Vísir - 16.04.1969, Page 7
V í S I R . Miðvikudagur 16. apríl 1969.
morgun
útlbnd
morgun
•útlönd í mörgun
útlönd í raorgun
dtlön
w
Nýjar skattaálögur á Bretlandi og boð-
uð lagasetning vegna skæruverkfalia
® London: Í fjárlagafrumvarpinu,
sem Jenlcins fjármálaráðherra
Bretlands lagði fram í gær, er gert
ráð fyrir auknuni sköttum á næsta
fjárhagsári, sem nema 340 milljón-
um punda.
Jenkins sagði í ræðu sinni, að
þótt í rétta átt miðaði aö koma efna
hag landsins á réttan kjöl væri
vinnuókyrrðin í landinu enn alvar-
legt vandamál og boöaði lagasetn-
ingu fljótlega tii brevtinga á vinnu-
löggjöfinni, sem miðaði að því að.
girða fyrir hættuna af ólöglegum
verkföllum.
Edward Heath leiðtogi stjómar-
andstöðunnar gagnrýndi frumvarp-
ið harðiega og innan stjórnarflokks-
ins á þingi eru margir mótfalinir
hinni boðuðu lagasetningu, og einn-
ig verkalýðsforustan í landinu.
Fregn frá Sviss hermir, að al-
þjóðabankastjórar telji stefnt í
rétta átt með frumvarpinu, og að
tilganginum muni verða náð, eink-
anlega ef samtímis verði dregið úr
útgjöldum ríkisins.
Rétt áður en fjárlagafrumvarpió
var lagt fram var tilkynnt, að í mán
uðinum sem leið hefði óhagstæöur
greiðsiujöfnuður enn minnkað eða
um 12 milljónir punda. Verðmæti
útflutnings jókst um 59 milijónir
punda, en verðmæti innflutnings
jókst einnig.
Fangauppbotum má heita
lokið á ítaliu
Lin Piao.
Lin Piao iand-
varnaráðherra
arftaki Mao
tse Tung
\ ® Á flokksþingi kommúnista-
' iokksins var í fyrradag samþykkt
lý stjórnarskrá og í henni er á-
' væði um, að Lin Piao landvama-
■’ðherra taki við sem flokks- og
’-ióðarleiðtogi ef Mao tse Tung fell-
ur frá eða lætur af embætti.
• Róm: Fangauppþotin á Ítalíu
hafa nú hjaðnaö að mestu. Fangar
hafa víðast hvar flestir gefizt upp,
en til uppþota kom í fangelsum í
Torino, Mfianó, Bari, Fiorenz og
Padua. Fangar hafa verið fluttir til
.fangelsa í öðrum landshlutum eöa
stendur til aö fiytja þá þangað.
Fangelsin, þar sem uppþotin urðu.
eru að meira eöa minna leyti eyði-
lögð. í Bari urðu nokkur hundruð
fanga að hafast við í nótt undir
beru iofti og gætti lögregla þeirra.
Fangar þessir bíða flutnings.
Forsætisráðherra landsins hefur
neitað að verða viö kröfum komm-
únista um að afvopna iö.gregluna.
Jenkins fjármálaráðherra.
1=3
J
Harðar deilur um stjórnar-
framtíð Rhódesíu
• Þjóöþingið í Rhodesíu kom
'iman til fundar í gær eftir þriggja
/ikna hlé til ákvörðunar um stjórn-
málalega framtíð landsins.
Forsætisráðherrann, Ian Smith,
er fyrir skömmu kominn heim eftir
nokkurra vikna levfi. Hann dvald-
ist í Suöur-Afríku leyfisvikurnar.
í dag verður lagt fyrir þingiö
frumvarp, sem heimilar stjórninni
að efna til þjóðaratkvæöis um
stjórnarkráruppkastið frá 1965. Bú-
;zt er við hörðum deilum um frum-
varpið — senniiega verða þær hin-
'ar hörðustu frá þvi að iýst var yfir
sjálfstæðinu 1965.
Leiðtogi hægrimanna, Robin Jam-
es mun leggja. til, að frumvarpinu
verði vísað frá. Hann er formaður
flokksins Rhodesian Front, sem tel-
ur ekki nógu iangt gengið með frum
varpinu til öryggis yfirráðum hvítra
manna í Rhodesíu.
Lagafrumvarpið um þjóöarat-
kvæði er í því formi, að hægt er að
halda þjóðaratkvæði um samkomu-
lagsstjórnarskrá (þ. e. stjórnarskrá
sem Rhodesíustjórn og brezka
stjórnin kæmu sér saman um).
lan Smith.
SNÆPLAST:
PLASTLAGÐAR spónaplötur, 12-16 og 19 mm
*
PLASTLAGT harötex.
*
HARÐPLAST í ýmsum litum
*
SNÆPLAST er ÍSLENZK framleiðsla
Spónn hf.
VELJUM [SLENZKT-
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
<H>
Skeifan 13,
Sími 35780
Nýtt „Pueblomál'
Bandarísk könnunar-
flugvél skotin niður
úti fyrir strönd N-Kóreu
■ Seoul og Washington: í leit-
inni að bandarisku könnunar-
flugvélinni, sem saknaö er, hefur
sézt brak á sjónum út af strönd
Noröur-Kóreu, og telja menn lík-
legt, aö það sé úr henni.
