Alþýðublaðið - 21.12.1976, Page 11
ssr Þriöjudagur 21. desember 1976
ÚTLðND 11
Lítil breyting á fylgi stærstu
flokkanna í PortúgahSSr
Margir biðu bæjar-
og sveitarstjórnar-
kosninganna i Portúgal
með nokkurri eftir-
væntingu, ekki sist þar
sem talið var að fylgis-
hlutfall margra stjórn-
málaflokka i landinu
myndi breytast tals-
vert i kosningunum.
LJrslitin voru þó á ann-
an veg en ætlað var.
Sösialistaflokkurinn, sem
heldur nú um stjórnartaumana,
hélt fyrra fylgi sinu að mestu
óskertu — tapa&i 1.5-2%
atkvæöa, mi&aö vi& þingkosn-
ingarnar i april siöastliönum.
Þykir þetta benda til fremur
styrkrar stöðu fl., þar sem
hann hefur beitt sér fyrir mörg-
um mjög óvinsælum stjórnarað-
gerðum, i árangurslítilli viö-
leitni sinni viö að rétta viö bág-
borinn efnahag Portúgals. Er
talið aö skýringin i fylgistapi
hans hafi verið sú aö eitthvað
hafi kvarnast Ut Ur flokknum til
vinstri.
Hinn Moskvuholli flokkur
Alvaro Cunhals, KommUnista-
flokkur Portúgals, var leiðandi
afl i kosningabandalaginu Povo
Unido, en bandalag þetta hlaut
7.5% atkvæða, á móti 14.6% i
þingkosningunum. Flokkur
Cunhals hefur því greinilega
náð til sin meira fylgi en sem
nam fylgistapi Sósialistaflokks-
ins og er líklegast að það hafi
komið frá ýmsum vinstri sinn-
uðum hópum utan flokksins.
Mið-hægri-flokkurinn PSD
(áður PPD) sem nu ber nafnið
„Flokkur sósialdemokrata”
stóð i stað hvað fylgi snertir og
hlaut um 24% atkvæða, sama
hlutfall og i april. Hægri flokk-
urinn CDS fékk heldur meðbyr
en hitt, hlaut nU 16.6% i stað
15,9% áður. Hershöfðinginn um-
deildi, Otelo Carvalho, sem
bauð sig fram i forsetakosn-
ingunum í Portúgal og hlaut þar
heil 16.6% atkvæða, var nU i
fylkingarbroddi i flokki sem
kallar sig „Baráttuhópur fyrir
einingu alþýðunnar” (GDUP),
en hann hlaut 2.5% atkvæða.
Hefur sennilega farið drjúgur
hluti fylgis Carvalhos frá þvi i
forsetakosningunum, yfir til
flokks Cunhals.
Litil kosningaþátttaka
Ahugi fólks fyrir bæjar- og
sveitarstjórnarkosningunum
virðisthafa verið mun minni, en
fyrirþingkosningunum. Þannig
neyttu aðeins 65% atkvæða-
bærra manna atkvæðisréttar
sins, á móti 83% i þingkosning-
unum og 75% i foráetakosning-
unum. Þrátt fyrir mun minni
kjörsókn nú, er athyglisvert að
fylgi stærstu flokkanna hefur
mjög lítið hreyfst. Þetta er þeim
mun athyglisverðara þegar haft
er i hug að'þingræðishefðin er
ekki fyrir hendi i landinu og
hefði þvi mátt ætla að pólitiskt
umrót i landinu myndi verða
talsvert fyrstu árin. En stað-
reyndin er sú, að þessar kosn-
ingar og hinar fyrri hafa sýnt,
að fremur friðarlega horfir I
stjórnmálalifinu og aö þing-
ræðisstofnanir og stjórnarað-
ferðir þingræðisins eru sem óð-
ast að festa rætur. Sveitar-
stjórnarkosningarnar hafa til
Leiðtogar flokkanna komu fram I sjónvarpi og ræddu úrslit kosninganna eftir aö þau voru kunngerð.
