Alþýðublaðið - 22.10.1976, Blaðsíða 15
Föstudagur 22. október 1976
15
Bíóin / Leikhúsin
GAMLA BIO
Simi 11475
Þau gerðu garðinn
frægan
Brá&skemmtileg viðfræg banda-
risk kvikmynd sem rifjar upp
blómaskeið MGM dans- og
söngvamyndanna vinsælu á árun-
um 1929-1958.
ISLENZKUR TEXTI.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 7 og 9.
Fimm manna herinn
með Bud Spencer.
Bönnuð innan 14 ára.
Endursýnd kl. 5.
*S 3-20-75
Spartacus
Sýnum nú i fyrsta sinn með Is-
lenzkum texta þessa viöfrægu
Oscarsverðlaunamynd.
Aðalhlutverk: Kirk Douglas,
Laurence Olivier, Jean Simmons,
Charles Laughton, Peter Ustinov,
John Gavin, Tony Curtis.
Leikstjóri: Stanley Kubrich.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
í&MOÐLElKHUSIfi
SÓLARFERÐ
i kvöld kl. 20. Uppselt
sunnudag kl. 20.
tMYNDUNARVEIKIN
laugardag kl. 20
þriðjudag kl. 20
LITLI PRINSINN
sunnudag kl. 15
Litla sviðið:
DON JUAN t HELVtTI
endurflutt sunnud. kl. 15.30.
Miöasala 13,15-20.
leikfelag a<» <*•«
REYKJAVtKUR
SAUMASTOFAN
i kvöld. — Uppselt.
þriðjudag kl. 20,30.
STÓRLAXAR
laugardag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
sunnudag kl. 20,30. r.
miðvikudag kl. 20,30.
Miðasalan I Iðnó kl. 14-20,30. Simi
1-66-20.
TRCLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiösla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
PETER
FONDA
drivin'hardí
SUSAN
GEORGE
ridin’easv!
UIIITY IVIAIlY..
CRAZV UUHlV
Þokkaleg þrenning
ISLENZKUR TEXTI.
Ofsaspennandi ný kappaksturs-
mynd um 3 ungmenni á flótta
undan lögreglunni.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
lonabíó
*S 3-11-82
Hamagangur
á rúmstokknum
OLE SBLTQFT-VIVI
SDREN STRBMBERG-ANNIE BIRGIT GARDE
ULLA JESSÍN • PAIH HAGEN
KARL STEGGER - ARTHUR JENSEN
■flí/ldl
Djörf og skemmtileg ný rúm-
stokksmynd, sem margir telja
skemmtilegustu myndina i
þessum flokki. Aðalhlutverk: Ole
Söltoft, Vivi Rau, Sören
Strömberg.
Stranglega bönnuð börnum innan
16 ára.
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
*S 2-21-40
Partizan
Mjög spennandi og sannsöguleg
mynd um baráttu skæruliða i
Júgóslaviu i siöari heimstyrjöld.
Tónlist: Mikis Theodorakis.
Aðalhlutverk: Rod Taylor, Adam
West, Xenia Gratsos.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
S 16-444
Spænska flugan
LESLIE PHIU.IPS
v terrv thomas
tX»(ntxA«d EA4I Hm Ovfntxitart lld GAx« bfWNnxotot •
Leslie Phillips, Terry Thomas.
Afburða fjörug og skemmtileg ný
ensk gamanmynd i litum, tekin á
Spáni. Njótið skemmtilegs sum-
arauka á Spáni i vetrarbyrjun.
ISLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Sími 50249
óheppnar hetjur
Mjög spennandi mynd I litum.
Aðalhlutverk:
Robert Redford
Georg Sigal
Sýnd kl. 9.
! S1-89-36
Stone Killer
ISLENZKUR TEXTI
Æsispennandi amerisk saka-
málamynd i litum með
Charles Bronson.
Bönnuð börnum.
Endursýnd kl. 6 og 10.
Siðasta sinn.
Emmanuelle II
Heimsfræg ný frönsk kvikmynd i
litum. Mynd þessi er allsstaðar
sýnd við metaösókn um þessar
mundir i Evrópu og viða.
Aðalhlutverk: Sylvia Kristel, Un-
berto Orsini, Cathaerine Rivet.
Enskt tal, ÍSLENZKUR TEXTI.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Nafnskirteini.
Miðasala frá kl. 5
Hækkab verö
Sýnd kl. 8.
Allra siðasta sinn.
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir septem-
bermánuð 1976, hafi hann ekki verið
greiddur i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga uns þau eru orðin 10% en
siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið
20. október 1976
,,Vegamótin
liggja víða”!
í páfagarði.
Það var merkilegt og
athyglisvert erindi, sem Þórar-
inn Þórarinsson fyrrum skóla-
stjóri á Eiðum, flutti útvarps-
hlustendum hér um kvöldiö, um
bréfaskipti ögmundar Páls-
sonar, siðasta kaþólska bisk-
upsins I Skálholti og „hans
heilagleika”, páfans i Róm.
Vissulega kemur okkur ekki á
óvart, að heyra um margháttað
ráðriki biskupa landsins i
kaþólskum sið. En hér hefur
ögmundur Pálsson þó gengið
feti lengra öðrum stéttarbræðr-
um sinum, með þvi að ásælast
einnig einskonar drottinvald yf-
ir Hólastoli.
Eflaust hefði einhver máttar-
minni en Jón Arason guggnað
fyrir þeim hatrömmu árásum,
sem verðandi embættisbróðir
hans lét á honum dynja, auk
meira og minna lævísra snara,
sem hann lagði viðsvegar hjá
valds- og ráðamönnum
utanlands og innan. En Jón var
enginn veifiskati og hélt sinum
hlut, sem kunnugt er.
