Vísir - 23.04.1971, Qupperneq 6
6
Skattar á lslandi lægri
en í nágrannalöndunuro
segir Páll Líndal formabur Sambands isl. sveitarfélaga
Sfcattar á íslandi eru lægri en
í nágrannalöndunum, Danmörku,
Bretlandi, Noregi og Svfþjóð. Þar
njótum við þess, að við höfum
eldd útgjöld vegna hermála. Hins
vegar hlýtur rekstur þjóðfélagsins
að verða hlutfallslega dýrari að
ýmsu leyti vegna fámennis cikkar
og víðáttu landsins.
Þetta sagði Páll Líndal foimaðusr
Sambands íslenzkra sveitarfélaga,
er hann setti fund fulltrúaráðs
sambandsins í fyrradag. „Flestum
finnast liklega skattar of háir**,
sagði haun, .,og eitt góöskáldið
hefur varpað því fram, að hér fari
allt á hausinn nema skattstofum-
ar. Ef við miðum við þau lönd,
sem nsest okkur standa, kemur í
ljós, að skattrriningin er ekkj eins
voðaleg og margir vilja vera láta.
Það er að visu mjög erfitt að bera
saman skattbyrðar milli landa,
enda álitamál, hvernig skattbyrð-
ar skuli reiknaðar. Það er þó talið,
að það sé nokkuö heiöarlegur mæli
kvarði að miða við það, hve mikið
hið opinbera taki til sinna þarfa af
þjóöartekjunum í heild."
Slíkar samanburðartölur koma
nokkuð seint, en tii em tölur frá
1966 — 68. Þá námu skattar hins
opimbera hérlendis 29,8—32,8% af
þjóðarframleiðslu. Árið 1967 var
hlutfaliið í Danmörku 32,1%, í
Bretlandi 32,7%, í Noregi 37,8%
og £ Svíþjóð 40,9%. Af þessu, segir
Páll, að tvfmælalaust megi draga
þá ályktun, að skattar séu hér
minni en f þessum löndum, meira
að segja töluvert minni en í Noregi
3g Svfþjóð. — HH
FULLTHÚAFUNDUR
, | | m | LANDSSAMTAKA KLÚBBANNA
L K L ÖRUGGUR AKSTUR
verður hadlinn að HÓTEL SÖGU í datg og 23. apríl og hefst í HLIÐARSAL 2. hæðar
hótelsins meö sameiginlegum hádegisverði kl. 12.00, þar sem Ásgeir Magnússon fram-
kvæmdastjóri flytur ávarp.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa, samkvæmt félagslögum, veröa af neöangreindum mönnum
flutt erindi sem hér segin
\
| Sigurjón
FYRRI DAGUMN:
Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri:
„UMFERÐARRÁÐ OG STARFSEMI ÞESS“*
Hákon Guðmundsson yfirborgardómari:
„UMGENGNISSKYLDURNAR VIÐ LANDIГ.
Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi:
„MÁLEFNI KLtJBBANNA ER MÁLSTAÐUR
ÞJÓÐARINNAR**.
SEINNI DAGINN:
Geir G. Bachmann bifreiðaeftirlitsmaðun
„BIFREIÐAEFTIRLITIÐ ÚTI Á LANDS-
BYGGÐINNI**
Jón Birgir Jónsson deildarverkfræðingun
„UMFERÐARMERKI OG VEGAVIÐHALD**.
Gunnar M. Guðmundsson hæstaréttarlögmaður:
„RÍKIR ÖNGÞVEITI í UMFERÐARMÁLUM
Á ÍSLANDI?'*
Umræður og fyrirspuirnlr.
Gunnar
Hákon
Geir
Stjórn LKL ÖRUGGUR AKSTUR
V í SIR . Föstudagur 23. aprfl 1971.
