Vísir - 24.03.1970, Síða 16
Þriðjudagur 24. marz 1970.
y
p» 1
í EuroPa § C& ■ 'W(Wjj s.-. Vss. > „ > .v v . ■’ , £ 'S- < V, jý- ■' . rssss/*-’ ' ■'■ i'- 's s '}'s,Ssssssý ÍSLAND 4 25^ < « t * 4 < (
Ný Evrópu-
Verður,
að dýrasafni?
Þessi vinsæli dansstaður i áratugi kann
Islenzka dýrasafnið, sem
opnaði í haust i gamla Iðn-
skólanum við Vonarstræti,
hefur verið vel sótt, um 15—
20 þúsund gestir hafa heim-
sótt safnið.
Safnið var aðeins um mánað-
artíma í Iðnskólanum, þá flutti
það í Miðbæjarskólann, þar sem
þar er til húsa núna. Þaðan verð
ur það síðan aö fara í vor. Um
þessa eilífu flutninga sagði
Kristján S. Jósefsson, eigandi
og forstöðumaður safnsins í við
tali við blaðið:
„Þetta er anzi erfitt, satt er
það. Einnig er mikil hætta á
aö sýningarmunir geti skemnv't"
segir Kristján. „Ég hef því sótt
um það hjá Breiðfirðingafélag-
að fá nýja „ibúa"
inu að fá Breiðfirðingabúð
leigða. Ég fengi hana þá til eins
árs í senn. í þessu sambandi
hef ég farið fram á að borgin
ábyrgist leigugreiðslur sé þann
ig ábyrgðaraðili, þar sem húsið
er mjög dýrt.“
1 íslenzka dýrasafninu er nú
að finna 75 sýningargripi, en
Kristján hefur í hyggju að bæta
við sela- og fuglategundum og
hreindýrum í vor og á komandi
sumri.
Sá sem sér um uppsetningu
dýranna er Jón M Guðmunds-
son og hefur hann lært í Svi-
þjóð og meðal annars unnið við
Málmeyjarsafnið.
fslenzka dýrasafnið verður op
ið um páskana sem hér segir:
í marz dagana: 25., 26., 28.,
30., og 31. Einnig 1. apríl. Alla
dagana klukkan 1—7.
—MV—
frímerki
9 Næsta útgáfa frímerkja verö-
ný Evrópufrímerki, sem
koma út 4. rnaf. Þetta verða
merki með verðgildum 9 kr. og
25 krónur, teiknuð af Louis de
Brocquy.
172 atvinnulfsusir
á Siglufirði
Á Siglufirði eru nú 172 atvinnu-
lausir sanikvæmt skránni, sem hald
in er um þau efni. Stærstur er hóp-
ur verkafólks, 75 verkamenn og 70
verkakonur, þá koma 10 iðnaöar-
menn, 12 bílstjórar, 4 verzlunar-
konur og einn verzlunarmaður.
— ÞRJ/JBP
Húsmæður kvarta
undan rauðmaga
fylltum vatni
— Þyngist þannig um allt að Z2
IRAUÐMAGI kom í fiskverzlanir
borgarinnar fvrir um það bil
viku, og hefur hann selzt mjög
vel, enda þykir nýr rauðmagi
herramannsmatur. En sá er galli
á gjöf Njarðar, að kaupendur
eiga það á hættu, að rauðmaginn
hafi verið fylltur með vatni til
að þyngja hann og hækka verð-
ið. Rauðmaginn kostar 35 krón-
ur kílóið og getur munað um
500 grö.mmum á hverjum rauð-
maga, sé hann fylltur með vatni.
Nokkur brögð hafa verið að því,
að húsmæður hafi fengið slík-
an vatnsfisk, en erfitt er að átta
sig á þessu 1 fyrstu, þar sem
vatniö lekur ekki úr fisknum.
