Alþýðublaðið - 21.12.1976, Side 8
g FRETTIR
Bahrainflug Flugleiða:
Undirbúningur
i fullum
Flugleiðir hafa nú ráðið sölustjóra I
Bahrain við Arabaflóa, vegna fyrir-
hugaðs flugs þangað. Sá sem ráðinn
hefur verið er Dick Visser, sem áður
hefur unnið á skrifstofu félagsins i
Luxemborg.
Eins og fram hefur komið i fréttum
hafa Flugleiðir hug á aö koma á föst-
um áætlunarferöum til Bahrain og
telja forráðamenn fyrirtækisins aö þar
séum mjög góðan markað að ræða. Er
sú skoðun studd þeim rökum, að I
Saudi-Arabiu og löndunum við Araba-
flóa séu starfandi fjölmörg bandarísk
og evrópsk stórfyrirtæki. Starfsmenn
þessara fyrirtækja eru á samningum
sem gera ráð fyrir tveggja mánaða
vinnu og eins mánaðar leyfi á vixi.
Þetta þýðir að minnsta kosti fjórar
ferðir á ári fyrir hvern starfsmann og
fjölskyldu hans til áfangastaöa i
Evrópu eða i Bandarikjunum. Sem
dæmi um möguleikana má nefna, að i
Bahrainriki einu saman eru 55 banda-
risk fyrirtæki i ýmsum greinum og eru
starfsmenn þeirra um 7000 af banda-
risku þjóðerni. Ef fjölskyldur þessara
starfsmanna eru taldar með er hér um
ekki færri en 20.000 manns að ræða.
gangi
En auk þessara starfsmanna eru að
sjálfsögðu aðrir menn á ferli þarna
eystra. Kaupsýslumenn gera mjög
viðreist þar um slóöir enda um miklar
fjárhæðir að tefla i viðskiptum þegar
um oliurikin er að ræða.
Flugleiðir telja sig eiga góða mögu-
leika á þessum slóðum þar sem þær
geta boðið upp á ferðir án mikilla tafa
milli Bahrain annars vegar og New
York og Chicago hins vegar, auk flugs
Air Bahama til Nassau, Hjá öðrum
flugfélögum á þessari leið er yfirleitt 4-
5 tima bið — og jafnvel næturbið — á
hinum ýmsu flugvöllum.
Flugleiðir hafa nú byrjað sölu- og
kynningarherferð i Bandarikjunum og
á rrreginlandiTívrópu og'félsthún éink.
um i öflun sambanda við þau fyrirtækí
sem hafa útibú i Saudi-Arabiu og
löndunum við Arabaflóa, eða viðskipti
• við aðila þar. Þessum fyrirtækjum er
kynnt starfsemi Flugleiða, jafnframt
þvi sem ferðir þeirra eru auglýstar i
blöðum þessara landa og timaritum
sem höfða sérstaklega til starfsmanna
viökomandi fyrirtækja, auk útvarps og
sjónvarps, eftir þvi sem við á.
—hm
Pflagrímsfluginu að Ijúka:
Starfsfólkið heim fyrir jól
Pilagrimaflutningum Flugleiða
milli Jedda i Saudi-Arabiu og Kano i
Nigeriu er að ljúka þessa dagana, og
starfsfólk Flugleiða, sem veriö hefur
ytra siðan I byrjun nóvember verður
aö likindum siðasti farþegahópur sem
kemur hingað heim til lands fyrir jól.
Flutningarnir hófust 1. nóvember og
fyrri önninni lauk 22. nóv. Þá höfðu
verið flognar 32 ferðir meö nigeriska
pilagrima til fyrirheitna landsins, en
að þvi búnu varð hlé þar til heimflutn-
ingarnir hófusthinn 5. desember. Hafa
þeir staöið linnulaust siðan, og þeir
7200 pilagrimar, sem Flugleiðir fluttu
eru nú allir komnir heim til sin.
Hins vegar hefur pilagrimanefndin
nigerska beöiö félagið að flytja hóp
annarra pilagima frá Jedda til Lagos,
alls fjögur aukaflug, og urðu Flugleiö-
ir viö þeirri beiðni.