Þeir eru frá vinstri: ieiðtogi íhaidsflokksins (CDS), Diego Freitas de Amarai, Fransisco Sa Carneiro
leiðtogi PSD, leiðtogi Sósialistaflokksins, Mario Soares forsætisráðherra Portúgal og aðalritari I
Kommúnistaflokki Portúgal, Alvaro Cunhal.
dæmis engin bein áhrif á gang
mála á þingi og i rikisstjórn.
Minnihlutastjórn Sósialista-
flokksins mun sitja áfram, enda
þótt að kosningarnar hafi verið
nokkur traustyfirlýsing á Mario
Soares og rikisstjórn hans.
Soares mun þvi halda áfram að
feta sinn veg, á milli hægriafl-
anna og hins Sovétsinnaða
flokks Cunhals. tJrslit kosning-
anna hafa ekki gert Soares erfið-
ara fyrir i starfi rikisstjórnar-
innar, en þær hafa vissulega
ekki gert honum lifið léttbær-
ara.
Landið uppskipt á milli
flokkanna
Eitt er athyglisvert varðandi
kosningaúrslitin i PortUgal. Það
er að visu ekki nýtilkomið, en
hefur þó komið betur í ljós i
kosningunum. Þetta er pólitisk
uppskipting landsins um fljótið
Tejo. í sveitahéruðum i noröri
hafa hægriflokkarnir öll tögl og
hagldir, en sósíalistar i bæjum.
1 suðri hefur Cunhal—flokkur-
inn tögl og hagldir, en i bæjun-
um þar sem Sósialistaflokkur-
inn einnig með mest Itök.
Stjórn sósialista hefur lofað
að draga mikið Ur miðstýringu
valdsins I landinu, þ.e. að
leggja sveitarstjórnunum meira
vald i hendur. Ef af þessu verð-
ur, hafa margir óttast að póli-
tisk þróun i einstaka héruðum
verði misjöfn, að hún mótist i
hverju héraði af þeim stjórn-
málaflokki sem þar hefur mest
itökin. Þvi er það sem upp hafa
komið raddir innan Sósialista-
flokksins um að leggja vald-
dreifingaráætlanirnar á hilluna
að sinni.
Margar ástæður hafa verið
nefndar fyrir þvi að flokkur
Cunhals vann á i sveitarstjórna-
kosningunum á dögunum. Ein
er sú aö strax eftir valdatökuna
25. april 1974, komu liðsmenn
flokksins sér fyrir i mörgum
nefndum og stjórnum i stjórn-
kerfinum viðs vegar um landið
og hafa margir hverjir fengið
það orð á sig að vera ákveðnir
og duglegir stjórnendur. Þá
hefur flokkurinn sennilega auk-
ið fylgi sitt sums staðar vegna
ágreinings og átaka sem oft
hafa fylgt uppskiptingu jarða og
umbótum i jarðnæðismálum
yfirleitt.
Soares varpar öndinni
léttar.
Gera má ráð fyrir þvi að leið-
togar Sósialistaflokksins hafi
varpað öndinni léttar, eftir að
Utslit bæjar- og sveitarstjórnar-
kosninganna lágu fyrir. Margir
þeirra voru þegar búnir að
sætta sig við umtalsvert fylgis
stap flokks sins, fyrst og fremst
vegna aðildar hans að rikisstj.
og öllum óvinsælum stjórnunar-
aðgerðum hennar siðustu mán-
uði. En þó að fylgi flokksins hafi
i sjálfu sér ekki minnkað, þá er
siður en svo að flokkurinn sigli á
auðari sjá nú en áður. Talað
hefur verið um að flokkurinn
myndi ganga til stjórnarsam-
starfs við PSD, sem fyrst og
fremst er hugsað til þess að
styrkja þingræðisgrundvöll
rikisstjórnarinnar. Fæstir telja
þó i alvöru að Ur þessu verði á
næstunni, enda hafa leiðtogar
beggja flokkanna, Mario Soares
ogFrancisco Sa Carneio lýst þvi
yfir að stjörnarsamvinna sé
ekki á dagskrá flokka sinna.
