Vísir - 18.07.1970, Page 16
VISIR
Laugardagur 18. júlí 1970.
Ennþá
enginn
skriður
kominn á
síáttinn
— sólardagarnir um
daginn nýttust illa
„Ennþá er varla hægt að segja
að sláttur sé hafinn af krafti,
og þess vegna varð lítið gagn
i sólardögunum um daginn, j
nema þar sei í búið var að slá
eitthvað að ráði. Vaxtarskilyrði
. verið svo óvanalega slrr
cg sumar og grasspret* '
er langt fyrir neðan meðallag“,
sagði Gísli Kristjánsson hjá Bún
aðarfélaginu í viðtali við blað-
iö í gær.
Ennfremur sagði Gísli. að ástand-
ið væri langbezt í Skaftafellssýslu
og norðurundir Hérað, en þar er
sláttur víða langt kominn. Sums
staðar nyrðra og á Vestfjörðum er :
sláttur alls ekki hafinn, og er það j
einkum vegna mikils kals og mjög |
lélegrar sprettu.
„Það getur enn rætzt úr þessu
hér fyrír sunnan, en þá verðum við
lika að fara að fá góðan hlýinda-
kafla,“ sagði Gísii að lokum. - f»S.
„Nú þurfum við uð furu uð keuuu
ungum mönujim uð hfuðu turfbæi"
— segir þjóðminjavörður — miklar endurbætur
gerðar i sumar á torfbæjum safnsins, sem eru
illa farnir eftir vætutiðina
„Okkar helzta starf í
sumar verður að vinna á
endurbótum á gömlum
torfbæjum, sem eru
orðnir illa farnir eftir
vætutíðina í vor og
fyrrasumar. I>að verður
óvanalega mikið unnið
að viðhaldi á torfbæjum
safnsins í sumar, og má
segja að nær allt okkar
fé fari í það“, sagði Þór
Magnússon, þjóðminja-
vörður í viðtali við blað
ið í gær, en ekki er gert
ráð fyrir að lagt verði út
í neina uppgrefti á þessu
sumri.
„Margir gömlu torfbæjanna
eru mjög illa farnir, en torfið
springur í frostunum, ef það er
mjög blautt þegar byrjar að
frjósa. Suma bæina þarf að
hlaða algerlega upp á nýtt.“
„Hverjir sjá um að hlaða
þessa gömlu bæi fyrir safn-
ið?“
„Það hefur nú gengið heldur
illa að fá menn í þaö. Við þurf-
um áreiðanlega að fara að
kenna þetta ungum mönnum,
því það eru ekki nema mjög full
orðnir menn sem kunna það f
dag.“
„Hvaða bæir verða langfærðir
í sumar?“
„Þetta verður unniö í áföng
um og hæpið að hægt veröi að
ljúka nokkrum þeirra í sumar.
Einna mest verður unnið á Keid
um á Rangárvöllum, en þar var
byrjað í fyrra og í Skaftafelli
þar sem selið veröur gert upp,
enda mjög gott dæmi um ís-
lenzka fjósabaðstofu. Þá verður
gert við bæina Þverá í Laxárdal
Laufás £ Eyjafirði og gamla bæ-
inn á Hólum, auk þess sem Hóla
kirkja verður máluð“, sagði Þór
að lokum. —ÞS
Vilja ekki þjóðfélagsfræði-
kennslu í viðskiptadeild
— viðskiptafræðinemar mótmæla
■ Þjóðfélagsfræðikennsla inn-
an viðskiptadeildar háskólans
hefur vakið úlfaþyt, en í gær
barst blaðinu yfirlýsing frá Fé-
iagi viðskiptafræðinema þar
sem segir, að almennur fundur
haldinn í félaginu nýlega hafi
ályktað að sú ákvörðun háskóla
ráðs að stúdentar í þjóðfélags-
fræðom skuli innritast í við-
skiptafræðideild sé algjörlega
óviðunandi.
Þá segir ennfremur í yfirlýsing-
unni að fundurinn álykti, að það sé
i mestu samræmi við núgildandi
íyrirkomulag á stjómskipan há-
SKólans, að stofnuð verði ný deild,
þjóðfélagsfræðideild, svo sem þeg-
ar hafa komið fram tillögur um.
Viðskiptafræðinemar segja, að
það hafi verið álit fundarins, að
þrátt fyrir langan undirbúningsfrest
og mikið starf nefnda, einkennist
öll framkvæmd þessa máls af fumi
og fáræði og sé æðstu háskólayfir-
völdum og háskólanum í heild til
lítils sóma. Sú staðreynd, að mál
sem þetta skuli komast í slíka
sjálfheldu, bendi greinlega til
þess, að stjórnarskipan háskólans
sé mjög ábótavant.