Til flutninganna fóru tvær DC-8 þot-
ur með Loftleiðaáhöfnum, en starfs-
fólkið islenzka sem starfaði ytra, var
86 talsins.
Það kemur væntanlega til Luxem-
borgar á Þorláksmessu og þaðan heim
sem farþegar með siðustu vél hingað
fyrir jól.
Pilagrimaflutningarnir tókust I alla
staði hið bezta.
—AB
Verðlaunagetraun fyrir skólabörn
lautnferðinni
lerðlaiinagetrnun fyrir
skölabörn
Vi8 gerum rtð tyrtr því, að i hauti haflr þú Utrl ýmla-
legt um umlarðina I skólanum og að I vatur munlr þú
bata miklu við þakkingu þina á umfarSarraglum.
Sýndu aðgaalu I umfarðinnl og vartu öðrum til fyrtrmynd-
ar. Hjálpaðu yngrl bömum og lelðbelndu þalm. Aðstoð-
aðu aldrað fólk I umfarSinnl, al þú sérð að það þartnast
aðatoSar.
/ .
Merktu X Ijt eóa n» rúóuna
1. Ertu alltaf öruggur í umferð-
inrti ef þú notar endurskins-
merki?
2. Attu að ganga á móti um-
ferðinni á vegi ef engin
gangstétt er?
3. Máttu leika þér bak viö
kyrrstæðan bll?
4. Þú ferö úr strætisvagni
(skólabíl) og ætlar þvert
yfir akbrautina Áttu aö
bíöa þangaö til strætisvagn-
inn er farinn?
5. Er æskilegt aö 8 ára börn
séu á reiöhjóli i umferð-
inni?
6. Er hægt aö þekkja sum um-
feröarmerki frá bakhliö?
7. Má nota endurskinsmerki á
barnavagna?
8. Eru vinstri beygjur hættu-
legri en hægri beygjur?
9. Eru öll bannmerki meö gul-
um lit?
10. Mega yngri börn en 12 ára
vera úti eftir kl. 8 á kvöldin
aö vetrarlagi?
Jt Ut,
□ □
□ □
□ □
□ □
□ □
□ □
□ □
□ □
□ □
□ □
Eins og undanfarin ár er nú efnt til
spurningakeppni um umferðamál
fyrir börn á aldrinum 6—12 ára. 32
sveitarfélög taka þátt i keppninni eða
alls um 25.300 börn. Skólanefndir á
hverjum stað halda keppnina I sam-
vinnu við lögæzlumenn.
Ætlazt er til aö foreldrar leiðbeini
börnum sinum meö getraunina en bezt
er þó að börnin fái aö glima sem mest
við hana sjálf, þar sem getrauninni er
ætlað að vekja börnin og fjölskyldur
þeirra til umhugsunar um ýmsa þætti
umferðarinnar og hefur hún þvi sem
slfk mikið gildi.
Verölaun eru veitt á hverjum stað og
mun lögregla færa hinum heppnu ein-
hvern jólaglaöning heim á aöfanga-
dag.
—AB
Þriðjudagur
21. desember 1976 biaóió
öu-
aíSÍ?' Þriðjudag
ur 21. desember 1976
FRÉTTIR 9
Borað eftir
heitu vatni
Nú standa yfir boranir eftir
heitu vatni i nágrenni Selfoss,
eða nánar tiltekið i svokölluðu
Laugdælalandi.
Hjalti Þorvaldsson hitaveitu-
stjóri á Selfossi sagði I viðtali
við blaðið i gær að boranir hefðu
gengið vel, og færi dýpt holunn-
ar að nálgast 1350 metra. En þá
væri meiningin að láta þar stað-
ar numið.
„Mér er sagt að þessi hola lofi
góðu, sagöi Hjalti enn fremur.
Hins vegar er ekkert hægt að
segja með vissu um afkastagetu
hennar enn sem komið er, þvi
það er eftir að mæla hana og
kanna á ýmsan hátt. M.a. er bú-
izt við að hitamælingar fari
fram milli jóla og nýárs.