—ARH
Fróðleiks-
molar frá
Sovét
Risastórar sovéskar
efnaverksmiðjur
MOSKVU (APN). A timabili ti-
undu fimm ára áætlunarinnar
(1976-1980) er reiknað með enn
meiri nýtingu vatnsorku, kjarn-
orku og kola við orkufram-
leiðsluna. Olia og agas verða á
hinn bóginn notuð i auknum mæli
sem hráefnið fyrir oliuefnaiðn-
aðinn. Með þessu er tryggð hag-
kvæmari nýting náttúruauðlinda
landsins. Verða reist stór oliuiðn-
aðariðjuver á mörgum stöðum i
landinu.
Nisjnekamaiðjuveriðvið Volgu á
að tryggja verulega aukningu
framleiðslunnar á gervitogleðri
og monomerer, sem togleðrið er
unnið úr. Þar að auki á iðjuverið
að hjálpa til við þróun plastfram-
leiðslunnar og annarra efnafram-
leiðslu með hjálp stórrar verk-
smiöju til vinnslu á etylen.
Efnaverksmiðjurnar i Tobolsk
og Tomsk, sem byrjað var að
reisa á timabili siðustu fimm ára
áætlunar, hafa mikla þýðingu
fyrir áframhaldandi þróun
sovézka efnaiðnaöarins, þessi tvö
fyrirtæki eru reist i Vestur-
Siberiu vegna hinna nýju oliu-
linda þar.
Oliuefnaiönaðurinn þarfnast
margra hráefna, mikils vatns og
mikillar orku. Til þess að fram-
leiða eitt tonn af gervitogleöri
þarf til dæmis um 2.5 tonn af hrá-
oliu, 9-10 tonn af eldsneyti og frá
30og upp i 100 rúmmetra af vatni.
Vestur-Siberia er velbúin hvað
allt þetta varðar.
Við iðjuverið i Tobolsk eru m.a.
verksmiðjur til að framleiða
gervitogleður, og mun það hef ja
framleiðslu á timabili núverandi
fimm ára áætlunar. Þá verður
einnig stór deild fyrir framleiðslu
á metanol, og fyrir 1982 verður
hafin framleiðsla i isopren og
metanol. Slik verksmiðja hefur
aldrei fyrr verið reist á svo
skömmum tima neins staðar i
heimi.
Annar hluti Tobolskiðjuversins
á samkvæmt áætluninni að risa
upp úr 1980. A sviði oliuhreinsun-
ar verður verksmiðja til að fram-
leiða bensin með hárri oktantölu,
dieseloliu með lágu brennisteins-
innihaldi og flugvélabensin i há-
um gæðaflokki.
Allar verksmiðjurnar og fram-
leiðsludeildirnar byggja á þvi
nýjasta á sviði tækni og véla-
framleiöslu, bæöi i Sovétríkjun-
um og erlendis. Etyleneverk-
smiðjan mun t.d. verða 5-6 sinn-
um afkastameiri heldur en verk-
smiðjur sem nú eru til.
Mikil áherzla er lögð á um-
hverfisvernd. Hin háþróaða
tækni, gerir þaö kleift að tak-
marka magn efnamengaðs vatns
við algert lágmark, Reist veröur
sérstök verksmiðja til þess að
hreinsa úrgangsvatnið. Oliuefna-
iðnaðurinn i Tobolsk mun þvi ekki
láta frá sér fara neitt óhreinsað
vatn. Oll tæknivinna fer fram inn-
an lokaðrar hringrásar, i loftþétt-
um, lokuðum kerfum, þannig að
Utilokað er, að óhreinsuö efni ber-
ist út i andrúmsloftið.
Samhliða þvi sem verið er aö
reisa þetta ritsiðjuver eru byggð-
ar íbúöir, skólar, barnaheimili,
verzlanir og lagðir vegir.
Ólíkt iðjuverinu i Tobolsk byggir
oliuefnaiðnaðurinn i Tmsk aðal-
lega á framleiðslu plastefna, og
fær hún hráefni sitt frá oliulind-
um i Vestur-Siberiu. Þar eru unn-
in úi' jörðu 500 þúsund tonn af oliu
ádag. Fyrsti hluti Poopylenverk-
smiðjunnar mun taka til starfa
1979.
*-
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Sillli 7 120(1 — 71201
>
g>n?
PðSTSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
Joli.imits Hntsson
litiiBiiutgi 30
íÉmihi |0 200
|Dúnn
Síðumúla 23
/ími 84200
—
Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Simar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgogn