Alþýðublaðið - 15.09.1976, Blaðsíða 16
Uppsagnir fréttamanna:
Hef ekkert skjalfest
— segir Dóra Ingvadóttir
Menn eru vissulega
mjög óánægðir hérna
og tala um að segja upp
störfum sinum hjá út-
varpinu, sagði Dóra
Ingadóttir formaður
Starfsmannafél. Rikis-
útvarpsins i viðtali við
blaðið i gær. En ég hef
ekki séð neitt skjalfest
varðandi uppsagnir
fréttamanna né ann-
arra og get því ekki
fullyrt neitt um þetta.
En blaðamenn eru oft
gjarnir á að ýkja svo-
litið þegar þeir fjalla
um hlutina.
Aö sögn Dórueru þaö ekki aö-
eins fréttamennirnir sem eru
óánægöir meö laun og allan aö-
búnaö á vinnustaö. Skrifstofú-
fólkiö hefur einnig látiö i ljós
mikla óánægju meö laun og aö-
stööu, enda fékk þaö enga hækk-
Dóra Ingadóttir
un, þegar laun fréttamannanna
voru hækkuö á sinum tima.
Þá sagöi Dóra, að ekkert
heföi veriö ákveðiö um svokall-
aöar aðgerðir til áherzlu um
bætt kjör og aðbúnað.” Hins
vegar er mér illa við að talaö sé
um einhverjar aðgerðir i þessu
sambandi.
Við munum ihuga málið ogat-
huga okkar gang, en ég held aö
ekki sé rétt aö tala um aö viö
hyggjumst gripa til einhverra
aðgerða, sagði Dóra.
Hins vegar veit ég meö vissu
um að það eru uppsagnir i
vændum. En það eru ekki
fréttamenn sem eru aö segja
upp, heldur skrifstofufólk, og
það munu nokkur uppsagnar-
bréf vera á leiðinni.
Mótmæla bráðabirgða-
lögunum harðlega
Framkvæmdastjórn
Sjómannasambandsins
samþykkti á fundi
sinum s.l. mánudag,
harðorð mótmæli gegn
setningu bráðabirgða-
laganna um bindingu
launakjara fiskimanna.
Segir i ályktun stjórn-
arinnar, að lögin hafi
verið sett að óþörfu og
gersamlega að tilefnis-
lausu.
1 fréttatilkynningu frá
Sjómannasambandi Islands, þar
sem greint er frá mótmælum
framkvæmdastjórnarinnar, segir
m.a.:
,,Um leiö og framkvæmda-
stjórn Sjómannasambandsins
skorará rikisstjórnina aö afnema
nú þegar þessi ólánslög, vill hún
jafnframt beina þvi til samtaka
sjómanna aö treysta áhrifamátt
sinn á þann hátt, aö þau komi
fram sem ein órofa heild bæði við
samninga svo og í sókn og vörn
varöandi önnur mál, er
sjómannastéttina varöar sér-
staklega.”
Páll Ásgeir Tryggvason um
sænsku sjönvarpsþættina
Baráttufundur
Herstöövaandstæöingar efna
til baráttufundar I Góötempl-
arahúsinu i Hafnarfiröi á
fimmtudagskvöldiö kemur, 16.
sept. kl. 20.30. Á dagskra
veröa ávörp sem Bergljót
Kristjáns'dóttir og Ólafur Ragn-
arGrimsson flytja.Einar Bragi
les upp og örn Bjarnason
skemmtir. Enn fremur gerir
Jón Hannesson grein fyrir störf-
um Samtaka Herstöövaand-
stæöinga. Fundarstjóri veröur
Kristján Bersi Clafsson.
Kannaö veröur á fund-
inum hvort ekki er áhugi fyrir
þvi aö skipuleggja starf áhuga-
hóps eöa — hópa i Hafnarfirði,
m.a. til undirbúnings iands-
fundar Samtaka herstöðvaand-
stæöinga sem haldinn veröur I
október.
Á þessum baráttufundi gefst
tækifæri tii aö eignast piötu
Böövars Guömundssonar og
Sóleyjarkvæði, merki Kefla-
vikurgöngunnar og Dagfara.
Seidir veröa gosdrykkir i
fundarhiéi.
Allir eru velkomnir á fundinn.
Aðeins það sem
vitað var áður,
Alþýðublaðið hafði
samband við Pál Ásgeir
Tryggvason hjá Varnar-
máladeild Utanríkis-
ráðuneytisins og bað
hann segja álit sitt á
upplýsingum sem fram
komu í siðasta þætti
sænska framhalds-
myndaflokksins um vig-
búnaðarkapphlaupið,
sem sýndur var s.l.
þriðjudagskvöld. í
þessum þætti var m.a.
rætt við rússneskan
hernaðarspeking um
búnað Sovétmanna á
Kolaskaga. Kom fram,
að á Kolaskaganum
væru m.a. staðsettar
eldflaugar sem væru
nægilega vel úr garði
gerðar til að draga til
íslands, ef þvi væri að
skipta.
Páll Asgeir sagöi
þetta ekki vera ný tiöindi, fyrir
löngu heföi veriö vitaö um aö
Sovétmenn réöu yfir eldflaugum
sem gætu hæft skotmörk, hvar
sem væri iheiminum, af sovézkri
jörö. Aöauki mætti svo nefna kaf-
báta herveldanna, sem væru víös
vegar um heimshöfin og heföu
innanborös vopnabúnaö, svo sem
eldflaugar. — Þetta er þvl mál
sem lengi hefur veriö vitaö um,
sagöi Páll Asgeir að lokum.
