Alþýðublaðið - 15.09.1976, Qupperneq 3
œr
Miðvikudagur 15. september 1976.
FRÉTTIR 3
Karl Schuts í viðtali við Alþýðublaðið:
»Ég hef ekki breytt um skoð
un á Geirfinnsmálinu frá því
ég kvnnti mér það fvrst«
og tel enn möguleika á að leysa málið
„Ef afbrotum kynni að fjölga á íslandi ætti að setja á stofn fufikomna
tæknideild og auka menntun islenzkra rannsóknarlögreglu og gefa rann-
sóknarlögreglumönnum tækifæri til þess að sérhæfa sig. Rannsóknarlög-
reglan ætti að læra sérstaka tækni og „taktik” i sambandi við yfirheyrslur.
Rannsóknarmenn verða að hafa nokkra þekkingu á afbrotasálfræði og geta
hagnýtt sér slika þekkingu i sambandi við yfirheyrslur. Þá ættu þeir að
hafa nýtizku tæki til að afla sér upplýsinga allt frá talstöðvum i bilum og
upp i tölvu.
Mér er kunnugt um að Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra hafi svip-
aðar hugmyndir eins og ég um það hvernig ætti að efla rannsóknarlögregl-
una. Ég er reiðubúinn að kenna og leggja á ráðin ef óskað verður eftir þvi.”
Þetta sagði v-þýzki glæpasér-
fræðingurinn Karl Schutz meðal
annars i viðtali við Alþýðublað-
ið. Það fór fram f húsakynnum
sakadóms að viðstöddum Pétri
Eggerz sendiherra, sem er að-
stoðarmaður Schutz og túlkur.
Karl Schutz kom hingað til
lands fyrir nokkrum vikum að
ósk rikisstjórnarinnar i þeim
tilgangi að veita aðstoð við
rannsókn Geirfinnsmálsins og
Guðmundarmálsins. Auk þess
miðlar hann rannsóknarlög-
reglu af viðtækri þekkingu sinni
og reynslu, sem hann hefur öðl-
azt I 30 ára starfi sem glæpasér-
fræðingur i Vestur-Þýzkalandi.
Hann veitti t.d. mikla aðstoð við
uppljóstrun morðsins sem
framið var við Miklubraut fyrir
skömmu.
Morð á fjórum
hermönnum
1 upphafi viðtalsins var
Schutz beðinn að segja frá ein-
hverju eftirminnilegu máli sem
hann fékkst við i Þýzkalandi.
Hann sagði, að sér væri einna
minnisstæðastmorðsem framið
var 19. janúar 1969. Þann dag
var ráöizt á fimm hermenn i v-
þýzka hernum, þar sem þeir
voru á verði i herbúðum sinum.
Arásin var gerð að óvörum og
fjórir þeirra voru myrtir en sá
fimmti særðist hættulega.
Morðingjarnir komust undan
með vopn hermannanna áður en
hægt var að hafa hendur i hári
þeirra og enginn vissi hverjir
voru að verki. Nú hófst gifur-
lega umgangsmikil leit sem
stjórnað var af Karli Schutz.
Undir hans stjórn störfuðu 130
manns að rannsókn þessa óhugn
anlega morðmáls og oft voru
rannsóknarmenn að störfum
sólarhringum saman án svefns
eða hvildar. Erfiðast var að
vinna úr mörg þúsund ábend-
ingum frá fólki sem taldi sig
geta gefið upplýsingar.
Vinna hratt
„1 vestur-þýzku lögreglunni
er lögð áherzla á að vinna hratt.
Við verðum að vinna fljótt úr
öllum upplýsingum, þvi eftir þvi
sem liður er auðveldara fyrir
glæpamenn að fela slóðina,”
sagöi Karl Schutz. „Klukkan
heldur áfram að tifa” er mál-
tæki sem lögreglumenn eru
stöðugt minntir á.
Ógrynni upplýsinga var safn-
ENGAR
MYNDIR
Þegar viðtalið við Karl Schutz
var tekið óskaði hann eftir þvi,
að ekki birtust neinar niyndir af
honum sjáifum. Sú ósk var að
sjálfsögðu tckin til greina, en cf
og þegar lausn er fengin á þeim
málum sem hann rannsakar
sagðist hann mundu gefa leyfi
til mvndatöku ef biöðin kærðu
sig um.
að i sambandi við morðið á her-
mönnunum fjórum og öllum var
þeim komið á einn stað og þaðan
varð að koma þeim i hendur
þess sem stjórnaði vinnunefnd-
inni, i þessu tilfelli Schutz. Sem
fyrr segir unnu 130 manns við
rannsóknina og hverjum og ein-
um þurfti að gera ljósa grein
fyrir heildarmynd málsins
hverju sinni.