Vísir snéri sér til menntamála-
ráðherra Gylfa Þ. Gíslasonar og
hafði hann eftirfarandi að segja í
sambandi við yfirlýsingu Félags
viðskiptafræöinema:
„Ég hef talið mjög nauðsynlegt,
að ein af þeim nýju námsleiðum,
sem komið yrði á fót við Háskól-
ann sé nám í þjóðfélagsfræðum og
hófst það nám í raun og veru í
fyrravetur en tilætlunin er að
320 sótlu um
Breiðholtsíbúðir
Hl Úthlutiwamefnd Breiðholts-
íbúðanna í Þórufelli er langt kom
in með að fara í gegnum 320
umsóknir um Breíðholtsftoúð-
ir. Alls verður nú úthlutað 100 i-
búðum, 40 tveggja herbergja íbúð
um og 60 þriggja herbergja íbúð
um. Ibúðrrnar eru ætlaðar lág-
launafólki i verkalýðsfélögunum,
sem em innan Alþýöusambands ís-
lands.
Þegar úthlutunarnefnd hefur lok
ið störfum verða tillögur hennar
lagðar fyrir Húsnæðismálastjórn,
sem má vænta að verði innan tíð-
ar. —SB
koma endanlegri skipan á það nám
nú I haust. Hefur málið verið
rætt ítarlega innan Háskólans í
vetur, en því miður hefur þar orö
ið mikill ágreiningur um hvar og
hvemig námið skyldi skipulagt.
Hafa ýmsar hugmyndir komiö fram
en ekki náðst full samstaða inn-
an Háskólans um neina þeirra.
Þar eð deildir þær, sem rætt hef-
ur verið um að önnuðust kennsl-
una í þjóðfélagsfræðum hafa tal-
ið tormerki á því, bauö ég með
samþykki ríkisstjómarinnar að
leggja til við forseta íslands að
út yrði gefin bráöabirgðalög um
stofnun sérstakrar þjóðfélagsfræði
deildar. Háskólaráö óskaöi hins
vegar eindregið eftir því, að það
yrði ekki gert heldur að væntan-
legir nemendur í þjóðfélagsfræð-
um yrðu innritaðir í viðskiptadeild
og vildi ég ekki ganga gegn þeim
óskum. I því skyni að reyna aö fá
samkomulag um þetta mál hefur
ráðuneytið óskað eftir því að við
viðskiptadeild, lagadeild, guðfræði-
deild, heimspekideild og stúdenta-
ráð að þessir aðilar tilnefni fuil-
trúa í nefnd til þess að semja
drög að reglugerðarákvæðum um
nám í þjóðfélagsfræöum, og skip-
ar ráðuneytið Jón Sigurðsson hag-
fræöing sem formann nefndarinn-
ar. Er henni ætlað að ljúka störf-
um fyrir 20. ágúst, og er þaö ein-
læg von mín, aö henni takist að
samræma þau ólíku sjónarmið, ;.em
uppi eru innan Háskólans um
þetta mál. En eitt er víst, að námi
í þjóðfélagsfræðum verður komið
í fast form núna í haust."
— SB
Unnið var að því í gær að treysta festamar í Laxfossi. Á
myndinni sjást björgunarskipið Goðinn og flotprammi Reykja
víkurhafnar.
Reynt að ná Lax-
fossi upp í dag
Tilraun átti að gera í morgun
' til þess að ná Laxfossi gamla
upp af hafsbotni úti á Klepps-
vikina þar sem hann hefur legið
í átján ár eða frá því 1952.
Hinn öflugi kranafleki Reykja-
víkurhafnar hefur verið notaður
við björgunarstörfin og í gær-
kvöldi lónaði dráttarbáturinn
. Magni inn á sundin til þess að
) hjáipa til við Iokaátakið. Unnið
!var að því í gær, þegar þessi
mynd var tekin, að koma vírum
á skipið.
Laxfoss strandaði sem kunn-
ugt er úti á Kjalarnestöngum í
iliviðri í janúar 1952. Nokkrir
bjartsýnismenn keyptu flakið
þar sem það lá þar á hafsbotni
framan við tangana, komu þvi á
flot með gríðarstórum flotbelgj-
um, en aldrei komst það þó til
hafnar, heldur sökk bama úti á
Kleppsvíkinni, þar sem það er
nú orðið til trafala I innsigling-
unni í Sundahöfn. — JH.
Ófært á ísafjörð
í gærmorgun
— Breiðadalsheiðin lokaðist vegna snjóa
• Það var heldur kuldalegt um að
litast þegar ísfirðingar litu út
um gluggana hjá sér £ gærmorgun.
Fjöllin voru hvít niðurundir miðjar
hlíðar og svo mikið hafði snióað í
fjöli, að Breiðadalsheiðin, sem er
á millj Öund,’rfjaröar og Skutuls-
fjarðar lokaðist.
Einnig var mikill snjór á Botns-
heiði, en hún er á leiðinni niður til
Súgandafjarðar en hún lokaðist þó
aldrei. Fór síðasti bíll um Breiða-
dalsheiðina um miðnætti í fyrri-
nótt og tafðist hann nokkuð vegna
snjóa. Ekki var vitað til að bílar
hefðu farið yfir heiöina um nótt-
ina, enda snjóaöi mikiö og heiðin
lokaðist algjörlega. í gærmorgun
var svo hafizt handa um að moka
heiðina og komust áætlunarbílar
yfir hana fyrir hidegið, en höfðu
þá tafist nokkuð vegna ófærðar-
innar. Var gert ráð fyrir að þeir
kæmu til Reykjavíkur um mið-
nættið í gærkvöldi, en það er um
tveimur tímum á eftir áætlun. - ÞS.