Vísir - 24.03.1970, Qupperneq 13
Sívaxandi áhugi á
„eitrinu" í matnum
— Alþjóðleg samt'ók vinna að Jbví oð gera
lista yfir hættuleg efni i matvælum — Ný-
stofnuð eiturefnanefnd hér hefur efni notuð
i matvælaiðnaðinum i verk ahring sinum
...V 'í/i.;
boð um meðhöndlun eiturefna i
matvælum fyrr en um áramót,
en þá gekk ný löggjöf í gHdi.
Þá var skipað í eiturefnanefnd,
sem hefur m.a. efni í matvælum
£ sínum verkahring, en auk þess
arar nýskipuðu nefndar er starf
andi heilbrigðiseftirlit og Rann
sóknarstofnun iðnaðarins hefur
m.a. efnagreint matvælin.
Verkefni þessarar nýstofnuðu
nefndar munu verða ærið nóg,
á matvælasviðinu einu, en nýjar
vörutegundir bætast mjög ört
á markaðinn, einnig ef maður
tekur til viðmiöunar frágang
matvæla hér á landi.Áumbóðim
VÍSIR . Þriðjudagur 24. marz 1970.
ar vantar yfirleitt allar upplýs-
ingar. Ekki er getið eins sjálf-
sagðra hluta og þyngdar inni-
haids og vökvamagns, þegar um
vökva er að ræða. Hvað þá að
innihald sé efnagreint eða skýrt
frá þeim viðbótarefnum, sem
sett hafa verið f matvælin til að
bæta útlit þeirra.
Frá neytendasjónarmiði ætti
eitt af brýnustu verkefn. nefnd-
arinnar að vera það að koma
á skyldu framleiðenda til að til
greina nákvæmlega fyrir neyt
endum hvað það er, sem þeir
kaupa til að leggja sér til
munns. -sb-
ingastarfsemi og fleiru.
Heizta kvörtun þessara
manna er sú, að iðnaðurinn
byggi háa múra umhverfis rann
sóknarstofur sínar og sé því erf-
itt að fá greinargóða mynd af
þvi, hvað það sé í raun og veru,
sem fólk borði.
Ýmsar stofnanir í Danmörku
fylgjast með matvælaframleiðsl-
unni og þeim efnum, sem lát-
in eru í vörurnar, þeirra á meðal
er rannsóknarstofnun ríkisins á
matvælum, sem bráðlega mun
hafa 100 manns starfandi -nð
matreiðslurannsóknir og við til
raunir á efnum, sem notuð eru
í matvælaiðnaðinum.
í blaðinu er listi yfir þau efni,
sem sett eru i matvælin m.a.
Efni til að efla geymsluþol eru
efni eins og sykur, salt, dip-
henyl, nitrat, hexamethyl o. fl.
Reykingarefni, ozon, oxiran,
propylenoxid, methylbromid,
carbondioxid, nitrogren, o. fl.
Antibiotika, tetracyclinid, nicin.
Litarefni, koparklóríð, tjara.
Bragðréttandi efni, krydd, sor-
bitol cycklamat, saccharin, gervi
bragðefni.
Auk þess vítamín, enzymar,
vax, klór, rakaefni.
Þá segir að matvælin geti inni
haldið eftirtalin efni áður en
þau eru unnin af framleiðend-
um í iðnaðinum. Geislavirk efni,
afganga af skordýraeitri t. d.
DDT, blý, kopar, kvikasilfur,
zink, olíu og bensín.
Afgangar af antibiotika og
hormónum, sem ganga frá fóðri
til dýra og vegna læknameðferð
ar á dýrum.
Einnig óhreinindi í lofti, sót,
ryk o. fl. Þessi upptalning end-
ar á orðunum „verði ykkur að
góðu.“
Hér á íslandi voru engin laga
JJanir hafa áhyggjur af ýmsum
þeim' efnum, sem matvæla-
iðnaöurinn notar í sambandj við
útlit, bragð og geymsluþol mat-
væla. Þó er Danmörk álitið eitt
„hreinustu" landa í heimi hvað
snertir eiturefni í matvælaiðn-
aðinum.
Alþjóðleg samvinna hefur tek
izt um það að semja sameigin-
legan iista yfir þau efni, sem
má nota, af kemískum efnum í
matvælaiðnaðinum. Iðnaðurinn
getur nú notað hvað sem er :—
þar til sannazt hefur, að efnin
séu hættuleg.
í danska blaðinu B.T. var ný-
lega fjallað um þessi mál. Þar
stendur, að fleiri og fleiri séu
farnir að hafa áhuga á „eitr-
inu“ i matnum. Ýmsar greinar
landbúnaðarins vinni nú að
matvælaframleiöslunni án þess
að nota þessi efni og einstaka
framleiðandi hafi einnig hafið
framleiðslu á iðnaðarvörum,
sem slík efni eru ekki notuð I.
