Alþýðublaðið - 20.05.1977, Síða 2
Föstudagur 20. maí 1977 jbii&id1
2 STJÖRNMÁL/ FRETTIR
íslenzk verkalýös-
hreyfing hefur marga
hildi háð í sókn sinni til
bættra lifskjara og betra
lifs.
Hart hefur verið bar-
izt á stundum, enda vel-
ferð íslenzkrar þjóðar í
veði. Margir fræknir
sigrar hafa unnizt á síð-
ustu áratugum til heilla
fyrir land og þjóð. I þeirri
kjarabaráttu, sem nú er
háð, mun verkalýðs-
hreyfingin bera sigur úr
býtum. Allir viðurkenna
réttmæti þeirrar kröfu-
gerðar, sem lögð hefur
verið fram um hækkun í
lægstu laun, umbætur í
skattamálum, raunveru-
lega styttingu vinnuvik-
unnar með greiðslu
mannsæmandi dagvinnu-
launa, félagslegar íbúða-
byggingar, dagvistunar-
mál og fleira.
’Ctgcfa.idi: Alþýöuflokkurinn.
Reks'tur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson.
Aösetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuöi og 60 krónur i lausasölu.
leyti hefur lánleysi
verkalýðshreyfingarinn-
ar falizt í þvi, að hún hef-
ur ekki getað sameinazt
einu pólitísku afli. Þar
sem frjáls verkalýðs-
hreyfing stendur styrk-
ustum fótum styðst hún
við lýðræðissinnað póli-
tískt af I, sem verður óað-
skiljanlegur þáttur henn-
ar.
Verkefni íslenzkrar
verkalýðshreyfingar eru
óþrjótandi og þörf in fyrir
styrk hennar og sam-
heldni hefur aldrei verið
meiri en nú. — Þótt hún
beri sigur úr býtum í því
stríði, sem nú geisar, er
full vissa um það, að á
allra næstu árum verður
hún að takast á við risa-
vaxin verkefni. Tvennt
blasir við, sem mun hafa
mikil áhrif á velferð
þjóðarinnar á næstunni.
Fyrirsjáanlegt er, að
fiskafli landsmanna mun
rýrna mjög og að árið
1980 mun olíukreppu vera
farið að gæta. Við þessum
vanda verður að bregðast
þegar i stað. Þaðafl-sem-
mest áhrif mun hafa á
þróun mála til að draga
úr alvarlegum áföllum,
er verkalýðshreyf ingin.
Hennar bíða því mikil
verkef ni.
En þótt útlitið sé frem-
ur dökkt er fráleitt að
leyfa nokkra svartsýni.
Margvislegir möguleikar
eru fyrir hendi, þjóðin
ræður yfir mikilli orku og
það eru fleiri fiskar í
sjónum en þorskurinn.
Það hefur oft verið á því
klifað i þessu blaði að is-
lenzka þjóðin sé lánsöm
þjóð og landið'sem hún
byggir, gott. Aðal-þáttur-
inn í því starfi, sem
framundan er, er að efla
trú á getu þjóðarinnar og
á landinu. En þetta verð-
ur ekki gert nema því að-
eins, að þjóðin geri sér
grein fyrir því, að hún
verður að starfa sam-
kvæmt kenningunni:
Einn fyrir alla og allir
fyrir einn. ~AG
EINN FYRIR ALLA OG
ALLIR FYRIR EINN
Nú þegar barátta
verkalýðshreyf ingarinn-
ar fyrir bættum kjörum
og betra þjóðfélagi,
stendur sem hæst, væri
ekki úr vegi, að menn
hugleiddu hvernig ástatt
væri i islenzku þjóðfé-
lagi, ef verkalýðshreyf-
ingin hefði ekki með þrot-
lausu starfi bætt hag
allra launþega. Ástand
þjóðmála væri bágborið,
ef sameining og afl laun-
þeganna hef ði ekki náð að
þróast.
Mönnum er gjarnt að
lita á baráttu verkalýðs-
hreyf ingarinnar sem
óháða baráttu þjóðarinn-
ar fyrir betra samfélagi.
