Vísir - 07.10.1972, Síða 5
Visir Laugardagur 7. október 1972.
5
nú
Umsjón:
Þórarinn J.
Magnússon
Flugvél Hughes breytt í bót
m------------------->■
NKI, þctta er ckki flugvél Hughes lengur...þetta er hraöbátur Kenneth I.ondon!
Gömlu góðu lúxus-
flugvélinni hans
Howards Hughes hefur
nú verið breytt i sér-
deilis skemmtilega
listisnekkju. Fyrir þvi
stendur auðmaðurinn
Kenneth London.
Flugvélin er af gerðinni
Boeing 307 og er orðin 36 ára
gömul. Billjónamæringurinn
Hughes hafði af henni mikið
yndi á piparsveinsárum sinum
og varði sem svarar 22
milljónum islenzkra króna i að
gera hana sem huggulegasta.
Kn þegar svo Kenneth London
kom auga á hana fyrir um það
bil tveim og hálfu ári, var hún
nánast sagt hræ. Siðan þá hefur
Kenneth kostað i kringum eina
og hálfa milljón króna til við-
gerða á vélinni — og öllum
sinum fritima frá viðskiptum
sinum. ,,En „Londonaire”
(nafn hennar nú) á lika eftir að
vinna mér upp tima, þegar hún
kemst á flot,” segir Kenneth
sem stöðugt er á ferðalögum út
um allar trissur.
Að fjarlægðum vængjum og
stéli er fleytan 56 feta löng og 12
feta breið. Stássstofan er ein 28
fet á lengd og tekur 12 manns i
þægileg sæti. Nú, — og aðrir
geta annað hvort setzt að hinum
stóra bar við enda stofunnar —
ellegar þá bara setzt i dúnmjúk
teppin.
Kenneth væntir þess að hrað-
báturinn nái allt að 210 km
hraða á klukkustund fyrir til-
stilli þeirra 185 hestafla, sem
hann verður búinn.
Nýbreytni í danskri járnbrautarlest:
Lœra tungumál
á leið til vinnu
Kyrsti málaskóli Danmerkur á
lijólum rann af stað i siðustu viku.
Nefnilcga járnbrautarvagn, sem
flytur farþega milli Kaupmanna-
hafnar og Helsingjacyri. Fólk,
scm ferðazl hefur þessa sömu leið
frain og til baka vcgna vinnu
sinnar i lengri eða skcmmri tima
— en aldrei blandað geði saman á
þcssari 50 minútna leið.
Sú tilraun, að hefja mála-
kennslu i vögnunum virðist ætla
að gefa mjög góða raun. Allir
sýndu farþegarnir i fyrstu
ferðinni áhuga á að vera með og
er lestin rann upp að brautar
stöðinni i Helsingjaeyri voru far-
þegarnir masandi hver upp i
annan rétt eins og ættingjar, sem
eru að koma i fyrsta sinn saman
eftir margra ára aðskilnað.
— Það var merkileg lifsreynsla
að fá tækifæri til að kenna hóp svö
ólikra manneskja, sem i lestinni
voru, segir stud. mag. Katja
Smith, sem kennir ensku i
vögnunum.
Fólk verður glaðlegra
— Mörg okkar höfðu ferðast
saman i lest i áraraðir morgun
eftir morgun, vegna vinnu sinnar.
En aldrei mælt orð af vörum.
Einstaka kannski kastað kveðju á
hina um leið og komið var upp i
lestina, en siðan gripið dagblað og
skýlt sér á bak við það, þar til á
leiðarenda, segir einn
farþeganna.
— Nú erum við öll orðin dús.
Uppburðarleysið er liðin tið.
Lestrarferðirnar eru nú reglu-
legar ánægjustundir — og oftast
of fljótt á enda.
Nú má heyra samræður á
ýmsum tungumálum fara á milli
farþega. Og allir geta verið með.
Enginn þarf að vera útundan
vegna minnimáttarkenndar eða
óframfærni.
Þrjú tungumál eru kennd i
vögnunum til að byrja með,
nefnilega enska, þýzka og
franska.
Þrátt fyrir að kennslubækur
eru engar hafðar um hönd, heldur
aðeins skrifblokkir og teikningar,
gengur tungumálakennslan greitt.
Og tilkostnaðurinn er litill: 40 - 60
kennslustundir kosta ekki meira
en 960 isl. krónur.
KONUR
ATHUGIÐ
KONUR
ATHUGIÐ
r
|| Heilsurœktin HEBA auglýsir
I
m
V'ið liöfum opnað nýja og glæsilega heilsuræktarstofu að
Auöhrekku 33 þar sem fram mun fara megrunarlcikfimi
eftir sérstöku kerfi, scm eingöngu er ætlað megrun og bor-
ið liefur mjög góðan árangur. Jafnframt þvi verða timar
fyrir þær, scm aöeins vilja stunda almenna leikfimi.
Háðleggingar um mataræði, heimaæfingar og vigtun
einu sinni i viku.
Sturtuhöð, saunaböð, Ijósaböö og infrarauðir lampar,
ásamt sjampó, sápu og olium, allt á boðstólum og innifaliö
i verðinu.
Einnig verður hægt að fá líkamsnudd, partanudd og
snyrtingu eða ráðleggingar um snyrtingu.
Aðeins 20 konur i flokk i einu og æft verður 2svar.
Konur notið slíkt tækifæri, allar konur vilja lita vel út.
Innritun er hafin i simum 41989 og 42360
alla helgina.
!
Nauðungaruppboð
scin auglýst var i 14., 18. og 20. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1972 á eigninni Miðbraut 5. 1. hæð, Seitjarnarnesi,
þinglesin eign llclgu Kinnsdóttur, fcr fram eftir kröfu
Ver/.lunarbanka islands h/f á eigninni sjálfri þriðjudaginn
10. október 1972 kl. 2,30 e.h.
Sýslumaðurinn i (lullbringu- og Kjósarsýslu
TIL LEIGU
5—6 herbergja ibúð, Góð ibúð á góðum
stað. Upplýsingar i sima 34033 milli kl. 5
og 7.
Matreiðslukona og stúlka
IVIatreiðslukona og stúlka vön
eldhússtörfum óskast á hótel við borgina.
Uppl. i sima 36066.
Bílasalan við Vitatorg
auglýsir
Bilasýning i dag laugardag og á morgun
sunnudag kl. 13-19.
íbúð til sðlu miliiliðalaust
Til sölu er milliliðalaust 4 herb. risibúð i
Tjarnargötu. Mjög falleg og nýtizkuleg
ibúð. íbúðin er nýstandsétt með nýtizku
eldhúsi og baðherbergi, harðviðarklæðing
i stofu. Teppi i horn fylgja. Verð 1750 þús-
und. útborgun 850 þúsund. Uppl. i sima
14275 og utan skrifstofutima 14897.