Alþýðublaðið - 21.12.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 21. desember 1976
VETtVAMGUR 3
I „Hagtölum
mánaðarins", riti sem
gefið er út af hagfræði-
deild Seðlabankans, er
nú að finna yfirlitsgrein
um efnahagsþróunina i
heiminum — þegar hinn
vestræni heimur er að
sigla upp úr öldudal
mestu efnahagskreppu,
sem hann hefur átt við
síðan heimskreppan
mikla skall á í lok þriðja
áratugs þessarar aldar.
Grein þessi er rituð að
afloknum ársfundi Al-
þjóðabankans og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins.
Menn eru ekki á eitt sáttir
um hversu varanlegur efna
hagsbatinn kann að verða
Að undanförnu hafa alþjóðleg
efnahagsmál verið nokkuð til um-
ræðu, ekki sist vegna nýafstað-
inna ársfunda Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og út-
komu nýjustu ársskýrslna stofn-
ananna, en á þeim er það sem hér
fer á eftir i aðalatriðum byggt.
A siðari helmingi ársins 1975
tók nokkuð að rofa til i efnahags-
lifi þjóða heims eftir þá verstu
kreppu, sem skollið hafði á frá
kreppuárunum á fjórða tug
aldarinnar. Merki batans voru
helst greinanleg i vaxandi fram-
leiðslu og minni verðbólgu. Eftir
sem áður var verðbólgan þó mikil
og miklu meiri en dæmi eru til um
áður á þessum hluta efnahags-
sveiflunnar. Ennfremur var at-
vinnuleysi enn mikið viða um
lönd og stafaði það einkum af
ónógri eftirspurn og fremleiðslu.
Vegna hinna sterku verðbólgu-
afla, sem enn eru til staðar i
heiminum, hafa stjórnvöld farið
einkar varlega að þvi að gera
ráðstafanir, sem áhrif hefðu til
vaxandi eftirspurnar, þvi ella
væri hætta á mögnun verðbólg-
unnar á nýjan leik. Efnahagsbat-
inn hefur þvi að vissu leyti komið
hægar en ætla hefði mátt, og ekki
eru menn á eitt sáttir um hversu
varanlegur hann er eða kann að
verða.
Þa'ð sem öðru fremur einkenndi
þessi erfiðleikaár var að saman
fóru mikil verðbólga og atvinnu-
leysi en sliks voru ekki dæmi áð-
ur. Undanfari verðbólgunnar var
að miklu leyti mjög hækkandi
hráefnaverð á heimsmörkuðun-
um. Viðast hvar var með stjórnun
heildareftirspurnar reynt að
draga úr verðbólgu, en samhliða
eerÍA” neningamálavfirvöld ráð-
stafanir til þess að draga úr út-
lánum bankastofnana.
útbreiðsla kreppunnar
Verðbólgan og deyfð efnahags-
lifsins i iðnrikjunum höfðu mikil
áhrif á heimsverslunina og
kreppan breiddist út til vanþró-
uðu rikjanna, sem mörg hver
lentu i miklum erfiðleikum þar eð
efnahagskerfi þeirra eru mjög
viðkvæm fyrir utanaðkomandi
sveiflum. Verðlækkanir og
minnkandi eftirspurn eftir út-
flutningi frumframleiðslurikj-
anna höfðu fljótlega áhrif á 'fram-
leiðslu, tekjur og fjárfestingu i
þeim. Mótvirkandi aðgerðum var
siðan beitt til að draga úr inn-
flutningi. 1 vanþróuþu rikjunum i
heild minnkaði þjóðarframleiðsl-
an þó ekki á neinu áranna frá 1973
til 1975 eins mikið og hún gerði i
iðnrikjunum. Þrátt fyrir það urðu
áhrif samdráttar efnahagslifsins
miklu afdrifarikari fyrir vanþró-
uðu rikin. Iðnrikin eru miklu bet-
ur undir það búin að mæta áföll-
um heldur en vanþróuðu rikin.
Þau eiga alla jafnan auðveldar
með að lagfæra erlenda stöðu
sina með þvi að beita aðgerðum,
sem draga úr innlendri eftir
spurn. Þrátt fyrir þá staðreynd að
vöxtur þjóðarframleiðslu i frum-
framleiðslurikjunum væri mun
meiri en i iðnrikjunum, eða um
4% á ári frá 1974 til 1975 saman-
borið við 1 1/2% minnkun i iðn-
rikjunum, var hann samt litill i
samanburði t.d. við fólksfjölgun i
viðkomandi löndum og stóð nokk-
uð i vegi þróunar i mörgum
þeirra.
