Vísir - 23.04.1971, Side 2
Hr. Burl IveS.
Burl
Ives
kvænt-
ur
Burl Ives, sá þekkti þjóðlaga-
söngvari og Ieikarí kvæntist í
annað sinn í lífinu um daginn.
Sú hamingjusama heitir Doroflhy
Koster. Ives er 66 ára og Koster
er 44 ára. Hún hefur starfað sem
innanhússarkitekt fram undir
það aö han hélt til London frá
New York, en í London voru þau
gefin saman: „Ég hef ekKi bragð-
aö dropa af kampavíni ennþá“,
sagði Burl Ives rétt eftir gift-
inguna, „en mér finnst ég vera
orðinn ölvaður strax“. Meðan á
vígslunni stóð söng drengjakór
f kirkjunni „It will not be long,
my love, until your wedding-
day“. þekktan söng Burl Ives.
mmmaammmmmmmmmmgammmmBmmaammammaaaai í.miw —w
BANK ARÆNIN GINN GIFTIST
HÁSKÓLAKENNARANUM
Lis Lotte Bergin rændi banka
í Danmönku 1969. Hún fór víst
fádæma klaufalega að og lögregl-
an hafði uppi á henni strax. Hún
rændi næstum 400.000,00 ísl. kr.
og eyddi engu.
Hún var dærnd í fjögurra ára
fangelsisvist. Á laugardaginn
giftist hún vini sínum gömlum
Alan Andersen, rithöfundi og há-
skólakennara. Fór biúðkaupið
fram í kirkju að viöstöddum ör-
fáum ættingjum þeirra beggja og
5 nemendum Andersens.
Þau þek'ktust nokkuð áður en
Lis lenti í fangelsinu, og sterk
bönd uröu milli þeirra, er Alan
tók upp á jwí að skrifast á viö
hana 1 fangelsinu og heimsækja
hana vikulega. Staldraði hann þá
jafnan við í 15 mínútur, svo lengi
sem leyfi'legt var.
Enn á Lis eftir að afplána mik-
iö af dómi sfnum, eitt og hálft
tii tvö ár eru þar til hún getur
farið að búa heima hjá eigin-
manni sínum og þriggja ára
dótflur sinni.
Henni er haldið fanginni f
Horseröd-fangaibúðunum og hef-
ur veika von, segir hún, að verða
sleppt til reynslu um hríð. „En
ég mun halda út að afplána dóm-
inn“, segir Lis, „það er auðvelt,
þegar maður veit að einhver bíð-
ur með óþreyju eftir manni. Við
munum eiga bjarta íramtíð —
ekki hvaö sízt hún Jane, litla
stúl'kan mín“.
Nýgiftu hjóna'kornin fengu að-
eins að vera saman stutta stund
á meöan prestur hespaði af vígsl
unni, ekki fékk brúðguminn að
sækja hana að fangelsisdyrunum,
hún varö að fara ein síns liös til
kirkjunnar. Fangelsisyfirvöld
hafa lofaö Lis aö hún fái bráð-
lega að fara heim til manns síns
í helgarfrí, en föngrnn er fremur
sleppt til reynslu, ef heimili
þeirra eru góð og trygg.
<* * . *
Bankaræninginn og háskólakennarinn. Lis Bergin giftist háskólakennaranum Andersen. Hún sit-
ur í fangelsi meðan hann byggir uþp heimiliö.
L0KSINS AL-
MENNILEGAR
LINSUR!
Sagt er, að 1 Bandarikjunum
séu 8 milljónir manna sem ganga
með linsur f auganu í gleraugna-
stað svokallaðar „contact-linsur“.
Hingað til hafa aðeins veriö fram
leiddar svokallaðar „harðar lins-
ur“, en þær eru úr gleri, hring-
lagaðar, eins og sú til vinstri á
myndinni. Margir kvarta stöðugt
undan því, að þessum linsum
sé vont að venjast, þær særi
augnalokin að innan og einnig séu
þær oft syndandi í tárum og
sé því jafnan hætta á að þær
detti úr augunum, renni niöur.
