Vísir - 07.10.1972, Page 3
Laugardagur 7. október 1972.
3
Enginn Vísir til Akur-
eyrar á miðvikudögum
— vegna breytinga á flugi
Sárreiðir kaupendur Visis á
Akureyri hafa hringt undanfarið
og kvartað yfir þvi að fá ekki
iniðvikudagsblaðið fyrr en á
fimmtudag. llafa þeir haft orð á,
að það sé einkenniiegt að engin
flugferð skuli vera frá Reykjavik
til Akureyrar frá hádegi á mið-
vikudag til fimmtudags.
„Þessi kvöldferð á miðviku-
dögum var mjög litið nýtt og þess
vegna ákveðið að fella hana
niður” sagði Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi F.f. þegar Visir
hafði samband við hann. En hann
tók fram að þetta yrði sennilega
siðasti veturinn sem ekki væri
kvöldferð á hverjum degi milli
Reykjavikur og Akureyrar. Þá
tók Sveinn fram, að i vetur eru 17
ferðir i hverri viku miili Reykja-
vikur og Akureyrar á móti 15 i
fyrra Af þessum 17 ferðum eru 13
beinar.en áður var mikið flogið i
gegnum Húsavik til Akureyrar.
Við verðum þvi að biðja
kaupendur Visis á Akureyri og i
Eyjafirði að sýna þolinmæði á
miðvikudögum i vetur og vonum
að blaðið komist til þeirra
snemma á fimmtudögum. Yfir
sumartimann er Visir kominn til
Akureyrar litið seinna en farið er
að selja hann á götunni i Reykja-
vik. -SG.
Nýju lögin kosta
milljón á togara
llækkuð iðgjalda nemur um
fimm hundruö þúsund krónum á
ári á hvern togara, vegna nýju
laganna um tryggingar sjó-
manna, samkvæmt útreikningur
Bæjarutgerðar Reykjavikur.
Úlgeröarráð samþykkti á fundi
sinum i gær aö tryggja skipverja
á togurum BÚR til bráðabirgða
samkvæmt boði tryggingafélag-
anna. Er þelta gert i trausti þess,
að þegar samið verði um starfs-
grundvöll togaraútgerðarinnar
hálfa
— segir BÚR
fyrir komandi ár milli fulltrúa
L.i.ú. og rikisstjórnarinnar,
verði tekiö fullt tillit til þeirra
auknu utgjalda, sem hækkun ið-
gjaldauna hefur i för með sér.
— SG
AIISSKILNINGUR AÐ
VIÐ SÉUM HÆRRI
— segir forstjóri Brunabótafélagsins
„Það er algjör misskilningur að
við séum með eitthvað annað
verð á okkar slysatryggingum
til sjómanna heldur en önnur
félög. Gjaldskráin er sú sama
hjá öllum tryggingafélögunum”
sagði Ásgeir ólafsson, forstjóri
Brunabótafélagsins, þegar Visir
ræddi við hann i morgun.
Ásgeir sagði að Magnús Kjart-
ansson ráðherra hefði beðið sig að
athuga möguleika á að félagið
tæki að sér þessar tryggingar,
sem hann og gerði. Að athugun
lokinni gerði Brunabótafélagið
tilboð um heildartryggingu allra
sem skráðir væru á islenzk skip.
Þá yrði aðeins gefið út eitt
tryggingaskirteini og siðan væri
það einn aðili sem bæri ábyrgð á
greiðslu iðgjalda. Þetta tilboð
þótti ekki aðgengilegt, heldur var
ákveðið að hver útgerðarmaður
um sig gæti tryggt hjá sinu félagi.
„Þar með var okkar tilboð úr sög-
unni og þessar tryggingar fara
eftir samræmdri gjaldskrá félag-
anna. Þessi tala sem fram hefur
komið, 2.200 krónur fyrir
manninn, er ekki frá okkur kom-
in. Þessi tala virðist tilkomin
vegna hækkunar á tryggingu
skipverja á Svalbak úr 600 þús-
undum upp i 3 milljónir”, sagði
Ásgeir Olafsson.
Búizt er við að þessi lausn á
tryggingamálunum standi til ára-
móta og á þeim tima gefist þing-
mönnum tækifæri til að endur-
skoða og lagfæra þau lög, sem
þeir samþykktu einróma á siö-
asta alþingi. —SG
Það er rigning, sem hann Jón „minus”, leikbrellumeistari þeirra Brekkukotsmanna er að framleiöa.
Og þetta þurfti að gera hér i Reykjavík þar sem rignt hefur látlaust vikum og mánuðum saman. En
húsið varð að vera blautt fyrir myndatökuna og ekki hafði rignt. Alfgeir (Arni Arnason) himir upp við
vegg, en statisti i hlutverki „gamals manns” er við dyrnar. Árni Arnason fékk þarna óvænta sumarat-
vinnu, og vegna anna við kvikmyndaleik hefur námiö orðið að sitja einum um of á hakanum, sagöi hann
sjálfur i gærkvöldi, en hann er á 3. vetri við Menntaskólann við Hamrahlið. Ekki kvaðst hann ætla að
leggja leik fyrir sig i framtiðinni, en láta sér nægja endurminninguna um þessa miklu myndatöku, sem
hér hefur farið fram i sumar. — JBP—
ÞAÐ VANTAÐI RIGNINGU!
onn
Vann með fullu húsi
Þráinn Sigurðsson vann sept-
embermót Taflfélags Reykja-
vikur með fuliu húsi, 5 vinningum
af 5 mögulegum. Hann var
aldursforseti mótsins, en nú eru
nær 40 ár siðan hann tefldi með
Olympiusveit islands i Folke-
stone 1933. Þráinn var vel að sigr-
inum kontinn, vann tvo hættuleg-
ustu keppinautana. Braga Hall-
dórsson og Jón Þ. Þór I siðustu
umferðunum, 1 2. sæti varö Jón
Baldursson nteð 4 1/2 vinning, en
siðan komu Jón Þ. Þór, Jón Úlf-
Ijótsson og Palmi Sighvatsson
ineð 4 vinninga. Þátttakendur
voru 50 talsins. Næst á dagskrá
T.R. cr haustmót félagsins sem
liefst sunnudaginn 22. október.