Frá 1974 til 1975 dróst milli-
rikjaverslun saman um 4 til 5% i
heiminum, en um mitt ár 1975
snerist þróunin við og eftirspurn
eftir innflutningi i iðnrikjunum
jókst. A fyrri helmingi ársins i ár
jukust millirikjaviðskipti um ná-
lægt 10% á ársgrundvelli auk þess
sem verðlag hefur hækkað nokk-
uð. Afleiðingar þessarar þróunar
hafa siðan orðið þær að útflutn-
ingstekjur frumframleiðslurikj-
anna hafa tekið að aukast á nv. Ef
oliurikin eru undanskilin, þá urðu
flest þessara landa að taka mikil
lán á erlendum mörkuðum á
árunum 1974 og 1975 til þess að
ekki þyrfti að rhæta hækkandi
innflutningsverðlagi og lækkandi
útflutningstekjum með stórfelld-
um niðurskurði vöruinnflutnings.
Áþreifanlegur bati
Sem fyrr segir var um
áþreifanlegan bata að ræða á
fyrri hluta yfirstandandi árs.
Efnahagskreppan hafði að sjálf-
sögðu áhrif á verðbólguna þannig
að úr henni dró mjög i fyrra og i
ár. Mest varð verðbólgan i iðn-
rikjunum á síðari hluta ársins
1974 en þá var hún að meðaltali 13
1/2% á ársgrundvelli. Á fyrri
hluta ársins i ár var hún komin
niður i 7% á ársgrundvelli. Slikt
verður þó að teljast mikil verð-
bólga ekki sist i ljósi þess að á
áratugnum frá 1961-1970 var
verðbólgan i sömu rikjum ekki
nema 3 1/2% að meðaltali. Af
stærri iðnrikjunum var verðbólg-
an á fyrri helmingi yfirstandandi
árs minnst i Vestur-Þýskalandi
(3% á ársgrunni), Bandarikjun-
um (4 1/2%) og Japan (7 1/2%). 1
þessum sömu löndum var vöxtur
þjóðarframleiðslunnar einnig
mestur. A sama tima var verð-
bólga hins vegar mest i Bretlandi
(13%) og á ttaliu ((17%) og i
þessum löndum var framleiðslu-
aukningin minnst.
Vanþróuðu rikin fóru siður en
svo varhluta af veröbólgunni,
sem reið yfir iðnrikin. Verðlag
hækkaði mikið á árunum 1973,
1974 og á fyrrihluta árs 1975 en úr
þvi tók nokkuð að draga úr
hækkununum. Ef oliurikin eru
undanskilin var verðbólga i van-
þróuðu rikjunum að meðaltali
15% 1973, 26% 1974 og 18% 1975.
A árinu 1975 höfðu aðeins örfá
iðnrikjanna, t.d. Vestur-Þýska-
land og Bandarikin, hagstæöan
viðskiptajöfnuð, en önnur, og þá
einkanlega Bretland og Kanada,
áttu við mikinn halla að striða.
Viðast hvar var viðskiptahallan-
um mætt með opinberum fjár-
MEÐALVÖXTUR RAUNGILDIS VERGRAR ÞJÓÐARFRAM LEIÐSLU
Ársmeðaltöl (%) Breyting frá fyrra ári (%)
1960-65 1965-70 1971 1972 1973 1971 1975
Iðnríki 5,1 4,5 3,7 5,7 6,0 — 4-1,5
Frumframleiðsluríki 5,3 5,8 5,4 5,5 6,8 5,6 3,5
Þróaðri 5,9 5,8 5,7 5,6 6,2 4,0 1,6
Vanþróaðri 5,1 5,8 5,3 5,4 7,1 6,2 4,2
Öll aðildarríki Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (128 að tölu) 5,1 4,8 4,1 5,7 6,1 1,1 4-0,5
VERÐBÓLGA
Árleg hxkkun verðlags (%)
Ársmeðaltal Hækkun frá fyrra ári
1965-70 1971 1972 1973 1971 1975
Iðnríki 4,2 5,4 4,8 7,3 11,8 10,8
Þróaðri frumframleiðsluríki Vanþróuð ríki önnur en 4,9 8,4 8,2 11,8 16,7 16,7
olíuframleiðsluríki 11,0 10,0 14,0 22,0 32,0 30,0
Olíuframleiðsluríki 10,0 6,0 5,0 11,0 17,0 18,0
VIÐSKIPTAJÖFNUÐURINN 1973-1975
í milljörðum Banda/rikjadala
1973 1971 1975
Iðnríki 11,8 -j-9,6 19,4
Frumframleiðsluríki •4-8,7 -v-42,9 -r-51,3
Þróaðri 1,3 -v-14,3 -t-14,3
Vanþróaðri -r-10,0 -í-28,6 -t-37,0
Olíuframleiðsluríki 6,2 66,7 35,0
Öll aðildarríki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(128 að tölu). 9,3 14,2 3,1
magnshreyfingum þannig að
forða tókst þrýstingi á gengi
hinna ýmsu gjaldmiðla og alvar-
legri rýrnun gjaldeyrisforða.
Undantekningar eru þó Bretland
þar sem gengi pundsins lækkaði
og ítalia, en gjaldeyrisstaða
hennar stórversnaði.
