Vísir - 10.09.1970, Blaðsíða 3
VlSIR . Fimmtudagur I<0. september 1970.
m
í MORGUN ÚTL.ÖNDÍ morgun útlönd í morgun útlönd í morgun utlönd
Umsjón: Haukur Helgason.
Frestur lengdur um 3 sólurhringu
— hörmuleg nótt g'islanna, sem ekki vissu, hvað
verba mundi / morgun — óryggisráðið krefst
frelsis fyrir gisla og flugvélaræningja
SKÆRULIÐAR féllust í
morgun á að lengja frest
sinn um þrjá sólarhringa.
Tókst fulltrúum Rauða
krossins að semja við þá.
Skæruliðar munu taka af
lífi gísla sína, ef ekki verð-
ur gengið að kröf um þeirra
innan þess tíma.
Rauöa kross-menn töfðust í morg
un, er þeir ætluðu að ræöa við
skæruiliða, þar sem mikJir bardagar
geisuðu í Amman, höfuðborg Jórd-
aníu, og komust þeir ekki úr borg-
inni um skeið.
Rauði krossinn er að flytja mat-
væti og lyf tiil farþega. Leiðtogi
skæruliða sagöi í morgun, að leng-
ing frestsins væri veitt tbl þess að
„aðilar gætu samið af ábyrgð“. FuiM
trúar Rauða krossins og skæruliöa
munu ræðast við í dag, en Ailþjóða
rauði krossinn 'hefur milligöngu í
málinu.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samiþykkti í gærkvöldi að skora á
ala aðiilla að sjá til þess, að gíslun
um veröi sleppt tafarlaust. Einnig
er lagt ti'l, aö öllum þeim verði
FER JAFN VEL FYRIR HINUM? — Myndin sýnir Leonard Shap-
iro frá New York fagna konu sinni og tveimur börnum, sem höfðu
verið farþegar í E1 A1 flugvélinni, sem var ein þeirra, er skæru-
liðar hugðust taka herskildi. Minnstu munaði því, að frú Shapiro
og böm hennar lentu í eyðimörkinni f Jórdaníu. — Enn em 50
Gyðingaböm í gjslingu hjá arabískum skæmliðum.
sleppt, sem sitja í fangelsi vegna
flugrána. Er litið á hið síðarnefnda
sem áskorun tli ísraelsmanna, aö
þeir sleppi að minnsta kosti tveim-
ur Alsirbúum, sem eru í haldi í
Tel Aviv fyrir slifkar sakir.
Ályktun ráðsins var einróma sam
þykkt. Bandaríkin og Bretland
sömdu tillöguna 1 fyrstu, en henni
var síðan breytt nokkuð vegna á-
skoiana frá Sovétnlkjunum, Sýr-
landi og Alsír, eftir talsvert þóf.
Sæknuliöisamtökin hafa nú 301
gísl eftir þrjú flugvélarán. Bretar
höfðu enn í morgun ekki fallizt á
kröfur skseruliðanna að sleppt yrði
úr haldi stúikunni, sem tók þátt í
hinu misheppnaða ráni á flugvél
ísraelska flugfélagsins E1 A1 um
helgina.
Frestur skæmliðanna áttá að
renna út kl. 2 í nótt, en frestun
fékkst.
Svisslendingurinn Andre Roohat,
sem er fyrir nefnd Rauða krossins,
er í stöðugu sambandi við skæm-
liðana.
Nefndin hefur tekið á leigu DC-
6 flugvél, sem mun fara frá Zurich
til Amman meö tvo lækna og hóp
hjúkrunarkvenna. Ástandið fer hrfð
versnandi, einkum meðal kvenn-
anna. Meirí hluti fólksins hefur
verið þama síðan á sunnudag.
Skæruliðar bættu einni flugvél við
feng sinn í gær, er þeir rændu
brezkri flugvél á leið til Beirút og
'létu hana lenda við hlið hinna
tveggja í eyöimörkinni. — Rauöi
krossinn vonast nú tll að geta hafið
stöðuga læknaþjónustu við fólkið.
Gíslunum í flugvélunum hefur
að því er virðist ekki verið sagt
frá því, aö skæmliðamir hafi falíl-
izt á lengingu frestsins. Nóttin var
þvf érfiö farþegunum, sem vom f
algerri óvissu um örlög sfn. Eng-
inn gat nálgazt flugvélamar, þar
sem skæmliðarnir segjast munu
sprengja þær í loft upp, ef einhver
komi í námunda við þær.
Gfslamir 188 um borð í DC-8
flugvél Svissair og Bœing 702 flug-
vél bandaríska félagsins TWA lifðu
nú sína fjórðu nótt í ræningjahönd-
um. Þeir 113, sem vom í VC-10
farþegavél brezka félagsins BOAC
bættust í hópinn f gær og höfðu
því aðeins verið í höndum skæru-
liða f tæpan sólarhring.
Svo sem kunnugt er, hafa skæru-
Flugmenn vilja flugbann
til ríkja, er hýsa ræningja
Alþjóðasamtök flugmanna
lýstu í gær vilja sínum um,
að sett yrði algert bann á
flugi til ríkja, sem geymdu
flugvélaræningja án þess
að draga þá fyrir dóm.
