Alþýðublaðið - 21.12.1976, Qupperneq 5
Þriðjudagur 21. desember 1976
5
frá hlið eða annarri átt. Það má
oft fá i ljósmyndaverzlunum
langa snúru með flasstengingu.
Flassið speglast
Margar myndir, sem teknar
eru með flassi skemmast vegna
þess að flassið speglast i ein-
hverju og kemur eins og glamp-
andi sól inn á myndina. Þetta er
einkum ef það skin á einhvern
glansandi hlut, gljáfægðan flöt,
segil eða bara venjulegt gler.
Gætir þú þess að mynda ekki
beint að slikum flötum, heldur
hafa þá á ská gagnvart mynda-
vélinni má forðast slika galla.
Að vera klókur
eftir á
A framköllunarstofunum verð-
ur starfsfólk stundum vart við að
inn koma „tveggja jóla filmur”.
Þar er átt við filmur með mynd-
um frá einum jólum, afmæli,
kannske brúðkaupi og loks öðrum
jólum. Þegar þær eru framkall-
aðar verða litagæðin lökust á
þeim myndum, sem fyrst voru
teknar. Það er vegna þess að
áteknar filmur geymast ekki vel,
— en þurfi að geyma áteknar
filmur af einhverjum ástæðum er
réttar að hafa þær í kæliskáp eða
á köldum þurrum stað. Bezt er að
ljúka filmunni alveg um jólin, eða
áramótin ef eitthvað af myndum
var eftir á filmunni. Siðan er rétt
að setja myndimar i framköllun
strax eftiráramótin ogi janúarer
það tilvalið að skrifa nokkur
þakkarorð aftan á einhverjar
myndir og senda fjarstöddum
ættingjum og þakka þeim jóla-
gjafirnar.
Ómissandi bók við
kvikmyndatökuna
Þá bók kaupum við óskrifaða,
þvi hún verður eins konar kvik-
myndahandrit. 1 hana skrifum
við ýmis atriði og minnispunkta
um jólin, punktum hjá okkur þau
atriði, sem okkur finnst dæmi-
gerð fyrir jólahald fjölskyldunnar
og atriði, sem tengja má minn-
ingum um jólahald á heimilinu
fyrr. Siðan röðum við þessum at-
riðum nokkurn veginn niður i frá-
sagnarhæfa röð. Meðsliku skipu-
lagi spörum við mikla filmu og
skeytingar, þvi kvikmynd verður
margfalt betri og skemmtilegri ef
hún er eins konar frásögn i skipu-
lögðu samhengi, heldur en ef hún
sýnir aðeins handahófsvalin at-
riði, fólk og atburði án nokkurs
samhengis. Þá er skárra að taka
stakar ljósmyndir og raða i frá-
sagnarlega röð i albúm og skrifa
einhverja myndatexta snyrtilea
undir.
Það getur orðið fróðlegt að
kynna sér myndatökutækni sjón-
varpsins áður en hafizt er handa.
Ef við fylgjumst með sjónvarps-
myndum þá tökum við eftir þvi að
hvert atriði má ekki verða of
stutt. Það er betra að hafa þau ör-
litið færri. Við megum, ekki
hreyfa myndavélina óþarflega
fram og aftur, það verður rugl-
andi fyrir áhorfendur. Vélin ætti
ýmist að vera kyrr, eða hreyfast
með hægri hreyfingu, sem fylgir
einhverjum i myndinni. Sé mynd-
in þögul má gjarnan láta þau
yngstu i fjölskyldunni dunda við
að útbúa litskrúðug skilti með
kaflatextum, sem koma milli at-
riða. Þau þurfa að vera á tjaldinu
álika lengi og það tekur að lesa
textann upphátt.
Margir hafa nú eignast litlar
,,super-8” kvikmyndatökuvélar
með hljóðupptöku og þær bjóða
uppá margvislega möguleika. Sé
slikt ekki fyrir hendi má notast
við upptöku á segulbandssnældu,
en þá verður að gæta þess að nota
aldrei mælt mál, sem á að fara
saman við myndina. Stilling á vél
og snældu getur aldrei orðið það
nákvæm. Rétt er að láta sér
nægja upptöku svo sem eins og
skvaldur i börnunum meðan þau
opna pakkana, jólasálma, sem
leiknir eru af plötu (og láta þá
plötuspilarann sjást aðeins ibyrj-
un atriðisins sem minni háttar at-
riði i myndinni) eða annað bak-
grunnstal og tónlist.
Ekkert mælir á móti þvi að sá
yngsti i fjölskyldunni sé notaður
eins ogkynnir, sem heldur á kynn-
ingarspjöldunum og réttir þau að
vélinni.
- ýmsar leiðbeiningar og hagnýt ráð fyrir þá,
sem vilja festa á filmu jólahald heimilisins
- rabb um kyrrmyndir og kvikmyndir
- fyrir þá, sem ekki eru sérfróðir í faginu
Til að fylgja réttri frásagnarröð
er rétt að undirbúa handritið
þannig að myndin hefjist i jóla-
undirbúningnum, til dæmisi eld-
húsinu hjá mömmu, eða þegar
pabbi er að setja upp jólatréð. Svo
gæti hún hæglega endað i ein-
hverju jólaboði, t.d. þegar afi og
amma koma i heimsókn.
En höfum i huga að þetta er
fjölskyldumynd, og við þurfum
ekki að leitast við að ná neitt
miklum utanaðkomandi áhrifum,
svo sem kirkjuklukkum eða jóla-
snjó. Eitthvað slikt má koma lit-
ilsháttar við sögu, en eyðum
meiri filmu á sjálfa fjölskylduna.
Látum þó ekki myndatökuna
verða svo rikjandi athöfn, að öllu
sé snúið við hennar vegna og að
við minnumst jólanna siðar helzt
fyrir allt myndavélastússið. Með
góðu handriti er gott að gripa til
vélarinnar á fyrirfram hugsuðum
augnablikum en láta hana ekki
sjást of mikið þess á milli.
Æfingar
En vegna þess að rétt lýsing er
mikilvæg á kvikmyndum þarf að
vera búið að útbúa alla lýsingu og
lampa vel fyrir jól. Þá þarf lika,
með handritið góða við hlið sér,
að vera búið að finna réttu lýsing-
una og staðsetningu lampanna
timanlega. Með þvi móti verður
minni fyrirhöfn og minna bram-
bolt þegar að sjálfri myndatök-
unni kemur.
Lokser að áætia lengd myndar-
innar, ætla nokkurn filmu-
skammt til viðbótar vegna endur-
töku — ef þarf — og vera búinn að
kaupa filmuna fyrir jól. —BS
mþpdKettimnnirig
Dregið lOsinnum um 598 vinninga
að upphceð 20milljónirkróna, íjyrsta skipti 10. febrúar n.k
Happdrœttisskuldabréfm em til sölu nú. Þau fdst í öllum
bönmm og sparisjóðum og kosta 2000 krónur.
CÉ) SEÐLABANKI ÍSLANDS