Vísir - 23.04.1971, Page 3
3
VI SIR . Föstudagur 23. apríl 1971
I MORGUN UTLONDI MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND I MORGUN UT^OND
So vézkt geimfar með þrem-
ur mönnum á hraut / nótt
Umsión. Haukur Helgason:
Æiláð að tengjast mannlausu geimfari — visir
oð rannsóknarst’óð?
Sovétmenn skutu í morgun, mönnum, fjórum dögum
á Ioft geimfari með þremur' eftir að þeir sendu upp
„De Gaulle fyrirgaf
| Bretum ekki, að þeir
björguðu Frakklandi'
— segir Macmillan fyrrum forsætisráðherra
l Bretlands — „Dulles stjórnaði Eisenhower i öllu
„De Gaulle hataði Arr.eríkana,
og hann þjáðist af hatri blönd-
uðu ást í afstöðu sinni tii
Breta“. Þetta segir Harold Mac-
mUlan fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands.
Macmil-lan vax forsætisráðherra
1957—63. Hann kom fram í sjón
varpi í tilefni af útkomu end-
urminninga hans.
Macmillan segir um de Gaulle:
„.Hann var mikill maður, og ég
dái hann. En hann lifði auövit-
aö i fortíðinni. Hann liföi í ver-
öld, þar sem hann trúði, að eitt
land í Evrópu gæti stjómað
heiminum. Hann var fórnardýr
síns eigin áróðurs".
Macmfflan segir, að de Gaulle
hafi hatað Amerikumenn. „Sann
leikurmn er sá,“ sagði Macmill-
an, „að heföi Hitler dansað í
London, þá hefðum viö ekki átt
í neinum vandræðum með de
Gaolle. Það, sem hann gat eldrei
fyrirgefið okkur, var að viö héki-
um velli og við björguðum
Frakklandi. Menn geta fyrirgef-
ið mistök, en það er erfitt að
fyrirgefa 'hjálp.“
Macmillan segir um Eisenhow
er, að hann hafi látið Dulles ut-
anrikisráðherra sinn hafa ölli
völd. Hann heföi ekki átt að
gefa kost á sér til forseta í ann-
að sinn. Macmillan gagnrýnir
Eisenhower og Dulles harðlega
Dulles stjórnaði Eisenhower,
þegar Eisenhower var forseti.
fyrir aö bafa, ásamt Sovétmönn-
um, krafizt þess, að Bretar og
Frakkar hættu tilraunum sínum
til að taka Súezskurðinn í Súez-
stríðinu 1956. „Ég vissi ekki, að
forsetinn hafði látið Dulles hafa
öll völdin,“ segir Macmillan.
„Eisenhower var veikur og hann
hefði ekki átt að bjóða sig fram
aftur.“
Macmillan segir, að Eisenhow
er hafi aidrei verið öruggur
stjórnandi, og DuMes hafi ekki
sinnt því neinu, hvað Eisenhow-
er hafi fundizt um málin.
mannlausa geimfarið Sal-
jut-1. Nýja geimfarið, Soj-
us-10, á að tengjast Saljut-
1 úti í geimnum. Þau eru
bæði á braut um jörðu.
Sovétmenn segja, að öll tæki í
Sojus-10 séu í fulMkomnu lagi, og
geimfararnir þrír séu í óða önn við
atbuganir.
Stjómandi fararinnar er Viadimir
Sjalatov offursti.
Fréttastofan TASS segir ekki,
hversu lengi geimferðin á að standa
og ekki hvort einhver þremenn-
inganna á að reyna að fara yfir í
hitt geimfarið áður og félagi hans
í förinni, Lelesejev, hefur einnig
fariö tvær. Þeir vom báðir í geim-
ferðinni í janúar 1969, þegar tengd
vom saman geimförin Sojus-4 og
Sojus-5. Þeir vom einnig í Sojusi-8.
Þriðji geimfarinn í Sojusi-10, Ruka-
visjnikov, mun ekki hafa farið út
í geiminn áður.
