Alþýðublaðið - 15.09.1976, Qupperneq 14
14 FRÁ MORGNI...
Miðvikudagur 15. september 1976.
SSST’
FRÉTTA-
GETRAUN
1. Hver er maðurinn?
2. Hvað heitir forseti Alþýöu-
sambands Vestfjarða?
3. Hvað heitir formaður Sjó-
mannafélags Reykjavikur?
4. Nú er i ráði að kaupa hingað
til lands nýtt skemmtiferöaskip,
einskonar nýjan „Gullfoss”. Til
boða stendur skip frá..Já þaö
er spurningin, frá hvaða landi
er skipið?
5. Hvað heitir forstjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavikur?
6. Hvað á BÚR marga togarat
7. Hver skrifar Islenzkuþættí
Alþýðublaðsins?
8. Um hvað spurði Alþbl. i þætt-
inum „Fimm á förnum vegi” i
gær?
9. Ráðinn hefur verið nýr um-
dæmisstjóri Pósts og sima á
Akureyri. Hvað heitir hann?
10. Hvað heita jarðborarnir
tveir sem nú eru við boranir að
Kröflu?
Fæðineadeildir siúkrahúsanna sæta harðri gagnrvni:
VERKSMIÐJUR SEM AÐ-
SKIUA MÆÐUR 0G BÖRN
Fyrstu stundirnar og
fyrstu dagamir i lifi
nýfædds barns eru svo
afgerandi fyrir sam-
band móður og barns,
að það er forkastanlegt
að hafa þann hátt á,
sem rikir á fæðinga-
deildum og fæðinga-
heimilum viða um
lönd: Að geyma barnið
i sérstöku herbergi og
láta það ekki vera hjá
móðurinni nema með-
an hún er með bamið á
brjósti.
í grein i danska
timaritinu „Maaned-
skrift for praktisk
lægegerning” skrifar
Nancy Bratt lektor í
Árósum um vinnu-
brögðin á dönskum
r ,
■
r
fæðingadeildum, sem
hún telur likjast helzt
verksmiðjum. í þessari
sömu grein segir hún
frá rannsóknum og til-
raunum, sem gerðar
hafa verið i Bandarikj-
unum.
Tilraunir á dýrum: Af-
drifarikar fimm minút-
ur
Þar hafa verið gerðar rann-
sóknir á tengslum móður og af-
kvæmis og samveru þeirra
fyrstu minútur eða stundir í lifi
hins nýja afkvæmis. Þar kom i
ljós að geitur bundust strax
nánum böndum við kiðlinga
sina fyrstu fimm minútur i lifi
þeirra. Ef kiðlingurinn var með
móður sinni fyrstu fimm mi'nút-
urnar meðtók hún afkvæmið og
annaðist það, reyndi að sjá þvi
fyrir vernd og mat. En ef kiðl-
ingurinn vat tekinn strax á
fyrstu minútunum og svo feng-
inn geitinni aftur eftir nokkurn
tima, þá vildi hún ekkert með
hann hafa. Hún leitaðist þá við
að sparka i hann og sýndi enga
tilburði i þá átt að sjá honum
fyrir fæði eða vernda hann á
nokkurn hátt.
Á líka við um fólk
Rétt eins og mjög skörp skil
eru varðandi móðurtengsl geit-
arinnar og afkvæmis hennar, þá
er full ástæða til að svipað eigi
sér stað þegar fólk á í hlut, eftir
amerisku rannsókninni að
dæma: 28 konum, sem áttu von
á frumburði sinum, var skipt i
tvo hópa. 1 öðrum hópnum fengu
mæðurnar og börnin nákvæm-
lega sömu meðhöndlun og rikir
á velflestum fæðingadeildum
bandariskra sjúkrahúsa. Móðir-
in fékk að sjá barnið sitt strax
eftir fæðingu — og siðan fékk
hún það til sin á sex til tólf t&na
fresti, þannig að hún hafði sam-
band við það alla daga og hafði
það á brjósti. Úr þvi var barnið
aðeins hjá móðurinni á fjögurra
stunda fresti, meðan það mat-
aðist.
1 tilraunahópnum var mæðr-
unum aftur á móti gefinn kostur
á að hafa börnin hjá sér öllum
stundum. Hið nýfædda barn var
lagt aö brjósti móðurinnar svo
til strax eftir fæðingu, og si"ðan
var það hjá móðurinni a.m.k.
fimm stundum lengur á hverj-
um degi en i hinum hópnum.
Eftir fjóra sólarhringa höfðu
börnin i tilraunahópnum verið
að meðaltali hvert 16 klukku-
stundum lengur með mæðrum
sinum.
Svör
•uunjof 8o ijjoq '01
uossnuSejv naBSJV '6
iBfguiuæjgnu qia Btuias qb y'8
uossuiaqjoyj JUQno ‘L
■bjbSoj s '9
'UOSSBUOf UUiajJBIQ ’S
• iSajON ?J j
•uossuof jeuijih 'E
•uossQjnSjs Jnjpd ‘Z
•BJJS3A luiæpjofq
-spuBjjnQjoN j suisjjqojjnQXcJ
-IV bjsij p ijæs Bjsja jEdiqs uueq
ua ‘uossupjajs !JJ«x jnuuij -j
VIPPU - BltSKURSHURÐIR
\
FRAMHALDSSAGAN
ana hnykklast á handleggjunum,
sem héldu um skófluna. Varir
hans voru strengdar svo að sá i
tennurnar. Hún stóð þarna og
beið, hélt um þetta vopn, og flökt-
andi myrkursúlan virtist lækka.
