Vísir - 18.07.1970, Page 13
V í S IR . Laugardagur 18. júlí 1970.
13
TfZKUVIKA I NEW YORK:
Klaufar á síðu pils-
unum létta ganginn
rT'ízkuvikur eru alltaf haldnar
annað veifið úti í hinum
stóru löndum. Nú er kominn sá
tími, að framleiðendur byrja á
að kynna vetrartízkuna. Einni
slíkri tízkuviku er nýlokið í
New York og þykir sumt af
því sem þar kom fram muni
gefa vísbendingu um það, sem
tízkuhúsin í París munu sýna
á tízkuvikunni þar, sem hefst
á mánudag.
Eitt af útibúum fyrirtækisins
Christian Dior er i New York
og það voru fötin frá því fyrir-
tæki sem ekki sízt vöktu at-
hygli. Auðvitað var midi og
maxitízkan ráðandi, en helzta
nýjungin voru mismunandi háar
Diortízkan eins og hún var
sýnd í New York. Kvöld-
klæðnaður, sítt pils, stuttur
jakki, klauf á pilsinu og takið
eftir skónum.
klaufar, sem settu mikinn svip
á fötin. Það má kannski kalla
þetta þægilega nýjung á óþægi-
legum fatnaði, sem andstæðing-
um maxitízkunnar finnst hún
vera.
Síddin hjá Dior var fyrir dag-
kjóla frá 5—10 sm. neðan hnés,
en á kvöldklæðnaði frá ökla og
niður úr. Klaufar á næstum öll-
um fötunum. Aðrar nýjungar,
sem mest bar á voru þær, að
Dior aðhyllist kjóla háa í háls-
inn og með víðum ermum til
þess að bera aö degi til en hins
vegar flegnar kjóla, svo að sést
vel niður á bak, að kvöldlagi.
Nýja síddin eins og hún var
kynnt í New York bar heitið
„Longuette“, sem táknar bæði
midi og maxisídd. Bandarískir
tízkufrömuöir spá því að nýja
síddin muni breiðast út á næstu
þrem til fjórum mánuðum og
marki tímamót í tízku þessa
áratugar.
Hjá ýmsum tízkufrömuðum
í New York voru helztu línurn-
ar í nýju tízkunni þær að
stuttu jakkarnir við síð pils eru
komnir ■ aftur. Alls staðar eru
belti mikið notuð og y-firleitt
vottar fyrir mittinu á flestum
flíkum. Kvöldklæðnaður einn,
sem var sýndur gæti orðið vin-
sæll hér ekki síður en erlendis,
an það er sítt pils meö hettu-
peysu við.
Þeir litir, sem voru mest á-
berandi voru gráir litatónar og
svart.
Ein nýjungin enn eru hálf-
sokkar eða sportsokkar sem
notaðir eru við síðbuxur og nýju
tízkuna í nýju síddinni með
klauf eða klaufum.
Því er spáð, að þessi kvöld-
klæðnaður verði vinsæll, en
hann samanstendur af síðu
pilsi og hettupeysu og getur
varla orðið einfaldari.
VISIR i VIKULOKIN
VÍSIR í VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
vís:r í vikulokin
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrra áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)
VÍS!R í VIKULOKIN
frá byrjun er orðinn rúmlega 1300 króna
virði, 300 síðna litprentuð bók
í fallegri möppu.