Alltof margirgleyma því,
að þessi barátta er svo
samtvinnuð lifi (slend-
inga, að án hennar væri
þjóðin í fjötrum stöðnun-
ar og vesældar. Látlaust
stríð verkalýðsins fyrir
endurbótum og framför-
um snertir ekki aðeins fé-
laga i verkalýðshreyf ing-
unni heldur þjóðina alla,
hvert heimili, hvern ein-
asta einstakling.
Þessar staðreyndir
eiga nokkrir þjóðfélags-
hópar erfitt með að
skilja, þar skilur á milli
og þar eru rætur þess ill-
gresis, sem hreyfing
launafólks þarf að rífa
upp. Kjarabaráttan er
einnig þáttur í þeirri stöð-
ugu viðleitni verkalýðs-
hreyfingarinnar að
styrkja stöðu sína, efla
máttsinn og megin. Ekki
fer á milli mála að styrk-
ur hennar verður að auk-
ast. Á því sviði hafa póli-
tískir f lokkadrættir verið
til verulegs trafala á und-
anförnum árum. Að því
FRETTIR AF SAMNINGAUMLEIT
UNUM GEFA EKKI RÉTTA MYND
Þar sem fréttir þær, sem birzt
hafa um framviridu samninga-
umleitana aðila vinnumarkaöar-
ins siðustu daga, hafa hvergi
nærri gefið rétta mynd af þvi,
sem til umfjöllunar er nú á sátta-
fundum, þykir Vinnuveitenda-
sambandi tslands óhjákvæmilegt
að upplýsa eftirfarandi:
1. Eins og fram hefur komiö i
fréttum er geysimikið ósam-
ræmi f sérkröfum einstakra
félaga og sambanda innan
verka lýðshreyf ingarinnar.
Sérkröfur margra sambanda
eru umfangsmiklar, hljóða um
marga tugi prósenta kaup-
hækkanir, og ganga þvert á
yfirlýsta launastefnu ASl. Þar
við bætist svo, að fjölmörg
félög og sambönd krefjast
breytinga á ýmsum almennum
kjaraatriðum, en sitt með
hverjum hætti.
Vinnuveitendum ber að sjálf-
sögöu að reyna aö stuðla aö
skynsamlegum heildarlauna-
ákvörðunum. En þeim ber
jafnframt að vinna aö þvi að
innbyrðis samræmi sé i gerðum
samningum, bæði hvaö snertir
kaup og önnur kjör.
2. Sá hægagangur, sem ýmsum
þykir hafa sett svip sinn á
samningagerðina undanfarna
daga, á rót sina að rekja til
þeirra vandkvæöa, sem þvi eru
fylgjandi að tryggja sam-
ræmda afgreiðslu sérkrafna,
þ.e.a.s. þeirra sérkrafna, sem
ekki hafa verið til sameigin-
legrar meðferðar hjá aðal-
samninganefndum aðila. 1 til-
boði sinu 5. mai sl. lögðu vinnu-
veitendur til, að til afgreiöslu á
slikum sérkröfum kæmi jafn-
gildi 1% kauptaxtahækkunar
hjá viðkomandi starfsgrein,
allt samkvæmt nánara
samkomulagi aðila. í sér-
viðræöum viðeinstök sambönd
og félög siðustu daga hafa
vinnuveitendur tekið fram, að
sú prósenta þurfi ekki að vera
endanleg. Meginmáliö sé, aö
allsherjarsamkomulag náist
um sameiginlega aðferð til
afgreiðslu á sérkröfum, þannig
að sem mest samræmi takist
hvað snertir vægi sér-
samninga i heildarlausn. Auk
þess, sem vinnuveitendur hafa
spurt viösemjendur sina, hvort
þeir væru reiöubúnir að fallast
á það, að sama aðferð verði
viðhöfö til afgreiöslu á sér-
kröfum i öllum starfsgreinum,
hafa þeir lýst sig geta fallist á
ýmis þau atriði i sérkröfum,
sem ekki hafa i för með sér
beinan kostnaðarauka fyrir
atvinnureksturinn.
