Vísir - 16.04.1969, Blaðsíða 5

Vísir - 16.04.1969, Blaðsíða 5
U 1 S I R . Miðvikudagur 16. apríl 1969. 5 VORSÝNINGIN — fremur bragðdauf / samanburði við baustsýninguna 'E'irEtivem vegmn varó þaö svö ^ að minna varð úr íslenzku fatasýningunni, sem fór fram í Laugardalshöllinni á mánudag cn vonir stööu til að okkar mati. Ems og lesendur Kvennasíð- unnar muna var efnt til sams konar tizkusýningar á fatakaup stefnunni i haust er leiö og tókst hún vel. f>ess vegna hefði mátt búast við því, aö þessi sýn- ing stæðí henni ekki að baki og skaraði jafnvel fram úr. Á sýningunni á mánudag var sumart.ízkan kynnt og tóku þátt • i henni 11 fyrirtæki af 17, sem að fatakaupstefnunni standa. Þarna átti semsagt að kynna nýjungar i íslenzkri sumartízku. Einn helzti galli sýningarinnár Sjóklæöagerðinni. Axel í grænbláum Teddy-nælon- galla frá Solido. kom þá þegar í ljós i þvi að ekki skyldu öll fyrirtækin sýna, og að samtök eins og Kjóla- meistarafélag íslands skyldi vanta að þessu sinni meö sum- arkjöla, en kjólar þeirra settu mikinn svip á síðustu haustsýn- ingu. í einum sýningarbásnum voru sýnd fyrstu íslenzku „bikini- baðfötin“, sem við minnumst að hafa séð. Þessi baðföt, sem reyndar eru kölluð sólföt i sýn- ingarskránni eru sýnd á gínum í sýningarbásnum, en hefði skil- yrðislaust átt að sýna á tízku- sýningunni sjálfri á spreHlifandi sýningarstúlkum. Þegar þetta er skrifað, hefur verið gerð bragarbót, og voru sólfötin íslenzku sýnd á tízku- sýningunni í gær. Vikjum þá að því, sem sýnt var. Fyrst á dagskrá var undir- fatnaöur kvenna og náttklæðn- aöur. íslenzk framleiðsla á þessu sviði stendur sig vel og svo vel að stórlega hefur dreg- ið úr innflutningi erlends fatn- aðar á þessu sviði og er ekki nema gott eitt um það að segja. Sérstaka athygli okkar yöktu framleiðsluvörur Verksmiðjunn- ar Max, sem eru fyllilega sam- keppnisfærar við erlendar vör- ur. í heildina má segja, að undir fötin hafi verið skemmtileg þótt okkur kunni að hafa fundizt nokkurs ofhlæðis gæta i sumum pifuskreytingunum. Tjá var röðin komin aó barna- og unglingafötum frá Solido öll seld undir vöruheit- inu „Teddy“. Þetta var skemmti legur klæðnaður og vandaöur að sjá. Og þá voru það „poplin“káp- urnar svonefndu, eftirlætisflik- ur íslenzkra kvenna að sumar- lagi gæti maður haldið, því fátt annað var sýnt af kápum. Hins vegar gæti maður halÖið þeirri skoðun fram að ósekju, að yfir- leitt séu þessar „jK>plin“kápur (sem eru reyndar oft úr terri- lini, og öðrum gerviefnum) æti- aðar til þess aðallega að klæð- ast þeim í rigningu eða rigning- arlegu veðri, en dragtimar og léttar sumarkápur úr ullarefn- um séu meir til þess ætlaöar að ,vera í á sólrikum sumardög- um. Um þær kápur, sem sýndar voru má segja, að þær hafi að mestu fylgt erlendum tízku- stefnum hvað snertir snið. Hins vegnar var hneppingin ekki eins . fjölbreytt og maður hefur séð á erlendum fatnaði, það voru t. d. ekki notaðar sylgjur, sem eru mikið i tízku og rennilás sást ekki á einni einustu kápu. En látum það vera, og að allt hafi verið í iagi með hnappana. Hins vegár kom áberandi galli í Ijós á mörgum þessum káp- um, en hann var sá, að þær revndust vera missíðar. Það hefur alltaf þótt fara vel á því aö kápufaldurinn næði jafnhátt frá gólfi allt um kring nema, þegar tizkan hefur sagt annað, en okkur vitanlega segir tízkan ekkert' um missíðan kápufald um þessar mundir. Þar sem sumar af kápunum voru með belti er kannski ástæða til að ætla, að kannski haíi sýningar- stúlkunum i flýtinum við að skipta um föt ekki tekizt að jafna fellingarnar undir beltið. Framleiðendurnir ættu þó að athuga sinn gang. Ástæða er til að nefna eina nýjung en þaö er vinylregnkápa frá Sjóklæða- gerðinni með tilheyrandi hatti. Mikið var sýnt af alla vega peysum og voru þær margar hverjar mjög sumarlegar og skemmtilegar. Gerviefnin voru óspart notuð og framleiðendum til mikils hróss, þá láta þeir leiðbeiningar um þvott fylgia framleiðsluvörunum. Sérstaka athygli okkar vöktu sportpeysur frá Prjónastofunni Peysunni. Þessar sportpeysur voru eins konar peysusett. þann ig að skilja að peysurnar voru gerðar í tveim gerðum. önnur fyrir herrann og hin fyrir döm- una. Var lítill munur á þeim. Er þetta fyrsta, „unisex" tízkan eða „samkyns“ tízkan, s*«m ríð höfum séð frá íslenzkum frarri- leiðanda. Einnig vöktu sumar- peysurnar frá Prjónastofunni Iðunni athygli okkar, léttar, Ijós ar og sumarlegar með fallegum munstrum. Þá voru sýnd karlmannaföt frá Föt hf. þar sem nýju Iínunni „dálítið aðskorinn jakki með hárri klauf að aftan“, er fyigt. Einnig síðbuxur frá Slimma með nýja srilðinti, buxnaskálmum, sem vikka að neöan. í heild má segja, að ýmisleg- ur skemmtilegur fatnaöur hafi komið fram á þessari sýningu, en mikið skorti á fjölbreytnina, sem stafar kannski af því, að íslenzka sumarið er stutt og veður misjöfn og leggja fram- leiðendur þvi meiri áherzlu á föt, sem gangi árið um kring eða miðist við kaldari mánuö- ina. Við fáum kannski úr því skorið á næstu vorsýningu. Einfaldur og fallegur náttkjóll, sem stenzt fyllilega samkcppni við erlenda vöru.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.