Vísir - 24.03.1970, Blaðsíða 3
Ví SIR . Þriðjudagur 24. marz 1970.
3
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND
Stjárnarkreppan ó Ítalíu er leyst
Umsjón: Haukur Helgason
— Hjónaskilnaðarmálið verður rætt við páfadóm
Mariano Rumor úr flokki
kristilegra demókrata hef-
ur tekizt á hendur að
mynda ríkisstjórn mið- og
vinstri flokka á Ítalíu. —
Hinn 54ra ára Rumor, sem
var forsætisráðherra í síð-
Rumor — bar sáttarorð milli páfa
og sósíalista.
200
drukknuðu
Óttazt er, að um 200 hafi drukknað,
þegar bátur fórst í ofviðri suðaust-
ur af Manila á Filippseyjum í
morgun.
Skipið fórst í Ingadaka-An ánni.
ustu stjóm, gekk í gær á
fund Saragats forseta og
tilkynnti honum, að hann
gæti myndað samstjórn.
Höföu allir fjórir flokkarnir, sem
til var leitað, loks fallizt á að setj-
ast saman í stjórn. — Þetta eru
kristilegir demókratar, lýðveldis-
sinnar, sósíaldemókratar og sósíal-
istar.
Sósíalistar urðu síðastir til að
fallast á málamiðlunartillögur Rum
ors, sem voru 22 blaðsíður að
magni.
í þessu plaggi er meöal annars
fjallað um tvö viðkvæm deilumál,
sem til þessa höfðu staðiö í vegi
fvrir samkomulagi. Rumor leggur
til, að hjónaskilnaðarmálið skuli
rætt við páfadóm, sem berst gegn
frjálsari löggjöf í þeim efnum. Þá
skuli sósíalistar á hverjum stað
ráða því, hvort þeir vilja vinna með
kommúnistum í málefnum staðar-
ins, og muni ríkisstjómin ekki ráð-
ast gegn því. Þess vegna virðist hin
44ra daga stjómarkreppa á Ítalíu
á enda.
Forsetinn stýrði
sjálfur áhlaupinu
— Uppreisnarmenn / Alþýðulýðveldinu
Kongó stráfelldir
Byltingartilraunin í Alþýðulýðveld-
inu Kongó fór út um þúfur, og
vom uppreisnarmenn stráfelldir.
Fremur lítil sveit uppreisnar-
manna hertók útvarpsstöðina í
Brazzaville í gærmorgun, og lýsti
yfir því, að Ngouabi forseta hefði
verið steypt úr stóli. Nokkrum
klukkustundum seinna var öllu.lok-
ið. Forsetinn stýröi í eigin persónu
áhlaupi gegn byltingarmönnum, og
vinstri sinnar hans fóm áfram með
völd í ríkinu.
Ngouabi forseti sagði í útvarps-
ávarpi, að þrjátíu hefðu verið drepn
ir af uppreisnarmönnum, og tveir
hefðu fallið af stjómarhernum. —
Hann sagði, að Verkamannaflokkur
Kongó væri fastur í sessi. Hefðu
Jane Fonda berst fyrir Indíána.
Leikkonan Jane Fonda sat í fangelsi um hríð fyrir nokkrum dög-
um vegna þátttöku í mótmælaaðgerðum bandarískra Indíána,
sem þykir réttur sinn fyrir borð borinn. — Jane Fonda hvggst
nú ferðast um og mótmæla Víetnamstríðinu.
afturhaldsmenn staðið að þessari
byltingartilraun, og að baki þeim
væm heimsvaldasinnar. Hefðu þeir
komið yfir Kongófljót frá erkifjend-
um alþýðulýðveldisins, hinu Kongó-
ríkinu, þar sem Leopoldville er höf-
uðborg.
Foringi uppreisnarmanna, Kig
anga, var skotinn á staðnum, þegar
í stað í viðurvist mikils mannfjölda.
Kiganga var fyrrum liðsforingi í
sveit fallhlífarhermanna og var
mikill andstæðingur vinstri sinna,
sem náðu völdum með byltingu í
janúar árið 1968.
Ekki er víst hvemig Kiganga hef
ur hugsað sér, að þessi tilraun tæk-
ist. Virðist hann helzt hafa búizt
við stuðningi frá óánægðum liðs-
foringjum í landinu, en sú von
brást gjörsamlega.
Áður hefur komizt upp um tvær
byltingartilraunir gegn Ngouabi
forseta, og hefur forsetinn sakað
grannríki sitt og Mobuto forseta
þess um undirróður.
Frú Leonie Sonning og
Halldór Kiljan Laxness.
Frú Sonning látin
Tók deilur á Sonningverðlaunin mjög nærri sér
FRtJ LEONIE SONNING, ekkja
Sonnings, sem verðlaunin eru
kennd við, er látin, 75 ára.
Sagt er, að hún hafi tekifpmjög
nærri sér deilurnar, sem uröu
vegna Sonningsverðlaunanna, en
sem kunnugt er mótmæltu stúdent-
ar verðlaununum, þegar Halldór
Kiljan Laxness hlaut þau í fyrra.
Þá urðu einnig mikii blaðaskrif, þar
sem Sonningsverölaunin voru gagn-
rýnd.
Frú Leonie stýrði Sonning-millj-
ónunum, en átti ekkert af þeim
sjálf. Eignimar eru fasteignir. Fjór-
ar á Sonningsjóðurinn, sem veitir
bókmenntaverðlaun, en hinar á
tónlistarsjóðurinn.
Frú Sonning lifði af mánaðarlaun
um sínum sem forstjóri sjóðanna.
Herinn
ber
út
póst
Nixon Bandarikjaforseti lýsti yf-
ir neyðarástandi í Bandaríkjunum
í gærkvöldi vegna verkfalls póst-
manna. Fyrirskipaði hann her-
mönnum aö dreifa pósti í New
York, þar sem miklir haugar hafa
safnazt vegna sex daga. ólöglegs
verkfalls flestra póstmanna.
Nixon skoraði á bina 180 þúsund
verkfallsmenn að snúa aftur tii
vinnu sinnar. Jafnskjótt og verk-
falli linnir, segir forsetinn, er ríkis-
stjórnin albúin að hefja viðræður
við verkfallsmenn. Sagði Nixon, að
kaup þeirra væri of lágt og skipu-
íag póstþjónustunnar úrelt.
Aðalfundur
Verzlunarbanka íslands hf. verður haldinn í
veitingahúsinu Sigtúni, laugardaginn 4. apríl
1970 og hefst kl. 14.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bank-
ans síðastliðið starfsár
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
bankans fyrir síðastliðið reikningsár
3. Lögð fram tillaga um kvittun til banka-
stjóra og bankaráðs fyrir reikningsskil
4. Kosning bankaráðs
5. Kosning endurskoðenda
6. Tekin ákvörðun um þóknun til banka-
ráðs og endurskoðenda fyrir næsta
kjörtímabil
7. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundar-
ins verða afhentir í afgreiðslu bankans Banka-
stræti 5, miðvikudaginn 1. apríl, fimmtudag-
inn 2. apríl og föstudaginn 3. apríl kl. 9.30—
12.30 og kl. 13.30—16.00.
í bankaráði Verzlunarbanka íslands hf.
Þ. Guðmundsson Magnús J. Brynjólfsson
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.