Alþýðublaðið - 15.09.1976, Page 2
2 STJORNMAL/ FRÉTTIR
Miðvikudagur 15. september 1976. SSSít
alþýóu'
blaóió
Utgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri
og ábyrgðarmaður: Arni Gunnars-
son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs-
son. Útbr.stj.: Kristján Einarsson,
simi 14900. Aösetur ritstjórnar er i
Siðumúla 11, slmi 81866. Auglýsinga-
deild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar -
simi 14900. Prentun: Blaðaprenti h.f. Askriftarverð: 1000
krónur á mánuði og 50 krónur I iausasölu.
Alyktanir kjördæmisráðs í Norðurlandskjördæmi vestra
I
jRíkssljórnin ræður
jekki við verðbólguna
■ — sú skýring yfirklór eitt að atvinnuleysi
Bráðabirgðalög - þurfi að koma til eigi að hefta verðbólgu
brot á stjórnarskrá r
Aðalfundur kjördæmaráðs Al-
þýðuflokksins i Norðurlandskjör-
dæmi vestra haldinn á Siglufirði
12. september 1976, ályktareftir-
farandi:
Bráðabirgðalög þau, sem Matthías Bjarnason
sjávarútvegsmálaráðherra gaf út rétt áður en hann
fór í sumarleyfi, hafa vakið mikið umtal. Annars
vegar er viðurkennt, að kjaramál sjómanna haf i verið
erfið viðfangs, siðan ríkisstjórnin breytti sjóðakerfj *
sjávarútvegsins, og hafi gengið illa að komast til i
botns í þeim málum eða leggja þau svo fram, að
sjómenn sjálf ir skildu þau til hlítar og vildu greiða um
þau atkvæði.
Hitt hefur valdið mun meiri deilum, að sjávarút-fe
vegsmálaráðherra skyldi í annarri grein bráðabirgða'
laganna banna algerlega verkföll sjómanna, verk-s'
bönn eða neins konar samúðarverkföll.
Af hverju bætir ráðherrann þessum ofbeldiskenndu
ráöstöfunum við efnishluta bráðabirgðalaganna?
Hvað fékk hann til þess að banna sjómannastéttinni
að beita mikilsverðustu mannréttindum launþega á
Islandi, hvað sem gerist, enda þótt ekkert verkfall sél
á f lotanum, engu hafi verið hótað og ekki sé vitað um i
neinar fyrirætlanir í þá átt?
Á fundum kjördæmisráða Alþýðuflokksins á
Akureyri og á Siglufirði um siðustu helgi héldu þeir
Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, og
Finnur Torfi Stefánsson, nýkjörinn frambjóðandi
Alþýðuflokksins á Norðurlandi vestra, þvi fram að
þetta ákvæði bráöabirgðalaganna um að banna verk-
föll sjómanna sé gróft brot á stjórnarskrá iandsins. |
I stjórnarskrá íslenzka lýðveldisins er skýrt tekiðf
fram, aðforseti (það þýðir ríkisstjórn) megi þvi |
aðeins gefa út bráðabirgðalög, að brýna nauðsyn beri |
til, og er það túlkað svo af mestu lögspekingum;
þjóðarinnar, að verulegir hagsmunir þurfi að vera í}:
tafli. |
Það ber að vísu að viðurkenna, að ríkisstjórnir og
ráðherrar undanfarinna ára hafa oft teflt á tæpasta
vað, hvað þetta snertir. Hitt er augl jóst hverjum skyn-
sömum manni, að það er ekki hægt að telja „brýna
nauðsyn" íslenzks þjóðfélags að banna sjómanna-
verkf öll, þegar ekkert slíkt verkf all stendur yf ir, engu
hef ur verið yf ir lýst og ekki er vitað um svo mikið sem
tal um eitt slíkt verkfall. Þetta er ekkert annað en
gróft stjórnarskrárbrot, algerlega rakalaust og tiI-;
efnislaust.
Eðlilegt er að spyrja, hvers vegna Matthías Bjarna-
son sjávarútvegsmálaráðherra grípur til þess að gefa [
út slík bráðabirgðalög, sem eru augljóst brot á
stjórnarskránni. Eina hugsanlega skýringin er sú, að
innan ríkisstjórnarinnar er talað um nauðsyn þess að
þrengja að verkalýðnum í kaupdeilum, og frumvarp
um slíkar aðgerðir liggur í skrifborðsskúffum ráð-
herranna. i því samhengi er hægt að skilja það að
sjávarútvegsmálaráðherra skuli ögra sjómönnum á
þennan grófa hátt.
