Vísir - 23.04.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 23.04.1971, Blaðsíða 5
VI SIR. Föstudagur 23. apríi 1951 Hauknrnir komu á óvurt í Keflavík Lið Hauka mætti til leiks fyrir Hafnfirðinga í Litlu bikarkeppninni í Keflavík á sumardaginn fyrsta og tókst að ná jafntefli við ÍBK. Ekkert mark var skor að í leiknum. Halldór Guðbjörnsson, hinn kunni hlaupari úr KR, sigraði í 57. Víða- vangshlaupi ÍR á sumar- daginn fyrsta eftir mjög harða keppni við ungan ÍR-ing, Ágúst Ásgeirs- son og þar var ekki fyrr en 20—30 m. frá loka- markinu, sem Halldóri tókst að sigra annað ár- ið í röð í hlaupinu. — í fyrra vann hann Sigfús Jónsson, ÍR, á marklín- unni, en báðir fengu sama tíma. Sigfús gat nú ekki keppt vegna meiðsla. Metþátttaka var nú t hlaup inu 61 og þar á meðal voru 3 stúlkur og nokkrir trimmarar og tveir norskir stúdentar viö Há- skóla íslands, sem kepptu sem gestir. Það voru fimm menn í hóp, sem komu saman út úr Hljómskálagarðinum og hörku- keppni var Fríkirkjuveginn að lokamarkinu við gamla barna- skólann. Ágúst var fyrstur meg inhluta — Halldór komst aðeins framúr honum um tíma — en Ágúst náði svo aftur forustu og það var ekki fyrrr en á loka- metrunum, sem Halldóri tókst að tryggja sér sigur. Norski stúdentinn Kari Olov Idland kom svo örfáum metrum á eft- ir hinum tveimur fyrstu í mark iö. Vegalengdin er um 3250 m og tími sigurvegarans var 10,52,2 min. Ágúst, hinn ungi ÍR-ingur, hljóp á 10:53,6 og Id- land á 10r55.6 mín. Fjórði varð Sigvaldi Júlíusson, hinn efni- legi hlaupari úr Eyjafirði á 10:56,2 mVn. Fimmti Jón H. Sig urðsson, HSK. á 10:57.6 mín. og sjötti hinn 16 ára hlaupari úr Kópavogi, Einar Óskarsson á 11:06,0 mín. Ungu stúlkurnar voru léttar í spori, þegar þær komu í markið og fyrst þeirra var Lilja Guðmundsdóttir — nokkru á undan trimmurunum Gunnlaugi Þörðarsynj og Leifi Sveinssyni. í 3ja manna sveitakeppni bar sveit Breiðabliks úr býtum sig- ur, hiaut 23 stig. I öðru sæti varð UMSE með 23 stig. Þriðja sveit H'SK með 25 stig og s-veit KR fjórða með 26 stig, svo að keppni var þar mjög jöfn. í 5 manna sveitakeppnj sigraði KR, hiaut 4'5 stig, önnur varð sveit UBK með 47 stig og þriðja sveit HSK með 54 stig. I 10 manna sveitakeppni sigr- aði UMK með 100 stig, en HSK var meö 110 stig. Óknyttastrákar fóru illa meö Halldór Guðbjörnsson, KR, keniur i mark sem sigurvegari, en margir fylgja fafit á eftir. Ljósm. BB. starfsmenn hlaupsins. Brautin var merkt veifum kl. 11.30 fyrir hádegi, en kl. 12 var búið að ..stela þeim öllurp.,-- svo að segja að baki starfsmánna. Nú, þeir fóru af staö aftur og merktu brautina, en þegar þeir komu úr mat kl. eitt voru flestar veifurnar horfnar. Og í þriðja sinn varð því að merkja braut- ina. Af 22 veifum og stöngum sem útbúnar voru daginn áður voru aðeins átta eftir, þegar hlaupinu lauk loks. Jafntefli á Akranesi Akranes og Breiðablik mætt ust á malarvellinum á Akranesi á sumardaginn fyrsta í Litlu bikar- keppninni og lauk leiknum með jafntefi 1—1. Talsverö gola var, þegar leikurinn var háöur, sem stóð beint á annað markið. Lið Breiöa- bliks lék undan vindinum f fyrri hálfleik og strax á 4 mín. tókst Þór Hreiöarssyni að skalla knöttinn í mark eftir fyrirgjöf Magnúsar Steinþórssonar. Liðið sótti mun meira ailan fyrri hálfleikinn, en tókst ekki að skora fleiri mörk og Skagamenn áttu ekkj einu sinni