■ Allt til taks,
strandar samt
Ká skrifar:
„Ég á dreng, sem er á skóla
skyldualdri. en hann er smá-
mæltur og þarf sérkennslu —
talkennslu. Mér er þó sagt að
það sé vandalítið að laga þetta
meðan hann sé svona ungur
Þess vegna þykir mér alveg
grátlegt að hann skulj ekki
njóta þessarar aðstoðar í skól-
anum, sem böm úr okkar hverfi
sækja. í aöra skóla er illmögu-
legf að senda, því að ærið nög
er víst ásett í þá af bömum úr
öðrum hverfum, og svo er að
auki langt að heiman frá okk
ur 5 næsta skóla.
í skólanum hans er mér sagt,
að þar sé að vísu húsrými til
að veita aðstöðu þessari sér-
kennslu, en þó ekki á þeim tíma,
sem sérkennarar em tij reiðu.
Að möguleiki sé til að útvega
sérkennara, en ekki á þeim
tíma, sem húsrýmið er til reiðu.
I fyrstunni skildi ég þessar
upplýsingar á þá leiö, að um
væri að ræða eitthvert tímabund
ið vandamál, sem góöir stjórn-
endur mundu auöveldlega leysa,
þegar fram í sækti. En það er
komið fram undir sumar, og
það hefur reynzt ráðamönnum
gjörsamlega ofviða að finna
lausn á þessu.
Ég botna ekki í því, hvers
vegna þetta er óleysanlegt. Að-
staðan er fyrir hendi á vissum
tímum og kennarar eru til taks
á vissum timum. Það eina sem
á skortir er að fá þetta hvort
tveggja til að standast á. — En
á því framkvæmdaatriði strand
ar allt saman.
Fyrst ræddi ég vandamálið v;A
kennarana, og færði það svo
í tal við skólastjórann, en leit
aði svo loks á náðir fræðslufo'-l
trúa — og íills staðar mætti ég
velvild, kurteisi og vingjam-
leika, Þeir fullvissuðu mig um
skilning sinn á vandræðum m’in
um og drengsins míns, og hve
ljós þeim væri brýn nauðsyn
þess að Ieysa úr þessu, og höfðu
enda um það mörg og góð orð.
En ekkert gerist og ekkert
virðist hægt að gera. Illt er ef
svona — að því er virðist —
einföld vandamál eru alger-
lega óleysanleg, en ennþá
verra væri. ef það stafaði að-
eins af viljaleysi eða dug-
leysi.“
■ Siálfskaparvít;
S. Ó. skrifar.
„í Aarhus Stiftstidende 1.
marz 1971 er sagt frá doktors-
ritgerð læknis, sem fjallar um
slys, er orðið hafa á bömum í
Odense á einu ári. Ibúar Odense
eru nokkru fleiri en £ Stór-
Reykjavík. Þar kemur m. a.
fram, að vikulega verður slys
af þvi að bam drekkur eitraða
vökva eöa étur sterk lyf, sem
ekki hefur verið gætt sem
skyldi, og fjórða hvem dag er
bam bitið af hundi. Mörgum
em £ fersku minni slys, sem
hafa orðið af lyfjaáti óvita
bama, sem hægt var að koma í
veg fyrir. Eigum við nú að
hætta á að bæta við um 50
slysum árlega á bömum Reyk-
vikinga, auk alls annars, ef
hundahald yrði leyft að nýju?
Trúi þvi hver sem vill, að Is-
lendingar myndu gæta hunda
sinna betur en Danir."
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
ÍHÁRTÍNGl
V-þýzk gæðavara
Spennustillat
6, 12 og 24 volt
Vér bjóðum:
6 mánoða
ábyrgð
og auk þess
lægra verð
HÁBERG H.F.
Skeifunni 3E Simi 82415
SPEGILLINN kemur út 10 sinnum á ári —
áskriftargjald er kr 420.—
Undirrít. óskar að gerast áskrifandi að SPEGLINUM.
Nafn
Heimilisfang
Staður
(( SPEGILLINN . Pósthólf 594 . Reykjavík