Vísir - 24.03.1970, Síða 5
VlSIR . Þriðjudagur 24. marz 1970.
5
„ER ÞETTA EKKI
BARA OFANMYND? '
— Þrir þjóókunnir leikarar eiga aldarfjórdungs
afmæli
„Er þetta ekki bara ofan-
mynd." — „Það 'sést hver hef-
ur notað minnst sminkið á ferl
inum“. „Já, og hver hefur borið
mestar áhyggjur.” „Sjáið, hvað
hann er krumpaður."
Þannig glettast þeir og skipt
ast á hnyttnum setningum, af-
mælisbörnin, Gunnar Eyjólfsson
Róbert Arnfinnsson og Baldvin
Halldórsson, á meðan þeir stilla
sér upp- í alls kyns mögulegar
og ómögulegar stellingar fyrir
Visismenn,
Þeir byrjuðu saman fyrir 25
árum og léku þá allir svipuö
hlutverk, yngis...enn í leik-
ritinu „Kaupmaður i Feneyj-
um Nú halda þeir upp á sitt
25. starfsafmæli í stykkinu,
Meröi Valgarðssyni.
„Hvort þeir túlkj svipaðar
„týpur“ eins og þeir gerðu
fyrst?“
„Nei, persónuleikar þeirra
hafa þroskazt á ýmsa vegu“, og
það er leikstjórinn Benedikt
Árnason, sem fyrir svörum verö
ur. „Gunnar leikur Kára, Róbert
Njál og Baldvin leikur Mörð.“
Innbrot á
Akureyri
• Brotizt var inn aöfaranótt laug-
ardagsins í olíusöluna hjá
Þórshamri á Akureyri. Þjófamir
komust inn í sælgætissöluna, sem
er sambyggð olíusölunni, og stálu
á báðum stöðunum samtals kr.
7230.— og svo nokkrum páska-
eggjum, ýmsu sælgæti, filmum og
smávamingi ýmsum. Lögreglan á
Aku»eyrj vinnur nú að rannsókn
máteins. — GP.
6ABBADI LOOmiMA 8
SIMMim SÖMU MÓTTINA
og fékk oð lokum gistingu i „nýja kjallaranum'
Upp úr klukkan þrjú í fyrri-
nótt tók hjálparbeiðnum
skyndilega að rigna yfir lög-
regluna víðsvegar úr bæn-
um. a
„Viljið þið gjöra svo vel að
senda okkur aðstoð vegna blind
fullra manna héma á Rauöar-
árstíg 30?“ var fyrsta beiðnin.
Og svo komu þær koll af kolli
hver á eftir annarri: Ölvun hér,
Eyðileggur rányrkja
á loðnu netavertíðina?
—■ spyr aflakóngurinn á linuvertiðinni i Kefla-
vik, Halldór Þórðarson á Freyju
„Ég er bjartsýnn á línuver-
tíðina", sagði Halldór Þórðar
son, skipstjóri á Freyju, Kefla
vík, um helgina, þegar frétta-
ritari Vísis ræddi stuttlega
við hann. „Hins vegar getur
ofveiði og rányrkja í loðnu-
veiðum haft örlagaríkar af-
leiðingar fyrir netavertíðina“,
sagði hann.
Halldór kvaðst nú kominn
með 366 tonn frá áramótum, en
alls varð veiðin 500 tonn á ver-
tíðinni í fyrra. Fiskurinn er enn
nokkuð á flökti eftir æti þar eð
loðnan er seint á ferðinnj viö
suðvesturströndina, en henni
fylgir ævinlega mikið af öðrum
fiski. '•.,>?
Hins vegar kvaðst Halldór
svartsýnn á netavertíðina vegna
hinnar miklu rányrkju, eins og
hann orðaðj það, sem undanfar-
ið hefur verið stunduð í loðnu-
veiðunum. Kvað hann það hljóta
að verða kröfur fiskimanna að
slík ofveiði yrði stöðvuð hið
bráöasta: Ef netaveiðin brygðist,
gæti það haft hinar örlagarík-
ustu afleiðingar i för meö sér
fyrir verstöðvarnar sunnanlands
ef netaveiðin yrði allt í einu úr
sögunni. — emm/jbp.
slys þar, innbrot annars staðar
o. s. frv.
En þegar lögreglumennirnir
komu jafnharðan úr sendiförun-
um og upplýstu, að um gabb
eitt væri að ræða, tók lögregl-
unni að renna i skap, enda næg-
ar annir aðrar, sem biðu, og
stórvandræðf gátu hlotizt af,
ef mestallt lögregluliðið væri
upptekið við fýluferðir, þegar
kannskj einhvern voða bæri að
höndum.
Með aðstoö vaktmanns hjá
bæjarsímanum tókst aö hafa
uppj á símanúmerinu.semhringt
var úr alls átta sinnum til að
gabba lögregluna. Númerið var
á heimavist Sjómannaskólans
og dró heldur úr hlátri nemand-
ans, sem fyrir gabbinu hafði
staðið, þegar skyndilega birtust
á vistinni lögreglumenn og hirtu
hann.
Hann reyndist ölvaður og var
flúttur í nýja fangakjallarann,
þar sem sann var haföur í haldi
það sem eftir var nætur. Hann
er þó ekki búinn að bfta úr nál-
inni með þetta, þótt hann hafi
gist eina nótt í fangageymslum,
og verður mál hans sent saka-
dómi Reykjavíkur til meöferðar.
GP — SB
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS HF.
Arður til hluthafa
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar hinn 21.
marz s.l. greiðir bankinn 7% arð til hluthafa
fyrir árið 1969. Arðurinn er greiddur í aðal-
bankanum og útibúum hans gegn framvísun
arðmiða merktum 1969.
Athygli skal vakin á því, að réttur til arðs
fellur niður, ef arðs er ekki vitjað innan
þriggja ára frá gjalddaga, samkv. 5. gr. sam-
þykkta bankans.
Reykjavík, 23. marz 1970.
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS HF.
NOTAÐIR BILAR
Skoda 1000 MBS árg. ’67
Skoda Octovia Combi ’66
Skoda Octavia Combi ’65
Skoda 1202 árg. ’64 fæst
l'yrir 2—3ja ára skulda-
bréf.
TTffiT
Auöbrekku 44-—46, KópaVogi
Simi 42600
UTBOÐ
Landsvirkjun hefur ákveðið að bjóða út eftir-
greind tvö verk við Þórisvatnsmiðlun:
1. Vatnsfellsveita: Skurðgröftur um ein
milljón rúmmetrar, er Ijúka skal á þessu
ári.
2. Stíflugérð við Þórisós um 600 þús. rúm-
metrar, er ljúka skal á næsta ári.
Útboðsgögn fyrir hvort verk verða afhent á
skrifstofu Landsvirkjunar, Suðurlandsbraut
14, Reykjavík, frá og með föstudeginum 3.
apríl n.k.
Tilboð verða opnuð i skrifstofu Landsvirkj-
unar þriðjudaginn 5. maí n.k., kl. 14:00.
Reykjavík, 23. marz 1970
LANDSVIRKJUN
Almennur félagsfundur
Sjálfstæðisfélags Garöa- og Bessastaóahrepps verður
haldinn þriðjudaginn 31. þ. m. að Garðaholti, Garða-
hreppi, ki. 8.30.
Fundarefni:
1. Tekin ákvörðun um frambjóðendur sveitarstjórna-
kosninga.
2. Fjárhagsáætlun hreppsins. Ólafur G. Einarsson
sveitarstjóri.
STJORMiN