Afleiðirigar rigningaisumars:
Lítíl laxveiði í net
— Þetta ár veröur auövitaö
lakara en i fyrra, enda var siö-
asta ár metár í iaxveiöi hér á
landi. Þá voru veiddir um 74.000
laxar árlega. Þetta kom fram i
viötaii Alþýöublaösins viö Einar
Hannesson fuiltriia hjá Veiöi-
málastofnuninni i gær. Einar
sagöi stangveiöina hafa veriö
góöa i sumar, en hins vegar
heföi netaveiöin veriö mun
minni en áöur. Væri þar um aö
kenna vatnavöxtum af völdum
rigninga á Suöurlandi i sumar,
en i ám þar eru aöalnetaveiöi-
svæöi iandsins. Netaveiöin hef-
ur numiö um 30% heildarveiö-
innar, en hiutfail stangveiöi hef-
ur aukizt jafnt og þétt undanfar-
iö.
— En þó aö heildarveiðin hafi
veriölök, þá er staöreyndin sú,
aö margar ár á landinu hafa
skilað gófium afla á land. Til
dæmis hefur veiöi veriö góö I
Laxá i Kjós, Þverá 1 Borgar-
firöi, Miöfjaröará og Hofsá i
Vopnafiröi, jafnvel hefur veriö
metveiöi i sumum þeirra, sagöi
Einar Hannesson.
Gott skipulag veiði-
mála
Fram kom í samtalinu viö
Einar, aö laxveiöin hafi fjór-
faldast á íslandi siðasta aldar-
fjóröung. Sé þaö fyrst og fremst
aö þakka góöu skipulagi veiöi-
mála, bæöi stofnun veiöifélaga,
lagasetningu um fiskirækt, til-
komu eldisstööva seiöa og
fleiru.
130veiöifélög eru nú i landinu,
en þau þurfa aö vera um 200
talsins, til þess aö lögum sé full-
nægt. En laganna bókstafur
segir, aö um hvert ársvæöi
landsins skuli vera veiöifélag.
Arlega ersleppt miklu magni
laxaseiöa I árnar. Fjöldi þeirra
var á slöasta ári nálægt 300 þús-
undum. Tilkoma seiöanna hefur
væntanlega skipt sköpum I fisk-
rækt hér á landi. Sama má segja
um svonefnda laxastiga, en aö
meöaltali hefur 1 slíkur veriö
byggöur i ám hérlendis sföustu -
30 árin.
MIÐVIKUDAGUR
15. SEPTEMBER 1976
alþýðu
blaðið
Tekiö eftir j
Lögbirtingablatiinu, aö
bæjarfógetinn i Kópavogi
auglýsir 62 nauðungarupp-
boð, aöallega á húseignum,
til lúkningar á ýmsum
kröfum, sérstaklega
greiöslum á fasteigna-
gjöldum. Viöa eru skuld-
irnar fáar krónur, allt niö-
ur I 18 þúsund, en hæsta
krafan er liðlega 1 milljón
króna. Af auglýsingu fó-
geta má draga þá ályktun,
aö almenningur eigi jafn-
vel i erfiöleikum meö aö
greiöa fjárhæöir á bilinu 20
til50 þúsund krónur.
Frétt: Að þaö hafi vakið
mikla reiöi meöal frjáls-
lyndari manna i Alþýðu-
bandalaginu hve seint
Þjóðviljaritstjórarnir
skrifuöu minningarorö i
leiöara um Maó, formann.
Þessi hópur hefur deilt
hart á forystu Alþýöu-
Sovét-þjónkun, og hyggst
ekki láta þetta mál niður
falla.
Frétt: Aö innheimtuað-
feröir Timans, meö aðstoö
kaupfélaganna, hafi vakiö
svo miklar athygli meöal
margra bænda, að þeir
muni i framtiöinni neita
þvi, aö áskriftargjöld fyrir
blaöiö veröi tekin út af
reikningi þeirra i kaup-
félögunum. Þeir muni gera
þá kröfu aö áskriftargjald-
ið veröi innheimt á sama
hátt hjá Timanum og öör-
um blööum.
Frétt: Aö svo mikil óá-
nægja sé nú rikjandi i
mörgum hópum opinberra
starfsmanna með launa-
kjör, að vænta megi við-
bragöa sem BSRB muni
enga stjórn g$ta haft á.
Forystumenn bandalagsins
telji, aö barátta einstakra
hópa fyrir betri kjörum
geti veikt mjög samstarfið
innan þess og veikt sam-
einingarmáttinn.
Heyrt: Aö eftir langan og
strangan samningafund
hafi þeir Björn Jónsson,
forseti ASÍ, og Barði Friö-
riksson, skrifstofustjóri
Vinnuveitendasambands-
ins, brugöiö sér i kvik-
myndahús. Þegar ljós
kviknuðuí hléi, sagöi Björn
við Barða: „Þaö er hlé —
Barði!” Siðan gengu þeir
fram i anddyri kvikmynda-
hússins og Baröi sagði viö
Björn: „Viltu Is-Björn”.
Ekki vitum viö hvaða kvik-
mynd þeir sáu, né sann-
leiksgildi sögunnar.
Séð: 1 Dagblaðinul gær eru
eftirfarandi ummæli höfö
eftir Valgaröi Stefánssyni
jaröeölisfræöingi viö
Kröflu. „Það má segja að
það verði ekkert stóráfall
þó ekki fáist nægileg gufa
til a‘ö keyra vélarnar á
fullu. Þaðerljóstaöekki er
nægilegur markaöur fýrir
þau þrjátiu megawött, sem
hvor vélasamstæöa um sig
getur framleitt.”