Vísir - 16.04.1969, Blaðsíða 1

Vísir - 16.04.1969, Blaðsíða 1
17 ára verknámsstúlka kjörin ,fulltrúi ungu kynslóðarinnar' Sautján ára Reykjavík- urmær, Þorbjörg Magn- úsdóttir, Bugðulæk 11, var í nótt valin „fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1969“ af sérstakri dóm- nefnd. Fullt hús var í Austurbæjarbíói og var ÍSLENZK STÚLKA SEND UTAN Á BETRUNARHEIMILI í DANMÖRKU Afplánar 8 mán. dóm fyrir ávisanafals — eigin- maður hennar situr af sér dóm hér heima STÚLKAN, sem lagði fyrir sig ávísanafals, vegna þess að hún hélt, að hún slyppi við refs- ingu, hefur verið send til vistunar á betrunarheim ili í Danmörku. Að und- anfömu hefur hún af- plánað 8 mánaða fang- elsisdóm í hegningarhús inu við Skólavörðustíg. Maður hennar, sem margsinn- is hefur hlotið dóma fyrri afbrot, hefur einnig setið inni í Hegn- ingarhúsinu, en það var hann, sem £ fyrra taldi stúlkuna á að leggja sér lið við að svíkja fé út úr bönkum með fölsuðum ávís- unum. Þau gengu í hjónaband nokkru áður en fangelsisdyrnar lokuðust að baki þeim, en áður höfðu þau búið saman um langt skeið og áttu saman bam. Nýlega var kveðinn upp dóm- ur yfir þeim báðum fyrir að hafa falsað 54 ávísanir og svikið út 235 þúsund kr. Hlaut maðurinn tveggja og hálfs árs fangelsi, en stúlkan eins árs fangelsi, Lítiö sem ekkert af þessum 235 þús- undum króna komst til skila aftur. Ekkert kvennafangelsi er til hér á landi og í trausti þess, aö stúlkunni yrði þar af leiðandi ekki refsað, fékk maðurinn hana í fyrra til að veita honum lið í afbrotum hans. Hegningarhúsið við Skóla- vörðustíg þykir á ýmsan hátt ekki hentugt fangahús, og ekki þykir bæta úr skák, aö þurfa að greina sundur á milli karla og kvenna, þótt til þess hafi verið gripið í þessu tilfelli. Vegna barns þeirra tveggja hefur barnaverndarnefnd látið sig mál þetta skipta og sál- fræðingar nefndarinnar hafa lagt til, að frekar yrði gripið til þess aö koma stúlkunni fyrir á einhverju betrunarheimili (sem ekki er til hérlendis), því að með réttri meðhöndlun væru frekar vonir til þess að leiöa hana á rétta braut aftur, en flestu.n sýnist, sem hún hafi ver- ið undir óhollum áhrifum manns síns. Var þetta ráö tekiö og geng- ust félagasamtökin Vernd fyrir því að stúlkunni var útveguð vist á betrunarheimili í Dan- mörku og fór stúlkan þangaö til dvalar fyrir tveim dögum. Þorbjörgu vel fagnað af áhorfendum. „Ég er svo hissa, ég er svo hissa ...“ hrópaði Þorbjörg upp yfir sig af fögnuði og undrun eftir aö hún var krýnd. Þorbjörg kvað þetta hafa komið sér mjög á óvart. Hún tjáði blaðamanni Vísis, að hugur hennar stefndi ekki til starfs sýningadömu og auk þess væri hún ekki ákveðin í að notfæra sér verðlaunin í • Kynning stúlknanna í fegurðarsamkeppninni ’69 heldur áfram á morgun í blaðinu. þessari keppni, en þau eru dvöl á sumarskóla í Englandi. Móðir hennar var sama sinnis og kvaöst búast við að hún færi fremur til Bandaríkjanna sem skiptinemandi á vegum æsku- lýðsstarfs þjóðkirkjunnar. Foreldrar Þorbjargar eru þau hjónin Anna Gestsdóttir og Magnús Thorvaldsson, blikk- smíðameistari. Þorbjörg er nem- andi í Gagnfræðaskóla verk- náms. Dansaöi hún ungverskan dans, en allar þurfa stúlkurnar að koma fram með eitthvert skemmtiatriði. Var hún greini- lega mjög örugg með sig í fram- komu á sviðinu. Dansaði hún í ungverskum þjóðbúningi fjörug- an dans. »-*- 10. síða. SMABATAR AFLA VEL UPPI I LANDSTEINUM • Minni netabátar frá Suður-1 hafa haldiö sig á grunnmiöum að nesjahöfnum og úr Reykjavik