Alþýðublaðið - 21.12.1976, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER
272. tbl. — 1976 — 57. árg.
g
Áskriftar- I
síminn er
14-900
Innkomin erlend lán á næsta ári 20,9 milljarðar króna:
11,4 milljarðar vegna
opniberra framkvæmda
— Þar af 3,5 milljarðar vegna Kröfluvirkjunar -
Afborganir af eldri lánum 10,6 milljarðar króna
í skýrslu ríkisstjórn-
arinnar um lánsfjár-
áætlun næsta árs kemur
fram, að nú er gert ráð
fyrir, að erlendar lán-
tökur á þessu ári nemi
20.7 milljörðum króna,
eða rúmlega 2 milljörð-
um hærri en áætlað var.
Aætlað er, að viðskiptajöfn-
uður verði óhagstæður um 8,8
milljarða króna á næsta ári,
en það er lækkun um 2/3 hluta
frá viðskiptahalla fyrra árs.
Þá er áætlað að nettó-aukning
langra erlendra lána veröi 12.3
milljarðar króna á næsta ári,
en að heildarupphæð langra
innkominna erlendra lána
verði 20.9 milljarðar króna.
Þá er áætlað, að afborganir af
ast meðal annars þannig eftir
verkefnum:
Kröfluvirkjun ásamt linu til
Akureyrar, 2,9 milljarðar
króna, RARIK, almennar
framkvæmdir 800 milljónir
króna, Norðurlina 1,2
milljarðar, lina Krafla-Aust-
urland 500 milljónir, vegna
hlutafjár til íslenzka járn-
blendifélagsins 939 milljónir,
vegna kaupa á dýpkunarskipi
225 milljónir og vegna flug-
öryggistækja 76 milljónir.
Langstærsti hluti lánanna er
vegna Kröfluvirkjunar, eða
samtals 3,5 milljarðar.
—AG.
■v.
eldri lánum verði 10,6
milljarðar króna.
Af áætlaðri upphæð innkom-
inna lána á næsta ári eru 11,4
milljarðar vegna fram-
kvæmda opinberra aðila, að
mestu leyti vegna orkumála.
Erlenda lántakan sundurlið-
KROFLUMALIÐ RÆTT I
_ _______*r _ * _
HEILD EFTIR ARAMÖT
t nefndaráliti sinu um
stjórnarfrumvarp um erlend-
ar iántökur vegna opinberra
framkvæmda á næsta ári, en
þær eru áætlaðar rámir 10
milljarðar króna, netló, (inn-
komin lán verða 11,4 miiljarð-
ar), hefur Gylfi Þ. Gíslason
vakið athygii á þvi, að stærsta
iántakan er vegna Kröfiu-
virkjunar, samtais 3,5
miiljarðar (Lina Krafla-
Austuriand meðtalin).
i ncfndarálitinu segir Gylfi
Þ. Gislason: ,,Þrátt fyrir þá
mikiu gagnrýni, sem þær
framkvæmdir hafa sætt, virð-
ist ætlun stjórnvaida að haida
þeim áfram með fylista hraða
og án þess að breyta þar að
nokkru lcyti um stefnu. Verð-
ur ckki hjá þvi komizt að ræða
þaö mál alil, sem sérstakt
þingmál, þegar Alþingi kemur
saman að nýju."
Samkvæmt þessu má búast
við, að Kröflumálið i heiid
veröi rætt, þegar Alþingi kem-
ur saman að nýju i siðustu
viku janúar-mánaðar.
Viðræðurnar í Briissel fóru út um þúfur í gær:
Bauð EBE fram
ef nahagsaðstoð ?
- í skiptum fyrir fiskveiðirétt-
indi. — Duldar hótanir um
viðskiptastríð 1 ummælum
Gundelachs eftir fundinn
Viðræður íslendinga
og Efnahagsbanda-
lagsins um fiskveiðar
brezkra sjómanna inn-
an islenzkrar fiskveiði-
lögsögu, sigldu i strand
i gær. Lýsti islenzka
sendinefndin þvi yfir að
islenzka ríkisstjórnin
treysti sér ekki til að
gefa yfirlýsingu um
áframhaldandi veiðar
brezkra sjómanna inn-
an 200 milna lögsög-
unnar frá 1. janúar
næstkomandi.
