sjóðsins og er þeim veitt viðtaka allt árið. Umsóknir verða afgreiddar eins fljótt og unnt er væntanlega á fyrsta eða öðrum stjórnarfundi eftir aö þær berast. A árinu 1977 mun sjóöurinn styrkja „norrænar menningarvikur”. Um þessa styrki gilda sérstakar regl- ur. Umsóknarfrestur um þá er til 1. nó"®w>ber 1976. Frekari upplýsingar um starfsemi sjóðsins veitir Norræna menningarmálaskrifstofan, Snaregade 10, DK-1205 Kaupmannahöfn slmi 01/11 47 11. Umsóknareyðublöð fást á sama stað og einnig I mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk, simi 25 000. Stjórn Norræna menningarsjóðsins. Föstudagur 20. ágúst 1976 Höfum ekki efni á að reka sjónvarp Pálina ólafsdóttir hringdi i blaðið og sagðist vera óánægð með það sjónarmið, sem fram hefði komið i grein Braga Jóseps- sonar, að ekki ætti að leyfa Keflavikursjón- varpið. Pálina sagðist hinsvegar hafa verið mjög ánægð með grein um málefni sjónvarps- ins, sem birzt hefði i Morgunblaðinu eftir Kristinu Magnúsdótt- ur. Þá sagði Pállna: „Ég tel al- veg fráleitt að leyfa ekki Kefla- vikursjónvarpið. Þar fáum við það bezta sem hægt er að sjá i bandarisku sjónvarpi og þaö fyrir litinn pening. Við verðum að hafa i huga að við tslending- ar höfum ekki efni á þvi að reka viðunandi sjónvarp. Við höfum hvorki fólk, tæki né fjármagn til þess. Þess vegna er alger fásinna að banna Keflavikur- sjónvarpið, þar sem við höfum varnarliðiö hér hvort sem er og engar likur eru til þess að á þvi verði endir i bráð. Ég tel að þessi áróður gegn bandariska sjónvarpinu sé tit i hött og, að nauðsynlegt sé að menn taki þetta mál aftur til alvarlegrar athúgunar.” Krafa almennings á að vera: Að stjórnmálamenn hylmi ekki yfir af- brot samflokksmanna sinna eða annarra , Bóndi af Norðurlandi, sem staddur var i bænum i gær, hafði samband við Alþýðublaðið út af þeim umræðum sem gengið hafa að undanförnu um f jármálasvindl og hugsanleg tengsl Fram- sóknarf lokksins við ýmsa f járglæframenn. Hann sagði, að sem gömlum framsóknarmanni, væri sér farið að liða heldur illa út af þessum umræðum. Fram- sóknarflokkurinn heföi allt frá upphafi barizt fyrir þvi æðsta og göfugasta i samskiptum manna á milli. Andlegt heilbrigði hefði verið markmið, sem flokkurinn heföi alltaf undirstrikað auk þess sem hann hefði barizt fyrir auknu félagslifi i gegnum ung- mennafélögin og bindindis- samtökin. 'lafur Jóhannesson hefði i frægri ræðu á Alþingi visað á bug öllum ásökunum and- stæðinga sinna um það að Framsóknarflokkurinn væri á nokkurn hátt tengdur fjármála- spiliingu og fjárglæframönnum svo ekki væri talað um tengsl flokksins við aðra meiri háttar glæpamenn. „Auövitað höfum við trúað þvi sem ölafur Jóhannesson hefursagt. En ég verð að segja það i hreinskilni, að mér er farið að finnast nóg um. Ef það svo reynist rétt, að formaður Fram- sóknarflokksins hafi gerzt sekur um að hylma yfir tengsl flokksins við glæpalýð og sé jafnvel ábyrgur fyrir þvi að ýmsir þessara manna hafa komizt I toppaðstöður bæði gagnvart lánastofnunum og valdamönnum, þá er ég ansi hræddur um aö menn fari að endurskoða afstöðu sina til flokksins og formannsins. Að visu er ég ekki enn tilbúinn að trúa þvi, sem maður hefur heyrt, að tilteknir áhrifamenn flokksins hafi beinlinis staðiö fyrir stórkostlegu svindli, narraö stórar fjárupphæðir út úr bönkunum, opnaö stóra viðskiptareikninga i einum banka með innstæðulausum ávisunum úr öðrum banka og þarfram eftir götunum. Sumtaf þessu, sem maður heyrir, er auðvitað algerlega út i hött, eins og t.d. sú saga, að Einari Agústssyni hafi verið vikið úr stööu bankastjóra Samvinnu- bankans á sinum tima, vegna óvandaðra samskipta við fjár- glæframenn. En hverju á maður að trúa? Mér er farið að þykja nóg um og síðustu fréttir I sam- bandi við stórkostlegt ávisana- svindl gefa tilefni til að óttast að hér sé ekki allt með felldu.” Að lokum sagði viðmælandi blaðsins: „En ég get fullvissað þig um það að hinn almenni flokksmaður Framsóknar- flokksins er yfirleitt heiðarlegur og vill berjast gegn spillingu i hverri mynd sem hún birtist. Þess vegna heid ég að heiðar- legir menn úr öllum flokkum eigi að taka höndum saman og berjast gegn spillingunni hvar sem hana er að finna. Ég er þeirrar skoöunar að heiðarlegir stjórnmálamenn eigi að ganga fram fyrir skjöldu og neita að taka þátt i nokkurs konar svindli, eða öðru misferlið flokksmanna sinna. 1 þvi upplausnarástandi, semnú rfkir i þjóðfélaginu er nauðsynlegt að slikir menn gangi fram fyrir skjöldu. Glæpamenn og svindl- arar eiga ekki að geta blómstr- að I skjóli stjórnmálaflokkanna. Það er sennilega kominn timi til að menn fari að hætta slíkri iðju.” 1

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.