Alþýðublaðið - 22.10.1976, Side 4
4 ÚTLÚND
Föstudagur 22. október 1976
Aðalmarkmið Carters
í kosningabaráttu nni:
— Að lokinni annarri umferð i kappræðuséríu þeirra
Carters og Fords i sjónvarpi i Bandarikjunum,
virðist Carter njóta ögn meira fylgis en forsetinn.
Byrinn i seglum Carters blæs þó ekki vegna afger-
andi andlegra yfirburða hans og klókinda, heldur
miklu frekar vegna klaufalegrar framkomu forset-
ans.
Ford þótti komast heldur illa frá kappræðu nr. 2,
sérstaklega þegar hann lýsti þvi yfir að Sovétríkin
undirokuðu ekki þjóðir i Austur-Evrópu. Um þetta
hafði hann sannfærzt sjálfur á ferðum sinum austan
tjalds!
Ef hann heldur áfram aö gefa
fleiri slikar vafasamar yfirlýs-
ingar, verður Carter næsti forseti
stórveldisins i vestri. Hann verð-
ur það svo sannanlega ekki vegna
afburöa hæfileika sinna, heldur
vegna þess að hann er eini val-
kosturinn sem menn hafa. Þar
með veröur kjörinn forseti i
Bandarikjunum sem hefur svo ó-
ljósa stefnu i helztu málum, að
jafnvel nánustu ráögjafar hans
geta ekki sagt nákvæmlega til um
hana.
Carter margoft lýst yfir, að hann
vildi berjast fyrir að fá vilja sin-
um framgengt í ýmsum málum,
fremur en að reyna málamiölun.
Þetta sýnist mér ekki vera neitt
til að hrópa húrra fyrir — ef að
fara á aö skilgreina stjórnmál
sem þaðað nota réttu augnablikin
til aö koma sinum málum aö, þá
mun Carter ekki eiga gott sam-
starf við neinn aðila I Washing-
ton. Hann er óbilgjarn og kaldur
og umber engar mótbárur”.
„Blendingur” Dr. Jekyll — Hr. Hyde
Hinn þekkti bandariski blaöa-
maður David Halberstam, segir
Carter vera undarlegt sambland
af Billy Graham og John Kenne-
dy. ,,,Kennedy var nýtt andlit i
baráttunni hér, og hann lofaði öll-
um einhverju nýju. Carter er nýtt
andlit, en hann lofar öllum ein-
hverju gömlu”, segir hann.
Þeir eru margir sem farnir eru
aðspá Carter sigri i kosningunum
I nóvember, einnig margir af
heitustu andstæðingum hans. Reg
Murphy, ritstjóri The San Fran-
cisco Examiner, segir, að Carter
muni sigra vegna þess að hann sé
ákveönari en Ford að ná þessu
marki þeirra beggja. „Carter er
ótrúlega óbilgjarn. Hann mun
beita öllum brögöum til að ná til
Hvita hússins. Hann skiptir um
skoöun hvað eftir annað, og á
þann hátt, að margir sjá ekkert
athugavert við það. Varöandi af-
stöðu sina til þingsins, hefur
lvwbeíct mmm
r)M
Jaweferi
aNnei
1877
Tilgangurinn hefur alltaf helg-
að meöal fyrir Carter. Lester
Maddox, sem sigraði Carter I
rikisstjórakosningum I Georgiu-
riki árið 1966, segir að Carter hafi
tapað fyrst og fremst vegna þess
að kjósendum þótti of mikill
vinstri-þefur af honum. Arið ’70
mætti Carter til leiks á ný — i
rikisstjórakosn. Þá kom hann
fram eins og harðasta
erki-Ihald, á borö við George
Waliace og fleiri slika. „Þennan
leik hef ég séð hann leika líka i
baráttunni fyrir útnefningu sem
forsetaefni demókrata”, segir
Maddox. „Carter er dr. Jekyll og
hr. Hyde endurborinn. Hann er
kaidrifjaður, slunginn og sleipur.
Carter er nú varla á atkvæðaveiðum á þessum stað og á þessari stundu, en
eitthvað hefur hann samt veitt i háf sinn.
Að koma sjálfum
sér í Hvíta húsið
• PEANUT
VALU
And we have just the
peanut you've been
looking for: a pendant tn
14 i<arat. yaltow gdd at
just $125.
Somethtng B@uittkil ~
Hnetur hafa skyndilega
slegið í gegn í Ameríku.
Bissnessmennirnir hafa
svo sannanlega eygt
gróðavon i kjöri Carters.
Einhver náungi i
Georgiu, heimariki
Carters, framleiðir
hnetur úr gulli og silfri
og mokselur
varninginn! Hafi
einhver áhuga, má
nefna að gullhneta
kostar aðeins 23 þúsund
krónur.
Hann vill eyöileggja allt og alla,
sem standa i vegi fyrir honum.
