Alþýðublaðið - 22.03.1977, Page 9
S£SS'*Þriðiudagur 22. marz 1977
Nýr og fullkom-
inn tollbátur
Eins og frá var skýrt i laugar-
dagsblaðinu, var stutt athöfn
við verbúðarbryggjuna I
Reykjavikurhöfn s.l. föstudag,
þar sem hinum nýja bát Toll-
gæzlunnar var gefið nafn og
báturinn siðan kynntur við-
stöddum. Daniel Guðmundsson
skipstjóri gaf bátnum nafnið
Valur, en auk Daniels er
Magnús Karlsson ráðinn sem
skipstjóri á bátinn. Meðal gesta
á verbúðarbryggjunni voru
Matthias A. Mathiesen fjár-
málaráðherra, Björn Her-
mannsson tollstjóri, Kristinn
Ólafsson tollgæzlustjóri og fyrr-
verandi yfirmenn Tollgæzlunn-
ar, þeir Torfi Hjartarson fyrr-
verandi tollstjóri og Ólafur
Jónsson fyrrverandi tollgæzlu-
stjóri.
Nýi tollbáturinn er smiðaður
á eynni Wight suður af Englandi
og er skrokkurinn úr glertrefj-
um. Samið var um smiðina 2.
júll 1976 að undangengnu útboöi
sem starfsmenn Siglingarmála-
stofnunarinnar aöstoöuöu við.
Kaupverö bátsins er 28.7 millj-
ónir, og er þá reiknað meö öllum
kostnaöi við að fá hann hingað
til lands.
Valurer 45 fet á lengd, knúinn
tveimur vélum og er ganghraði
allt að 20 sjómilum. í honum er
radar, talstöö, dýptarmælir,
vegmælir, rafmagnsstýring og
sjálfvirkur slökkvibúnaöur. Þá
er báturinn búinn tveimur tólf
manna gúmbjörgunarbátum og
mjög öflugu ljósi til leitar I
myrkri. Þá er báturinn sérstak-
lega búinn til þess að geta flutt
Valur og gamli tollbáturinn örn sigla samhliða inn I Reykjavfkurhöfn, örn spölkorn á undan, svona f
virðingarskyni fyrir vel unnið starf....
tvö sjúkrarúm, ef til þess þyrfti
að gripa. Um borö er svefnað-
staöa fyrir tvo, vatnssalerni og
eldunaraöstaöa, þannig aö hægt
er að búa um borð I bátnum ef
farið er I lengri ferðir. —ARH
Lög um almanna-
tryggingar í end-
urskoðun
Um nokkurt skeið
hefur kjörin nefnd i
samráði við trygginga-
fræðinga unnið að til-
lögum um heildar-
endurskoðun á löggjöf-
inni um almannatrygg-
ingar og er að þvi stefnt
að frumvarp þar að lút-
andi verði lagt fyrir
þing á næsta vetri.
Þetta kom fram i sam-
tali við Matthias
Bjarnason heilbrigðis-
og tryggingarráðherra
i gær.
Nú þegar hefur verið gengið
frá ákveönum tillögum er varöa
slysatryggingadeildina, en ekki
verður skýrt frá þvl I hverju til-
lögur um breytingar á þeirri
löggjöf eru fólgnar, fyrr en
nefndin hefur lokið störfum að
fullu.
M a tth
Bjarnason
— Þegar nefndin hefur lokiö
starfi slnu, verður máliö tekið
til athugunar hjá ráðuneytinu
og kynnt ríkisstjórninni, en til
ákvarðana um breytingar á svo
umfangsmikilli löggjöf þarf
auðvitað margar pólitlskar
ákvaröanir. Ég tel þvl útilokað
aö öllu þessu starfi veröi lokið
þaö tfmanlega, að hægt verði að
leggja frumvarpið fyrir yfir-
standandi þing, sagöi ráöherra
að lokum. ARH
Auglýsingasími
blaðsins er 14906
Heimsfræg
kammersveit
á tónleikum
Tónlistarfélagsins
á morgun
7. tónleikar Tónlistarfélagsins á
þessu starfsári verða haldnir
næstkomandi miövikudag, 23.
marz I Háskólablói og hefjast
klukkan 20.30. Tónleikar Tónlist-
arfélagsins hafa sett svip á tón-
listarlif borgarinnar I vetur og
hafa komið fram á þeim margir
færustu tónlistarmenn veraldar.
Má sem dæmi nefna siðustu tón-
leika, en þar lék fiðluleikarinn
Pina Carmirelli við mjög góöa
aðsókn.
Að þessu sinni, er það ein fræg-
asta kammersveit heims, sem
leika mun I Háskólablói, Stutt-
garter Kammerorkester undur
stjórn hins fræga prófessors Karl
Míinchinger.
Það er fyrir tilstuölan þýzka
sendiráösins og Germanlu aö
koma Kammerhljómsveitarinnar
varö að veruleika, að sögn Hauks
Gröndal, formanns Tónlistarfé-
lagsins.
Næstu tónleika Tónlistarfélags-
ins heldur ungur píanóleikari,
Selma Guömundsdóttir, og munu
það verða hennar fyrstu einleiks-
tónleikar. _ab
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður
haldinn að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2,
sunnudaginn 27. marz n.k. kl. 14.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhent-
ir ábyrgðarmönnum eða umboðsmönnum
þeirra fimmtudaginn 24. marz og
föstudaginn 25. marz i afgreiðslu spari-
sjóðsins. Ennfremur verða afhent B stofn-
bréf sparisjóðsins.
Stjórnin.
Norrænir styrkir til þýðingar og
útgáfu norðurlandabókmennta
Fyrri úthlutun 1977 á styrkjum til útgáfu
norrænna bókmennta i þýðingu á aðrar
norðurlandatungur fer fram á fundi út-
hlutunarnefndar i lok april n.k. Frestur til
að skila umsóknum frá Islandi er til 12.
april n.k. Tilskilin umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar fást i menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, en
umsóknir ber að senda til Nabolands-
litteraturgruppen, Sekretariatet for
nordisk kulturelt samarbejde, Snaregade
10, DK-1205 Köbenhavn K.
Menntamálaráðuneytið,
17. mars 1977.
Rýmingarsala — Bútasala
Alls konar gluggatjaldabútar og efni i heilum ströngum þ, hagstæðu verði
Tilbúin eldhúsgluggatjöld lítið gölluð
Tilbúin eldhúsgluggatjöld breidd. 2.70
Dralon efni br. 2 m.
Spönsk terylenefni hæð 2.70
Rayon efni 120 cm.
Dralon damask 120 cm.
Kr. 3.140,-
KR. 3.416.-
Kr. 980,- pr. m.
Kr. 1.500 pr. m.
Kr. 350.-
Kr. 650.-
Litið inn og gerið góð kaup. Rýmingarsalan stendur aðeins til miðvikudagskvölds
ÁKLÆÐI & GLUGGATIÖLD,
Skipholti 17a