Brakið er innan við 180 kílómetra
frá ströndinni á þeirn slóðum, er
síðast heyrðist til flugvélarinnar.
IJins og sagt var í fréttum í gær
hefur verið tilkynnt í Norður-Kóreu
að skotin hefði verið niður banda-
rísk flugvél, sem rofið hefði loft-
helgi Norður-Kóreu.
Fiugvéiin hafði bækistöð í banda-
rískri flugstöð f Japan og hafði
flugstjórinn ströng fyrirmæli um,
að fljúga ekki nær ströndum Norð-
ur-Kóreu en 96 km. Flugvélin hafði
31 manns áhöfn. Hún var búin
hlustunartækjum. í Washington hef
ur ekki verið sagt nánar frá >'.il-
ganginum með flugferðinni.
Frétt frá Seou, höfuöborg Suður-
Kóreu, herrnir að leiðtogar allra
stjórnmálaflokka hvetji Bandaríkin
til strangra aðgerða gagnvart Norð-
ur-Kóreu, en í Washington er talið
víst, að Nixon forseti muni viðhafa
alla gætni í þessu máli, sem hefur
orðið tii þess að minna á þaö, sem
gerðist, er könnunarskipið Pueblo
var tekið og ftutt til hafnar f Norð-
ur-Kóreu.
Tókíó: Brakið úr bandarísku
könnunarflugvélinni sást á sjónum
um 100 sjómílur suðaustur af
Chongjin í Norður-Kóreu. Engin Mk
hafa sézt á floti.
Seoul: Norður-Kóreustjórn hefur
óskað eftir fundi í Panmunjom á
föstudag án þess að tilgreina ástæð-
ur fyrir beiðninni. — Formæiandi
bandarísku herstjórnarinnar kveðst
ekki vita hvort Bonesteel hershöfð-
ingi muni verða við tilmælunúm.
Landvarnaráöherra Suður-Kóreu
hefur sakað Noröur-Kóreu um nýja
ögrun með því aö skjóta niður
bandarisku fiugvélina. Ráðherrann
Chung Shik segir, aö .Suður-Kórea
verói að gríþa íil síiírta raðstafana
til þess að hindra endurtekningiu á
slíkum árásum.
„SjálfsmorðsaIda“
Extrabladet í Kaupmannahöfn
birtir grein um „öldu sjáifsmorðs- -
tiirauna 1 Vestre Hospital í Khöfn“
og hefur lagt staðreyndir fyrir
Toben Jersild yfirlækni, sem stað-
festir, að ,,það sé alls ekki óal-
gengt, að unglingarnir reyni að
fremja sjálfsmorö í örvæntingu
sinni“, en til þessa hafi tekizt að
hindra það vegna árvekni hjúkrun-
arkvenna og fangavarða.
Fárviðri
Fárviðri mikið fór yfir Austur-
Pakistan í fyrradag og biðu 165
menn bana, en á annaö þúsund
meiddust. Mikiö tjón varð á hús-
um og öðrum mannvirkjum. Vjnd-
hraðinn komst upp 1 140 km hraða
á klst. Mest var tjónið í Dacca.
Viðskiptajöfnuður
Brezkur viðskiptajöfnuður varð
hagstæðari svo nam 12 niilljonum
steriingspunda í fyrra mánuði. —
Þetta var tilkynnt í gær — á „fjár-
lagadeginum", nokkrum kjst. áður
en Jenkins fjármálaráðherra lagði
fram fjárlagafrumvarpiö í neðri
málstofunni. — Pundið hækkaði í
2.93 dollara og hefur ekki verið
hærra í heilt ár.
Könnunarflugvél
Frétt frá Tókíó í gær hermir, að
í N.-Kóreu hafi verið skotin niður
bandarísk könnunarflugvél 1 fyrri-
nótt. — í bandarískri frétt var sagt
að hafin væri lert frá bandarískri
'fiugstöö í Japan. Var þetta fjög- ’
urra hreyfia flugvél með 31 manni
um borö.
Liðhlaupar
Undangengnar 4 vfkur hafa 16
bandarískir liðhlaupar sótt um dval
arleyfi 1 Sviþjóð. Af samtals 2241
slíkum beiðnum hefur aðeins 20
verið hafnað eða umsækjendur fóru
aftur án þess að bfða eftír svari.
Tékkar
Fimm tékkneskir knafctspymu-
menn hafa sótt um landvisfarleyfi
Holiandi. Kepptu þar í bikarkeppn-
inni á sunnudag. Fjórir aðrifc fóru
ekki með flugvélinni, sem átti að
flytja aHa heim.
Oscars-verðlaun
Osoars-verðiaummum fyrir bezt-
an leik i kvikmyndum var skipt
milli leikkvennanna Katherine
Hepbum og Barböru Streisand. —
Þetta var í fyrsta skipti, sem tvær
leikkonur fengu veröteunin samtím-
is. — Cliff Robertsson fékk verö-
laun fyrir leik sinn í kvikmyndinni
„eharly“, Katherine fyrir leik sinn
f „Lion in Wántcr" og Barbara fyr-
ir leik sinn í „Fwnw*'