hættulegt upp hlaup þá. t s'iðari hálfleiknum snerist þetta við, nú voru það Skagamenn, sem sóttu og Eyleifur Hafsteinsson fékk þá nokkur góð tækifæri, sem hann misnotaði. Það var ekki fyrr en 10 mín. voru eftir að heimamenn jöfnuðu. Þá var tek in hornspyrna — Andrés náði knettinum og gaf strax til Har- a]ds Sturlaugssonar, sem skoraði viðstöðulaust með þrumuskoti. t lið Akraness vantaði Teit, Benedikt og .Matthias en hjá Breiðabliki vantaði Guðmund Þórðarson og Harald Ellertsson. Staðan í keppn inni er nú þannig: Akranes 2 1 1 0 6:1 3 Keflavik 2 1 1 0 3:2 3 Kópavogur 2 0 11 3:4 1 Hafnarfjöröur 2 0 11 <L5 1 Framlína Keflvíkinga var bitlaus : leiknum og áttí ekkert einasta hættulegt upphlaup í leiknum. Það var rétt undir lokin að liðinu skild ist. að ekki sé hægt að vinna leik nema skora mörk og slðasta stund aríjórðung sóttu Keflvíkingar tals vert, en áttn þó ekki eitt einasta ásot á mark — en hins vegar nokk ur framhjá. ^Seöur var hið bezta meðan leik urinn fór fram og malarvöllurinn var skínandi góöur. Lið KRH (Knat'tspymuráös Hafnarfjarðar, en FH og Haukar skiptast á um aö leíka í keppninni) kom talsvert á ó- vart og hefði hæglega getað sigr- aö. Miðherja liðsins, Lofti Eyjólfs syni, tókst í fyrri bálfleik að kom ast innfyrir Þorstein markvörð IBK en í sta-ð þess að senda knöttinn í autt markið. skeði eitt af þessum óskiljanlegu atvikum í knattspyrn unni — Lotfur stöðvaöi knöttinn og slíkt tækifæri lét Þorsteinn ekki ganga sér úr greipum. Vörn og markvörður ÍBK var sterk að venju og tveir ungir piltar Gísli Torfason og Ingimundur Hilmarsson, bakvörður, virðast á góðri leið meö að tryggja sér fastar stöður í liðinu. Lið Hauka kom á óvart og það er sýnilegt aö Sverrir Kjærnested er á réttri leið með lið — það var taktískara en lið ÍBK. Þetta eru mest ungir strákar, þótt Jóhann Larsen og Sigurður Jóa- kimsson séu enn helztu máttarstólp amir. Pálmi Sveinbjörnsson virð ist efnilegur svo og Loftur „hinn óheppni'“ — þaö býr margt í hon- um. Mjög góður dómari í leiknum var Kristbjörn Albertsson. —emm England vann Grikkland Á miövikudag léku England o-g Grikkland á Wembley-leikvangin- um í Lundúnum í Evrópukeppni landslíða. Aðeins 55 þúsund áhorf endursáu ieikinn og urðu þeir fyrir miklum vonbrigðum með enska liöið, þótj. það sigraði með 3—0, en tvö síðustu mörkin voru skoruð rétt fyrir lok leiksins. Gríska iiðið, sem lék án sex leik manna úr liði Ferenc Puskas, en það leikur síðari leik sinn í Evrópu keppnínni á miðvikudag, kom tals vert á óvart og vörn þess var sterk, lengi vel. Enska liðið hafði þó tögl og hagld ir í leiknum og strax á 22 mín. tókst Martin Ghivers að skora. En liðið fór illa með góð tækifæri og það var ekki fyrr en síðasta stund arfjórðunginn, sem það sýnd; veru- lega góðan leik. Alan Ball var þá kippt út af og Ralph Coates, Burn ley, kom í hans stað. Það voru góð skipti og Coates sýndi ágætan leik. Og þá loks fór vörn Grikkja að riðlast. Þegar 10 mín. voru eftir til leikslolsa skoraðj Geoff Hurst og nokkru síðar Francis Lée með skálla eftir góðan undirbúning ný- liðans í liðinu, Peter Storey, Arsen al, en hann var einn bezti maður liðsins. Bohby Moore lék að venju vel og f framlínunni var það eink um Lee, sem lét að sér kveða. Hörð keppni í Víðavangs- hlaupi ÍR og metþátttaka

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.