Alþýðublaðið - 21.12.1976, Qupperneq 10
10
Málmiðnaðar-
menn og
skipasmiðir
Jólatrés-
skemmtun
fyrir börn félagsmanna eftirtalinna félaga
verður haldin að Hótel Borg þriðjudaginn
28. des. 1976, kl. 15.30.
Aðgöngumiðar afhentir i skrifstofum
félaganna að Skólavörðustig 16.
Félag járniðnaðarmanna, Félag bifvéla-
virkja, Félag bifreiðasmiða, Félag blikk-
smiða, Félag bilamálara, Sveinafélag
skipasmiða.
Tæknifræðingur
Rafafl s.f. óskar eftir að ráða rafmagns-
tæknifræðing (sterk straum) til starfa við
Kröfluvirkjun. Æskilegt að viðkomandi
hafi rafvirkjamenntun. Allar nánari
upplýsingar i sima 28022.
RAFAFL SVF.
lá|sfe í
Þriðjudagur 21. desember 1976
aar
Hæstiréttur ómerkir
Framhald af bls. 9.
kæra þessi kom fram 11.
nóvember 1974 og að 28. maí
1976 sendi sakadómur Reykja-
víkur málið til bæjarfógetans i
Keflavik. Var þess beiðst, að
skýrsla yrði tekin af kaupmann-
inum og málið siðan sent rikis-
saksóknara. Ekki sést af skjöl-
um málsins, að þessi skýrsla
hafi verið tekin og málið sent
rikissaksóknara. Varnaraðili
var spurður um þetta atriði i
sakadómi 7. þ.m., en ekki er
ástæða til að rekja framburð
hans.
3.1 hinum kærða úrskurði er
þess getið I þriðja lagi, að
varnaraðili hafi verið kærður
fyrir aö eiga hlut að misferli i
viðskiptum við verzlun á Akur-
eyri. Meðal málsskjala er kæra
frá 30. nóvember s.l. undirrituð
af prókúruhafa verslunarinnar
og stiluö til Hauks Guð-
mundssonar. 1 kærunni segir, að
tilteknir menn, þar á meðal
varnaraöili, hafi lofað að veita
versluninni lán haustið 1975 að
fjárupphæð 1.500.000, krónur,
fengiö frá henni vixla að fjár-
hæð 2.000.000 króna og
tryggingarbréf, en ekki greitt
lánsféð þá eins og um hafi verið
samið og aldrei að fullu. Ýmis
fleiri gögn liggja fyrir um þetta
mál, en um hlut Guðbjarts i þvi
er margt óljóst. Þegar varnar-
aðilikom fyrir sakadóm 7. þ.m.,
viðurkenndi hann afskipti af
málinu, en skýrsla hans um það
er litt skiljanleg.
4.1 hinum áfrýjaða úrskurði
er loks nefnt, að varnaraðili hafi
játað að eiga hlut að kaupum á
um 15 litrum af spiritus.
Ekki var heimilt að hefta
frelsi varnaraðila vegna 2.
atriðis eða'4. atriðis, þar sem
ekki verður séð, að það gæti orð-
ið til að breyta neinu um rann-
sókn þeirra, hvort varnaraðili
situr i gæzluvarðhaldi eða ekki.
Kærasú.sem l.liðurfjallarum,
er marklitil, ,en skýrsla varnar-
aðila um efni hennar er þannig,
að rannsaka þarf kæruefnið bet-
ur. Kæra sú, sem getið er I 3. lið,
veitir og tilefni til rannsóknar.
Verður að telja, að um bæði
þessi atriði sé veruleg óvissa og
að hugsanlegt sé, að aðrir menn
séu í þessu sambandi viðriðnir
lagabrot. Má ætla, að varnar-
aðili muni, ef hann hefur 6skert
frelsi, reyna að torvelda rann-
sóknina með þvi að skjóta und-
an gögnum og hafa áhrif á vitni
og samseka. Ég tel þvl, að staö-
festa beri hinn kærða úrskurð.
Reykjavik 18. des. 1976.