Finn Olav Gundelach aðal-
samningamaöur Efnahags-
bandalags Evrópu, sagði við
fréttamenn eftir fundinn, að
ekki bæri að taka þessi slit á
samitingaviðræðum svo, að
Islendingar neituðu með öllu að
semja. Hins vegar væri ekki
unnt að taka upp viðræður að
nýju fyrr en eftir að alþingi
íslendinga kæmi saman á ný
eftir jólaleyfi, eftir miðjan jan-
úar.
Dulbúnar hótanir?
A fréttamannafundi eftir að
samningaviðræðurnar fóru
út um þúfur, sagði Gunderlach,
að hann hefði gert sér vonir um
að unnt yröi að gefa út gagn-
kvæma yfirlýsingu eftir þessar
viðræður i Brussel, um fisk-
veiöiréttindi innan islenzkrar
lógsögu annars vegar og innan
lögsögu EBE-rikja hins vegar.
Islenzka sendinefndin hefði hins
vegar haldið þvi fram, að Efna-
hagsbandalagiö heföi ekkert að
bjóða íslendingum i staðinn
fyrir veiðiréttindi brezkra tog-
ara. Það væri að visu rétt, að
veiðar íslendinga á Grænlands-
miöum og i Norðursjó væru ekki
stór hluti af veiöum lands-
manna, en hins vegar yrði að
líta á þetta mál frá öðrum
sjónarhóli en fiskveiöunum ein-
um saman. Taka yröi tillit til
þess, að samskiptum Islendinga
við EBE-rikin væri einnig annar
flötur.
Talið er að þarna hafi
Gundelach veriö aö ýja aö
möguleika á viðskipjaþvingun-
um gagnvart Islendingum, en
aðspurður kvaö hann það af og
frá. Aftur á móti yröu Islending-
ar að hafa i huga samskiptin viö
EBE i heild. Kvaðst hann vona,
að islenzka rikisstjórnin stigi
næsta skref i málinu með tilliti
til þess. Hann bætti þvi viö, að-
spurður, að hann áliti að þessi
afstaða islenzku rikisstjórnar-
innar byggðist á pólitiskum
þrýstingi heima fyrir.
Tilboð um efnahagsað-
stoð?
Þvi var haldið fram i höfuð-
stöðvum Efnahagsbandalagsins
i Brussel i gær, að bandalagið
hefði boðið Islendingum aö
aðstoða þá efnahagslega við
uppbyggingu iðnaðar i landinu,
gegn fiskveiðiréttindum. Einnig
kom þar fram, aö bandalagið
litur afstöðu Islendinga mjög
alvarlegum augum og er álit
manna þar, að til þess gæti
komið, aö viöskiptasamningar
Islands og EBE-rikjanna yröi
notaðir sem vopn gagnvart
tslendingum.
Vegna þessara ummæla haföi
Alþýðublaðið i gær samband við
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra, og sagði hann, að boð um
slika efnahagsaðstoð hefði
aldrei verið borið fram. Allt
slikt tal væri Ur lausu lofti grip-
ið.
Vegna ummæla Gundelachs
um að tslendingar yröu aö haf a i
huga samskiptin viö EBE-rikin i
heild, sagði Einar, að ekki kæmi
til greina að blanda saman viö-
skiptum við Efnahagsbandalag-
iö og fiskveiðiréttindum Breta.
Kvaðst Einar undrandi á þess-
um ummælum Gundelachs^ og
sagði, að þarna hefði hann sagt
hluti sem hann hefði aldrei haft
orð á áður.
1 gær var nokkur uggur i
mönnum f Brilssel, um að
samningaviðræður um fisk-
veiðiréttindi aðildarþjóðanna,
sem nú standa yfir þar i borg,
myndu sigla i strand vegna þess
hvernig fór með viðræðurnar
við Islendinga. Er talið að Bret-
ar verði nú mun haröari i kröf-
um gagnvart öðrum þjóöum
bandalagsins um aukin réttindi
sér til handa.
—hm
Kosið í bankaráð á
alþingi í gær
BAKSÍÐA
■BBBBI^HButstjórn Sföumúla II - Slml úl866