3. Eins og nú standa sakir hafa 3
aðilar þ.e. verzlunarmenn, iðn-
verkafólk og kjötiðnaöarmenn
lýst sig samþykka þvf að
standa aö sameiginlegri
afgreiðslu sérkrafna. önnur
félög og sambönd hafa enn ekki
gengist inn á samræmda lausn
'Sérkrafna. Meðan svo er ekki,
er útilokað að ljúka gerð
rammasamnings um almenn
atriði kjaramálanna. Aður þarf
að vera lokið samningum um
sérkröfur. Ella kynni sú launa-
stefna, sem mótuð væri i
rammasamningi að reynast
nafnið tómt.
Elín Þor-
bjarnardóttir
ÍS 700
í reynslu-
siglingu
Elin Þorbjarnardóttir IS 700,
nýtt skutskip i eigu Hlaðsvikur hf.
fór i reynslusiglingu s.l. föstudag
kl. 16.00. Skipið er i eigu Einars
Ölafssonar og fleiri afkomenda
Friðberts Guðmundssonar hrepp-
stjóra og útgerðarmanns á Suður-
eyri, sem var virkur athafna-
maður þar allan fyrri hluta þess-
arar aldar, og eiginkonu hans,
Elinar Þormóðsdóttur.
Meðal gesta i reynslusigling-
unni voru tveir ráðherrar og
eiginkonur þeirra: sjávar-
útvegsráðherra Matthias Bjarna-
son og iðnaðarráðherra Gunnar
Thoroddsen. Flutti þeir báðir
ávörp og minntust báðir góðra
kynna af Elinu Þorbjarnardóttur.
Þá lýsti Jon Sveinsson forstjóri
Stálvikur hf skipinu i stórum
dráttum.
Skipstjóri á Elinu Þorbjarnar-
dóttur verður hinn kunni afla-
maður Arinbjörn Sigurðsson, sem
m.a. var lengi skipstjóri á Sigurði
RE, meðan skipið var siðutogari.
—ARH
Viðræður um
fiskveiðimál
við EBE
Dagana 9. og 10. júni kemur
nefnd á vegum Efnahagsbanda-
lags Evrópu til Islands. Nefndin,
sem i eiga sæti Finn Olav Gunde-
lach, frá framkvæmdastjórn,
Frank A. Judd, aðstoðarutan-
rikisráðherra, en hann er nú
formaður i ráðherraráðinu og
embættismenn frá Efnahags-
bandalaginu, mun eiga viðræður
við islenzku rikisstjórnina um
fiskveiðimál almennt.
Þessar viöræður voru ákveðnar
þegar Einar Agústsson, utan-
rikisráðherra, hitti brezka
aðstoðarutanrikisráðherrann,
Judd, aö máli á ráðherrafundi
Atlantshafsbandalagsins, sem
haldinn var i London dagana 10.
og 11. mai. ATA
Kjaradómur
hafnar
kröfum BHM
Dómur hefur verið kveðinn upp
i Kjaradómi i máli BHM gegn
fjármálaráðherra um endur-
skoðun á aðalkjarasamningi
þessara aðila.
Var kröfum BHM algerlega
hafnað af meirihluta dómsins, en
sératkvæði skiluðu forseti
dómsins Guðmundur Skaptason
og dómandi skipaður af BHM.
Töldu þeir að taka hefði átt tillit
til röksemda BHM.
Telur BHM dóminn ólögmætan
vegna vanhæfis Jóns Sigurðs-
sonar, eins dómenda, sem Hæsti-
réttur skipar, og galla á máls-
meðferð meðal annars brota á
lagaákvæðum um fresti. Einnig
telur BHM að niðurstaða meiri-
hluta sé byggð á röngum lagafor-
sendum.
BHM mun höfða mál fyrir
bæjarþingi Reykjavikur á grund-
velli reglna um ógildingu geröar-
dóma og ihugar jafnframt að
kæra setu Jóns Sigurðssonar i
dómnum, til Hæstaréttar. —AB