Hver sem skýringin kann að vera, er eitt Ijóst: \
Sjálf stæðisráðherra hefur að tilefnislausu höggvið að
réttindum launþega í landinu — sjómanna. Það er því j
hluti af stefnu rikisstjórnarinnar. Þess vegna hljóta
verkalýðssamtökin — og sérstaklega sjómannasam-
tökin — að bregðast hart við. Launþegarnir, þar á
meðal sjómenn, tapa sífellt á verðbólgunni. Þeirra
hagur fer hnignandi. Þeir verða að styrkja samtök sín ‘
til að halda uppi mótmælum. Það munu engir aðrir
berjast fyrir málstað þeirra — nema stjórnmála-
flokkar þeirra.
Rétt er að viðurkenna, að á undanförnum áratugum
hafa ákvæðin um bráðabirgðalög verið mistúlkuð af
hverri einustu ríkisstjórn, og er ekki ástæða til að'
undanskilja Alþýðuf lokkinn þeirri gagnrýni. En nú er
gengið of langt. Það er ekki hægt að kalla „brýna
nauðsyn" að banna verkföll, sem eru ekki til ogl
engum hafa dottið í hug. Þess vegna eru þessi bráða-i
birgðalög fordæmanleg mistök af hálfu Matthíasarí:
Bjarnasonar, og verður að kref jast þess, að varlegar
verði haldið á útgáfu bráðabirgðalaga í framtíðinni.i
—S-1
Dýrtiðar og verðbólgu
mál:
Veröbólgan er mesti ógnvaldur
I islenzku efnahagslifi. Ekki ein-
ungis raskar hún skiptingu eigna
og tekna alþýðufólki i óhag, held-
ur grefur hún undan fjármálasiö-
ferði, spillir möguleikum til rétt-
látrar skattheimtu og ógnar lýð-
ræðislegum stjórnarháttum.
Rikisstjórninni hefur fullkom-
lega mistekizt það meginhlutverk
sitt, að vinna á verðbólgunni og
koma henni a.m.k. niöur i það
sem er i helztu viðskiptalöndum,
þrátt fyrir gifurlega innlenda og
erlenda skuldasöfnun, og varan-
legan viðskiptahalla, sem leggur
drápsklyfjar á þjóðina um langa
framtið. Sú afsökun rikisstjórn-
arinnar að ekki sé unnt að ná
meiri árangrián þess aöstofna til
atvinnuleysis er yfirklór eitt,
enda hefur litið af skuldfénu farið
til atvinnuuppbyggingar heldur
runnið mest i eyðslu og misjafn-
lega skynsamlegar framkvæmd-
Skattamál
Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokkur hafa fariö með yfirstjórn
skattamála i rikisstjórn undan-
farin 16 ár. Afleiðingin er öllum
ljós. Ekki hefur verið hróflað viö
þeim megingöllum skattalaga,
sem leiða af sér mesta misréttiö.
Þetta er glöggt dæmi um hvaöa
hagsmunahópur I þjóðfélaginu
rikisstjórnin heldur verndarhendi
yfir. Þingið skorar á þingflokk Al-
þýðuflokksins að halda áfram
baráttu fyrir gagngerum endur-
bótum á jiessu sviði.
Dómsmál
Þingið lýsir þungum áhyggjum
yfir þeim margvislegu spillingar
og afbrotamálum, sem skollið
hafa sem hrollvekja yfir þjóðina,
undanfarin misseri.
Það blasir við að dómskerfið i
landinu er ekki til þess búiö að
ráöa viö þessi verkefni. Brýn
nauðsyn er á gagngerum endur-
bótum réttargæzlu i landinu ef
unnt á að vera að varöveita þá
siðferðisvitund og virðingu fyrir
lögum og rétti sem ekkert þjóðfé-
lag fæst staðizt án.
Verkfallsréttur sjó-
manna.
Kjördæmaþingið mótmælir þvi
að sjávanítvegsmálaráðherra
hefur með bráðabirgðalögum
svipt sjómenn verkfallsrétti.
Þessi réttindasvipting er tilefiiis-
laus, þar sem ekkert verkfall er á
fiskiskipaflotanum og engar
raddir uppi meöal sjómanna um
verkfallsaðgerðir. Bráðabirgða-
lög þessi brjóta þannig gegn
ákvæðum stjórnarskrár um að
einungis megi setja bráðabirgða-
lög þegar brýna nauösyn ber til.
Hér er um að ræða gróft brot á
mannréttindum einnar mikilvæg-
ustu atvinnustéttarinnar i land-
inu.