Sveiflur gjaldmiðla
1 upphafi árs 1976 urðu slæm
greiðslujafnaðarstaða og mikil
innlend verðbólga á ítaliu og
Bretlandi enn ljósari en áður og
var hraðlækkandi gengi gjald-
miðla þeirra helsta einkenni við-
skiptanna á alþjóðagjaldeyris-
mörkuðum á þvi timabili. Þá vek-
ur það athygli að frá þvi snemma
árs 1975 hefur gengi ýmissa
gjaldmiðla ekki aðeins hreyfst frá
degi til dags heldur hefur einnig
verið um að ræða skammtima-
sveiflur, sem stundum hafa varað
i nokkra mánuði. Þannig hefur
t.d. gengi gjaldmiðla orðið enn
virkara tæki en áður i þá átt að
hafa áhrif á greiðslujöfnuð. Or-
sakir þess má rekja aftur til árs-
ins 1973 er gengi flestra gjald-
miðla heims varð fljótandi.
Eins og vikið var að hér að
framan er atvinnuleysi enn mjög
mikið i iðnrikjunum ekki sist með
tilliti til hagsveiflunnar. Þrátt
fyrir töluverðan efnahagsbata á
undanförnum mánuðum minnkar
atvinnuleysi litið enda eru stjórn-
völd afar varkár hvað snertir
þensluaukandi aðgerðir, sém
leiða myndu til minnkandi at-
vinnuleysis og stafar það af ótta
við að verðbólgan kunni að magn-
ast á ný.
Eitt helsta einkenni efnahags-
batans i iðnrikjunum er sá hvati,
sem vaxandi einkaneysla hefur
verið. Þessi þróun er fyrst og
fremst afleiðing meiri bjartsýni
meðal almennra neytenda, en
hún lýsir sér t.d. i minni tilhneig-
ingu til að spara. Hugarfars-
breyting neytenda á rætur sinar
að rekja til minnkandi verðbólgu,
minnkandi atvinnuleysis og meiri
fjárráða heimilanna. Litil almenn
eftirspurn á árunum 1974 og 1975
leiddi af sér minnkandi birgða-
stöfnun og minnkandi fjárfest-
ingu þar af leiðandi minnkandi
þjóðarframleiðslu. Atvinnu-
ástand og framleiðsla almennt
guldu þess mjög á árunum 1974 og
1975 hversu mjög gengið var á
birgðir til að mæta efirspurn, en
nutu þess siðan á fyrri hluta yfir-
standandi árs er birgðir voru
auknar viðast hvar.
A siðari hluta yfirstandandi árs
hefur efnahagsbatinn verið ögn
hægari en á fyrri hluta ársins.
Veldur það nokkrum áhyggjum
ekki sist vegna þess hversu litt
hefur miðað i þá átt að draga úr
atvinnuléysi. Svo virðist sem
óvenju mikil verðbólga muni hrjá
efnahagslif allt á næstu árum og
litið megi út af bera til þess að
hún sleppi ekki úr böndunum.
Stjórnvöldum er þvi viðast hvar
mikill vandi á höndum og ein-
ungis framtiðin sker úr um það
hvort þau verða honum vaxin.
Hér á eftir fara töflur, sem sýna
tölur yfir vöxt þjóðarframleiðslu,
verðlagsbreytingar og viðskipta-
jöfnuð I heiminum á undanförn-
um árum.
Sérfræðingur á Geðdeild
Staða sérfræðings i geðlækningum á Geðdeild Borgarspit-
alans erlaus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. aprfl 1977
eða eftir samkomulagi. Laun samkvæmt kjarasamning-
um Læknafélags Reykjavlkur og Reykjavíkurborgar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu sendar stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar
fyrir 1. feb. 1977.
Reykjavik 20. des. 1976.
Stjórn sjúkrastofnanaReykjavikurborgar
Stáða yfirlæknis
við skurðlækningadeild Borgarspitalans er laus til um-
sóknar. Staðan veitist frá 1. júli 1977. Umsækjendur skulu
vera sérfræðingar I almennum skurölækningum.
Umsækjendur skuiu láta fylgja umsókn sinni Itarleg gögn
varðandi vlsindastörf þau, er þeir hafa unnið.ritsmlðar og
rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavik-
ur og Reykjavlkurborgar.
Umsóknir skulu sendar stjórn sjúkrastofnana Reykja-
vlkurborgar fyrir 15. febrúar n.k.
Deildarljósmæður
Stöður 4 deildarljósmæðra viö Fæðingarheimili Reykja-
vikur eru lausar til umsóknar.
Stöðurnar veitast frá 1. feb. n.k. Umsóknir sendist stjórn
sjúkrastofnana fyrir 10. jan. 1977.
Lyfjafræðingur
Staða iyfjafræöings er veiti forstöðu lyfjabúri Borgar-
spitalans, er laus til umsóknar. Laun skv. kjarasamning-
um Lyfjafræðingafélags islands. Staðan veitist frá 1. aprn
1977 eöa eftir samkomuiagi. Nánari upplýsingar gefur
framkvæmdastjóri Borgarspltalans. Umsóknir skulu
sendar stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar.
Reykjavik 20. des. 1977
Stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar