Vísir - 17.07.1969, Síða 8

Vísir - 17.07.1969, Síða 8
8 V f SIR . Fimmtudagur 17. júlí 1969. VISIR , Útgefandi Reyttjaprent h.t. Framkvœmdastjón Sveinn R. Eyjóífsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axei Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Biriúr Pétursson Ritstjómarfulitrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðaistræti 8. Simi 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 145.00 A mánuði innanlands f lausasölu kr 10.00 eintakið 0rentsmiðja Vísis — Edda h.f -t,—BMgffiati.uB-.ggiiMmiBMBaBagggMM—g—————— Skoðum hug okkar [slendingar eru fámenn þjóð og ættu því að hafa til- tölulega hæga aðstöðu til að afla sér upplýsinga um hinn félagslega vef íbúa landsins og hvernig skoð- anir einstaklinganna og félagsleg aðstaða þeirra tengj- ast á ýmsa vegu. Þessi upplýsingasöfnun er miklum mun vandasamari hjá milljónaþjóðunum, en samt hefur þeim flestum tekizt að afla sér töluverðrar þekkingar á eðli skoðana þeirra, félagstengsla og menningar, sem þar ríkja. En við höfum sáralítið gert til að kanna með vísindalegum hætti það, sem nefna mætti þjóðarsál íslendinga. Félagsfræðingar beita ýmsum rannsóknaraðferðum við slík vorkefni. En ein aðferð er þó mikilvægari en aðrar og hefur komið að mestum notum erlendis. Það eru skoðanakannanirnar. Þær gefa ekki einungis upp- lýsingar um skoðanir manna og skiptingu þeirra, heldur einnig um menningu þjóðarinnar og margvís- leg félagstengsli í þjóðfélaginu. Oft hefur verið talað um, að nauðsynlegt væri að komá slíkúrri Itöinriunum á fót hér á landi, en lítið hefur orðið^ajðgerðum. Dagblaðið Vísir hefur haldið uppi merkinu undan- farið hálft annað ár. Á þessu tímabili hefur blaðið sjálft skipulagt og framkvæmt 33 skoðanakannanir, og sex til viðbótar eru nú í vinnslu. Þessar kannanir hafa kostað mikla fyrirhöfn og peninga, en starfsem- inni verður þó ótrauðlega haldið áfram, enda ætlast lesendur blaðsins greinilega til þess. Farið var gætilega af stað í þessar kannanir og var fyrst aðeins leitað álits íbúa Reykjavíkursvæðisins. Fljótlega voru þó færðar út kvíarnar, og frá því í tí- undu könnun hafa skoðanakannanir Vísis náð til allr- ar þjóðarirmar. Alltaf hefur vísindalegum aðferðum verið beitt til að tryggja, að úrtak blaðsins gæfi rétta mynd af þjóðarheildinni. Og úrtakið hefur verið meira en nógu stórt til þess, að tiltölulega nákvæmar nið- urstöður hafa fengizt. Er ótrúlegt, að prósentutölur þær, sem Vísir hefur gefið upp, skakki meira en fimm prósentustigum frá raunveruleikanum. Hins vegar hefur svið skoðanakannana Vísis verið mjög takmarkað. Úrtak þeirra hefur verið of lítið til þess, að hægt væri að kanna, hvernig skoðanirnar dreifast á ýmsa þjóðfélagshópa. Blaðið hefur aðeins getað gert lauslegan samanburð á skoðunum karla og kvenna og á skoðunum íbúa Reykjavíkursvæðisins og landsbyggðarinnar. Blaðið hefur ekki heldur getað kannað sambandið milli einstakra skoðana. Til slíks þarf miklu stærra úrtak og aðstöðu til að spyrja mik- inn f jölda spurninga í senn. Og slíkar upplýsingar eru ekki síður forvitnilegar en heildartölur um álit þjóð- arinnar á einstökum málum. Ýtarleg heildarkönnun, sem kæmi víða við og fleytti rjómann ofan af verkefnunum, mundi kosta nokkur hundruð þúsund krónur, og er ekki á annarra færi en ríkissjóðs. Slík könnun níundi veita hafsjó af upplýsingum. Það er vissulega orðið tímabært að hef j- ast handa á því sviði. VÍSIR hefur nú fram- kvæmt 33 skoðanakann- anir, og hirtast niðurstöð ur þeirra í töfluformi á síðunni hér við hliðina. Gæta skal þess, að niðuv stöður tveggja þeirra, þar sem spurt var um vinsældir manna, ; eru ekki birtar, enda falla þær ekki inn í það töflu form, sem hér er birt og gefur hugmynd um skoðanir þær sem þióð- in hefur á þessum mál- um og sem um er spurt. Jjað kennir vissulega margra grasa í þessum skoðana- könnunum. Fróðlegt er aö at- huga niöurstöður