Orkumál.
Þingið fagnar þvi átaki sem nú
loks er verið að gera i orkumálum
Norðurlands, en átelur hins vegar
harðlega það óskipulega flan sem
einkennt hefur vinnubrögð við
Kröfluvirkjun.
Það getur með engu móti talizt
eðliiegt, að Norðlendingar einir
standi undir þessum fram-
kvæmdum með rándýru orku-
verði, heldur hlýtur þjóðin öll að
taka þátt og rafmagn frá Kröflu
að verða á sama veröi og raf-
magn frá Landsvirkjun.
Nauðsynlegt er aö gera nú stór-
átak í því að stækka orkumarkað
á Noröurlandi, með uppbyggingu
orkufreks iðnaöar eða öðrum
hætti.
Æskulýðs- og iþróttamál
Á þinginu ræddi Kristján Möll-
er sérstaklega um æskulýðs- og
iþróttamál og lagði fram ásamt
Birgi Guðlaugssyni eftirfarandi
tillögu sem samþykkt var sam-
hlj óða:
Kjördæmaþing Alþýðuflokksins
i Norðurlandskjördæmi vestra
haldið á Siglufirði 12. sept. 1976
skorar á þingmenn Alþýðuflokks-
ins að þeir beiti sér fyrir stór-
hækkun styrks rikisins til æsku-
lýðs-og iþróttamála við gerðfjár-
laga fyrir árið 1977.
Ennfremur að þeir styðji eða
leggi fram tillögu á Aiþingi um
uppbyggingu Iþróttakennara-
skóla Islands að Laugarvatni, til
þess að gera skólanum kleift að
framfylgja nýjum lögum sem
samþykkt voru á Alþingi 1972.
Ný stjórn
kjördæma
ráðsins
Á aðalfundi kjördæmaráðs
Alþýðuflokksins i Norður-
landskjördæmi vestra á Siglu-
firði s.l. sunnudag var kjörin
ný stjórn kjördæmaráösins.
Hana skipa:
Aða Imenn:
Anton Jóhannsson, formaður,
Siglufirði.
Guðbrandur Frimannsson,
Sauðárkróki.
Þórður Kristjánsson, Hofsósi.
Varamenn:
Birgir Guölaugsson, varafor-
maöur, Siglufirði.
Jón Karisson, Sauðárkróki.
Bernódus Ólafsson, Skaga-
strönd.
S tj órn Öldunnar
mótmælir
Stjórn Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Oldunnar
samþykkti i gær einróma á
fundi sinum eftirfarandi
ályktun:
„Stjórn Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins öldunnar
mótmælir harðlega hinni
nýjustu lagasetningu um kaup
og kjör fiskimanna sem ger-
ræðisfullum og óþörfum, þar
sem engin stöðvun var yfir-
standandi eða yfirvofandi og
nýuppkveöinn úrskurður
Félagsdóms i máli Farmanna-
og fiskimannasambands
Islands var á þá lund að engir
samningar væru i gildi, en á
meðan svo væri skyldu uppgjör
fara fram eftir samnings-
uppkasti þvi sem fellt hefði
verið i allsher jaratkvæða-
greiðslu með mikilli þátttöku
starfandi fiskimanna innan
FFSI. Samningsuppkast þetta
með óverulegum breytingum,
hefur nú veriö lögfest og borið
við umhyggju fyrir öryggi sjó-
manna i kjaramálum.
Stjórn öldunnar álýtur að sú
umhyggja sé af sama toga
spunnin og umhyggja allra rik-
isstjórna undanfarandi áratuga,
sem allar hafa sett lög til kjara-
rýrnunar fyrir fiskimenn, enda
sýna viöbrögð aðila hvor telur
lagasetningu þessa sér i hag.
Éðlilegra hefði veriö i ljósi
niðurstööu Félagsdóms, að
hefja samningaumræöur að
nýju og þá gjarna i öðru formi
en þvi sem alls ekki fékk hljóm-
grunn meðal fiskimanna, sbr.
niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar.
Stjórn öldunnar
hvetur alla félagsmenn
til aukinnar félags-
legrar þátttöku og
bendir á að allt
afskipta- og áhugaleysi
i þessum efnum vinnur
gegn þeim sjálfum og
hagsmunum þeirra.
Stjórnin hvetur enn-
fremur til aukinnar
samvinnu forystu-
manna i félaga-
samtökum fiskimanna,
samfara meiri festu og
ákveðni um kjara- og
hagsmunamál þeirra.