Nýjar bækur:
Leikir og störf.
Almenna bókafélagið hefur gef-
ið út bernskuminningar Þórarins
Helgasonar og nefnist bókin
Leikir og störf
í bókinni lýsir Þórarinn
bernsku sinni og bernskustörfum,
leikjúm, hugsunum og tilfinn-
ingum. Bernska hans var að
ýmsu leiti óvenjuleg. Um tiu ára
aldur varð hann fyrir slysi sem
merkti hann ævilangt og hlaut
einnig að orka sterkt á sálarlíf
drengsins. Við fermingu gerði
hann uppreisn gegn fjölskyldu
sinni og neitaði að ganga til altar-
is.
1 forspjalii bókarinnar segir
Þórarinn meðal annars „Það sem
hér á eftir segir frá, eru upprifj-
anir bernsku minnar — eins kon-
ar eftirmæli hennar — og mætti
það verða fróðlegur samanburður
á gömlum tima og þeim, sem nú
er og enn siðar verður.
Það skal sagt þegar I upphafi,
að hér er ekki um neina skáldsögu
að ræða, heldur er raunvera á
frásögninni eftir þvi sem ég bezt
man, og hvert atriði yfirvegað
samvizkusamlega.
Aramótaferö I Þórsmörk 31.
des — 2. jan. Feröin hefst kl.
07.00, á gamlársdagsmorgun
og komið til baka á sunnu-
dagskvöld 2. jan. Fararstjóri:'
Guðmundur Jóelsson. Allar
nánari upplýsingar og far-
miðasala á skrifstofunni öldu-
götu 3. Ferðafélag Islands.
Stöður hjá ríkinu eru 12.968
Fjölgaði í fyrra um
356 þar af 158
án heimildar
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
fjármálaráðuneytisins hefur
gefiö út starfsmannaskrá ríkis-
ins 1. janúar 1976. Gildir hún um
starfsmannafjöldaá slðasta ári'
Þar kemur meðal annars fram
að á siðasta ári voru heimilaðar
198 nýjar stöður þar af um 60
vegna stofnúnar fjölbrautar-
skóla i Breiðholti og Flensborg
og drykkjumannahælis á Vifils-
stöðum.
Einnig kemur fram að
óheimiluðum stöðum fjölgaði
um 158 á slðasta ári. í starfs-
mannaskránni segir, að i mörg-
um tilvikum sé hér um að ræða
starfsmenn sem ráðnir hafa
verið til skamms tima, en hafi
ilengst i rikiskerfinu með fram-
halds-ráðningarsamningum til
akveðins tima I senn.
I ljós hefur komið að 62 af
þessum óheimiluðu stöðum hafa
verið teknar á launaskrá hjá
launadeild fjármálaráðuneytis-
ins en laun 96 greidd með öðrum
hætti hjá viðkomandi stofnun. —
I heild fjölgaði i starfsmanna-
haldi rikisins á siðasta ári um
356 stöður eða 3,1%. Alls eru
skráðar hjá rikinu 12.968 stöður.
AG
Afgreiðslumaður
óskast i byggingavöruverzlun, sem verzl-
ar aðallega með pipulagningavörur.
Reglusemi áskilin.
Tilboð sendist blaðinu merkt ,,Bygging”
fyrir 30. þ.m.
ALFRÆÐI MENNINGARSJÓÐS
ÝTARLEGT , FRÆÐANDI OG MYND-
SKREYTT BRAUTRYÐJENDAVERK
ÞESSAR BÆKUR ERU KOMNAR:
Bókmenntir
Stjörnufræöi — rúmfræði
islenzkt skáldatal I
Islandssaga I
Hagfræöi
NÚ ERU TVÖ NÝ BINDI KOMIN
ÍÞRÓTTIR I-II
EFTIR INGIMAR JÓNSSON IÞRÓTTA-
KENNARA
GLÆSILEG HANDBÓK
GJÖF UNGA FÓLKSINS
NÝKOMIÐ: Islenskt skáldatal — síðara bindi
ÚT