Það er alveg á mörkunum, að
vatnsmagn það sem við höfum.
til húshitunar hérna nægi okkur,
og þvi var hafizt handa við þess-
ar boranir. Hingað til hefur það
bjargað okkur, að tiðin hefur
verið mjög góð, og þvi hefur
ekki þurft að hita húsin eins og
þegar veðrið er kaldast.
En þetta viðbótarmagn sem
nú fæst verður þvi væntanlega
notaö nær eingöngu til húshitun-
ar”.
—JSS
Ný vatnsleiðsla tekin í notkun
„Astæðan fyrir þvl
að þessi vaitnsleiðsla
var lögð, er fyrst og
fremst sú, að bærinn
hefur stækkað mjög ört
undanfarin ár, og þvi
fylgir auðvitað þörf
fyrir aukið vatnsmagn,
sagði óli Þ. Guðbjarts-
son skólastjóri á
Selfossi þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hann.
En fyrir skömmu var tekin I
notkun ný vatnsleiðsla, og ligg-
ur hún frá Ingólfsfjalli að ölfus-
árbrú og þaðan meö árbakkan-
um að nýju hverfi á Selfossi,
svokölluðu Haga- og Engja-
hverfi.
Að sögn Óla Þ. Guðbjartsson
ar hófst vinna við leiösluna á ár-
inu 1975, og kostnaður við verkið
losar 30 milljónir króna. Það
var Páll Kristjánsson vatns-
veitustjóri, sem hafði yfirum-
sjón með framkvæmdum, en
efnið var fengið frá Reykja-
lundi.
Enn fremur sagði Öli Þ.
Guðbjartsson, að i nágranna-
byggð, nánar tiltekið i Sand-
vikurhreppi hefði verið lögð
vatnsleiðsla á nánast hvern bæ,
og fengju ibúarnir þannig
neyzluvatn úr nýju leiðslunni.
Þarna væri mikið og gott vatn
að fá,og það sem meira væri, að
ekki þyrfti að hafa fyrir að dæla
þvi. Vegna legu vatnsleiðslunn-
ar sæi vatnið sjálft um að skila
sér, og væri að þvi mikið hag-
ræði auk þess sem þaö sparaöi
drjúgan kostnað.
—JSS
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HE
Laugavtigi 13 Kcykjavik simi 23870
\
Hjálparsveit skáta:
Kölluð fimm
sinnum út
til leitar
á árinu
A árinu 1975-1976 var Hjálpar-
sveit skáta i Reykjavik kölluð
fimm sinnum út til leitar. Leitað
var að einum dreng, einni telpu,
einni konu og fimm karlmönnum.
Drengurinn og telpan fundust
heil á húfi, en konan og tveir karl-
mannanna voru látin þegar þau
fundust.
Sporhundar H jálparsveita
skáta i Hafnarfirði og Reykjavik
voru notaðir við þrjár þessara
leita. Jafnframt var leitað eftir
aðstoð sporhundanna i fleiri til-
vikum, en þá var um að ræða
beiðni frá öðrum stöðum en
Reykjavik.
Þá sá Hjálparsveitin um
sjúkraþjónustu á árinu að nokkr-
um hluta svo sem á skátamótum,
og um hverja helgi i Bláfjöllum
um þriggja mánaða skeið i fyrra
vetur. ICC
Ný rakara-
stofa á Dalvi'k
Nýlega opnaöi Lalli rakari
fyrstu rakarastofuna sem starf-
rækt hefur veriö á Dalvik, en
hún er til húsa aö Goöabraut 11.
Eins og auga gefur leiö var Jóna
Stina kona rakarans fyrst til
þess aö fá snyrtingu á nýju
stofunni. (AB-mynd Jón
Baldvinsson)
Hæstiréttur ómerkir gæzlu-
varðhaldsúrskurð fógeta
í máli Guðbjarts Pálssonar
Dómsatkvæði:
Svo sem komið hefur
fram i fréttum var
Guðbjarti Pálssyni
sleppt úr gæzluvarð-
haldi, á laugardags-
kvöld, eftir að Hæsti-
réttur hafði ómerkt
gæzluvarðhaldsúr-
skurð sem Viðar ólsen,
fulltrúi bæjarfógetans í
Keflavik, kvað upp yfir
Guðbjarti þann 7.
desember.