Brátt fór auðmönnum að ber-
ast nafnlaus bréf með ljós-
myndum af vopnum þeim sem
stolið var af hermönnunum sem
myrtir voru. „Tilgangurinn
með þessu var að skapa ótta og
angist meöal fólksins,” sagði
Schutz. „Þeir kröfðust peninga
Mánuðum saman hafa
nokkur umgmenni set-
ið i gæzluvarðhaldi
vegna málanna sem
Schutz aðstoðar við
rannsókn á.
og gáfu i skyn að mafia stæði á
bak við þetta. Myndirnar tákn-
uðu að þessum vopnum yrði
beitt á viðtakendur bréfanna ef
þeir létu ekki undan og borguðu.
Hér var beitt sálfræðilegum að-
ferðum til að undirstrika vald
sem morðingjarnir þóttust
hafa.”
Stóð í 96 daga
Ekki er hér rúm til að rekja
þetta mál, en um það hefur ver-
ið skrifuð bók sem vakti mikla
athygli i V-Þýzkalandi. Með ó-
hemju vinnu og rannsóknum
tókst Schutz og starfsmönnum
hans að komast að þvi hverjir
morðingjarnir voru. Hér var um
þrjá kynvillinga að ræða, syni,
sem komu frá góðum fjölskyld-
um. En þá var eftir að finna þá.
Þegar leitað er ákveðinna
manna eru tvær aðferðir tiltæk-
ar. Onnur er sú, að dreifa mynd-
um og upplýsingum i blöð og
sjónvarp, festa upp myndir af
þeim á opinberum stöðum og
biðja almenning og fjölmiðla
um aðstoð. Þessi aðferð getur
verið árangursrik, en hún hefur
vissar hættur i för með sér. Hin-
ir eftirlýstu geta gripið til þess
ráðs að flýja land eða láta
breyta útliti sinu.
Hin aðferðin er leit með leynd
og var hún notuð i þessu tilviki
með góðum árangri. Það tókst
að fá upplýsingar um að menn-
irnir ætluðu að hittast á ákveðn-
um stað á ákveðnum tima og þá
voru þeir handteknir. Þa voru
liðnir 96 dagar frá þvi morðin
voru framin og rannsóknin kost-
aði ríkið eina milljón marka,
eða yfir 730 milljónir Islenzkra
króna eftir núverandi gengi.
„Fyrir venjulegt fólk virtist
þessi hroðalegi glæpur vera
framin i tilgangsleysi. En kyn-
villingarnir ætluðu sér að kúga
nægilegt fé út úr fólki til að þeir
gætu setzt að á eyju einni út af
fyrir sig,” sagði Karl Schutz.
Rannsókn Geir-
finnsmálsins
Nú bar rannsókn Geirfinns-
málsins á góma, en það mál og
Guðmundarmálið eru þess
valdandi að Schutz dvelur nú
hér á landi. Hann tók fram, að
ekki væri unnt aö gefa neinar
upplýsingar um það mál til fjöl-
miðla meðan unniö væri að
rannsókninni. En er málið enn
flóknara en hann áleit i fyrstu?
Tekst Schutz að komast
að þvi hver hringdi
heim til Geirfinns úr
sima Hafnarbúða
kvöldið sem hann
hvarf?
„Ég hef ekki breytt um skoð-
un á þvi máli frá þvi ég kynnti
mér það fyrst. Möguleikinn til
að leysa það er enn fyrir hendi.
Samstarfshópur undir stjórn
Arnar Höskuldssonar vinnur að
málinu og ég er ráðgjafi hóps-
ins. Ég hef lesið öll skjöl um
málið og búið var að vinna
geysimikið starf áður en ég kom
hingað. Orn Höskuldsson er
reyndur rannsóknarmaður og
samstarf okkar á milli mjög
gott,” sagði Karl Schutz.
Segið þér að enn sé möguleiki
á að leysa málið?