þeirra og bera saman. Gaman er að fylgj- ast með skoðunum fólks á hægri umferðinnj. Upp úr áramótun- um 1967—1968, er undirbúning- ur að gildistöku hægri umferöar var að hefjast, skiptist þjóöin nokkurn veginn í tvo hópa, með og móti upptöku H-umferðar. Þróunin fram eftir vorinu fram að gildistöku H-umferðar var öfug við það, sem upplýsinga- aðilar vegna H-umferðarinnar gerðu sér vonir um, því að and- stæðingum H-umferöar fjölgaði verulega. Má þar ef til vill um kenna röngum áróðursaðferð- um, of litlum áróðri, of einhæf- um eöa einhverju öðru, sem nánari rannsóknir þarf til aö komast að niðurstööum um. Þegar breytingin var gengin um garð, var 71% þjóöarinnar orö- inn fylgjandi breytingunni, og er það ótvfræður vitnisburður um, að framkvæmd sjálfrar breytingarinnar hafi tekizt vel, og umferðarmenning hér hafi aukizt við breytinguna. jpróölegt er einnig að bera saman og athuga, á hvaöa málum fólk hefur yfirleitt skoö- anir. Er það unnt með athugun á töflunni, sem birtist hér að neðan, um þaö, hversu margir höfðu ekki myndað sér skoðun á ákveðnu máli. Kemur þar í ljós, að aðeins 4% höfðu ekki myndað sér skoðun um H-um- ferð, 6% um vínbann, þannig aö þjóöin virtist hafa ákveðnar skoðanir á þessum málum. Tjá getur og verið fróðlegt að athuga hin pólitísku mál, afstöðu þjóðarinnar til varnar- liðsins, NATO, EFTA o. fl. Yfir- leitt virðist fólk vera nokkuö hlvnnt ríkjandi stefnu í þess- um málum, það vill hafa herinn áfram, vill að ísland verði áfram í NATO og vill aðild að EFTA, þó svo að ekki sé neitt ákveðið af hálfu stjómvaida um síöast talda atriðiö, þar sem mikil óvissa er um samnings- atriði. TC'róðlegt er og að bera saman þjóðarvilja og vilja alþing- ismanna í einstökum málum. Tökum sem dæmi áfenga bjór- inn. Tvær skoöanakannanir hef- ur Vísir framkvæmt, þar sem spurt hefur verið um afstöðu fólks til sölu á áfengu öli hér á landi. Sú fyrri sýndi fram á jafna skiptingu með og móti, en sú síöari, sem framkvæmd var snemma í vor, tæplega ári síö- ar, bendir greinilega til þess, að meiri hluti þjóðarinnar vilji sölu áfengs öls hér á land. Samt sem áður var bjórfrumvarpið fellt á Alþingi. Þess vegna mætti spyrja: Eru þingmenn ekkj i takt við tímann? Þannig mætti lengi halda áfram vangaveltum um þessar skoðanakannanir og niðurstöður þeirra, en Vísir læt- ur lesendum sínum það eftir. Á næstunni munu birtast hér > blaðinu niðurstöður skoðana- kannana, sem nú er verið að Ijúka við, og niðurstöður þeirra eru vissulega jafnlærdómsríkar og þær, sem hér eru birtar i dag. Vinsælustu skoöanirnar Almenningsálit? Taflan sýnir, hve mikill hluti þeirra, sem Taflan sýnir, hve margir þeirra, sem spurðir svöruðu, voru á umræddri skoðun. voru, höfðu ekki skoðun á umræddu máli. 1. 90% Staögreiðsla skatta — já 1. 4% Hægri umferð (nr. 1) 2. 80% Stóriðja — já 2. 6% Vínbann 3. 78*4% ö'vun við akstur — nei 3. 7% Áfengt öl 4. 77% Lenging skólaárs — nei 4. 7% Skólabúningar 5. 77% Nefskattur útvarps og sjón- 5. 9% Þéringar varps — já 6. 10% Áfengt öl (nr. 2) 6. 73% NATO-aðild — já 7. 10% Varnarliðið 7. 73% Forystumenn brugðizt — já 8. 10% Ölvun viö akstur 8. 72% Gengislækkun — nei 9. 12% Lenging skólaárs 9. 71% Hægri umferð (nr. 3) — já 10. 14% Næturklúbbar 10. 71% Prófkjör innan flokka — já 11. 1414% Kefla-'íkursjónvarp 11. 69% Minkaeldi — nei 12. 15% Minkaeldi 12. 69% Keflavíkursjónvarp — já 13. 15% Hægri umferö (nr. 2) 13. 67% Breytt landspróf — já 14. 17% Útvarps-sjónvarpsgjöld 14. 67% Poppmessur, dægurtíðir — nei 15. 19% Ríkiskirkja 15. 65% Hægri umferð (nr. 2) — nei 16. 20% Ríkisstjórn grípi i taumana. 16. 64% Vínbann — nei 17. 21% Staðgreiösla skatta 17. 63% Varnarliðið burtu — nei 18. 22% Forystumenn brugðizt 18. 32% Þegnskylduvinna — já 19. 22% Hægri umferð (nr. 3) 19. 62% Ríkiskirkja — já ■“*'* 20. 62% Afnám miólkureinkasölu — iá 20. 22% Prófkjör tmm

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.