I undanfömu og fengið dágóöan afla Stúdentar ætla að kjósa sér rektor Almennar kosningar þeirra og allra starfandi manna i trássi við lög og venjur — Búizt við einhverri þátttóku háskólakennara HÁSKÓLASTÚDENTAR hafa nú gripið til sinna ráða til að fylgja eftir kröfu um þátttöku þeirra f kiöri rektors Háskólans. — Þeir efna til almennra kosninga allra starfandi manna í Háskólanum, stúdenta. háskólakennara og beirra, sem vinna að rannsókn- arstörfum, á morgun og föstu- dag, en skoðanir munu skiptar, hvort litið yrði á sigurvegarann í kosningunum sem réttkjörinn háskólarektor. Hluti stúdenta ætlar sér ekki að viðurkenna annan rektor, en aðrir vona að- -'ins að þessar kosningar hafi á- hrif á „löglegt“ kjör rektors í maí. Efnt er til þessara kosninga að "ndangenginni samþykkt á fjöl- nennum fundi Stúdentafélags Há- rkólafélags Islands. Fundurinn leit svo á, að ekki hefði verið gengið nægjanlega að kröfum Stúdenta- ráðs Háskólans um þátttöku stúd- enta í rektorskjöri. Sú krafa var gerð, að stúdentar fengju að ráða yfir 25% atkvæða við rektorskjör. Háskólaráð hafnaöi þessum kröf- um stúdenta en bauð, að fulltrúar stúdenta á deildarfundum eða 10 -stúdentar fengju að taka þátt I kjörinu, en menntamálaráðherra hefur gengið frá frumvarpi þar að lútandi. Samkvæmt frumvarpinu hefðu 44 prófessorar, 1 dósent, 6 lektorar og 10 stúdentar rétt til þátttöku í rektorskjöri, þ. e. stúd- entar réðu yfir 16% atkvæðamagns ins. Það er alls ekki víst, að búið verði að samþykkja þetta frumvarp áður en ti! löglegs rektorskjörs kemur, sagði Ólafur Guðmundsson, for- maður Stúdentafélagsins, í viðtali við Vísi um þetta mál £ morgun. Frumvarpið gerir heldur ekki ráð fyrir nema mjög Iítilli sárabót eftir að kröfum stúdenta var hafnað. — Þessir 10 stúdentar yrðu t. d. ekki fulltrúar stúdenta allra, heldur að- eins fulltrúar sjálfra sín, því að stúdentar almennt munu ekki geta haft á það áhrif, hvernig þeir kjósa. Það er því lágmarkskrafa, aö stúd- entar fái að kjósa sérstaka kjör- menn. Ólafur kvaðst sjálfur ekki lita svo á, að nauðsynlegt væri fyrir stúdenta, að viðurkenna aðeins þann sem hlyti kosningu nú, »->■ 10. slða. 'alveg uppi i landsteinum, þetta upp i 20 tonn. Hér er um að ræöa tuttugu til fjörutíu tonna báta. • Afli hefur veriö misjafn hjá Suðumesjabátum, frá tveimur og upp i 20 tonn. Stærri bátarnir eru flestallir komnir suður á Sel- vogsbanka. Afli hefur verið mjög góður, yfir 40 tonn það bezta. — Bátarnir landa allir í Grindavik eða Þoriákshöfn. Hins vegar er dauft yfir allri fisklöndun hér í flóanum. .Til Hafnarfjarðar kemur varla nokkur kæna og i Reykjavík landa einungis smærri bátar. 77 tonna bátur fór heila veltu Sautján tonna skakbátur, Rán RE. fékk á sig brotsjó, þegar hann var á leið inn til Sandgerðis laust eftir hádegi í gær Báturinn valt heilan hring, en skipverjana þrjá, sem allir voru staddir uppi í stýris húsi bátsins, sakaði ekki — Skömmu eftir veltuna drapst á vél bátsins og sendu skipverjar þá upp neyðarblys. — Þeir voru þá staddir skammt undan landi. Vél báturinn Gunnar Hámundarson frá Keflavik kom þar að og dró Rán inn til Keflavikur. Dæmi eru til þess að bátum hafi áöur hvolft þannig á sundinu viö Sandgerði, fariö heilan hring, án þess að nokkum sakaði. Það er hins vegar mesta mildi að ekki skyldi hljótast slys af. Báturinn skemmd ist nokkuð við veltuna, rúður brotn uðu, vatn fór í lest og öllu laus- legu skolaöi útbyrðis.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.