Þá er sagt frá samtökum
ungra vísindamanna, sem séu
sjálfstæð samtök vinnuhópa, án
tengsla við nokkum stjómmála
flokk, sem vinni að þvi að berj-
ast mót gegnsýringu umhverfis
mannsins,' og alls þess er það
inniheldur af efnum efnaiðnaðar
ins. Þetta sé gert með upplýs-
AXMINSTER býður kiör viS ollra hœfi..
GRENSASVEGl 8
SIMI 30676.
Fjölskyldan og Ij eimilid
54
„Fljótur þá ....“
Douglas hikaði ekki nema brot
úr andrá, hann átti ekki um neitt
að velja. Svo kleif hann upp í
aftursætið og þeir óku af stað, og
trðllahlátur Boudesh yfirgnæfði
hreyfilgnýinn.
ÞRETTÁNDI KAFLI.
Blore herforingi sat á bak við
skrifborð áítt. Fyrir framan hann
lá ljósmynd af olíubirgðastöðinni,
sem tekin hafði verið úr könn-
unarflugvél, er lent hafði fyrir
rúmlega klukkustundu. Blore
horfði að vísu á myndina, en ekki
athugandi lengur. Hann hafði
ekki þurft nema að líta á hana í
svip til að komast að öllu, sem
hann þurfti að vita. Nú var ein-
ungis eftir aö hagnýta sér þá
vitneskju til hins ýtrasta.
Það var drepið á skrifstofu-
dymar, hann leit upp, gramur yf-
ir þvi, að hugsanagangur hans
skyldi vera truflaður.
„Kom inn ...“
Masters höfuðsmaður gekk inn
og heilsaði, og enda þótt svipur-
inn á andliti herforingjans væri
gremjulegur og afundinn, létti
honum við að sjá, hver kominn
var. Hann hafði gert boð eftir
höfuðsmanninum, en ekki gert
ráð fyrir, að hann kæmi sam-
stundis að kalla, en án
höfuðsmannsins gat hann ekki
komið í framkvæmd þeirri áætl-
un, sem hann hafði verið að hug-
leiða.
„Setjizt".
Master settist, beit á vörina og
hleyptj brúnum. Blore rétti hon-
um Ijósmyndina, þagði, og Mast-
ers athugaði hana.
Þegar Blore herforingi tók til
máls, var röddin í senn hörkuleg
og glettin:
„Þaö lítur út fyrir, að yður hafi
mistekizt enn einu sinni."
Masters höfuðsmaður leit upp,
mætti augnaráði herforingjans,
eins og eilítið miður sín.
„Ég er hræddur um þaö, herra
minn.“
Blore gerðist allt í einu vin-
gjarnlegúr, en Masters höfuðs-
maður lét það ekki blekkja sig.
„ÞetÞ er allt í lagi, Masters."
Hann gerði stutta þögn, og svo
varð röddin hrjúfari. „I rauninni
kemur það sér mjög vel fyrir okk
ur.“
Hann reis úr sætj sínu og gekk
yfir að landabréfi, sem hékk á
veggnum.
„Montgomery hefur brotizt hér
i gegn“, sagði hann og benti á
stað á landabréfinu, vestur af
Alamein. „Hann sækir hratt fram
með ströndinni, og er jafnvel
kominn alia leið hingað. Á morg
un verð.ur hann kominn, út fyrir
Iandamæri Égyptálands, inn í
Líbíu — og um helgina — álla
leið tii Benghazi.“ Hann studdi
fingrinum á höfuðborg Cyrena-
iku.
Masters höfuösmaður varð
undrandi. Hann hafði ekki gert
ráð fyrir svo hraöri framsókn.
„Ég frétti að sóknin værj haf-
in, en ..."
„Þaö lítur sem sagt út fyrir að
hinar venjulegu hernaðaraðferðir
okkar reynist vel.“ Hann lækkaði
röddina og lagði í hana allan ■
þann háðshreim, sem honum var
unnt.
EFTIR ZENO
Og Masters höfuðsmaður svar-
aði eins og sá, sem veit að hann
hefur tapað orrustu, en ekki viss
um að hann hafi tapað styrjöld-
inni.
„Já, það lítur út fyrir það.“
Blore herforingi brosti og gekk
aftur á bak við borðið.
,,Þér skiljið þvi að sjálfsögðu,
að ég vil að þér kallið menn yð-
ar til baka.
Masters leit upp. Það færðist
áhyggjusvipur á andlit honum.
„Því miður get ég þaö ekki
herra minn. Ég get ekki náð sam
bandi við þá, encfa þótt þeir hafi
daglega samband við mig. Mót-
tökutæki þeirra viröist vera ó-
virkt.“
Blore herforingi gerðist skyndi
lega ákafur.
„Ég hef fengið skipun um að
taka allar oliubirgðastöðvar. Við
þ> um á þeim að halda. Hraði
sóknarinnar byggist fyrst og
fremst á því, að jafnan sé unnt
að komast yfir oIíubirgðir.“