Allskammt er siðan mönnum
var ljóst, að ögmundur Pálsson
lét ekki við þaö eitt sitja, að
kalla sér til aðstoðar andlega og
veraldlega valdsmenn I
grannlöndum okkar, heldur
muni einnig hafa látiö málatil-
búnað sinn ganga til æðsta dóm-
stóls kirkjunnar.
Fræðimenn hafa lengi hug-
leitt, hvort ýmisskonar gögn i
kirkjusögu okkar frá kaþólskri
tið, gætu ekki verið fólgin i
skjalasafni páfagarðs. En þar
hefur engum hversdagsmönn-
um verið greiður aðgangur til
þessa.
Ekki þarf blöðum um það að
fletta, að forganga Þórarins,
fyrrum skólastjóra, um fund
bréfs ögmundar Pálssonar, er
hin gagnmerkasta, sem hann á
miklar þakkir skilið fyrir, frá
öllum, sem unna Islenzkri sögu
og fræðum.
Það er einnig liklegt, aö þessi
uppgötvun hans eigi eftir aö
draga lengri slóða, einkum ef
greiðara verður hér eftir en
hingað til, aö athuga sitthvað i
skjalasafni páfagarðs, sem okk-
ur kynni að varða og þar að
leynast. Nýstofnað stjórnmála-
samband okkar við Páfarikið
kann og að styðja hér aö.
Sú uppgötvun, sem Þórarinn
einnig sagði frá, að tsleifur
Gissurarson, okkar fyrsti
islenzki - biskup, hafi tekið
biskupsvigslu i Róm, en ekki i
Þýzkalandi, eins og fram að
þessu hefur verið talið, bendir
einnig til nánara sambands við
aðalstöðvar kirkjunnar, en
menn hefur áður grunað. Hér
ber þvi enn að sama brunni um
auknar likur fyrir merkum
heimildum i sögu okkar, i
skjalasafni hins „heilaga föð-
ur”.
Það væri vissulega engin goö-
gá, að láta sér detta i hug, að
þar væri að finna skjalfest um
trúlega mesta afrek kaþólsku
kirkjunnar á tslandi fyrr og siö-
ar-setningu tiundarlaganna
1096.
Vissulega var Gissur Iðeifs-
son biskup mikill höfðingi, svo
að sagnritarar hafa borið sér I
munn, að hann hafi verið bæði
•Oddur A. Sigurjónsson
konungur og biskup yfir land-
inu. En það þyrfti ekki að sýna
neina óhóflega metnaðargirni
hans, að hann hefði gert æðsta
yfirmanni kirkjunnar rækilega
grein fyrir athöfnum sinum i
þessu efni. Beint samband föður
hans við páfastól, gat og stutt
rækilega hér að.
Alkunna er, að kirkjutiundar-
lög mættu afar mikilii mótstöðu
hvarvetna i álfunni. Og það tók
langan tima og kostaöi ærna
baráttu að ná þeim fram viðast-
hvar, nema á íslandi. Enginn
skyldi halda, að öðrum eins
heimsborgara og Gissuri bisk-
upi hafi verið með öllu ókunnugt
um þetta. Og það var engin
ástæða til að setja ljós sitt undir
mæliker.
En að þessu slepptu, er
sannarlega ekki úr vegi aö vikja
að, hversu óramargt af söguleg-
um gögnum kann enn að leynast
og vera órannsakað, bæði er-
lendis og jafnvel hérlendis einn-
ig. Þetta er ekki sagt til að
varpa neinni rýrð á þá fáu
fræðimenn sem hafa varið æfi
sinni i slíkar rannsóknir — fjarri
þvi.
En við vitum, að meira að
segja gögn, sem hingað hefur
verið skilað fyrir um hálfri öld,
hafa framundir þennan tima
alls ekki verið fullrannsökuö, ef
þvi verki er þá lokið enn.
Hér kemur vitanlega til frem-
ur féskortur og aðstöðuleysi, en
að áhuga hafi skort. En allt um
það er ekki vanzalaust, að svo
standi öllu lengur, sizt fyrir
„söguþjóð”, ef hún vill ekki
kafna undir þvi sæmdarheiti.
Enn munu liggja dyngjur af
skjölum og gögnum úti i Dana-
veldi, máske viðar, varðandi
verzlunar- og hagsögu okkar á
fyrri öldum.
Litlar likur eru til, þó nokkuð
hafi verið I ýmislegt af þessu
krukkað, að við eigum sanna
heildarmynd af þessum mál-
um, er þó hér ekki verið aö væna
rannsóknarmenn um beina
hlutdrægni.
Það hefði hinsvegar verið
mannlegt, meðan á sjálfstæðis-
baráttu okkar stóð, að meira
væri beinzt að þvi, sem gat orðiö
okkur vopn i hendi en öðru.
Við verjum ófafé til menntun-
ar landsins barna, sem sannar-
lega skal ekki eftir talið, ef að
gagni kemur. En þaö væri
hjátækt, að vinda ekki bráðan
bug að þvi, meðan enn er timi
til, að verja nokkru meira en nú
er gert, til þess að fylla upp i
þær eyður i sögu okkar, sem
kostur er.
Fordæmi Þórarins Þórarins-
sonar, fyrrum skólastjóra,
bendir á, að viða.geta vegamót-
in legið.
■y.ýy.U
í HREINSKILNI SAGT
©
Volkswagenéigendur
Höfum (yrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymshilok á-WoIkswagen I allflestum litum. Skipium á
einútn degi meö \Iagsfyrirvara fyrir ákveöiö verö.
Reyniö viöskiptin.
Bitasprautun Garöars Sigmundssonar.
JSkipholti 25 Simar 19099 og 20988.