Nú eru hins vegar að koma á
markað linsur af nýrri gerð. Þær
eru mjúfcar, enda úr plasti og af-
langar að lögun (sjá mynd). Þegar
þessar plastlinsur eru settar á
rakt augað, mýkjast þær upp
og núast ekki við augað eða
áugnalokið. Þessar nýju linsur
hafa ekki heldur tilhneigingu til
að detta úr auganu og þær þurfa
ekki að vera sérstaklega lagaðar
eftir auganu og af þeim sökum
er engin þörf fyrir þann er með
slíka linsu gengur að fara stöð-
ugt til læknis aö láta gera við
linsuna, slípa hana eftir auganu
Það er „U. S. Food and Drug
Administration, Bausoh & Lomb
Inc.“ sem kynnt hafa þessar lins-
ur og mælt með þeim.
„Ég lifi bara af
forngripunum“
— danskur grasalæknir stöðvaður af yfirvöldum
Amo Wolle heitir 68 ára gam-
all maður sem heima á í Kattinge,
Danmörku. Wolle er gjaman
kallaður „vitri maðurinn í Katt-
inge“, hann hefur gegnum árin
unnið fyrir sér sem fúskari á
sviði læknisfræðinnar. Reyndar
er þaö ekki sérlega vel liðið af
öllum og nú er svo komið að
Wolle á yfir höfði sér heimsókn
frá lögreglunni og verður þá
væntanlega tekiö fyrir hans ó-
leyfilega fúsk.
5000 fágætir munir
En þótt svo fari aö hann
geti þá e'kki lengur stundað at-
vinnu slna, er Arno Wolle hvergi
smeykur um að hann muni deyja
úr sulti. „Ef þeir banna mér að
fást við vinnu mína, þá lifi ég
bara af safni mínu“. Wolle á
nefnilega eitt stórfenglegasta
fornmunasafn, sem til er í eigu
eins manns.
I fjársjóðsherbergi hans, sem
það er oftast nefnt, eru yfir 5000
fágætir munir, sem virtir eru á
meira en 60 milljónir ísl. króna.
þar fyrir utan á hann myntsafn
upp á 200.000 myntir og er það
einnig virt á margar milljónir.
Það var 1915 sem Arno Wolle
sneri sér að grasalækningum. Nú
orðið skipta þeir víst hundruðum
þúsunda sem leitaö hafa til hans
að fá lyf við ýmsum sjúkdóm-
um eða einhverja blöndu til að
lina þjáningar.
Brynja á I miUjón.
Hann segist lengi hafa vitað
að starfsemi hans væri bönnuð
með lögum, en opnaði samt mót-
tökuherbergi sitt daglega án til-
lits til þess að vel gæti svo far-
ið að lækningastofunni yrði lokað
fyrir hádegið. Hann segist hafa
safnað sjaldgæfum munum og
mynt til þess að eiga eitthvað
til að lifa af .. .
„Og nú, þegar endanlega á að
láta til skarar skríða gegn Wolle,
ætlar hann sér að opna verzlun
og verzla með fornmuni.
„Hvaðan ég fékfc þetta dót?
Það hafa hinir og þessir gefið
mér þaö. Fólk sem ég hef eitt,-
hvað getað hjájpað með grasa-
blöndum. Það er þakklátt oj
launar vel fyrir sig — sumt hef
ég svo keypt".
1 fjársjóðsherbergi Wolle er
eldgömu! brynja, sem ríkur kaup-
maður í Kaupmannahöfn gaf
h'onum. Hún var upphaflega gerð
handa Lúðvíg 1. af Bæjaralandi,
„og hana sel ég ekki fyrir minna
en 1 milljón" segir Wolle.