Má þó merkja, að ef fiskurinn
er mjög úttútnaður, þá eru allar
Ifkur á að hann hafi verið vatns-
fylltur. —þs—
tmZ-
Þessi rauðmagi hefur lent undir krananum og þyngzt viö það
um nær 500 grömm. Eins og sjá má er fiskurinn mjög uppbiás-
inn, en vatnið rennur ekki úr honum, þótt hann sé handfjatlaður.
Tekið á móti hreindýrunum á Reykjavíkurflugve Ili í gærdag.
Tóku einn tarf með til
að punta upp á hjörðina
„Við tókum einn þriggja vetra
tarf, svona til að punta upp á
hjörðina, þannig að gestir geti
skoðað hornin, sem byrja að
vaxa í vor,“ sagði Þorsteinn
Sveinsson, kaupfélagsstjóri á Eg
ilsstöðum í viðtaii við blaðið í
morgun, en Þorsteinn var meðal
þeirra manna, sem fóru á hrein-
dýrasióðir í gær, til að ná fimm
hreindýrum til viðbótar í hrein-
dýrasafnið, sem Sædýrasafnið
er að koma sér upp.
Ferðin gekk að óskum og þessi
fimm hreindýr náðust auðveldlega.
Þorstenn sagðí ekki hafa verið
langt að fara á hreindýraslóðir en
dýrin halda sig nú í byggð — í
Hróarstungu.
„Við fórum á snjóbfl, í bezta
veðri, og vorum með þrjá snjósleða
í ferðinni. Við tókum bara kálfa
frá því f sumar er leið, það er
miklu þægilegra að ná þeim. Við
náðum þeim sitt hvorum megin við
Kirkjubæ, sem margir kannast
við.“
Þorsteinn sagði ennfremur að
reynt yrði aö koma hreindýrunum
til Reykjavíkur í dag.
Sædýrasafnið er nú búið að
fylla þá tölu hreindýra sem það
hafði leyfi fyrir, átta hreindýrum.
Er enginn vafj á því að tarfur
inn mun prýða hópinn. Eftir þvf
’sem Þorsteinn sagði er hann koll
óttur ennþá, en homin byrja að
vaxa í vor. Sem kunnugt er fella
fram úr keppinautum sínum og
tekið forustu að loknum fjórum
umferðum í íslandsmeistaramót-
inu í bridge, sem stendur yfir
þessa viku, en það hófst á laug-
ardag.
Efst er sveit Steinþórs Ásgeirs-
sonar með 59 stig, en aðeins ellefu
stig skilja á milli hennar og sveit-
ar Stefáns Guðjohnsens, sem er i
finimta sæti með 48 stig,
I öðru sæti með 56 stig er sveit
Hjalta Elíassonar, íslandsmeistar-
arnir 1969, en jafnar f 3.—4. sæti
með 50 st eru sveitir Benedikts
Jóhannssonar og sveit Hannesar
Jónssonar frá Akianesi.
tarfarnir homin árlega, en hrein-
dýrshorn hafa þótt hin mesta prýði
þegar þau em stór og falleg. — SB
Enn eru fimm umferðir eftir af
mótinu og búizt við harðri og tví-
sýnni keppni, þar sem svo mjótt er
á mununum hjá efstu sveitunum.
Mest kemur á óvart frábær frammi-
staöa félaganna í sveit Steinþórs
Ásgeirssonar, sem mæta lítið undir-
búnir til leiks í þessu móti. Eins
og fyrirliðinn, Steinþór Ásgeirsson,
sagði: „Ég hef ekki snert á spilum
síðan einhvern tíma í fyrrasumar
— og reyndar fæstir okkar.“
I fyrsta flokki hafa þrjár sveitir
tekið ákveðna forystu. Efst er sveit
Árna Guðmundssonar með 65 st.,
önnur sveit Sigurðar Steindórsson-
ar með 62 stig og þriðja sveit Auð-
uns Guðmundssonar með 51 st.
Hafa forystu í
Islandsmótinu
í bridge
— „en hafa ekki snert spil siðan i fyrra,"
segir fyrirliðinn
FIMM SVEITIR hafa nú sigið
»