Alþýðublaðið birtir
hér dómsatkvæði
meirihluta Hæsta-
réttar, ásamt sérat-
kvæði Þórs Vilhjálms-
sonar.
DÓMSATKVÆÐI
ihæstaréttarmálinu nr. 233/1976
Ákæruvaldiö
gegn
Guöbjarti Þóröi Pálssyni
Hinn kærða úrskurð hefur
kveðið upp Viðar A. Olson. fuli-
trúi bæjarfógetans i Keflavik.
I.
Með kæru 9. desember 1976
skaut verjandi varnaraöilja
samkvæmt heimild i 3. tl. 172.
gr. laga nr. 74/1974 máli þessu
til Hæstaréttar. Hinn kærði úr-
skurður var birtur varnaraðilja
hinn7.s.m.kl. 19.00. Samkvæmt
bókun I þingbók benti dómarinn
varnaraðilja á, ,,að hann gæti
kært úrskurð þennan til Hæsta-
réttar”, en eigisést af bókun, að
hann hafi leiðbeint varnaraðilja
um sólarhrings kærufrest sam-
kvæmt 2. málsgr. 174 gr. laga
nr. 74/1974. A6 beiöni varnarað-
ilja var nafngreindur hæsta-
réttarlögmaður skipaður verj-
andi hans með bréfi dómara 8.
þ.m., en samdægurs baðst
hæstaréttarlögmaðurinn undan
starfanum vegna anna. Var
Tómas Gunnarsson héraös-
dómslögmaður skipaður verj-
andi að ósk varnaraðilja um kl.
15.00 þennan dag, að sögn
verjandans, er kveður sér hafa
borist gögn málsins um kl. 18.15
10. s.m. Með simskeyti, er barst
bæjarfógetanum i Kefíavik kl.
10.15 9. s.m. samkvæmtáritun á
þvi, kærði verjandinn gæslu-
varöhaldsúrskurðipn,' sem um
er fjallað i máli þessu. Eins og
atvikum er háttaö, verður aö
telja, aö ákvæöi 2. málsgr. 174
gr. laga nr. 74/1974 standi eigi
Ivegi.aðkæran sé tekin tilmeö-
feröar I Hæstarétti.
Hæstarétti bárust gögn máls
frá héraðsdómara siðdegis hinn
10. þ.m., en þó eigi svo úr garði
gerð, sem boðið er i 2. málsgr.
174. gr. laga nr. 74/1974. Gögn
máls, afgreidd i lögmætu formi
samkvæmt greindu ákvæði,
bárust Hæstarétti 16. s.m.
Greinargerð verjanda hafði
borist Hæstarétti 13. s.m. Hæsta
rétti hefur eigi borist greinar-
gerö frá rikissaksóknara.
II
A hinum kærða úrskurði eru
ýmsir annmarkar. Kæruefnum
er svo lauslega lýst, að eigi er
við hlitandi. Kærur þær, sem
greinir i úrskurðinum, eru eigi
timasettar og óglöggt, frá
hverjum þær stafa. Ekki er sér-
greint nægilega, i hverju hin
einstöku brot eru fólgin, þ.á m.
er andlagi brota eigi lýst ljós-
lega, svo sem vixlum, er kærur
lúta að, en einu kæruefninu er
lýst svo, að varnaraðili er
„sagður hafa átt þátt i verulegu
fjarmála misferli i viðskiptum
við verzlun á Akureyri”. Til-
vitnun til „tollalaga” er eigi svo
glögg sem skyldi.
Hinn kærði úrskurður brýtur
svo mjög i bága við fyrirmæli
164. gr. laga nr. 74/1974, að óhjá-
kvæmilegt þykir að ómerkja
hann.
Kærumálskostnaðar hefur
eigi verið krafist.
Dómsorð:
Hinn kæröi úrskuröur á aö vera
ómerkur.
Reykjavik 18. des. 1976
Sératkvæði
Þórs Vilhjálmssonar
hæstaréttardómara
i hæstaréttarmálinu
nr. 233/1976:
Akæruvaldiö
gegn
Guöbjarti Þóröi Pálssyni.