Slíkt bann mundi ná til
allra ríkja, sem skyti skjóls
húsi yfir flugvélaræningja,
en það yrðu nú helzt Ar-
abaríkin.
Formælandi flugmanna sagði, að
þetta væri hið eina, sem gæti kom-
ið í veg fyrir óhugnanleg flugvéla-
rán f framtíðinni. Með samtökum
sínum ættu flugmenn að geta fylgt
þessu fram og neita að fljúga flug-
vélum til slíkra landa. Slíkt bann
mtmdi draga máttinn úr ræningj-
unum, og rikin mundu verða að
meta fjárhagslegt tjón ef þau hýstu
ránsmenn.
Formælandi flugfélagsins Pan
Am sagði hins vegar, að hann
teldi, aö verðir ættu að vera í öll-
um flugvélum í millilandaflugi.
Yrðu það að vera sérþjálfaðir menn
sem sýndu stillingu en þó öryggi
og festu. Benti hann á, að það
mundi minnka áhuga hugsanlegra
ræningj?.. ef þeir vissu af vörðum
í flugvélunum. Hann taldi að banni
yrði ekki unnt að fyigja fram.
Flugmenn sögðust hins vegar
vera andvígir vörðum í vélunum,
sem mundu trufla farþega og flug-
stjóra með nærveru sinni. „Við get-
um bara ekki flogið við slfkar að-
stæður,“ sagi einn flugmanna.
liðar krafizit þess að leystir verði
úr haldi sjö arabískir flugvélaræn-
ingjar : Sviss, Bretlandi og Vestur-
Þýzkailandi. Ríkisstjómir Sviss og
Vestur-Þýzkalands hafa í aöalatrið-
um gengið að kröfum skæm-
liða. — Sagt er, að arabísku
skæruliöarnir, sem em í haldi 1
Svlss, hafi veriö fluttir til flug-
vallar og þar bíði þota reiðubúin
aö flytja þá með skyndingu til
Jórdaníu Orörómur kom upp í
London i gærkvöldi, að verið væri
að flytjs arabísku flugránsstúlkuna
til flugvallar meö leynd.
Jafnvel þótt samningar kunni að
takast á hverri stundu um afhend-
ingu arabískra og evrópskra ríkis-
borgara í hópi gíslanna, munu
skæruliðamir samt, halda áfram
borgurum frá ísrael og þeim, sem
hafa bæði amerískan og ísraelskan
borgararétt. Israel hefur ekki einu
orði gefið I skyn, að Israelsmenn
taki f mál að ganga að neinum
samningum við skæruliöa. Skæm-
Mðar hafa krafizt þess, að aliir
arabfskir hermdarverkamenn f fang
elsum í ísrael verði leystir úr
haldi. Hins vegar er talið, aö þeir
mundu sætta sig við eitthvað, en
stjóm ísraels hefur ekki viljað við
þá tala.
Einn læknir og ein hjúkmnar-
kona frá Rauða krossinum fengu í
nótt að annast nokkra farþega. —
Bráðabirgða ljósútbúnaði var kom-
ið fyrir í flugvélunum, sem áöur
höfðu veriö í algem mvrkri um
nætur Loftið er mjög skaðlegt
heilsu fójksins, og hreinlætisað-
staða hin versta. Þó fékkst áð
setja nokkum kælibúnað í nótt.
Þá urðu farþegarnir fyrir ó-
væntri gestrisni skæruliðanna. Þeir
færðu gíslum sínum fjóra kassa af
whisky, sem þeir fluttu um borö.
Börnunum vom gefnir gosdrykkir,
en um 50 Gyðingaböm eru meðal
gíslanna.
Leila Xhaled, „atvinnuflugvéla-
ræningi" arabískra skæruliða, er
nú í haldi í Bretlandi, en ein
aðalkrafa skæruliða er, að henni
veröi sleppt.
Móðir Shiran Shirans
biður gíslunum griða
• Móðir Shirans Shirans, morö-
ingja Roberts Kenndy, tókst ekki
að komast til Jórdaníu í gær. —
Bandarísk yfirvö.ld stöðvuöu hana
á síðustu stundu. Frúin kvaðst ekki
hafa ætlað að ýta undir skærulið-
ana sða biðja þá að krefjast frelsis
til handa syni sínum. Þvert á móti
bæði hún þá að þeir slepptu strax
öllum ninum saklausu farþegum,
sem væru á valdi þeirra.
0NSK0LI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR
tilkynnir:
Innritun daglega frá kl. 5—7 síðdegis að Óð-
insgötu II. Uppl. í síma 19246 á sama tíma.
Kennsla fer fram miðsvæðis í borginni og
einnig í Árbæjarhverfi, Breiðholtshverfi og
við Ægissíðu.
Þessar kennslugreinar verða kenndar í einka-
tímum:
píanó klarínett
harmoníum saxófónn
fiðla obo
celló fagott
gítar horn
alt-blokkflauta trompett
þverflauta básúna
og hljómfræði
í hóptímum:
Nótnalestur, blokkflautuleikur og auka náms-
greinar.
Kennsla hefst miðvikudaginn 16. september.
Skólastjóri.