„Eins og ég drap á áðan,
leggjum við mikla áherzlu á það
i Vestur-Þýzkalandi að hraða
rannsókn glæpamála. Allur
dráttur, öll töf, kemur glæpa-
mönnum að haldi. örn
Höskuldsson hefur verið i erfiðri
aðstöðu. Það er ekkert verra en
að rannsaka morö sem framiö
hefur verið fyrir alllöngu, en við
vinnum með orku og iðni að
rannsókninni.”
Tæknilegar rannsóknir
Þvi næst var Schutz spurður,
hvort ekki væri búið að upplýsa
Geirfinnsmálið ef rannsóknar-
lögreglan hefði haft til þess öll
tæki sem notuð eru t.d. i Þýzka-
landi. Hann svaraði spurning-
unni óbeint á þessa leið:
„Nú höfum viö aðgang að
einni fullkomnustu tæknideild
heims og rannsóknarstofum
hennar. Einnig höfum við fengið
lánaðan visindamann sem þar
staríar. Aö sjálfsögðu breytir
þetta miklu.
1 þessu sambandi vil ég benda
á, að þegar morðið á Miklu-
brautinni var framið var þessi
visindamaður staddur hér og
veitti mikla hjálp. Með aðstoö
hans tryggðum við, að ekki var
unnt að afmá ákveðin spor sem
við studdumst við.
En hér verður að koma upp
fullkominni tæknideild samfara
aukinni menntun og sérhæfingu
rannsóknarlögreglumanna. Það
verður að þjálfa menn til að vita
að hverju þeir eiga að leita þeg-
ar glæpur hefur verið framinn
og hvar þeir eiga að leita. Þau
spor sem ekki eru sjáanleg með
berum augum verður að rekja
með fullkominni tækniaðstoð og
ég hef þegar kynnt dómsmála-
ráðherra hugmyndir minar um
eflingu rannsóknarlögreglu,
eins og ég tók fram i upphafi. Og
ég er reiðubúinn til að aðstoða
eftir mætti ef eftir þvi verður
leitað.”
Fær alla aðstoð
Nú var Schutz spuröur hvort
hann fengi allar þær upplýsing-
ar og alla þá aðstoð sem hann
óskaði eftir við rannsókn Geir-
finnsmálsins. Hann svaraði þvi
samstundis játandi:
„Ég hef allar þær upplýsingar
sem til eru hjá sakadómi um
Geirfinnsmálið. Allt stendur
mér til boða sem ég óska eftir og
engar hömlur lagðar á störf min
á nokkurn hátt.
Munið þér halda áfram þar til
málið er upplýst?
„Þegar búið er að afla nægi-
legra sannana i málum er það
lagt fyrir saksóknara, ekki satt.
Þá er starfi rannsóknarlögreglu
lokiðog málið fer til dómara. Ef
ekki tekst að afla nægra sann-
anna er yfirleitt ekki hægt að
ljúka málum á þennan hátt. Ég
dreg það i efa að ég geti dvaliö
það sem eftir er ævinnar á Is-
landi til þess að leysa þetta
mál,” sagði Karl Schutz og
kimdi.
Fleiri glæpir með
aukinni siðvæðingu
Þegar hér var komi
barst talið að vaxandi fjölda of-
beldis- og glæpaverka, en þau
mál eru mjög til umræðu á
Vesturlöndum. Schutz sagði að
visindamenn reyndu að kanna
hvaða orsakir það væru sem
lægju á bak við glæpinn. Alltaf
væru að koma fram nýjar hug-
myndir um aðferðir við að
fremja glæpi. 1 sambandi viö af-
brot kemur billinn oft við sögu.
Bilnum er ekið á staðinn þar
sem afbrotið er framið, og siðan
er billinn notaður þegar flúiö er
frá afbrotastaðnum.
Afbrot hihna svokölluðu hvit-
flibba-afbrotamanna, ávisana-
og vixlasvik eru mjög tið i stór-
um iðnaðarborgum. Að takast á
við þessi afbrot er mjög erfitt
þar sem nota þarf sérfræðing til
þess að leysa þau.
Nú varð ekki lengur hjá þvi
komizt að veita þvi athygli hvaö
Schutz var tiðlitið á klukkuna og
viðtalinu þvi ekki fram haldið.
Allir vona að starf hans hér
verði til að upplýsa glæpamál
sem á vissan hátt hefur legið
eins og mara á þjóðinni. Mylla
réttvisinnar malar stundum
hægt, en malar samt. — SG