Hann er táknrænn stjórnmála-
maður”.
Gull og grænir skógar
Menn hafa oft talað um, aö ef
einhverjir séu ólatir við að lofa
upp i ermar sér, þá séu það
stjórnmálamenn. Carter slær þó
flesta út hvað þetta snertir, eins
og svo margt annaö. Hann er
fylgjandi bókstaflega öllu. Hann
lofaröllum gulli og grænum skóg-
um. Hann berst fyrir þvi að efla
vfgbúnað Bandarikjanna um all-
an helming, en á sama tima vill
hann skera niður opinber útgjöld.
Hann lofar atvinnuleysingjum
hærri atvinnuleysisstyrk, en lýsir
þvi jafnframt yfir að útgjöld
rikisins til atvinnuleysissjóða
verði að skera niður! Hann er
fylgjandi fóstureyöingum á fundi
hjá kvenréttindakonum, en and-
vfgur fóstureyðingum á fundi hjá
framámönnum kirkjunnar.
Þannig mætti telja.
Ferskur stjórnmála-
maður?
Carter vill gjarnan láta lita út
sem svo, aö hann sé nýr og fersk-
ur andvari I bandariskri pólitik.
En staðreyndin er samt sú, aö
hann hefur unnið baki brotnu sfö-
ustu 10 árin með það markmiö I
huga sem hann keppir nú að.
Hann og kona hans Rosalyn ferö-
uöust nær óslitið f 4 ár um
Georgiu og þrýstu hendur aö
minnsta kosti 600 þúsund kjós-
enda, til þess að tryggja kjör
Carters i rikisstjórakosningum
1970. Frá árinu 1972 hefur hann
unnið aö forsetaframboði, og síö-
an 1974 hefur hann verið minnst
I8tímumáhverjum sólarhring til
þess arna.
blíða, breiða bros — sem iskalda
grettu. Þeir segja að hann fyrir-
gefi aldrei mistök, gleymi aldrei
rangindum. Aðeins tveir eða þrir
af nánustu samstarfsmönnum
hans voga sér að gagnrýna hann
opinberlega.
„Við vorum dauðhrædd um að
hann tapaöi sér algerlega”, sagði
kona ein sem starfaöi fyrirrikis-
stjórann Carter.
Hreint mjöl
i pokahorninu
Vörumerki
Margir samstarfsmanna hans
lita á vörumerki Carters — hið
Margir pólitiskir athyggjendur
hafa gjarnan lfkt Carter við Nix-
on og þá eins-manns-ríkisstjórn
sem ríkti á dögum hans. Samlik-
ingin er á þá leið, að báðir hafi
hampaö lögum og rétti, hafi ekki
spurt kóng eða prest álits á mörg-
um gerðum sinum bara gefið fyr-
irskipanir. Þessi samanburður er
vitanlega ekki sanngjarn, að þvi
leyti, að Carter hefur alltaf haft
hreint mjöl i sínum pólitíska
mal, aö þvi bezt er vitað. Hann
_ r.. _ „I „nnin iii kníXinn
hneyksli og einkalif hans er að-
eins endurspeglun af ströngu,
trúarlegu uppeldi hans.
Þegar hann lætur ritið Playboy
hafa viö sig umdeilt viötal, viður-
kennir hann að hann hafi „girnzt
aðrar konur f huganum”, en látið
við svo búið standa. Hann reynir
að sýna lesendum Playboy fram á
það, aö hann sé hvorki ihalds-
samur né fordómafullur, jafnvel
að hann geti tekið sér i munn orð
á borð við „screw” — serða.
En Carter hefur líka staðið aug-
liti til auglitis viö almáttugan guð
og hann talar oft um djúpa, trúar-
lega upplifun sina, þegar hann
var hvað lengst niðri sálarlega,
eftir að hafa tapað ríkisstjóra-
kosningunum. Hvað almáttugur
guð ráölagði Carter á þeim tima-
mótum vitum við ekki, en það
sakar varla að gizka....
Carter i
forsetastólinn
Carter gerði marga góða hluti
innan menntakerfisins á rikis-
stjóraárum sinum. Fram aö þeim
tima höfðu konur og litað fólk
alltaf komið að lokuöum dyrum,
hvað varðar stöðuveitingar innan
kerfisins. Carter veitti mörgum
konum og lituðum stööur f rfkis-
stjóratið sinni, og þar hefur hann
liklega komizt næst því að sanna
„náungakærleik” sinn og „sam-
kennd”, sem hann talar svo oft
um. Hins vegar er ekki hægt að
reiða sig á þetta atriði einmitt á
þessari stundu, því að i augna-
blikinu er Carter algerlega upp-
tekinn viö ákveðið verk: að koma
Jimmy Carter í Hvita húsiö I
nóvember næstkomandi.
—ARH