Alþýðublaðið - 21.12.1976, Page 13
œ • Þriðjudagur 21. desember 1976
IKirarp
Þriðjudagur
2l.desember
7.00 Morgunútvarp Veðurfregn-
ir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimikl. 7.15 og 9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Jón Bjarman les þýðingu
sina á sögunni um „Marjun og
þau hin” eftir Maud Heinesen
(9). Tilkynningar kl. 9.15æ
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Hin gömlu kynni
kl. 10.25: Valborg Bentsdóttir
sér um þáttinn. Morguntónleik-
ar kl. 11.00: Berlind Bjarna-^
dóttir, Margrét Pálmadóttir,
Sigrún Magnúsdóttir og Ingi-
björg Þorbergs syngja jólalög
eftir Ingibjörgu, Guðmundur
Jónsson leikur með á selestu og
sembal. Siegfried Behrend og I
Musici leika Konsert í D-dúr
eftir Vivaldi / Eddukórinn
syngur jólalög frá ýmsum lönd-
um / André Lardrot og Rikis-
hljómsveitin i Vin leika
óbókonsert i D-dúr op. U nr. 6
eftir Albinoni, Felix Prohaska
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar . Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Við vinnuna: Tón-
leikar.
14.30 A veiðislóðum Jón R.
Hjálmarsson fræðslustjóri tal-
ar við Tryggva Einarsson i
Miðdal.
15.00 Miðdegistónleikar Liv
Glaser leikur pianolög eftir
Agathe Backer Gröndahl. Will-
iam Bennett, Harold Lester og
Denis Nesbitt leika Sónötu i h-
moll fyrir flautu, sembal og
viólu da gamba op. 1. nr. 6 eftir
Handel. Ofordkvartettinn leik-
ur Strengjakvartett op. 13 eftir
Mendelssohn.
16.00 Fréttir . Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 Litli barnatiminn Finnborg
Scheving stjórnar timanum.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir . Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir . Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.45 Vinnumál Arnmundur
Backman og Gunnar Eydal sjá
um þátt varðandi lög og rétt á
vinnumarkaði.
20.10 Lög unga fólksins Ásta R.
Jóhannesdótir kynnir.
21.00 Frá ýmsum hliðum Hjálm-
ar Árnason og Guðmundur Árni
Stefánsson sjá um þáttinn.
21.40 Enskar ballöður frá
Viktoriutimanum Robert Tear
og Benjamin Luxon syngja,
André Previn leikur á pianó.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir Kvöldsagan:
„Minningabok Þovalds Thor-
oddsens” Sveinn Skorri
Hpskuldsson prófessor les (22).
22.40 Harmonikuiög Karl
Grönstedt leikur með kvartett.
23.00 A hijóðbergi „Kastalinn
númer niu” eftir Ludwig
Bemelmans. Carol Channing
les. „Drengurinn sem hló að
jólasveininum” og aðrar limr-
ur á jólaföstu eftir Ogden Nash.
Höfundur les.
23.35 Fréttir . Dagskrárlok.
SjjóiwarP;
ÞRIÐJUDAGUR
21. desember 1976
20.00 Fréttir og veður.
20.30. Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Þingmál. Þáttur um störf
Alþingis. Umsjónarmaður
Haraldur Blöndal.
21.25 Brúðan.Nýr, breskur saka-
málamyndaflokkur i þremur
þáttum, byggður á sögu eftir
Francis Durbridge. Leikstjóri
David Askey. Aðalhlutverk
John Fraser, Geoffrey White-
head, Anouska Hempel og Der-
ek Fowld. (Jtgefandinn Peter
Matty er á leið heim til Lund-
úna frá Sviss, en þar hefur
bróðir hans, pianóleikarinn
Claude Matty, verið á hljóm-
leikaferð. A flugvellinum í Genf
kynnist hann ungri og fagurri
ekkju. Þýðandi Stefán Jökuls-
son.
22.20 Utan úr heimi. Þáttur um
erlend málefni ofarlega á
baugi. Umájónarmaður Jón
Hákon Magnússon.
22.50 Dagskrárlok.
©HB
Þegar ég sagði vetrarfri, þá var
það ekki þetta sem ég meinti,
Haukur
•.. TIL KVÖLDS l 3
HRINGEKJAN
Bellafonte í góðum félagsskap
Þeir sem sáu kvikmyndina
Carmen Jones i sjónvarpinu nú
fyrir skömmu þekkja eflaust
manninn, sem stendur I miðið á
myndinni hér að ofan. Nei.það
fer ekki milli mála, þetta er
Harry Bellafonte, ameriski
söngvarinn, sem fór með hlut-
verk hermannsins unga.
Heldur er hann ánægðari á
svipinn núna, heldur en i lok
myndarinnar um Carmen.
Hann er lika i góðum félags-
skap, þar sem eru Margaret
Trudeau, eiginkona kanadiska
forsætisráöherrans, og Yasmin
Kahn, dóttir kvikmyndaleik-
konunnar Ritu Hayworth. Þau
koma hér af samkomu, sem
haldin var til heiðurs Bellafonte
eftir að hann lauk eins árs vel-
heppnaðri söngferð.
FRANKFURT RISINN
í borginni Frankfurt
i Vestur-Þýzkalandi er
nú unnið að byggingu
griðarmikils turns.
Þegar byggingu hans
verður lokið mun hann
verða hæsta bygging i
Vestur-Evrópu, um 331
meter á hæð. Fullgerð-
um mun turni þessum
ætlað að þjóna sima-
yfirvöldum i Frankfurt
sem fjarskiptastöð.
Þegar er lokið við að
steypa upp turninn
sjálfan og lokið er við
að gera hina tólf tonna
stálumgerð byggingar-
innar sem komið verð-
ur fyrir efst á tumin-
um. Bygging þessi
verður fimm hæðir,
hringlaga og þar verða
til húsa veitingastaður,
útsýnisstaður og
stjórnstöð fyrir sima-
kerfið.
Veitingahúsið mun
rúma um 220 gesti,
útsýnisstaðirnir 300
gesti og efri útsýnis-
pallar 73 gesti.
Serh fyrr segir mun
turn þessi þjóna sem
endurvarpsstöð i sima-
kerfinu og hann er
mjög mikilvægur
hlekkur þar eð um
Frankfurt fara daglega einnig f jöldi útvarps og
l,2m.simtalaá dag og radiósendinga.