Þá veinaði hún. Sara stóð i
gættinni bak við það. Það var
Sara, ekki hin stúlkan, en Sara,
sem virtist ganga i svefni. Hún
m
Lagerstærðir miðað við jmúrop:
ÍJæð;210 sm x breidd: 240 sm
2WJ - x - 270 sm
Adror stárðir. smiðador eftir beiðné
GLUG^ASMIDJAN
Siðumúla 20, simi 38220 _J
Korndu
heim,
Ammí
Höfundur:
Barbara Michaels
Þýðandi:
Ingibjörg Jónsdóttir
hélt á þungu bókinni i fanginu
eins og önnur kona hefði haldið á
kornabarni.
Bruce stökk fram með kúbeinið
á lofti. Ruth vissi aldrei, hvað
hann ætlaði aö gera við það, þvi
að hann hrasaði og datt, og Sara
hafði tekið til máls, áöur en hann
hafði staðið upp.
„Það er ekki til neins.” Hún tal-
aði mjög rólega, en blóðið fraus i
æðum Ruthar, þegar hún skildi,
að Sara var ekki að ávarpa neinn
af þeim lifandi, sem inni voru.
„Þvier lokið. Þúgetur ekki þagg-
aö niður i okkur öllum.”
Hún hikaði og lagði undir flatt
eins og hún væri að hlusta.
„Þaö var aldrei til neins,”
sagöi hún með fortölum eins og
áður. „Hvern varstu að reyna að
leika á? Hann sér alla syni
mannanna.”
Ruth velti þvi fyrir sér, hver
„hann” væri. Svovissi húnþað og
greip andann á loftí.
„Sjá, auga guðs hvilir á þeim,
sem óttast hann,” sagði Sara.
„Allt var vitað, og endirinn á-
kveðinn, frá upphafi. Farðu og
leitaðu þeirrar náöar, sem jafn-
vel mönnum eins og þér heitið.
Farðu... i friði.”
Reykskýið titraöi og minnkaði.
Svo hvarf það og Ruth, sem stökk
yfir staði.nn, sem það hafði verið
á, greip Söru um leið lg hún datt.
III.
Þau fundu það, sem þau höfðu
verið að leita aö svo til strax i
horninu, sem þau höfðu verið að
grafa. Sara var fljót að jafna sig
og mundi fátt af þvi, sem hún
hafði sagt.
„Svo hérna var hann,” sagöi
Ruth og leit niður i holuna.
„Douglass Campbell.”
„Nei,” Bruce hristi höfuðið.
„Þessi bein eru óbrunnin. Og leif-
arnar af Douglass voru hirtar úr
rústunum. „Hann laut niður og
tók upp málmbút. „Beltissylgja
af hermannafrakka,” sagði hann
ogsýndi þeim hana. „Það er ekki
Douglass, Ruth. Það er Anthony
Doyle.”
Ljósið skein á fjögur föl andlit
og hreyfingarlausar hendur, en
nú var ekki lengur daunn i lofti,
aðeins innibyrgt loft.
„Hann kom um nóttina til að
sækja Ammi,” sagði Bruce, „en
hannfór aldrei. Hann hefur verið
hér siöan — Douglass Campbell
myrti hann og gróf hann i kjallar-
anum.”
„Ogþaðvar leyndarmálið, sem
Douglass Campbell reyndi að
leyna itvær aldir,” sagðiRuth, en
hún vissi sannleikann áður en
Bruce tók til máls.
„Nei, Douglass Campbell
missti vitið þessa nótt, en ekki
vegnaþess, aðhann myrtí Doyle.
Ég get næstum bent ykkur á stað-
inn, sem við finnum hana á —
beint undir vissum stað i stofunni
uppi —■ i horninu andspænis
þessu, eins langtfráástvinihenn-
ar og hann gat. Hann gat ekki af-
borið að þau hvfldu hlið við hlið
jafnvel ekki i dauðanum.”
IV
Það var likt endurfæðingu að
koma aftur upp stigann inn i birtu
vetrardagsins. Ruth fór tfl að
skipta um föt ogstóðsjálfa sig aö
þvi að þvo sér aftur og aftur um
hendurnar eins oghún vildi þvo af
sér kjallararykið og allt, sem þar
hafði komið fyrir. Þegar þau voru
öll komin inn i eldhúsið stakk
Ruth upp á að þau fengju sér mat-
arbita, en þvi var harðlega neit-
aö. Þau vildu fá vinsopa, og Ruth
sagði, þegar hún hellti sérrii i
glösin?
„Við hefðum öll orðið að á-
fengissjúklingum meö þessu
framhaldi. Ég hef aldrei drukkið
jafnmikið og á jafnfurðulegum
timum sólarhrings.”
„Ef þessu hefði ekki lokið,”
sagði Sara og leit á þau hin. Ég
trúi því naumast, að allt sé búiö
og við sitjum hér i eldhúsinu eins
og ekkert hefði i skorizt.”
„Þvi er lokið,” sagði Ruth.
„Hann kemur ekki aftur. Ég veit
ekki, hvers vegnaéger svona viss
um það, en ég er það.”
„Já, hanner farinn, en hvernig
Sara gat...” Ruth leit á Pat og
hristi höfuðið aðvarandi, en það
var óþarfi. Hann hafði þagnað.
Þau fundu öfl, að þaö væri rangt
að ræða þetta siðasta, sem hafði
komið fyrir Söru, að minnsta
kostí ekki núna. Pat leit á Bruce.
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiöholti
Simi 1120«
74201
^Tos,f«ou«
TROLOFUNARHRINGfl
3Jol).innr9 Unfsson
I.IUBOUCSI
&imi 10 209
Dunfl
Síðumúla 23
/ími 04900
■3?.g
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
sími 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul hútgögn >