A Olympiuskákmótinu eru
Sovétmenn að missa þá forystu
sem þeir hafa haft allt frá 1954.
Mesta áfallið var þegar Pet-
roshan tapaði gegn Hubner, V-
Þýzkalandi i 2. umfer úrslita-
keppninnar. Þetta er fyrsta tap-
skák heimsmeistarans fyrrver-
andi á Olympiumóti frá byrjun og
þótti þvi töluverður viðburður.
Islenzka sveitin hefur staðið sig
mjög vel i B-riðlinum og á góða
möguleika á sigri. A meðan beðið
er eftir skákum frá Olympiu-
mótinu skulum við lita á tvö lær-
dómsrik endatöfl.
10. Ke5 Hg4
11. g7+ Kg8
(Svartur þolir ekki hróka-
kaupin. Eftir 11.... Hxg7 12. Hxg7
Kxg7 13. Kxd5 Kf7 14. Kc6 vinnur
hvitur.)
12. Hxa7 Hgl
13. Kxd5 Hcl
14. Kd6 Hc2
15. d5 Hcl
16. Hc7 Hal
17. Kc6 Hxa4
18. d6 Gefið.
(Eftir 18. .. Hc4+ 19. Kb7 Hd4
20. d7 b5 21. Hc8+ Kxg7 22 d8D er
öll von úti).
1 1 1
;’-i • t
t
i
Í
t
A B.C D E. F G H
•
t t 1
t I
t i
t i i
i <§>
ABCOEFGH
Ilvitt: Stahlberg
Svart: Tartakower 1934.
Hér er hvitur augljóslega með
tapað tafl. Eina vonin er að svart-
ur sé full sigurviss og upp á það
teflir hvitur meö:
1. c4!
(Nú er einfaldast fvrir svartan
að leika 1....Kf6 og hiröa peðið
á g6. En hann uggir ekki að sér og
gengur i gildruna.)
Ilvitt: Capablanca
Svart: Tartakower New York
1924.
Hér er komin upp staða sem allt
gæti gerst i. Einn möguleiki er: 1.
Hd7 Hxc3+ 2. Ke 2 Hc4 3. Hxd5
Hxa4 4. Hxf5+ Kg2. 5. Ke3
með tvisýnum möguleikum. Það
var sagt um Capablanca að það
sem aðrir þyrftu vikur til að sjá,
sæi hann i sjónhendingu. Hér
sjáum við sýnishorn af snilli Capa
i endatafli.
1. Kg3! Hxc3+
2. Kh4! Hf3
3. g6 Hxf4+
4. Kg5 He4
5. Kf6!
(Með þvi að fórna tveim peðum
hefiir hvitur tryggt sér vinnings-
stöðu. Staða sem þessi sýnir
hversu mikilvægu hlutverki
kóngurinn gegnir i endatafli, en
hér er það samspil hvita kóngsins
og hróksins sem ræður úrslitum.)
1.... dxc4??
(Þar með breytist vinnings-
staða i tap.)
2. h4 a5
(Ef 2... Kf5 3. h5 Kg5 4. d5 Kf6
5. d6 Ke6 6. h6 og vinnur.)
3. h5 a4
4. Kd2 b5
5. d5+! Kd7
6. h6!
(Hvitur má engan tima missa,
þvi eftir 6. Kc3? a3 7. h6 b4 hefur
svartur bjargað sér.)
6... a3
7. Kc2! b4
8. hxg7 b3+
9. Kbl!
5. Kg8
6. Hg7 + Kh8
7. Hxc7 He8
8. Kxf5 He4
(Eftir 9. Kc3? a2 10. Kb2 c3+ 11
Kal c2 12. Kb2 alD+ ynni svart
ur.)
(Svartur gerir sitt bezta, reynir
að ná mótsókn til að trufla hvitan,
en úrslitin eru þegar ráðin.)
9. ... a2+
10. Kal! c3
11. g8D og hvitur vann.
9. Kf6
Hf4 +
Jóhann örn Sigurjónsson.
SAFNA í BJÖRGUNARHÚS
Hrærivél, kjötskrokkur, skips-
ferð til Vestmannaeyja,
klæðnaður úr tizkuverzlun og
fleira verður á hlutaveltu þeirri
cr Kvennadeiid Slysavarnar-
félagsins i Reykjavik heldur á
morgun, sunnudag og hefst hún
kl. 2.
„Ofter þörf, en nú er nauðsyn”,
segja þær kvenfélagskonurnar.
Björgunarhús er verið að byggja
á Grandagarði 1, á vegum deild-
arinnar sjálfrar og Slysavarnar-
félagsins, og byggir kvennadeild-
in sjálf efri hæðina. Hlutaveltur
Kvennadeildarinnar hafa gengið
mjög vel þegar þær hafa veriö
haldnar á haustin, en þær eru til
húsa i kjallara Iðnskólans á
Skólavörðuholti.
Segja konurnar fyrirtæki hafa
verið mjög vinsamleg og margt
muna borizt til þeirra, en á hluta-
veltunni er ekkert núll og ekkert
happdrætti.
— EA