Sjalatov geimfari sagöi, áður en
ferðin hófst, að fvrir tfu árum hefði
landi sinn Jurij Gagarin farið í
fyrstu geimferð mannkynssö,gunnar
frá sömu geimstöö, Bajkonur. Síð-
an hafi margir sovézkir geimfarar
verið úti í geimnum. „í dag mun
Sojus-10 halda áfram að því nJSdl-
væga takmarki að rannsaka geim-
inn í 'þágu vísindanna og efnahags
okkar. Við munum framkvæma
margvíslegar rannsóknir vísindaleg
ar og tækniiegar,“ sagði hann.
Geimför Sojus-10 kom ekki á ó-
vart. Undanfarna daga hafa menn
búizt við geimskoti í Sovétríkjun-
um. Heimildir f Sovétríkjunum
hafa skýrt frá, að reynd verði teng-
ing geimfara, sem verði upphafið
aö nýjum þætti í rannsóknum
geimsins. 1 sovézkum blööum og
tfmaritum hefur mikið verið fjailaö
um möguleikana á að gera rann-
sóknarstöð úti í geimnum.
Sovézk blöð hafa ekki minnzt á
ferð Saljut-1 síöan á mánudags-
kvöld, er þvf var skotið á loft.
Yfirieitt er talið að einhverjir geim
faranna muni freista þess að fara
milii geimfaranna tveggja eftir að
þau hafi verið tengd saman.
Forystumaður rússneskra geim-
Rússar vilja minnast þess með
geimafreki, að þessa dagana eru
10 ár síðan Gagarin fór fyrstu
geimferð sögunnar.
fara Georgij Beregovoj er nú á
ferðalagi á Ítalíu. Hann segir, að
tilraunir, sem gerðar hafi verið með
Saljut-1 stefni að því að kanna það,
áöur en geimfari fari um borð í
það. Hann sagði, að þetita væri ný
tegund geimfara, sem væri stjórn-
að sjálfvirkt, og það geti fUutt
menn. Þetta sé fyrsta skrefið til
að gera geimför sjálfstýrð og það
hafi heppnazt.
Sovézkt blað haföi fyrir nokkrum
dögum eftir Beregovoj geimfara, að
rannsóknarstöövar á braut um
jörðu muni veröa algengar í lok
áratugsins.
UM HÁLF MILLJÓN
Stjórnarherinn sækir fram i A-Pakistan
Her Pakistanstjómar hefur
náð fimm bæjum í A-Pak-
istan seinustu daga. í fjór-
um þeirra höfðu uppreisn-
armenn komið sér vel fyrir
en urðu að hörfa fyrir
stjórnarhernum.
Ríkisútvarpið í Pakistan, segir
að stjórnarherinn hafi tryggt sér
bæinn Satkhira og „hreinsað bæinn
aff óvinum ríkisins". Þessi bær er
aðeins 10 kílómetra frá indversku
landamærunum.
Meðal annarra bœja, sem falliö
hafa í hendur stjórninni, er Sylhet
í norðausturhlutanum, Hill og Kuri
gram i norðvestri og Meherpur
skammt frá landamærum Indlands.
Sókn stjómarhersins hefur vald-
ið því, að flóttamenn flykkjast yfir
tvl Indllands. Tala flóttamanna er
sögð komin upp í 250 þúsund sam-
kvæmt opinberum heimildum, en
sumir segja, að flóttamenn, sem
flúið hafa tíl Indlands, séu orönir
hálf milljón.
Flóttafólk 71
29. april
Er sonur Duvaliers
hæfur til oð stjórna?
Duvalier einræðisherra á Haítí lézt í gær, 64 ára. Tvítugur sonur
hans hefur tekið við, en margir efast um hæfni hans til að stjóma
landlnu, þar sem hann hefur þótt nokkuð „kúnstugur“ í hegðun.
Myndin sýnir þá feðga fyrir skömmu, þegar faðirinn útnefndi
soninn eftirmann sinn.
ÁL-SUÐA
ÓSKUM AÐ RÁÐA Ntí ÞEGAR NOKKRA MFNN
VANA ÁLSUÐU EÐA SEM VILJA LÆRA ÁLSUÐU.
— UPPLÝSINGAR GEFUR YFIRVERKSTJÓRINN.
LANDSSMIÐJAN