I.
Um kæru máls þessa er visað
til I. kafla dóms meirihluta
Hæstaréttar.
II
Af hálfu varnaraðila er þess
krafist, að hinn kæröi úrskurður
verði úr gildi felldur.
I greinargerö verjanda eru
greind ýmis atriði, sem hann
telur að varða eigi ómerkingu
úrskurðarins.
1. Verjandi bendir á, að
hvorki komi fram i úrskurðin-
um, hvenær hann sé kveðinn
upp, hvenær gæsluvarðhalds-
timi hefjist né hvenær honum
ljúki. 1 úrskurðinum er þess
ekki getið, hvenær hann var upp
kveðinn, svo sem vera ber. Hins
vegar er bókað i þingbók, að úr-
skuröurinn hafi veriö lesinn
fyrir varnaraðilja 7. þ.m. kl.
19,00. Er með þvi markaöur
upphafstimi gæsluvarNialds-
vistar hans. Jafnframt eru þá
ákveðin lok hennar.
2. Verjandi telur, að kæruefn-
um sé ekki lýst með viðhlitandi
hætti i hinum kærða úrskurði,
og brjóti það i bága við 164. gr.
laga nr. 74/1974. Kæruefni þau,
sem getið er i úrskurðinum,
voru kynnt varnaraðilja i saka-
dómi Keflavikur 7. þ.m. og leit-
að skýrslna hans um þau. Er
kæruefnum lýst I stuttu máli i
hinum kærða úrskurði, en þó
með þeim hætti, að ekki orkar
tvimælis fyrir varnaraöilja og
verjanda hans, hver þau eru,
enda hefur verjandi gert þeim
itarlega skil i greinargerð sinni
hér fyrir dómi. úrskurðurinn
verður þvi ekki ómerktur af
þessari ástæðu.
3. Verjandi bendir á, að ekki
sé glögglega vitnað til refsi-
ákvæðaihinum kærða úrskurði.
Ekki veröur talið, að hinn
ákærði úrskurður veröi ómerkt-
ur vegna þessa.
III
Um efnisatriði er þessa að
geta:
1. t úrskurðinum er þess fyrst
getið, að fram sé komin kæra
um, að varnaraðili hafi dregið
sér andvirði vixla. Kærandi er
Hallgrimur Jóhannesson, fangi
á Litla-Hrauni, og er kæran frá
16. nóvember 1976. Þann dag
kom Haukur Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður i
Keflavik i heimsókn til Hall-
grlms á vinnuhælið, og viröist
kæran hafa verið rituö, meðan
hann var I heimsókn þessari. t
kærunni eru nefndir vixlar,
samtals að fjárhæö 1.200.000
krónur, og er varnaraðili sagöur
hafa „stolið andviröi” þeirra.
Varnaraðili var spurður um við-
skipti sin við Hallgrim
Jóhannesson þegar hann gaf
skýrslu i sakadómi Keflavikur
7. þ.m. Hann neitaði aö hafa
dregið sér andvirði vixla frá
Hallgrimi. Að öðru leyti er frá-
sögn varnaraðila um viöskipti
þeirra ruglingsleg og litt
skiljanleg, en i henni kemur
fram, að þeir Hallgrimur hafa
átt ýmis konar viðskipti.
2. í hinum kæröa úrskurði er
þessu næst um það getið, að
vamaraðili hafi verið kærður
fyrir að skila ekki andvirði vix-
ils, sem hann hafi tekið við til
sölu frá kaupmanni i Keflavik.
Skjöl málsins bera með sér, að
Framhald á bls. 10
Dregið í Happ-
drætti Alþýðu-
flokksins
41. 143, 353, 4153, 5085, 6073, 6234,
6874, 7384, 7563, 8971, 9423, 9592,
9749, 9755, 10067, 10561, 11499
12070, 12337.
Birt án ábyrgðar.
Dregíð hefur verið í
Happdrætti Alþýðuflokks-
ins og hafa komið upp
eftirfarandi númer:
Sólarlandaferöir: 3494, 8254, 8948
Vöruúttektir fyrir 15.000.- krónur: