Vísir - 17.07.1969, Side 1
59. árg. — Fímmtudagur 17. júlí 1969. — 158. tbl.
„Þeir detta ekki
þótt þeir lendi
neðan á
funglinu#/
• „Þeir lenda á tunglinu á
afmælisdeginum hennar
mömmu.“ Þessar upplýsing-
ar, og fleiri, veittu bræðurn-
ir Arnþór og Sigurður Hall-
Hey og saltfískur brann
inni / KEFLA VÍK
— To//ð oð krakkar hafi kveikt i 200 fermetra geymsluhúsi
Mikinn ljósgráan reyk lagði
upp af Vatnsnesbás í Kefla-
vík í gær um það leyti, sem
menn voru að koma frá vinnu
og spurði hver annan, hvort
kviknað væri í hálfu Vatns-
neshverfinu. Reykurinn kom
hins vegar frá allstóru
geymsluhúsi, sem stendur þar
norðan til á nesinu.
Lögreglan í Keflavík hafði
grun um að krakkar, sem þarna
eru oft að leik hafi kveikt í hey
inu, sem í skúrnum var. Heyið
var eign hestamanna í Keflavík.
Þeir höfðu fengið töðuna þurra
með ærinni fyrirhöfn, brátt fyr
ir óþurrkana og haft það þarna
til geymslu. Brann það allt sem
og ýmiss konar dót sem þarna
var í geymslu.
Átta tonn af þurrfiski voru
geymd þarna og skemmdist fisk
urinn mikið. — Slökkvilíðiö kom
á vettvang 20 mínútum eftir
aö eldsins varð vart og slökkti
eldinn, en timburhús, sem þarna
standa mjög nálægt að norðan-
verðu sluppu alveg, svo og stórt
geymsluhús Kaupfélagsins, sem
stendur sunnan við skúrinn.
Norðurendi geymsluhússins
hangir enn uppi, en það er mikið
brunnið og nær ónýtt talið.
dórssynir í morgun. Þeir voru f!
á leiðinni heim úr sundi, en
komu við í tunglflauginni,
sem stendur við barnaheimil-
ið Grænuborg, og lentu
„mjúkri" tungllendingu —
hvað eftir annað á grasflöt-
inni.
Yngsta kynslóðin vex nú upp
meö geimferöir, sem sjálfsagðan
hlut. Á leikvöllunum eru tungl
flaugar fyrir yngstu aldursflokk
ana, og strákarnir leika sér
geimferðarleikjum. Þó er fót-
boltinn ennþá vinsælastur hjá
íslenzkum drengjum — eða a.
m.k. fannst bræörunum hann
skemmtilegastur. Þeir vita mik-
ið um geimferðir, hafa séð eeim
skot í sjónvarpinu.
„Aðdráttarafl tunglsins togar
geimfarana aö sér“, segir Arn-
þór, „þeir detta ekki þótt þeir
lendi neöan á tunglinu."
„Ætlið þiö að verða geimfar-
ar þegar þið eru orðnir stórir?“
„Ég ætla að veröa kokkur",
Vopnahlé
í striði El Salvador og
Honduras
E1 Salvador og Honduras sam-
þykktu í morgun að hætta bardög-
um. Bæði ríkin settu þó skilyrði
fyrir vopnahléi. Honduras krafðist,
að EI Salvador drægi her sinn til
baka frá landsvæði Honduras, en
E1 Salvador að Honduras hætti að
ofsækja borgara frá grannríki sínu.
Styrjöld þessara tveggja ríkja
Mið-Ameriku hefur staðiö í þrjá
daga.
TUNGLFARARNIR
SOFANDI Á HÁDEGI
SOrefnismælir í ólagi - en engar áhyggjur
Þremenningarnir í Appollo 11
sváfu rótt í morgun, 150 þúsund
kílómetra frá móður Jörð. Ekkert
amaði að þeim, og hraði geimfars-
ins var milli fimm og sex þúsund
kílómetrar á klukkustund. Stóð til,
aö þeir yrðu vaktir upp úr hádeg-
inu, en það má gera frá jörðu.
Súrefnismælir virtist ekki starfa
rétt, en vísindamenn höfðu ekki á-
hyggjur af því. Að öðru leyti var
allt í góðu gengi.
Bandarískir vísindamenn vita-i>
ekki, hvort rússneska tunglflaugin
getur flutt steina til jarðar, og
bíða menn spenntir eftir fréttum
af henni. Hún á að lenda á tungl-
inu á hverri stundu.
— Sjá nánar á bls. 7
segir Sigurður, sem er sex ára,
tveimur árum yngri er bróðir-
inn. „Mér þykir góð „pulsa“,
það er bezti matur, sem ég fæ“.
„Ég ætla aö verða vísinda-
maður eða uppfinningamaður",
segir Arnþór. Og svo segir hann
frá því aö frændi hans hafði orð
ið þrettán ára í gær þegar geim
fararnir lögðu af stað til tungls
ins, þannig að tunglskotið er
tengt ýmsum merkisatburðum í
fjölskyldu bræðranna.
Bing Crosby kom í morg-
un tíl fundar við iaxinn
— Hann verður kvikmyndaður við veiðar i islenzkum ám
Sá heimsfrægi leikari og söngv-
ari, Bing Crosby, var ekki fyrr
komiijn til Reykjavíkur eldsnemma
í morgun, en hann tók sér gufubað
á Loftleiðahótelinu, bar sem hann
gistir meðan hann er í borginni.
Crosby hefur væntanlega haft veiði
stöngina sína með sér bví að hann
á hér erindi við laxinn og er ætl-
unin að taka sjónvarpsmynd af
honum hér við veiðar.
f för með leikaranum voru kvik
myndatökumenn frá bandarísku
sjónvarpsstöðinni ABC. Myndin
veröur meðal annars tekin við Laxá
í S-Þingeyjarsýslu, en Crosby mun
væntanlega renna fyrir lax í fleiri
ám.
Hingað kom leikarinn með Pan
Am þotu, sem lenti á Keflavíkur
flugvelli, en þangað sótti hann síð
an vél frá Flugmiðstöðinni.
Sjóstangaveiðimenn höfðu í vor
mikinn viðbúnað til þess að taka á
móti þessum fræga leikara, þar sem
ætlunin var að hann kæmi hér á-
samt fjölskyldu sinni og tæki þátt
í sjóstangaveiðimótinu, en af því
gat ekki orðið.
Bing Crosbv er nú orðinn 65
ára gamall. Hann er frægur um all-
an heim af nær fjörutíu ára ferli I áreiðanlega hvert mannsbarn hér
„HEILMIKILL
ELTIRLEIKUR
— segir sjúkrahússlæknirinn
Daníel Daníelsson, læknir á
Húsavik, tjáði Vísi í viðtali í morg
un, að lögfræðingar hans og lækna
samtakanna væru nú aö athuga á
hvern hátt hann geti leitað réttar
síns, en eins og menn rekur minni
til, var Daníel sagt upp stöðu sinni
sem sjúkrahúslæknir á Húsavík
fyrir nokkru. Daníel kvað ekki tíma
bært að skýrt væri frá kröfum hans
• Frá '’.omu Bing Crosbys í morgun að Hótel Loftleiðum frá Keflavík. Frá vinstri á myndinni
er Emil Guðmundsson, móttökustjóri hótelsins, Sigurður Magnússon, Boyd, amerískur blaðamað-
ur og vinur Crosbys, Hassan, kvikmyndastjóri frá ABC, Bing Crosby, Erling Aspelund, hótelstjóri,
Oddyar Kjelsrud frá MyTraveI ferðaskrifstofunni.
í málinu en á því „verður heilmikill
eftirleikur", eins og hann komst
að orði.
Daníel kvað uppsögn sína vera
einsdæmi i sögu læknisþjónustunn
ar hér á landi, og yrði þetta
mál í heild rætt á aöalfundi Lækna
félags íslands og læknaþingi í
september n.k.
Þaö var stjórn Sjúkrahússins á
Húsavík, sem sagði Daníel upp
störfum í sl. mánuði, vegna þess,
að hann hafi ekki samið sig að
sérstakri reglugerö, sem sett hafði
verið í april sl. um starfrækslu
sjúkrahússins og læknamiöstöðvar
fyrirkomulag þar að lútandi.
Vilji
jb jóðarirmar
- Sjá bls. 8-9
I I opnu blaðsins í dag birt-1
ir Vísir yfirlit yfir þær 33
1 skoðanakannanir, sem fram- ,
kvæmdar hafa verið á vegum
blaðsins til þessa. Er hér um 1
, forvitnilegar upplýsingar að I
ræða, — um vilja þjóðarinn-
I ar, — og hina merkustu heim-
ild. Á næstunni munu birtást1
niðurstöður úr skoðanakönn-
unum, sem Vísir hefur unnið ,
að að undanförnu, og kemur
þar margt forvitnilegt í Ijós,'
eins og að líkum lætur.